Morgunblaðið - 26.05.2007, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. MAÍ 2007 19
Hönnun / bestun
Fjármál / stjórnun
Þróun / nýsköpun
Tölfræði / greining
Efni / varmi
Orka / umhverfi
Stýringar / sjálfvirkni
Hagkvæmni / hagnýting
VERKFRÆÐIDEILD
www.hi.is
Umsóknarfrestur er til 5. júní
Nánari upplýsingar á www.verk.hi.is
VÉLA-
OG IÐNAÐAR-
VERKFRÆÐI
Mexíkóborg. AP. | „Pabbi! Pabbi!“
hrópaði barn í farsíma Rodolfo
Melchors, 38 ára íbúa Mexíkóborg-
ar. „Elskan, þetta er ég, mér hefur
verið rænt!“ hrópaði kona.
Melchor, sem starfar við við-
gerðir á skrifstofuvélum, hringdi
strax í lögregluna og flýtti sér
heim. Eftir skelfilegustu hálfu
klukkustund sem hann hafði lifað
komst hann að því að ekkert amaði
að fjölskyldu hans.
Melchor komst hjá því að verða
fórnarlamb svikahrappa er stunda
„sýndarmannrán“, sem felast í því
að svíkja út lausnargjald án þess að
ræna nokkrum. Vopnið er ekki
byssa eða hnífur, heldur sími.
„Allt hringsnerist í höfðinu á
mér. Ég hafði aldrei heyrt son minn
og konuna mína hrópa svona í sím-
ann,“ sagði Melchor. „Og ég var í
svo miklu losti að ég gerði mér ekki
grein fyrir því að þetta var ekki
rödd konunnar minnar.“
Slík svikastarfsemi er algeng í
mörgum löndum Rómönsku Am-
eríku, m.a. Mexíkó, Brasilíu, Arg-
entínu og Gvatemala, þar sem raun-
veruleg mannrán eru líka algeng.
Fólk trúir þess vegna því versta
þegar svikahrapparnir hringja og
greiða lausnargjaldið strax, oft í
netbanka. „Þeir telja fórnarlömb-
unum trú um að þeir viti allt um
þau, hvar þau vinni, hvert þau fari
á hverjum degi og hvar börnin
þeirra séu,“ sagði talsmaður fang-
elsis í Gvatemala.
Ekki eru til áreiðanlegar upplýs-
ingar um fjölda sýndarmannrána
þar sem þau eru oftast skráð sem
rán eða árásir. Mörg fórnarlamb-
anna kæra ekki svikin þar sem þau
treysta ekki lögreglunni, telja að
hún geri ekkert í slíkum málum.
Sumir óttast að svikahrapparnir
hefni sín verði þeir kærðir en aðrir
skammast sín fyrir að láta gabba
sig með þessum hætti.
Ýmislegt bendir þó til þess að
þessi svikastarfsemi sé viðamikil. Í
brasilíska sambandsríkinu Sao
Paulo voru a.m.k. 3.000 sýndar-
mannrán kærð frá 1. janúar síðast-
liðnum til 14. febrúar. Könnun
borgaralegrar hreyfingar í Mexíkó
frá árinu 2004 bendir til þess að
36.295 sýndarmannrán hafi verið
framin þar í landi.
Mannrán sett á svið
til að svíkja út fé
Algengt að fólk sé gabbað til að greiða lausnargjald
AP
Sýndarmannrán Skilti þar sem auglýst er eftir manni sem rænt var í
Mexíkóborg. Sýndarmannrán eru algeng þar, ekki síður en raunveruleg.