Morgunblaðið - 26.05.2007, Side 27
Eva Dögg og Þorbjörn vega
skemmtilega salt á milli ólíkra stíla
og setja persónulegt mark sitt á
heimilið.
„Íbúðin er byggð í byrjun sjöunda
áratugarins og það er margt mjög
vandað frá þeim tíma og klassískt. Á
veggjum íbúðarinnar var fallegur
panell, sem við héldum á einum
vegg og eins spegill í forstofu. Þá
eru allar hurðir upprunalegar. Nú
er hins vegar hægt að horfa úr eld-
húsinu og inn í stofu og öfugt og
sameiginlega rýmið er stærra en áð-
ur og íbúðin bjartari. Okkur hefur í
rauninni liðið hér eins og í einbýlis-
húsi, á toppi tilverunnar,“ segir Eva
Dögg.
– En hvað er það sem gerir heim-
ili að heimili að ykkar mati?
„Ég myndi nú segja myndir,
myndir og listaverk. Hlutir sem
hafa merkingu fyrir mig. Heimili
sem er fullt af hlutum sem ekki hafa
merkingu fyrir þá sem búa þar
finnst mér ekki geta verið sjarm-
erandi,“ segir Eva Dögg og Þor-
björn er sammála því. „Maður kaup-
ir ekki heimili, maður skapar sér
heimili,“ áréttar karlmaðurinn á
heimilinu.
uhj@mbl.is
Barnahornið Trésnaginn er í stíl við gamaldags rúm krónprinsins Tómas-
ar Friðriks sem leikur sér í því sæll og glaður jafnt sem sefur.
„Það er vissulega gaman
að því að skapa heimilið
eftir eigin höfði en það
getur líka tekið á.“
úr bæjarlífinu
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. MAÍ 2007 27
Frá höfninni berast þær fréttir að
grásleppuvertíðin sé hafin. Veiði-
tímabilið við innanverðan Breiða-
fjörð hófst 20. maí og hafa leyfis-
hafar 50 daga til að stunda veiðar.
Sú var tíðin að grásleppubátar
voru tilbúnir í startholunum þegar
flautað var til leiks og svo hófst
kapphlaup til að ná í bestu neta-
stæðin. Stykkishólmur var ein af
mikilvægustu löndunarhöfnum
landsins og margir sjómenn höfðu
atvinnu af grásleppuveiðum. Nú fer
vertíðin hins vegar rólega af stað.
Reiknað er með að 7 bátar stundi
grásleppuveiðar frá Stykkishólmi í
sumar og er það um helmings-
fækkun báta frá því sem áður var.
Þessar fréttir koma ekki á óvart því
lágt hráefnisverð ræður ferð og er
talað um að 30.000 kr. fáist fyrir
hrognatunnuna.
„Senn er vor um Breiðafjörð.“ Í lok
apríl var slegið hitamet í Stykkis-
hólmi og það þarf mikið til því að
veðurmælingar hafa verið stundaðar
hér samfellt í 160 ár. Íbúar fylltust
bjartsýni um að vorið væri komið og
hlökkuðu til að njóta vorkomunnar
við slík skilyrði. En það stóð ekki
lengi. Síðan þá hefur tíðarfar verið
lítið skemmtilegt, kuldalegt um að
litast. Vorverkin í húsagörðum eru
unnin með vettlingum og þykku höf-
uðfati. Veðráttan hefur sett mark
sitt á gróðurinn sem fer rólega af
stað. Fólk talar um að veðráttan í
maí valdi oftar vonbrigðum en að
hún standist væntingar fólks. Litlar
líkur eru á að hitamet verði slegið í
þessum mánuði.
Kosningar eru afstaðnar. Í þessu
stóra kjördæmi hefur kosningabar-
áttan breyst. Með stækkun kjör-
dæma hafa frambjóðendur fjarlægst
kjósendur sína mikið. Kosningabar-
áttan fer fram að miklu leyti í fjöl-
miðlum, með dreifipósti og svo dag-
legum skoðanakönnunum sem
eflaust hafa ruglað marga í ríminu.
Hér áður fyrr höfðu frambjóð-
endur betra tækifæri að hitta kjós-
endur og kynna sig og málefni sem
þeir voru að berjast fyrir. Nú eru
vegalengdir miklar innan kjördæm-
isins og frambjóðendur á eilífum
akstri. Frambjóðendur í efstu sæt-
um á listum flokkanna óku hundruð
kílómetra síðustu daga fyrir kosn-
ingar á meðan frambjóðendur á höf-
uðborgarsvæðinu þurftu ekki að
fara út fyrir bæjarmörkin.
Ný ríkisstjórn hefur verið mynduð.
Það eru margir í Hólminum óánægð-
ir með að Sturlu Böðvarssyni skuli
hafa verið kippt út úr ríkisstjórn.
Hann hefur staðið sig vel sem sam-
gönguráðherra og hafa Snæfellingar
og aðrir landsmenn notið góðs af
verkum hans í samgöngumálum. Þó
svo að talað sé um að embætti for-
seta Alþingis sé ígildi ráðherrastarfs
erum við því ekki sammála.
Ferðaþjónustan er veigamikill þátt-
ur í atvinnulífi Hólmara. Ferðamenn
eru farnir að láta sjá sig á götum
bæjarins. Margir nemendahópar
hafa komið og farið í siglingu um
Breiðafjörð með Sæferðum. Skipa-
vík hf. skilaði í gær 6 íbúða raðhúsi
sem verður notað til útleigu fyrir
ferðamenn. Það eru hjónin Jónína
Ebenezersdóttir og Böðvar
Valgeirsson sem eru eigendur húss-
ins. Þau eiga fyrir annað raðhús með
jafnmörgum íbúðum sem þau leigja
út.
STYKKISHÓLMUR
Gunnlaugur Árnason fréttaritari
Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason
Safnaflóra Vatnasafnið var opnað í
maí. Það mun draga til sín gesti,
jafnt innlenda sem útlenda.
Það er alltaf ánægjulegt þegarVísnahorninu bætast nýir
liðsmenn. Ármann Þorgrímsson er
fæddur 1932 og ekki dauður enn.
Hann lýsir sér best sjálfur:
Ævin senn á enda er liðin
orðinn gamall bæði og ljótur
vitlaus mestöll vinstri hliðin
visin hönd og bólginn fótur.
Ýmislegt er að mér fleira
illa þoli brennivín
heyrnarlaus á hægra eyra
hamlar gláka augum sýn
Endurtaka óhöpp sig
orðinn mesti sauður
elliglöpin ergja mig
ég ætti að vera dauður
Ármann sat gjarnan með
Hjálmari Jónssyni að spilum um
jólaleytið og voru þá ortir heilu
bálkarnir. Eitt kvöldið var fyrsta
vísan svona:
Þá er fyrst til þess að taka
þreyttir sátu menn við spil
en þegar tók að þyngjast vaka
þessar stökur urðu til.
Ármann var staddur á
kosningaskrifstofu G-listans á
Akureyri ásamt Stefáni Jónssyni
þingmanni og fleirum þegar
ákveðið var að yrkja kosningavísu
og varð hann fyrstur til:
Ef þú vilt að ekki sé
óstjórn hér í landi
kjóstu Stefán, kjóstu G!
Hvað er minni vandi?
Hvað varðar lýsinguna á
heilsufarinu yrkir séra Hjálmar til
Ármanns á leirnum, póstlista
hagyrðinga:
Áður þekktu allir smiðinn
sem orti pólitíska bragi.
Nú er einkum hægri hliðin
hress og enn í góðu lagi.
Inni á Leirnum okkur semur,
illa er varla nokkur sleginn.
En alltaf er gott ef einhver kemur
sem er í lagi hægra megin.
VÍSNAHORNIÐ
Af hægri
hliðinni
pebl@mbl.is
áratugum en þeim er
þó enn hætt við að
fjúka, sem um leið get-
ur verið hættulegt fyrir
bílinn, sem dregur þau.
Hann getur fokið með.
Og jafnvel þótt hjól-
hýsin fjúki ekki heldur
sveiflist til geta þau
skapað hættu í umferð-
inni.
Þess vegna skiptir
miklu máli að þeir sem
eru með hjólhýsi eða
tjaldvagna í togi fari
varlega í umferðinni
sjálfs sín vegna og ann-
arra. Bílar með þessi
hús aftan í sér eiga ekki
að vera á ferð í miklu roki. Þeir eiga
heldur ekki að fara fram úr öðrum
bílum og þeir eiga yfirleitt að hafa
hægt um sig á vegunum.
Það er mikilvægt að hjólhýsa-
eigendur átti sig á þessu sem þeir
gera vafalaust. Þeir hafa auðvitað
engan áhuga á að stofna þessum
eignum sínum í hættu eða verða
þess valdandi að þeir sjálfir verði
fyrir einhvers konar tjóni.
Það er ekki úr vegi að hin athafna-
sama lögregla höfuðborgarsvæð-
isins, sem nú er að finna á hverju
götuhorni og enginn friður er fyrir
brýni varkárni fyrir ökumönnum,
sem eru með hjólhýsi á ferð.
Þrátt fyrir kuldannþessa dagana er
sumarið að ganga í
garð og þar með hefj-
ast ferðalög lands-
manna um landið.
Raunar má gera ráð
fyrir að þau byrji um
þessa helgi, hvíta-
sunnuhelgina.
Fyrir nokkrum ára-
tugum gekk hér yfir
hjólhýsabylgja. Margir
keyptu sér hjólhýsi og
fóru um landið með
þau í eftirdragi. Það
reyndust erfið ferða-
lög. Vegir voru þá
verri en nú og svo kom
í ljós að sviptingasamt veður hentaði
hjólhýsum illa, stundum fuku þau út
af veginum.
Nú heyrir Víkverji að ný hjólhýsa-
bylgja sé að ganga yfir – og þá ekki
bara hjólhýsi heldur líka tjaldvagnar
og húsbílar.
Þess vegna má gera ráð fyrir að í
sumar verði mikið af bílum á ferð um
landið með hjólhýsi og tjaldvagna á
eftir sér. Hjólhýsaumferðin gerir
umferðina um þjóðvegina enn erf-
iðari en hún þó er og er hún erfið
fyrir, ekki sízt vegna vöruflutn-
ingabílanna.
Hjólhýsin eru sjálfsagt fullkomn-
ari nú en þau voru fyrir nokkrum
víkverji skrifar | vikverji@mbl.is
Nicotinell nikótínlyf fást án lyfseðils og eru notuð sem hjálparefni til þess að hætta eða draga úr reykingum. Til að ná sem bestum árangri skal ávalt fylgja leiðbeiningum í
fylgiseðlinum með lyfinu. Skammtar eru einstaklingsbundnir og eru ákvarðaðir eftir því hversu mikið er reykt, en þeir mega þó aldrei vera stærri en 25 stykki á dag. Leita skal til
læknis eða lyfjafræðings ef þörf er á frekari upplýsingum. Þeir sem fengið hafa ofnæmi fyrir nikótíni eða öðrum innihaldsefnum lyfsins, fengið hjartaáfall nýlega, óstöðuga eða
versnandi hjartaöng, alvarlega hjartsláttaróreglu eða heilablóðfall nýlega eiga ekki að nota Nicotinell nikótínlyf. Börn undir 15 ára aldri, þungaðar konur og konur með barn á
brjósti skulu ekki nota lyfið nema að læknisráði. Lesið allan fylgiseðilinn áður en byrjað er að nota lyfið. Markaðsleyfishafi: Novartis Healthcare. Umboð á Íslandi: Artasan,
Kirkjulundi 17, 210 Garðabæ.
PRÓFAÐU NICOTINELL NIKÓTÍNTYGGIGÚMMÍIÐ.
SAMA GÓÐA BRAGÐIÐ, NÚ Í NÝJUM PAKKNINGUM.
FÆST MEÐ ÁVAXTA-, MINTU-, LAKKRÍS- OG NIKÓTÍNBRAGÐI.
NJÓTTU LÍFSINS ÁN SÍGARETTUNNAR