Morgunblaðið - 26.05.2007, Side 31

Morgunblaðið - 26.05.2007, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. MAÍ 2007 31 Veitingahús til sölu! Skrifstofur okkar í Reykjavík og Hafnarfirði eru opnar alla virka daga frá kl. 9-17 Runólfur Gunnlaugsson viðskiptafr., lögg. fast.- og skipasali Kristín Pétursdóttir, lögg. fasteignasali Sími: 533 6050 www.hofdi.is Stórt veitingahús til sölu í stóru bæjarfélagi á höfðuborgarsvæðinu. Um er að ræða rekstur með góðri veltu í eigin húsnæði. Húsnæðið telur tvo veitingasali, eldhús með öllu og spilasal. (Gullnáman) Mikil spilun. Nánari upplýsingar veitir Ásmundur Skeggjason á Höfða fasteignasölu í síma 565 8000. SÖLUSÝNINGAR UM HVÍTASUNNU -ÞRJÚ ÁHUGAVERÐ SUMARHÚS - Heitt á könnunni! Á sunnudag og mánudag taka eigendur þriggja vel staðsettra bústaða á móti ykkur í helgarskapi: VIÐ LJÓSAFOSS Sumarbústaður á eignarlóð rétt hjá Ljósafossstöðinni í Grímsnesi í næsta nágrenni við helstu náttúru- perlur Suðvesturlandsins. Bústaðurinn sem er 73 fm að grunn- fleti með auka 30 fm svefnlofti, stendur á 1,3 hektara eignarlandi með liðandi í gegn. Hann getur nýst sem heilsársbústaður. Bústaðurinn er með rafmagni, hitaveitu og köldu vatni og afrennslið er nýtt í heitan pott sem er á pallinum. 12 fm geymsluskúr er við bústaðinn og tvöfaldur ísskápur með frysti og þvottavél fylgja. 74 km eru frá Reykjavík. VIÐ BÚRFELL Glæsilegur 42 fermetra sumarbú- staður í hjarta Borgarfjarðar. Bústaðurinn stendur í landi Bjarna- staða, Hvítársíðuhreppi, steinsnar frá Húsafelli. Hraunfossar með Barna- fossi, hellar eins og Surtshellir og Víðgelmir eru dæmi um náttúruperl- urnar sem finna má í nágrenninu. Allur frágangur bústað- arins að utan og innan er hinn snyrti- legasti. Með honum fylgir 10 fermetra köld geymsla sem nýtist mjög vel. Verönd er fyrir framan bú- staðinn og er góður skjólveggur á hluta af veröndinni. VIÐ APAVATN Glæsilegt og vel staðsett sumarhús við Apavatn í Grímsnes- og Grafn- ingshreppi. Húsið stendur á fallegum stað rétt við vatnið með einstakt 360 gráðu útsýni. Húsið sem stendur á 1 hekt- ara eignarlóð er heilsárshús byggt úr finnskum límtrésbjálkum þar sem vandað er til alls frágangs. Húsið ski- last fullbúið með innréttingum og gólfefnum. Um 100 fm verönd er umhverfis húsið en það er sjálft 85 fm auk 35 fm svefnlofts. Stutt er í alla þjónustu í Reykholti og Laugarási. LEIÐARLÝSING: Ekið er austur yfir fjall og í gegnum Grímsnesið, keyrt er framhjá Svínavatni og afleggjaranum sem liggur að Laugarvatni í 7,5 km. Þegar komið er framhjá Mosfelli er beygt til vinstri við skilti sem á stendur Sel/Hagi. Eftir það er ekið í 2,5 km að skilti merktu Vatnsholti en þá er beygt til vinstri í átt að Apavatni. Stuttu síðar sést húsið á vinstri hönd. Ferðatími er áætlaður um klukkustund.Halldór Ingi Andrésson Löggiltur fasteigna-, fyrirtækja- og skipasali GSM. 840-4042 Nánari upplýsingar gefur Halldór Ingi Andrésson í síma 840-4042. NOKKUÐ hefur verið rætt um valkosti um ríkisstjórnarmynstur eft- ir nýafstaðnar Alþingiskosningar og hafa fjölmiðlar, sér í lagi Morgun- blaðið, verið iðnir við að koma „sök“ á okkur í VG fyrir að „klúðra“ málum. Hvert skyldi nú „klúðrið“ vera? „Klúðrið“ er að sjálfsögðu ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar en leitun er að fólki sem hefði valið þennan sambræðing sem fyrsta kost. Fremur hefðu menn viljað sjá stjórn til vinstri, VG, Samfylkingu og Fram- sókn með eða án Frjálslyndra eða þá ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og VG. Nokkur orð um þetta. Ef stjórnar- andstaðan hefði fellt ríkisstjórnina tel ég næsta víst að Vinstrihreyfingin – grænt framboð, Samfylkingin og Frjálslyndi flokkurinn hefðu myndað ríkisstjórn. Ég tel að þessir flokkar hefðu náð saman þrátt fyrir ágrein- ing um ýmis mikilvæg málefni. Á þetta reyndi hins vegar ekki af þeirri einföldu ástæðu að ríkisstjórnin hélt velli þótt naumt væri. Eftir kosning- arnar gaf Geir H. Haarde forsætis- ráðherra það sterklega til kynna að ríkisstjórnin myndi sitja áfram og var því slegið upp í fjölmiðlum, þar á meðal á forsíðu Morgunblaðsins. Þótt ýmsir væru vantrúaðir á þetta vildu hinir sömu ekki heldur trúa hinu að hér kynnu að vera um vísvitandi blekkingar að ræða, hvorki af hálfu forsætisráðherra né fjölmiðla sem gefa sig út fyrir að flytja áreiðanlegar fréttir. Þessar aðstæður virtum við og fylgdum þar góðum hefðum með því að efna ekki til formlegra þreifinga á meðan stjórnarflokkarnir leiddu sín mál til lykta. Hefði framhald á sam- starfi þeirra ekki gengið eftir er ljóst að umboðið til stjórnarmyndunar hefði komið til ráðstöfunar úr hendi forseta Íslands. Að vísu hefði Geir H. Haarde getað nálgast aðra flokka. Sú varð reyndar raunin og kaus hann að hefja viðræður við Samfylkingu í samkomulagi við formann þess flokks um að umboðinu yrði ekki skilað til Bessastaða. Samfylkingin ber það fyrir sig að ekki hefði þýtt að reyna myndun rík- isstjórnar Samfylkingar, VG og Framsóknar. Ingibjörg Sólrún Gísla- dóttir hefur látið í veðri vaka að orð- sendingar hafi borist frá VG um að gagnvart þessum kosti væri tregða og að ljóst væri að erfitt kynni að reyn- ast að mynda slíka ríkisstjórn. Tínd voru til ýmis gagnrýnin ummæli for- svarsmanna VG um Framsókn til að sýna fram á þetta. Vissulega á þetta við nokkur rök að styðjast. Fram- sóknarflokkurinn hefur farið með þau ráðuneyti á und- anförnum árum sem mestur ágreiningur hef- ur verið um á milli rík- isstjórnar og VG: iðn- aðarráðuneyti og viðskiptaráðuneyti, les Kárahnjúkar og einka- væðing. Samfylking tók ekki eindregna afstöðu til þessara miklu deilu- mála þannig að allt átti að geta fallið í ljúfa löð á milli hennar og Fram- sóknar. Einnig er á hitt að líta að Framsókn hafði í kosninga- baráttunni hótað áframhaldandi stór- iðjustefnu, nokkuð sem Samfylking var með loðna og óræða afstöðu til gagnstætt afdráttarlausri afstöðu VG. Er undarlegt að forsvarsmenn VG skuli við slíkar aðstæður vara við því að þungt kynni að reynast að ná saman? Þetta er einfaldlega nokkuð sem kallast raunsæi og flokkast það undir heiðarleika að vilja ræða op- inskátt að menn hlaupa ekki faðm í faðm án skilyrða við slíkar aðstæður. Hvað þá með tilboð VG til Fram- sóknar um að styðja minnihlutastjórn VG og Samfylkingarinnar? Það hefur verið gagnrýnt að hreyft skuli hafa verið við þeirri hugmynd opinberlega áður en hún fékk að berast Fram- sóknarflokknum. Vissulega kann það að hafa orkað tvímælis. Hins vegar er það svo að forsvarsmenn í Framsókn- arflokknum höfðu sagt fyrir kosn- ingar að ef flokkurinn fengi slæma útreið myndi hann ekki taka þátt í ríkisstjórn. Meðal annars í ljósi þessa komu fram vangavelturnar um það hvort Framsókn kynni að vilja veita minnihlutastjórn VG og S stuðning, þ.e. myndi verja slíka stjórn falli. Ég benti á það í útvarpsviðtali að í Fram- sókn væru frá gamalli tíð félagslegir þræðir og ef áhugi væri að skerpa þær áherslur væri þetta tækifæri til þess. Allt var þetta hugsað á vinsam- legum nótum. Framsókn tók málið hins vegar óstinnt upp og talaði eins og flokk- urinn væri kominn úr mikilli sigurgöngu og spurði hvað menn vildu eiginlega upp á dekk með tali um að flokk- urinn sæti utan stjórnar og verði minnihluta- stjórn félagshyggju- fólks. Gleymd voru og grafin glóðvolg ummæli um að flokkurinn myndi hlusta á rödd kjósenda og vera utan stjórnar ef útkoman úr kosningunum yrði flokknum mjög óhagstæð. Jafnframt hugmyndum um minnihlutastjórn hömruðu for- svarsmenn VG á því öllum stundum að þrátt fyrir framangreinda ann- marka hefði samstjórn með Framsóknarflokki ekki verið blásin út af borðinu. Þegar Sjálfstæðisflokkur og Fram- sóknarflokkur síðan slitu samstarfi sínu buðu formenn VG og Framsókn- arflokks að þeir myndu styðja það að formanni Samfylkingar yrði veitt um- boð til myndunar ríkisstjórnar sem hallaði út í vinstri kantinn. Það tilboð þekktist Ingibjörg Sólrún Gísladóttir ekki enda þá komin í nána samvinnu við Sjálfstæðisflokk um myndun rík- isstjórnar. Ég er þeirrar skoðunar að sam- starf Sjálfstæðisflokks og Samfylk- ingar sé ávísun á veika ríkisstjórn en jafnframt mjög hægrisinnaða stjórn. Stjórnarmyndunarviðræðurnar og stjórnarsáttmálinn hafa enda fært okkur heim sanninn um að sú sé raunin. Ég tók rökum þeirra sem vildu afstýra þessu samstarfi og töldu betri kost fyrir íslenskt samfélag að mynda ríkisstjórn hinna raunveru- legu póla í íslenskum stjórnmálum, VG og Sjálfstæðisflokks. Í því liggur meint „klúður“ forsvarsmanna VG að þeir buðu sig ekki fala í kapphlaupi við Samfylkinguna um þetta samstarf og einnig þá í hinu að hafa ekki verið reiðubúnir að bjóða Framsókn- arflokki stjórnarsamstarf án skil- yrða. Svo ódýr er Vinstrihreyfingin – grænt framboð ekki. Ögmundur Jónasson skrifar um aðdragandann að myndun nýrrar ríkisstjórnar »Ég er þeirrar skoð-unar að samstarf Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar sé ávísun á veika ríkisstjórn … Ögmundur Jónasson Höundur er þingmaður VG. Svo ódýr er Vinstri- hreyfingin – grænt framboð ekki VEISTU, að í veröldinni er til afl sem þekkir alla þína drauma. Það veit hverjar hugsanir þínar eru, það þekk- ir þínar hjartans þrár og skilur þig jafnvel betur en þú gerir sjálfur. Það veit hvort þú situr, stendur eða liggur og veit jafnvel hve höfuðhár þín eru mörg. Þetta er sama aflið og blés í þig lífi. Sama aflið og reisti Jesú Krist upp frá dauðum og sama aflið og velti steininum forðum frá hinni austurlensku gröf þar sem hann hafði verið lagður. Það var reyndar ekki til þess að Jesús kæmist út úr gröfinni heldur til þess að við sæjum inn í hana. Hann var uppris- inn! Hann lifir! Jafnvel enn þann dag í dag, þótt ótrúlegt sé. Og hann býður þér að lifa með sér. Og ekki aðeins núna eða um stundarsakir heldur um alla eilífð. Heilagur andi Við erum að tala um heilagan anda Guðs. Ósýnilegt afl, sem þó er allt í kringum okkur. Afl sem vill okkur vel, jafnvel betur en við höfum vit á að skynja eða meðtaka. Og ávextirnir eru allt í kringum okkur, þótt okkur hætti vissulega til að hætta að veita þeim athygli. Við erum að tala um anda sköp- unarinnar, anda næringarinnar. Aflið sem vekur frá doða, drunga og dauða. Við erum að tala um lífsaflið sjálft. Allt í kringum okkur Þetta afl er allt í kringum okkur og vill fá leyfi frá okkur til þess að anda á okkur og til þess að fá að hafa áhrif á okkur, okkur til góðs. Við erum bara eitthvað svo skelfing áttavillt og ringl- uð í tilboðum tíðarandans að við vitum oft varla okkar rjúkandi ráð. Vitum oft varla hver við erum eða hvert við viljum stefna. Vitum oft varla hvort við erum að koma eða fara. En þetta lífsins afl þekkir þig og ber um- hyggju fyrir þér, elskar þig út af lífinu. Það þekkir hugrenningar þína og hvert hjarta þitt innst inni þráir að stefna. Þetta afl býðst til þess að anda sínum ferska og svalandi blæ blessunar sinnar á þig. Anda hugg- unar og stuðnings, upp- örvunar og hvatningar, bjartsýni, gleði og varanlegrar hamingju. Strax í dag Leyfðu þessu lífsins afli, anda eilífð- arinnar að anda á þig og leika um þig, strax í dag. Leyfðu því að vekja þig, hreinsa þig og næra. Fylla þig fegurð, tilgangi og lífi. Lífi fylltu af von í nútíð og framtíð. Markvissri og heillavæn- legri stefnu fyrir sjálfan þig, sam- ferðamenn þína og umhverfi. Um síðir mun aflið umrædda svo opna fyrir þér himinsins hlið, dyrnar að hinum óviðjafnanlega og eilífa bláma. Njóttu þess því að vera. Njóttu þess því að vera, núna. Lifa deginum í dag, í eftirvæntingu vegna þess sem koma skal, vegna þess sem þú átt í vændum. Því að þú átt sjálft lífið framundan og það gerir daginn í dag svo spennandi. Það gerir daginn í dag þess verðan að við lifum honum til fulls. Gleðilega hvítasunnu! Gleðilegt sumar! Lifi lífið! Ferskur andblær Sigurbjörn Þorkelsson skrifar í tilefni hvítasunnu Sigurbjörn Þorkelsson » Við erum að tala umanda sköpunarinnar, anda næringarinnar, aflið sem vekur frá doða, drunga og dauða með ferskum og svalandi blæ blessunar sinnar. Höfundur er rithöfundur og fram- kvæmdastjóri Laugarneskirkju.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.