Morgunblaðið - 26.05.2007, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. MAÍ 2007 37
Við vorum 5 ára
þegar við kynntumst, í
tímakennslu hjá Vig-
dísi Blöndal.
Þar myndaðist sérstakt samband
sem aldrei rofnaði eða bar skugga á.
Við vorum báðar fæddar í júní
með aðeins dags millibili. Við vorum
samt ólíkar að eðlisfari og skoðanir
okkar fóru ekki alltaf saman. Okkur
varð þó aldrei sundurorða.
Hún ólst upp í vesturbænum, ég í
austurbænum. Hún fór í Miðbæjar-
skólann, ég í Austurbæjarskólann.
Við fermdumst sama daginn. Báðar
veislurnar voru haldnar í Gyllta saln-
um á Hótel Borg. Létt skilrúm
skildu gestina að.
Við urðum skátar og auðvitað í
sama flokki! Hún fór í Versló, ég í
Menntó.
Seinni heimsstyrjöldin var í al-
gleymingi. Hún giftist Bonna sínum
✝ Jónína VigdísKristjánsdóttir
Schram fæddist á
Vesturgötu 36 í
Reykjavík 14. júní
1923. Hún lést í
Reykjavík 28. mars
síðastliðinn og var
útför hennar gerð
frá Dómkirkjunni 3.
apríl.
og eignaðist fyrstu
börnin. Ég fór til
Bandaríkjanna í nám.
Um leið og ég kom
heim eftir nokkurra
ára fjarveru fór ég
beint til Nennu í
kvöldkaffi. Spenning-
ur og ómæld gleði
blossaði upp við end-
urfundinn. Þegar ég
loks fór heim í morg-
unsárið og Nenna fór
fram í eldhús með
óhreinu bollana og
tóma kaffikönnuna,
kom hún auga á óupptekinn kaffi-
poka sem hún hafði ætlað okkur.
Hún hafði gleymt að setja kaffið í
könnuna og aðeins hellt upp á smá-
mola af „exporti“!
Svo gaman hafði verið hjá okkur.
Nenna hafði mikla persónutöfra
sem fór ekki framhjá neinum. Hún
hafði líka sinn sérstaka stíl, bæði í
klæðaburði og í hýbýlum sínum. Á
heimili hennar var afskaplega nota-
legt að koma.
Hún bar einkenni Schramanna, en
á síðari árum varð hin virðulega
reisn, sem Láru móður hennar
prýddi, áberandi í fari hennar.
Blessuð og þökkuð sé minning
hennar.
Kristín.
Vigdís Kristjánsdóttir
Schram
Elsku Emma Katr-
ín.
Það er sorglegt að
þú sért farin frá okkur
úr Neshömrunum, líf-
ið hér í götunni er svo tómlegt án þín.
Enginn fyllir í þitt skarð, það var
alltaf svo mikið líf og fjör í kringum
þig, þú alltaf svo glöð, skemmtileg og
gefandi. Við áttum margar góðar
stundir saman, öll leikritin sem við
sömdum, æfðum og sýndum við
mikla hrifningu áhorfenda. Allar
fjörugu stundirnar á trampólíninu í
garðinum hjá þér. Við að búa okkur
til samlokur eftir skólann og sund-
ferðirnar með pabba þínum voru
alltaf jafn skemmtilegar. Sumarbú-
staðarferðin sem þú komst í með
okkur fjölskyldunni síðasta sumar
var frábær. Við fórum út á vatn á bát
og fengum að stýra bátnum hjá
pabba, við veiddum marga silunga
og þér leist ekki á þegar ég fór að
✝ Emma KatrínGísladóttir
fæddist í Reykjavík
3. júlí 1998. Hún lést
á Barnaspítala
Hringsins 16. maí
2007. Emma Katrín
var jarðsungin frá
Grafarvogskirkju
25. maí sl.
halda á þeim með ber-
um höndum, þú prins-
essan þurftir að setja á
þig vetlinga til að geta
haldið á þeim. Emma
afmælis-prinsessa,
alltaf svo fín og sæt í
kjól og fallega greidd,
mætt í afmæli helst
fyrst. Þú gast ekki
beðið því þú varst svo
áhugasöm um hvað
væri í gangi, hvaða
leikir, hvernig verð-
laun og auðvitað
hvernig pítsa væri í
boði. Í átta ára afmælinu þínu í
fyrrasumar var sannkölluð tívolís-
temning, hoppukastali og trampólín í
garðinum og þá var kátt í höllinni og
þú elsku Emma afmælis-prinsessa
naust þín þvílíkt. Gleðin ljómaði úr
þínum fallegu bláu augum, hver
hefði trúað því að þetta væri síðasti
afmælisdagurinn þinn, þú þessi
hrausta duglega stelpa. En þér hefur
verið ætlað eitthvert sérstakt hlut-
verk á æðri stað. Elsku Emma mín,
allar þessar góðu minningar um þig
ætla ég að geyma í hjarta mínu, um
alla eilífð.
Elsku Gréta, Gísli, Baldvin og
Greipur, biðjum Guð að gefa ykkur
styrk til að takast á við þessa miklu
sorg. Ljós Emmu mun lýsa að eilífu.
Leiddu mína litlu hendi,
ljúfi Jesús, þér ég sendi,
bæn frá mínu brjósti, sjáðu,
blíði Jesús, að mér gáðu.
Þín vinkona,
Arna Björk.
Elsku Emma Katrín. Nú ert þú
farin frá okkar jarðneska lífi inn í
annan heim þar sem aðrir taka við
þér opnum örmum og gæta þín.
Þær eru margar minningarnar
sem við eigum í hjarta okkar um þig
hér úr frístundinni. Minningar um
káta, glaða og fjöruga stúlku. Stúlku
sem þekkti alla og átti alltaf til bros
og falleg orð handa þeim sem þurftu
á að halda. Takk, takk Emma Katrín
fyrir það að leyfa okkur að njóta
margra ánægjulegra stunda með þér
hér hjá okkur.
Hver lítil stjarna sem lýsir og hrapar,
er ljóð sem himinninn sjálfur skapar.
Hvert lítið blóm sem ljósinu safnar,
er ljóð um kjarnann sem vex og dafnar.
Hvert lítið orð sem lífinu fagnar,
er ljóð við sönginn sem aldrei þagnar.
(Davíð Stefánsson)
Kæra fjölskylda við vottum ykkur
okkar dýpstu samúð.
Starfsfólk frístundaheimilis-
ins Simbaðs sæfara.
Emma Katrín Gísladóttir
Tengdafaðir minn
Skarphéðinn Guðjóns-
son er látinn. Hann
fékk að fara eins og
hann hafði óskað sér,
fljótt og án þess að þurfa að dvelja
á sjúkrahúsi. Vann fram á síðasta
dag og frítímarnir fóru í ferðalög.
Hann var nýbúinn að kaupa sér
nýjan jeppa sem var breyttur að
hans þörfum. Aðeins átti eftir að
setja ferðahýsið aftan á pallinn. Þar
hafði hann ætlað sér og hundunum
✝ SkarphéðinnGuðjónsson fædd-
ist á Rifshalakoti í
Ásahreppi 25. júní
1924. Hann lést laug-
ardaginn 3. mars síð-
astliðinn og fór útför
hans fram frá Hafn-
arfjarðarkirkju 14.
mars.
pláss, en þeir voru
oft hans bestu ferða-
félagar.
Tengdafaðir minn
var ljúfmenni sem
börn og dýr áttu sér
öruggt skjól hjá og
því ekki að undra að
við börnin hans og
tengdabörn séum
hálf-lömuð því að
þetta bar svo brátt
að, en þannig hafði
hann óskað sér að
fara.
Spor hans lágu
víða um landið og margt fékk hann
að reyna, td. var hann einn af þeim
sem fóru á Vatnajökul er flugvélin
Geysir fórst þar, en allir vita að
þetta var engin skemmtiför og að-
eins ætluð hinum mestu afreks-
mönnum. Það var mikið lán þegar
hann kynntist tengdamóður minni
en þau voru mjög samhent í því að
ferðast um landið þvert og endi-
langt og flest sumur fóru þau í
ferðalög. Hún lést langt fyrir aldur
fram árið 1988. Þau voru svo sann-
anlega samhent, áttu meira að
segja sama afmælisdag og fædd
sama ár.
Það eru margar minningarnar,
bæði í sorg og gleði, en sem betur
fer eru það gleðistundirnar sem eru
fleiri.
Nú að leiðarlokum kveð ég þig,
kæri tengdafaðir minn, með kærri
þökk fyrir það sem þú varst okkur.
Guð geymi þig.
Málfríður Haraldsdóttir.
Skarphéðinn
Guðjónsson
Morgunblaðið birtir minning-
argreinar alla útgáfudagana.
Skil | Greinarnar skal senda í
gegnum vefsíðu Morgunblaðsins:
mbl.is – smella á reitinn Senda
efni til Morgunblaðsins – þá birtist
valkosturinn Minningargreinar
ásamt frekari upplýsingum.
Skilafrestur | Ef birta á minning-
argrein á útfarardegi verður hún
að berast fyrir hádegi tveimur
virkum dögum fyrr (á föstudegi ef
útför er á mánudegi eða þriðju-
degi). Ef útför hefur farið fram
eða grein berst ekki innan hins til-
tekna skilafrests er ekki unnt að
lofa ákveðnum birtingardegi. Þar
sem pláss er takmarkað getur birt-
ing dregist, enda þótt grein berist
áður en skilafrestur rennur út.
Lengd | Minningargreinar séu
ekki lengri en 3.000 slög (stafir
með bilum - mælt í Tools/Word
Count). Ekki er unnt að senda
lengri grein. Hægt er að senda ör-
stutta kveðju, HINSTU KVEÐJU,
5-15 línur, og votta þeim sem
kvaddur er virðingu sína án þess
að það sé gert með langri grein.
Ekki er unnt að tengja viðhengi
við síðuna.
Formáli | Minningargreinum
fylgir formáli, sem nánustu að-
standendur senda inn.
Minningargreinar
✝
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug
vegna andláts og útfarar sambýlismanns míns,
föður, tengdaföður, bróður, afa og langafa,
ODDGEIRS HALLDÓRSSONAR,
Ferjubakka,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir eru færðar starfsfólki á deild 11-E,
krabbameinsdeild Landspítalans við Hringbraut,
fyrir góða umönnun.
Sigurbjörg Guðvarðardóttir,
Hörður Oddgeirsson, Kristín Hafsteinsdóttir,
Hanna Halldórsdóttir,
Rúna Halldórsdóttir,
Oddur Halldórsson,
Guðrún Halldórsdóttir
og afabörn.
✝
Innilegar þakkir sendum við þeim sem auðsýndu
okkur samúð og vinarhug við andlát og útför,
ÞORGERÐAR DIÐRIKSDÓTTUR.
Sérstakar þakkir eru sendar öllum þeim er
önnuðust hana á Hrafnistu Reykjavík.
Guð blessi ykkur öll.
Birgir Ísleifsson, Herdís Einarsdóttir,
Helga Ísleifsdóttir, Erlingur Ólafsson,
Diðrik Ísleifsson, Kristín Á. Guðmundsdóttir
og barnabörn.
✝
Innilegar þakkir til allra sem auðsýndu samúð og
hlýhug við andlát og útför,
SVÖVU KRISTÍNAR BJÖRNSDÓTTUR
Sóltúni 28,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki á deild 14-E
á Landspítala við Hringbraut og heimahjúkrun
Landspítalans.
Hrafnkell Guðjónsson,
Soffía Hrafnkelsdóttir, Einar Gunnar Einarsson,
H. Jóhanna Hrafnkelsdóttir,
Heimir Hrafnkelsson
og barnabörn.
✝
Hjartans þakkir sendum við öllum fyrir auðsýnda
samúð og hlýhug. Sérstakar þakkir fær starfsfólk
deildar 11E á háskólasjúkrahúsi við Hringbraut fyrir
yndislega umönnun vegna andláts okkar ástkæra
ÁSGEIRS MAGNÚSSONAR,
Gvendargeisla 21,
sem lést á sjúkrahúsinu föstudaginn 11. maí.
Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk
hins látna.
Rakel Ólafsdóttir,
Bertha A. Palm, Hakon Palm,
Magnús Ásgeirsson, Ann Ásgeirsson,
Ólafur H. Ásgeirsson, Ásta Rós Magnúsdóttir,
Ásgeir Ásgeirsson, Linda Ásgeirsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Móðir okkar,
ÓLÖF PETRÍNA KONRÁÐSDÓTTIR,
Lóa Konn,
Skólavörðustíg 31,
Reykjavík,
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 31. maí kl. 11.00.
Rannveig Sigríður Wilberg,
Carl Petter Wilberg,
Orri Vilberg Vilbergsson,
Lóa Wilberg.
Minningarkort
535 1825
www.hjarta.is 5351800