Morgunblaðið - 26.05.2007, Síða 46
Tónlistarlega séð er
hún svo mikill
heimsborgari; hún blandar
saman öllu mögulegu í
lögum sínum … 52
»
reykjavíkreykjavík
Eftir Birtu Björnsdóttur
birta@mbl.is
LEIKSTJÓRINN og kvikmyndagerðarmað-
urinn, Róbert Douglas lagði leið sína til Cannes á
dögunum til að freista þess að finna meðfram-
leiðendur fyrir bíómynd sem hann er með í bí-
gerð. Myndin kemur til með að heita Baldur,
handritið er tilbúið og Róbert vonast til að tökur
geti hafist síðar á árinu. „Manstu eftir mynd-
inni … day off? Hún fjallar um ungling sem
ákvað að taka frí frá öllu og gera allt sem hann
mátti ekki á einum degi. Baldur fjallar um mann
á fertugsaldri sem gerir þetta sama. Hann tekur
sér frí frá vinnunni, konunni og börnunum og
ákveður að gera allt sem hugurinn girnist. Það
fer þó á annan veg en hjá bandaríska unglingn-
um og hann endar á að missa allar móralskar
hugsanir og brjóta öll boð og bönn á þessum eina
sólarhring, segir Róbert spurður um söguþráð
Baldurs.
Myndin verður alíslensk framleiðsla en Róbert
segist ekki enn vera kominn með leikara í aðal-
hlutverkið. Annars elur Róbert manninn í Kína
þessa dagana en þangað fluttist hann fyrir
skemmstu.
„Konan mín er að vinna fyrir íslenska sendi-
ráðið í Kína og í kjölfarið ákváðum við að flytjast
bara öll fjölskyldan.
Þar er ég að skrifa handrit og að reyna að
koma mér á framfæri.
Meðal þess sem Róbert er að vinna að eru
stuttir heimildarþættir um Norðurlandabúa sem
búa í Peking. Eru þeir margir? „Já, það er alveg
slatti af Svíum og Norðmönnum og svo skilst
mér að þar búi um 50 Íslendingar. Ég held alla-
vega að Norðurlandabúarnir séu nógu margir til
að hægt sé að gera mynd um þá, segir Róbert en
tekur fram að verkefnið sé enn á byrjunarstigi.
„Þetta verða stuttir heimildaþættir sem fjalla
bæði um líf þessara norrænu þjóða í Peking og
einnig verður mikil fjallað um Ólympíuleikana
sem haldnir verða í borginni á næsta ári.
Verið er að vinna í því að selja þættina til
norska sjónvarpsins en markmiðið er að selja þá
til allra Norðurlandanna. En ætlar Róbert að
fara að snúa sér að heimildarmyndagerð í aukn-
um mæli? „Nei, nei. Það er hinsvegar svo erfitt
að útvega fjármagn til að koma bíómynd á fót.
En kvikmyndir eru enn númer eitt, tvö og þrjú
hjá mér, þó að ég sé alveg tilbúin að skoða heim-
ildarmyndir ef mér þykja viðfangsefnin spenn-
andi.
Gengur vel
Róbert kom fyrst til Cannes árið 2001 til að
fylgja eftir fyrstu bíómynd sinni, Íslenska
draumnum. Nú reynir hann að finna framleið-
endur fyrir næsta verkefni. Hvernig skyldi hafa
gengið? „Bara vel. Við förum þessa sömu leið og
svo margir með því að leita til breskra, írskra,
þýskra eða norrænna framleiðenda. Cannes og
Berlín eru bestu staðirnir til að fara á markaðinn
í leit að framleiðendum, segir Róbert og bætir
við að hann sé langt því frá að vera einn í þess-
um sporum á hátíðinni.
Morgunblaðið/Halldór Kolbeins
Í Cannes Robert Douglas er nú staddur á kvikmyndahátíðinni í Cannes þar sem hann kynnir sín næstu verkefni.
Hömlulaus Baldur
Róbert Douglas á m.a. að baki
myndirnar Íslenski draumurinn og
Strákarnir okkar
veikt gaman að spila loksins á tón-
leikum.“
Þeir félagar reyndu að byrja aftur
en þegar kerfið hafði dottið út í þrí-
gang gáfust þeir upp. „Þá ákváðum
við bara að gera gott úr þessu, bár-
um flygilinn inn á gólf og svo stóð-
um við allir með hvítvínsglas í hend-
inni og sungum lokalagið,“ segir
Birgir en fjölmargir tónleikagestir í
Iðnó skemmtu sér vel þrátt fyrir
vandræðin.
„Ég er ennþá að melta þetta. Þeg-
ar ég var að sofna var mjög skrítið
að hugsa um þetta, það var eins og
þetta hefði bara verið draumur –
eins og þetta hefði ekki gerst,“ segir
Birgir sem telur fall vera fararheill.
„Fyrst við erum búnir að ganga í
gegnum svona og tóra þá getum við
gengið í gegnum allt,“ segir hann og
lofar öðrum tónleikum fljótlega.
Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson
jbk@mbl.is
FYRSTU tónleikar hljómsveit-
arinnar Motion Boys sem fóru fram í
Iðnó á fimmtudagskvöldið fengu
heldur snautlegan endi þegar hljóð-
kerfið brást illilega. Sveitin náði að
spila tvö lög án vandræða en svo
dundu ósköpin yfir, fyrst fór hljóðið
úti í sal, og svo alveg. Birgir Ísleifur
Gunnarsson, forsprakki sveit-
arinnar, segir að hljóðkerfið hafi
ekki verið sett upp með réttum
hætti, og því hefði farið sem fór.
„Þegar kerfið hitnaði á ákveðinn
hátt féll það bara saman. En kannski
eru Motion Boys of stórir fyrir svona
kerfi,“ segir Birgir í léttum dúr en
bætir við að vissulega hafi þetta ver-
ið svekkjandi. „Við vorum komnir á
blússandi siglingu og það var geð-
Morgunblaðið/Sverrir
Bomba Sprengjughöllin var á með-
al upphitunarsveita í Iðnó.
Morgunblaðið/Sverrir
Á hreyfingu Motion Boys voru góðir burtséð frá vandræðunum.
Er fall fararheill?
Heyrst hefur að sumarið gangi í
garð á næstu vikum. Markar það
ákveðin tímamót. Af því tilefni
hyggst starfsfólk Stúdentakjall-
arans við Hringbraut fara í frí. Til
að kveðja það og kjallarann og
skiptast á faðmlögum og sms-um,
verður haldið kveðjupartí í kvöld
þar sem hljómsveitirnar Johnny
Sexual og Sometime troða upp.
Frægur drykkjarframleiðandi
hyggst bjóða upp á fríar veigar en
um leið og þær birgðir klárast taka
við hagstæðir viðskiptahættir á háu
borði í öðrum enda kjallarans.
Gleðin hefst kl. 22 og aðgangur er
stúdentum og öðrum að sjálfsögðu
ókeypis.
Stúdentakjallarinn fer í
langþráð sumarfrí
Níundi bekk-
ur Digranes-
skóla frumsýndi
á dögunum leik-
ritið Eitthvað er
í loftinu sem
nemendur
sömdu sjálfir.
Það eitt væri svo
sem ekki í frá-
sögur færandi
þegar þessi sagnaþjóð er annars
vegar en hitt er ekki síður áhuga-
vert að í leikritinu er að finna nokk-
ur lög með hljómsveitinni Á móti
Sól með Rock-stjörnunni Magni-
„ficent“ í fararbroddi. Magna og
strákunum var boðið á frumsýn-
inguna en komust því miður ekki
vegna anna. Úr því hyggjast þeir
hins vegar bæta næsta þriðjudag kl.
20.30 og má því búast við miklum
spenningi þegar tjaldið rís í sal
Digranesskóla í Kópavogi.
Digranesskóli með
Á móti sól á leiksviði
Magni