Morgunblaðið - 01.06.2007, Qupperneq 26
Eftir Jóhönnu Ingvarsdóttur
join@mbl.is
Ífrístundunum finnst mér skemmtileg-ast að fara út að ganga niður með sjó,setjast á stein og anda að mér ferskulofti, leyfa náttúrunni að hlaða mig,
hreinsa og efla. Á sumrin finnst mér líka
voða gott að leggjast í grasið og horfa til
himins. Þá finn ég fyrir barninu í mér því
þetta gerði ég svo oft sem krakki og át
hundasúrur,“ segir Marta Eiríksdóttir, sem
ætlar ásamt 17 ára dóttur sinni,
Hrafnhildi Ásu Karlsdóttur, að
standa fyrir mæðgna-
námskeiði á morgun í Gerðu-
bergi.
Þurfa frelsi til
að þroskast
Þetta er námskeið fyrir
mæðgur allt frá 11 ára aldri
til að leika sér saman og
efla jákvæð tengsl sín í
milli. „Að vera besti
vinur barna sinna þýðir að tala við þau,
hlusta á þau og verja tíma með þeim enda
meta börn meira samverustundirnar með
okkur heldur en gjafir frá okkur. Við mæðg-
urnar höfum alltaf verið góðar vinkonur.
Auðvitað erum við ekki alltaf sammála, en ég
segi stundum við hana að ef ég væri jafn-
gömul henni, þá væri hún besta vinkona mín.
En hún er dóttir mín og það ber að virða og
gefa henni frelsi til annars en að hanga í pils-
faldi móður sinnar. Ég gaf henni grænt ljós
á að þroskast í Menntaskólanum á Laug-
arvatni, en þar hóf hún nám sl. haust og líkar
afskaplega vel. Þar er hún á kafi í fé-
lagslífi og hefur eignast marga
góða vini. Við mömmurnar meg-
um nefnilega ekki vera of eigin-
gjarnar á dætur okkar og ef
við höfum sáð í þær góðum
fræjum í uppvextinum þá er
rétt að athuga hvort það
vaxi ekki og dafni án
þess að við
séum nærri,“ segir Marta. Dagskrá nám-
skeiðsins inniheldur uppbyggilegar leiklist-
aræfingar og vinna mæðgur saman í verk-
efnum, að sögn Mörtu. „Við notum eitthvað
leikbúninga og förum í leikspuna. Við syngj-
um saman því söngurinn eflir gleðina í okkur
ásamt því að dansa. Dansinn eflir lífsorkuna
og losar um feimni ásamt leiklistinni. Nám-
skeiðið endar í léttum jógaæfingum, sem sjá
til þess að skila okkur heim í fullkomnu jafn-
vægi. Í pásu smökkum við á girnilegri
heimabakaðri
mömmu-
súkkulaðiköku
úr lífrænu
hráefni. Allt
kynslóðabil
hverfur eins
og dögg fyr-
ir sólu.
Mæðurnar
fyllast stolti
yfir dugn-
aði og hæfileikum dætra sinna og dæturnar
sjá nýjar og skemmtilegar hliðar á mæðrum
sínum,“ segir Marta og bætir við að nám-
skeiðið sé bæði fyrir ungar og eldri mæðgur.
Vex í gegnum sjálfsræktina
Marta er grunnskólakennari að mennt og
starfaði lengi sem kennari. Hún hefur að
auki kennt leiklist í tæp tuttugu ár, en kýs
nú orðið líka að kalla sig dansþerapista þar
sem dansinn er svo virkur í allri sjálfsrækt
til aukinnar orku og betri heilsu.
Þegar forvitnast er nánar um áhugmálin
hennar Mörtu er dansinn efstur á blaði auk
fallegrar tónlistar, leiklistar og samveru-
stunda með fjölskyldunni og öðru góðu fólki.
„Ég hef líka gaman af sagnfræði og kíkti á
Þjóðminjasafnið um daginn sem er frá-
bærlega vel heppnað eftir endurbæt-
urnar. Hollustueldamennska er líka
áhugaverð og gefur mér orku í allt
það sem ég er að framkvæma,“
segir Marta að lokum.
Allar mæðgur ættu að leika sér saman
Ljósmynd/Ellert Grétarsson
Mæðgurnar Marta Eiríksdóttir og Hrafnhildur Ása Karlsdóttir, þær mæðgurnar eru góðar vinkonur þó að þær séu auðvitað ekki alltaf sammála.
|föstudagur|1. 6. 2007| mbl.is
daglegtlíf
Vínekrueigandi Troplong Mon-
dot í St. Emilion, Christine Va-
lette, mun fræða landann um
vín sín í sk. „masterclass“. »28
vín
Ferfættu heimilisvinir geta nú
fengið útrás á eigin húsgögnum
því Ikea hefur sérhannað mubl-
ur fyrir hunda og ketti. »28
hönnun
Sigurður Kristinn Haraldsson
borðar fisk í vinnunni fjórum
sinnum í viku, en eldar sjaldan
heima hjá sér. »30
matur
Albert Guðnason frá Snærings-stöðum í Svínadal kenndi
Sigurði Sigurðarsyni dýralækni vísu
og tildrög hennar. „Vísan fannst
milli þilja þegar gamla baðstofan á
Snæringsstöðum var rifin. Albert
taldi sig hafa heimildir fyrir því að
hún væri eftir Sölva Helgason og
væri sjálfslýsing.“ Og vísan er
svohljóðandi:
Sölvi Helgason málverk myndar
meistaralegri búinn snilld;
heimspekinnar af lækjum lindar
löngum teygar að sinni vild.
Er því vísdómur ærumanns
ofvaxinn sonum þessa lands.
Sigurður veit ekki til þess að vísan
hafi birst á prenti nema á Leirnum,
póstlista hagyrðinga, nýlega. Vita
lesendur betur?
Svo kafar Sigurður í „krotbókina“
eins og jafnan og finnur að þessu
sinni efni frá litla hagyrðinga-
mótinu, en siður er að fá hagyrðinga
til að fara með frumsamið efni á
fundum Iðunnar. Yrkisefnin voru
þrjú, sumar, kindur og Jói í Stapa.
Og vísa Sigurðar sameinaði það allt:
Ekki er leystur allur vindur
úr þeim sem að ljóðin skapa.
Sagt er mér að sumar kindur
séu líkar Jóa í Stapa.
Næst yrkir Sigurður um kindina
og sumarið:
Ég elska fjallafáluna
sem frelsis nýtur að sumrinu
og líka gömlu gáluna
sem gleðst af hrútakumrinu.
Og Jói í Stapa yrkir um
sauðkindina:
Sauðkindin sem Guð oss gaf
gjarnan verður hagaprýði,
þó að hún sé hötuð af
heilaþvegnum götulýði.
VÍSNAHORNIÐ
Af Sölva og götulýðnum
pebl@mbl.is
Besti tími dagsins: Á morgnana er kyrrðin mest
og þá kem ég mestu í verk.
Uppáhaldsmatsölustaður: Garðurinn við Klapparstíg því þar
er rólegt andrúmsloft og bragðgott grænmetisfæði.
Besta slökunin: Að vera úti í náttúrunni, lestur góðrar bókar,
nudd, heiti potturinn og jafnvel dans.
Fallegasti staðurinn á Íslandi: Þórsmörk, því þar er svo magnaður
kraftur sem leynist í sal guðanna.
Besta sundlaugin: Sú flottasta er í Reykjafirði fyrir vestan, en þar
má maður synda hvenær sem er sólarhringsins. Engin gæsla er á
staðnum sem ber vott um að gestum er fullkomlega
treyst fyrir góðri umgengni.
Marta mælir með …
Það er gott að eiga góðan forrétt er
að gesti ber að garði. Ragnar Óm-
arsson matreiðslumeistari gefur hér
uppskrift að gröfnum lambavöðva.
Appelsínugrafinn
lambavöðvi
Fyrir 4-5
300 g lambavöðvi (hryggur eða læri)
3 msk. salt
1 msk. sykur
1 msk. púðursykur
1 tsk. rósapipar
2 tsk. timjan
2 tsk. rósmarín
2 msk. koníak eða grand marnier
börkur af ½ appelsínu
nýmalaður svartur pipar
Fituhreinsið lambavöðvann og
setjið í skál. Blandið saman berki og
þurrefnum, utan teskeið af timjan,
rósmarín og svörtum pipar. Stráið
undir og yfir vöðvann. Líkjörnum
hellt yfir, filma sett yfir skálina og lát-
ið standa í 8 klst. Skolið létt undir
köldu vatni, þerrið og veltið vöðv-
anum upp úr pipar og afgangnum af
söxuðu rósmarín og timjan. Vöðvinn
settur í plast, kældur og skorinn í
sneiðar.
Appelsínu
og rúsínu-balsamico
2 msk. skalotlaukur (fínt saxaður)
1 msk. rúsínur
½ appelsína (skorin í litla bita)
4 msk. balsamik-edik
1 tsk. dijonsinnep
1 msk. hunang
1 msk. furuhnetur
4 msk. ólífuolía
salt og pipar
Mýkið lauk, rúsínur og furuhnetur
í potti með matskeið af olíu þar til
laukurinn er orðin glær. Þá er ediki,
sinnepi og hunangi bætt út í og látið
sjóða í mínútu. Kælið, bætið afgang-
inum af olíunni og appelsínubitunum
út í. Bragðbætt með salti og pipar.
mbl.is/folk
Litríkt Sumarlegur lambavöðvinn.
Frísklegur sumarforréttur
meistaramatur