Morgunblaðið - 01.06.2007, Qupperneq 51
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. JÚNÍ 2007 51
árnað heilla
ritstjorn@mbl.is
Félagsstarf
Árskógar 4 | Kl. 9-12 opin handavinnustofa. Kl. 9-
16.30 opin smíðastofa.
Félag eldri borgara, Reykjavík | Skrifstofa félags
eldri borgara er lokuð í dag.
Félagsheimilið Gjábakki | Jóga kl. 10.50. Félagsvist
kl. 20.30. Félagsheimilið Gjábakka er opið virka
daga kl. 9-17. Þar er t.d. hægt að kíkja í blöðin,
spjalla, taka í spil.
Félagsmiðstöðin Gullsmára 13 | Kl. 9 vefnaður, kl.
9.30 jóga, kl. 10 ganga, kl. 10.30 íþróttafél. Glóð:
hringdansar (æfing), kl. 11.40 hádegisverður. Að-
staða til að taka í spil, spila bobb og fara á göngu-
bretti.
Félagsstarf eldri borgara, Garðabæ | Opið í Garða-
bergi kl. 12.30-15.
Félagsstarf eldri borgara í Mosfellsbæ | Handa-
vinnustofan á Hlaðhömrum verður opin alla virka
daga í júní kl. 13-16.
Félagsstarf Gerðubergs | Kl. 9-16.30 vinnustofur
opnar. Kl. 10 „Bragakaffi“, kl. 10.30 lagt upp í létta
göngu um nágrennið. Frá hádegi spilasalur opinn.
Kl. 13 kóræfing. Uppl. á staðnum og s. 575 7720.
Hraunbær 105 | Kirkjuferð í Áskirkju kl. 14. Kaffi-
veitingar í boði sóknarnefndar og kvenfélags kirkj-
unnar. Verð kr. 300. Brottför kl. 13.30 frá Hraunbæ.
Hvassaleiti 56-58 | Jóga kl. 9-11, Björg F. Böðun
fyrir hádegi. Hádegisverður kl. 11.30. Blöðin liggja
frammi.
Vesturgata 7 | Kl. 9-16 hárgreiðsla og fótaaðgerðir.
Kl. 9.15-14.30 handavinna. Kl. 11.45-12.45 hádegis-
verður. Kl. 13.30-14.30 sungið við flygilinn við undir-
leik Sigurgeirs Björgvinssonar. Kl. 14.30-16 dansað í
aðalsal við lagaval Sigvalda. Vöfflur með rjóma í
kaffitímanum.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja kl. 9, morgun-
stund kl. 9.30, leikfimi kl. 10, hárgreiðslu og fótaað-
gerðarstofa opnar frá kl. 9, bingó kl. 13.30. Vorferð
Vitatorgs verður farin fimmtudaginn 7. júní kl. 13.
Farið verður um Álftanes í Heiðmörk og nágrenni,
veitingar verða í Kríunesi við Elliðavatn, síðan keyrt
um Rauðhóla og Hafravatn. Uppl. í síma 411 9450.
Kirkjustarf
Akureyrarkirkja | Kvöldkirkjan byrjar aftur kl. 17.
Kvöldbænir kl. 20.
Breiðholtskirkja | Fjölskyldumorgunn kl. 10. Kaffi
og djús í boði. Síðasta samveran í kirkjunni fyrir
sumarfrí. Allir velkomnir.
Morgunblaðið/Þorkell
80ára. Á morgun, 2. júní,verður Ragnar Ólafs-
son, fv. deildarstjóri á Skatt-
stofu Reykjavíkur, Barmahlíð
6, Reykjavík, áttræður. Þau
hjónin, hann og Theódóra
Guðmundsdóttir, taka á móti
ættingjum og vinum í Félags-
heimili Seltjarnarness (við
sundlaugina) laugardaginn 2.
júní kl. 3–5.
dagbók
Í dag er föstudagur 1. júní, 152. dagur ársins 2007
Orð dagsins: Þegar þú leggst til hvíldar, þarft þú ekki að hræðast, og hvílist þú mun svefninn verða vær. (Ok. 3, 24.)
Asíuver Íslands – ASÍS, HA,HÍ, Miðstöð Asíufræða viðHáskólann í Gautaborg ogNorræna Asíustofnunin í
Kaupmannahöfn halda á Akureyri
dagana 1. til 3. júní Aðra norrænu
ráðstefnuna um Asíutengd kynja- og
kvennafræði.
Dagný Indriðadóttir meistaranemi í
kynjafræði er einn af skipuleggj-
endum dagskrárinnar: „Ráðstefnan er
vettvangur fræðafólks víða að úr
heiminum til að fjalla um stöðu kyn-
gervis (e. gender) í nútímasamfélagi,“
segir Dagný. „Dagskráin nú skoðar
sérstaklega stöðu Asíubúa á tímum
hnattvæðingar, m.a. kynhlutverk og
-gervi bæði innan Asíu, en einnig hjá
Asíubúum sem flust hafa út fyrir álf-
una.“
Dagný segir tvö ólík sjónarhorn
takast á í umræðunni um hnattvæð-
inguna: „Annars vegar opnar hún
tækifæri fyrir fjölda fólks til að
ferðast, vera og gera það sem vilji
þeirra og metnaður leyfir, en hins
vegar er því haldið fram að hnattvæð-
ingin hneppi ákveðna hópa í hálfgert
þrælahald. Þessar andstæðu fullyrð-
ingar má einnig skoða með augum
kynjafræðinnar og finna áhugaverðar
hliðstæður í valdatengslum kvenna og
karla annars vegar og þróaðra og fá-
tækra ríkja hins vegar,“ segir Dagný.
„Brýnt er að skoða stöðu og þróun
kyngervis og kynjasamskipta á tímum
hnattvæðingar. Í íslensku samhengi
er t.d. vert að athuga að næst stærsti
hópur innflytjenda hér á landi er as-
ískur að uppruna og mikilvægt að
skilja þetta fólk og aðstöðu þess hér á
landi, og þá um leið skoða hvort og
hvernig þarf að haga málum best fyr-
ir einstaklinginn og samfélagið allt.“
Þátttakendur ráðstefnunnar koma
frá 16 löndum og flutt verða 25 erindi.
„Aðalfyrirlesarar eru tveir: Frá Nat-
ional Central University í Chungli,
Taívan, kemur dr. Josephine Chuen-
juei Ho, prófessor. Hún flytur fyr-
irlesturinn „Bidding for Vulnerability:
Asian Modernity and Its Emergent
Gender Stance“. „Dr. Naila Kabeer
prófessor við University of Sussex í
Bretlandi flytur svo erindið „Recon-
figurations of Marriage and Markets
in the Context of Globalisation: Ref-
lections on the Asian Context“.“
Nánari upplýsingar má finna á
heimasíðunni www.gender-
ingasia2007.niasconferences.dk.
Kynjafræði | Staða Asíubúa í brennidepli á ráðstefnu á Akureyri 1.-3. júní
Kyngervi og alþjóðavæðing
Dagný Indriða-
dóttir fæddist í
Reykjavík 1965.
Hún lauk stúdents-
prófi frá MH 1983,
lauk námi í flug-
umferðarstjórn
1986, BA-námi í
þjóðfræði og
kynjafræði frá HÍ
2003, kennsluréttindum frá sama
skóla 2005 og leggur nú stund á meist-
aranám í kynjafræði. Dagný starfaði
við flugumferðarstjórn í 15 ár. Hún
hefur einnig starfað sem leiðsögukona
og landverja um árabil.
Myndlist
Handverk og hönnun | „Á skör-
inni“ hjá Handverki og hönnun,
Aðalstræti 10, sýnir Sigríður
Ágústsdóttir, leirlistakona, hand-
mótaða og reykbrennda vasa.
Sigríður hefur haldið fjölda einka-
sýninga og tekið þátt í mörgum
samsýningum. Sýningin „Á skör-
inni“ er opin á skrifstofutíma til
28. júní.
Uppákomur
Sólheimar | Menningarveisla Sól-
heima 2. júní til 19. ágúst. Opn-
unarhátíð við Grænu könnuna,
laugardaginn 2. júní kl. 13. Að-
gangur ókeypis að öllum við-
burðum. Tónleikar alla laugar-
daga í Sólheimakirkju og hefjast
kl. 14. Fjölbreyttur hópur lista-
manna mun koma fram. Listhús
Sólheima og verslunin Vala auk
Grænu könnunar verða opin í allt
sumar virka daga kl. 13-18. Laug-
ardaga og sunnudaga kl. 12-18.
Nánar á solheimar.is.
Fyrirlestrar og fundir
Guðfræðideild HÍ | Þýski guð-
fræðingurinn dr. Jürgen Molt-
mann heldur fyrirlestur í Hátíð-
arsal Háskóla Íslands kl. 12.
Fyrirlesturinn er haldinn í boði
guðfræðideildar HÍ og verður
fluttur á ensku. Yfirskriftin er:
Hinn krossfesti Guð, guðfræði
krossins. Sjá http://www.kirkj-
an.is.
Kringlukráin | París – félag þeirra
sem eru einir. Júnífundurinn
verður 2. maí á Kringlukránni kl.
11.30. Nýir félagar velkomnir. Lítið
inn og kynnist góðum félagsskap. ELDINGU lýstur niður yfir Mumbai á Indlandi í gær.
Úr heiðskýru lofti
Reuters
SÚ breyting hefur verið gerð
á skráningu í Stað og stund að
nú birtist skráningin á Netinu
um leið og skrásetjari stað-
festir hana. Skrásetjari getur
nýtt sér þann möguleika að
nota leiðréttingaforritið Púk-
ann til að lesa yfir textann og
gera nauðsynlegar breyting-
ar. Einnig hefur verið gerð sú
breyting að hægt er að skrá
atburði í liði félagsstarfs og
kirkjustarfs tvo mánuði fram í
tímann. Allur texti sem birtist
í Morgunblaðinu er yfirlesinn.
Breytingar á
skráningu inn í
Stað og stund
TORFUSAMTÖKIN efna til óvissugöngu um Skuggahverfið og
gamla bæinn í Reykjavík laugardaginn 2. júní nk. Skoðuð verða
farsæl dæmi um húsvernd í bland við gömul, ný og yfirvofandi
skipulagsslys, eins og segir í tilkynningu.
Safnast verður saman á Vitatorgi kl. 14. Pétur H. Ármannsson,
Snorri Freyr Hilmarsson og fleiri sjá um leiðsögn. Göngunni lýkur
með stuttri tónlistardagskrá kl. 15.30 við húsið Skjaldbreið,
Kirkjustræti 8a.
Allir eru velkomnir í gönguna.
Óvissuganga um miðbæinn
DOKTORSVÖRN við hugvísindadeild Háskóla
Íslands fer fram í dag, föstudaginn 1. júní. Þá
ver Lára Magnúsardóttir sagnfræðingur dokt-
orsritgerð sína, Bannfæring og kirkjuvald á Ís-
landi 1275-1550. Lög og rannsóknarforsendur.
Andmælendur eru dr. Haki Antonsson pró-
fessor og dr. Orri Vésteinsson lektor. Oddný
Sverrisdóttir, forseti hugvísindadeildar, stjórn-
ar athöfninni sem fer fram í Hátíðarsal Aðal-
byggingar Háskóla Íslands. Athöfnin hefst kl. 14
og er öllum opin.
Doktorsverkefni Láru hafði það markmið að
skapa nýjar forsendur til rannsókna á heimildum um bannfæringu
og dómstóla kirkju á tímabilinu 1275 til 1550, með því að rannsaka
sögu íslenskra miðalda með hliðsjón af evrópskum viðmiðum og
þróun. Nýju ljósi er varpað á lög og stjórnsýslu á Íslandi á miðöld-
um með því að greina þau í samhengi við sögu almennu kirkjunnar
sem stofnunar frekar en að leita skýringa á atburðum og stjórn-
málaþróun innanlands.
Leiðbeinendur í verkinu voru Már Jónsson, prófessor í sagn-
fræði, Hjalti Hugason, prófessor í guðfræði og Guðrún Ása Gríms-
dóttir, vísindamaður við Árnastofnun.
Doktorsvörn í sagnfræði
Lára
Magnúsardóttir
HÁTÍÐ hafsins verður haldin í níunda sinn helgina 2.-3. júní nk. en
hátíðin samanstendur af Hafnardeginum og Sjómannadeginum.
Árið 1999 voru þessir tveir hátíðardagar sameinaðir í tveggja daga
hátíðahöld á Miðbakka Reykjavíkurhafnar. Markmið hátíðarinnar
er að varpa ljósi á menningu og menntun tengda sjávarútvegi
ásamt því sem boðið er upp á fjölbreytta dagskrá sem höfðar til
flestra.
„Ýmislegt hefur verið til gamans gert á þessum tveimur dögum á
undanförnum árum. Sunnudagurinn, sem er hinn lögboðni frídag-
ur sjómanna og ein elsta árlega hátíð sem haldin er á Íslandi, skart-
ar afar hefðbundnum atriðum eins og róðrakeppni, ávörpum og
hinum sívinsælu siglingum um sundin blá á gömlu Akraborginni,
sem nú heitir Sæbjörg og er skip Slysavarnaskóla sjómanna.
Á laugardeginum hefur í dagskránni verið litið til annarra þátta
hafsins en sjómennskunnar og í ár geta gestir hlakkað til að skoða
skrýtna fiska, smakka á öðrum, skoða ljósmyndasýningar, kynnast
björgunarstörfum, og líta við í varðskipinu Tý. Einnig má fylgjast
með tveimur ofurspennandi siglingakeppnum; Eyjahringur Brok-
eyjar hefst kl. 12 og Brautarkeppni Snarfara kl. 16,“ segir í frétt
frá Faxaflóahöfnum.
Hátíð hafsins haldin um helgina
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ birtir til
kynningar um afmæli, brúð-
kaup, ættarmót og fleira les-
endum sínum að kostnaðar-
lausu. Tilkynningar þurfa að
ber-ast með tveggja daga fyr-
irvara virka daga og þriggja
daga fyrirvara fyrir sunnu-
dags- og mánudagsblað.
ÞRETTÁNDI árgangur Sjómannadagsblaðs
Austurlands er kominn út og er blaðið tæpar 90
síður að stærð, prýtt vel á annað hundrað ljós-
myndum.
Sem fyrr eru efnistökin fjölbreytt en á meðal
efnis í blaðinu er ítarleg frásögn frá því er Goða-
nes frá Norðfirði strandaði við Færeyjar fyrir
hálfri öld. Rætt er við Ólaf Björn Þorbjörnsson,
útgerðarmann og skipstjóra á Hornafirði, fjallað
um nýtt síldarævintýri sem hugsanlega er í
vændum og Kristín Steinsdóttir rithöfundur rifjar upp æskuminn-
ingu frá uppvaxtarárum sínum á Seyðisfirði.
Frumbirt er nýtt ljóð eftir Ingvar Gíslason, fyrrverandi mennta-
málaráðherra, sagt frá mannskæðum páskabyl á Fáskrúðsfirði,
fjallað um erlenda athafnamenn á Austurlandi og Már Karlsson á
Djúpavogi skrifar um 200 ára kirkjuhald í Papey. Margt fleira er
að finna í blaðinu en ritstjóri þess er Kristján J. Kristjánsson frá
Norðfirði.
Utan Austurlands er meðal annars hægt að nálgast blaðið í
Grandakaffi og verslunum Pennans-Eymundssonar á höfuðborgar-
svæðinu og Akureyri.
Sjómannadagsblað Austurlands 2007
Í frétt blaðsins í gær um nýjan listmenntaskóla var rangfært að
Verslunarráð Íslands ynni að stofnun hins nýja skóla. Hið rétta er að
það er Viðskiptaráð Íslands sem hefur frumkvæði að verkefninu.
LEIÐRÉTTING