Morgunblaðið - 01.06.2007, Page 64
FÖSTUDAGUR 1. JÚNÍ 152. DAGUR ÁRSINS 2007
Fisk
iveisla Hátíðar hafsins1.- 3. júní
Kynntu flér girnilega matse›la
10 veitingahúsa á www.hatidhafsins.is
Horni› Vi› Tjörnina
DOMO
Einar Ben
Salt
Fjalakötturinn
firír Frakkar Apóteki›
Tveir fiskar
Vín og skel
»MEST LESIÐ Á mbl.is
»VEÐUR mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 200 ÁSKRIFT 2650 HELGARÁSKRIFT 1600 PDF Á MBL.IS 1700
SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT
Morgunblaðið bíður
eftir þér þegar þú
vaknar á morgnana
ÞETTA HELST»
Áhersla á jafnrétti
Geir H. Haarde forsætisráðherra
sagði í stefnuræðu sinni á Alþingi í
gær að ríkisstjórnin legði áherslu á
að raunverulegt jafnrétti yrði leið-
arljós í allri stefnumótun hennar.
Hann sagði einnig að ráðdeild og
varfærni í fjármálum hins opinbera
væri höfuðnauðsyn. » Miðopna
Áhyggjur í Eyjum
Talsmenn stéttarfélaga í Vest-
mannaeyjum hafa miklar áhyggjur
af tilboði bræðranna Guðmundar
Kristjánssonar og Hjálmars Krist-
jánssonar í allt hlutafé Vinnslustöðv-
arinnar. Elías Björnsson, formaður
sjómannafélagsins Jötuns, segir
tilboðið ekkert annað en „græðg-
istilboð“ og ætlun bræðranna sé að
selja kvótann. » Forsíða
SKOÐANIR»
Staksteinar: Það sem hvíslað er …
Forystugreinar: Rólegar umræður |
Sjóvá býður upp á athyglisverðan
valkost fyrir Grensásdeild
Ljósvaki: Stendur Sýn undir … ?
UMRÆÐAN»
Að rata í Evrópu
Ríkisstofnanir og þegnarnir
Vinir Vestmannsvatns
Hvora leiðina vilja menn velja?
Mclaren hafði ekki rangt við
Gulir taxar New York verða grænir
Prius getur verið enn eyðslugrennri
Lofar sigri Ferrari í Montreal
BÍLAR »
2
":(
. !,
!"
; !!!& 0
0
0
0 0 0 0
0
0 0 0 0 0
- < $7 (
0
0
0
0 0
0
0 =>??4@A
(BC@?A1;(DE1=
<414=4=>??4@A
=F1(<<@G14
1>@(<<@G14
(H1(<<@G14
(9A((1&I@41<A
J4D41(<BJC1
(=@
C9@4
;C1;A(9,(AB4?4
Heitast 20°C | Kaldast 10°C
SA 5-15 m/s, hvass-
ast við suðvestur-
ströndina. Léttskýjað
fyrir norðan, annars
dálítil væta. » 10
Einar Þór Gunn-
laugsson er nú á
Vestfjörðum þar
sem hann gerir hina
rammíslensku mynd
Heiðina. » 59
KVIKMYNDIR»
Klassísk ís-
lensk mynd
TÓNLIST»
B. Sig sendi nýverið frá
sér sína fyrstu plötu. » 54
Árni Matthíasson
segir að Sgt. Pepp-
er’s-plata Bítlanna
sé klárlega merki-
legasta plata popp-
sögunnar. » 60
TÓNLIST»
Merkileg-
asta platan
FJÖLMIÐLAR»
Skjár sport hefur lagt
upp laupana. » 54
FÓLK»
Prince vill ekki vinna með
Michael Jackson. » 63
reykjavíkreykjavík
VEÐUR»
1. Þarf Vodka fyrir kynlífssenur
2. Ásta Lovísa Vilhjálmsdóttir látin
3. Þyrla kölluð til vegna slyss …
4. Hrafnkell A. Jónsson látinn
VEFRITIÐ
Múrinn hefur
formlega verið
lagt niður, en
síðasta færslan
var birt á vefnum
í gær. Múrinn
var stofnaður af
nokkrum róttæk-
um ein-
staklingum í nóv-
ember árið 1999, en síðan þá hafa
hátt í 3.000 greinar um þjóðmál,
menningu og pólitík birst á vefnum.
„Við sögðum strax í byrjun að það
væri lykilatriði að við hefðum gam-
an af þessu og þetta mætti ekki
snúast upp í að vera kvöð. Það hef-
ur hins vegar ekki verið sami neist-
inn í þessu og í upphafi, menn eru
orðnir eldri,“ segir Stefán Pálsson,
einn af forsprökkum Múrsins.
Hann segir Múrinn hafa haft tölu-
verð áhrif, t.d. í kjölfar árásanna
11. september 2001. „Þá vorum við
á meðal fárra sem stóðu í lappirnar,
og reyndum að tala máli skynsem-
innar.“ | 55
Múrinn
lagður niður
Stefán Pálsson
Í NÝJUM Þjóðarpúlsi Gallups
kemur fram að flestum kjós-
endum, eða 67%, fannst sem
Framsóknarflokkurinn hefði aug-
lýst of mikið fyrir nýafstaðnar
þingkosningar. 2% fannst flokk-
urinn hafa auglýst of lítið. Þar á
eftir þótti 39% Samfylkingin hafa
auglýst of mikið og 3% of lítið.
Hins vegar fannst flestum eða um
59% hún hafa auglýst hæfilega.
Sjálfstæðisflokkurinn og VG eru
þeir flokkar sem þykja hafa aug-
lýst einna hæfilegast fyrir kosn-
ingarnar. Fæstum þótti VG hafa
auglýst of mikið eða 26% en 62%
hæfilega mikið. 27% töldu að Sjálf-
stæðisflokkurinn hefði auglýst of
mikið og 64% hæfilega mikið.
Spurt var hvort fólki fyndist
stjórnmálaflokkarnir hafa auglýst
of mikið, hæfilega eða of lítið.
Hverjir aug-
lýstu mest?
ÖRLYGUR, einsigldur árabátur sem er nákvæm
eftirmynd landhelgisbátsins Ingjalds, verður sjósettur í
Reykjavíkurhöfn á Hátíð hafsins á morgun kl. 15.
Báturinn var smíðaður fyrir Minjasafn Egils Ólafs-
sonar á Hnjóti í Örlygshöfn. Agnar Jónsson skipa-
smíðameistari (til hægri á myndinni) vann að smíði Ör-
lygs í vetur og Ísleifur Friðriksson stálskipasmíða-
meistari (til vinstri) eldsmíðaði alla járnhluti. Margrét
Gunnlaugsdóttir, textílhönnuður og þjóðháttafræðing-
ur, saumaði seglin. | 8
Morgunblaðið/RAX
Eftirmynd landhelgisbátsins sjósett
Hátíð hafsins hefst á morgun
Eftir Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
GÍSLI Marteinn Baldursson, for-
maður umhverfisráðs Reykjavíkur-
borgar, og Dagur B. Eggertsson,
borgarfulltrúi Samfylkingar, settu
báðir fram þá hugmynd í erindum
sínum á ráðstefnu um framtíð Örfir-
iseyjar í gær, að komið yrði á spor-
vagnatengingu frá svæðinu og að
fyrirhugaðri byggð í Vatnsmýri.
Sagði Gísli Marteinn að stofn-
kostnaður 6 km langrar sporvagna-
leiðar yrði um 8-10 milljarðar kr. og
rekstrarkostnaður milljarður á ári.
Íbúar í fyrirhuguðum hverfum
hefðu færri bílastæði en aðrir borg-
arbúar en ættu á móti þess kost að
hafa sporvagninn í nágrenninu.
Tekið skal fram að enn á eftir að
koma í ljós hvort fýsilegt sé að
byggja í eynni, m.a. m.t.t. til sam-
gangna. Þá á starfshópur um mögu-
leikann á flutningi olíubirgðastöðv-
arinnar í eynni eftir að skila áliti,
sem mun vega þungt um framhaldið.
Þá er óvíst með framtíð flugvallarins
í Vatnsmýri. Fjallað er um skipulag í
Örfirisey og fyrirhugaða „Heimsvið-
skiptamiðstöð í Reykjavík“ við höfn-
ina í Morgunblaðinu í dag. | 14
Sporvagn í Reykjavík?
Formaður umhverfisráðs og borgarfulltrúi Samfylkingar
viðra hugmynd um tengingu Örfiriseyjar og Vatnsmýrar
Útópía? Sporvagnar gætu reynst
kostur í samgöngum borgarinnar.
♦♦♦