Morgunblaðið - 12.06.2007, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 12.06.2007, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. JÚNÍ 2007 41 09.06.2007 1 19 25 28 30 0 5 2 3 6 7 1 8 6 4 4 06.06.2007 9 19 26 34 38 45 324 28 Lögg. fasteignasali: Bergur Guðnason hdl. Nánari upplýsingar veittar á skrifstofunni, ekki í síma eða á netinu. Skráin á netinu: www.fyrirtaeki.is Elsta fyrirtækjasalan á landinu. Arðvænleg fyrirtæki 1. Smásöluverslun í Reykjavík. Einstök verslun sem selur og flytur inn vörur á einstöku lágverði en er samt með mikla framlegð. Frábær umboð fylgja með. Fyrirtæki sem getur gjörbreytt fjárhag þínum. 2. Einstakt fyrirtæki sem er mjög sérhæft og með fasta viðskiptavini. Er með smásölu, heildsölu og þjónustustarfsemi. Sami eigandinn í áratugi selur vegna aldurs. Ekki sleppa þessu dæmi, þau eru sjaldgæf. 3. Lítil ferðaskrifstofa sem sérhæfir sig í hópflutningum bæði til og frá landinu. Velta um 150 millj. Mikil og góð sambönd fylgja með og kennsla reynsluboltans fylgir. Möguleiki að selja hluta í fyrirtækinu.Skuldlaust fyrir- tæki. Gott samlegðarfyrirtæki. 4. Heildverslun sem selur mjög sérhæfðar vörur fyrir prentvinnu og slíka tæknivinnu. Góð viðskiptasambönd fylgja með. Þægilegt fyrirtæki. 5. Handverksfyrirtæki sem er sérhæft fyrir framleiðslu á skartgripum. Öll tæki, áhöld og innréttingar jafnvel fyrir verslun. Upplagt fyrir laghentan að- ila, eldri borgara, tómstundaheimili, góðgerðarstarfsemi eða skóla. Vantar ekki smádæmi til fjáröflunar eða til að auka tekjurnar? 6. Falleg snyrtivörubúð í Hafnarfirði til sölu. Skemmtilegt fyrirtæki fyrir flotta konu. Selur mjög þekkt og góð merki. Eftir Sverri Norland sverrirn@mbl.is MIÐVIKUDAGINN 13. júní næst- komandi heldur fríblaðið Grapevine upp á fjögurra ára afmæli sitt. Svo skemmtilega vill til að blaðið hóf göngu sína föstudaginn 13. júní 2003. Ekki virðist því óheilla- dagsetningin fræga hafi reynst þeim þrúgmiðlungum illa. Hugsjónastarf skólafélaga „Blaðið var stofnað á bar í Prag, af skólabræðrum úr Mennta- skólanum að Laugarvatni,“ segir Jón Trausti, einn aðstandenda þess og vísar þar einnig til félaga sinna, þeirra Hilmars Steins og Odds Ósk- ars. Blað þeirra vina er enn í fullu fjöri og hefur það að leiðarljósi að þjóna ferðamönnum og nýjum Ís- lendingum. Með það fyrir augum er ekki óeðlilegt að blaðið sé skrifað á ensku. „Ég var búsettur í Prag um all- nokkurt skeið,“ segir Jón Trausti. „Þar var sérstakt fríblað sem þjón- aði útlendingum, en slíkt blað kom sér mjög vel fyrir okkur vinina. Það var því meðal annars út frá reynslu af því að vera útlendingur í ókunnu landi og tala ekki mál heimamanna að hugmyndin að Grapevine varð til,“ segir Jón Trausti. Viðamikil starfsemi Föstudaginn 15. júní mun 59. tölublað Grapevine líta dagsins ljós. Þá er ekki meðtalin dagblaðaútgáfa Reykjavík Grapevine í tengslum við Iceland Airwaves hátíðina, en sú út- gáfa er orðin að árlegum viðburði. Loks hefur Grapevine staðið fyrir á annað hundrað tónlistar- og menn- ingarviðburðum. „Þessir atburðir eru í raun bara sjálfkrafa hlið- arverkun útgáfunnar,“ segir Jón Trausti. Um það bil tíu manns starfa við útgáfu Grapevine og eru þá ónefnd- ir þeir lausapennar sem leggja blaðinu lið. Efni blaðsins er fjöl- breytilegt, allt frá ýmiss konar list- rýni til hefðbundinna viðtala. „Þungamiðja blaðsins er þó í raun dagskrárumfjöllun,“ segir Jón. „Við reynum að fjalla um það helsta sem er að gerast hverju sinni.“ „Fjögur ár eru ekki langur tími, en í götublaðaútgáfu á Íslandi eru fjögur ár þó drjúgur tími. Frá því við hófum útgáfu hafa þónokkur blöð komið og farið og nokkur gam- algróin liðið undir lok. Satt best að segja telst mér til að við séum eina götublaðið sem eftir er á Íslandi. Og við erum ferða- manna-blað. Þetta þýðir að það er ekkert götu- og menningarblað til á Íslandi, á íslensku. Ég óska hér með eftir að einhver ráði bót á því.“ Föstudagurinn þrettándi til heilla Morgunblaðið/Eyþór Þrúgmiðlungar Jón Trausti Sigurðsson og Hilmar Steinn Grétarsson eru meðal þeirra sem gefa út 59. tímarit Grapevine á föstudaginn. AUSTURRÍSKUR karlakór frá Schwoich var á landinu um helgina. Schwoich er bær í Týról, rétt við Kufstein í Inndalnum, og má til gamans geta þess að þar í sveit fer fram reiðkennsla á íslenskum hest- um. Auk þess að halda nokkra tón- leika þá tók kórinn upp fáein lög með Baggalúti. Baggalúturinn Bragi Valdimar Skúlason sagði að þegar þeir hefðu frétt að Týrólakór væri á landinu hefði ekki verið hægt að láta með- limi hans sleppa án þess að fá þá til þess að jóðla með lútunum. „Þeir stormuðu þarna inn í fullum skrúða, þetta var ógleymanleg stund,“ sagði Bragi sem tók þó fram að alls óvíst væri hvað yrði úr þessu. Ný plata væri á algjöru frumstigi og ómögulegt væri að segja hvort hún yrði diskójóðlplata eða eitthvað allt annað. Þá er allt opið varðandi möguleika á útrás Baggalúts til Alpanna. „Núna erum við búnir að koma á opinberu sam- bandi við Týról og það er aldrei að vita hvað gerist. En við þurfum náttúrlega að kaupa okkur „Leder- hosen“ og æfa okkur,“ segir Bragi, sem lýsir jóðlurunum austurrísku sem miklum snillingum. Auk þess að taka upp með Baggalúti tók kór- inn upp nokkur af eigin lögum, sem verða á nýrri plötu þeirra. Kórinn var að koma til Íslands í annað skipti – hann var hér á landi fyrir þremur árum – og var honum alls staðar vel tekið. Kórinn er búinn að halda tónleika í Salnum í Kópavogi, í Úthlíð, við upphaf þingfundar og í Ráðhúsi Reykjavíkur. Þá tók kór- inn þátt í messu í Skálholtskirkju sl. sunnudag. Leðurbuxur Karlakór frá Schwoich úr Ölpunum, allir í „Lederhosen“. Morgunblaðið/Árni Sæberg Baggalútur Bragi Valdimar. Týrólskir jóðlarar taka upp með Baggalúti OCEAN'S 13 kl. 8 - 10:15 B.i. 7 ára PIRATES OF THE CARRIBEAN 3 kl. 8 B.i. 10 ára / AKUREYRI / KEFLAVÍK OCEAN'S 13 kl. 8 - 10:20 B.i. 12 ára PIRATES OF THE CARRIBEAN 3 kl. 8 B.i. 10 ára eee S.V. - MBLA.F.B - Blaðið FÁÐU BÍÓMIÐANN SENDAN Í SÍMANN ÞINN MEÐ MMS WWW.SAMBIO.IS NÁNARI UPPLÝSINGAR Á SAMbio.is VIPSALURINNER BARA LÚXUS ER STAÐSETTUR Í SAMBÍÓUNUM ÁLFABAKKA Mesta ævintýri fyrr og síðar... ...byrjar við hjara veraldar „Besta Pirates myndin í röðinni!“ tv - kvikmyndir.is „SANNUR SUMAR- SMELLUR... FINASTA AFÞREYINGARMYND“ Trausti S. - BLAÐIÐ MYND OG HLJÓÐ Í SAMBÍÓUNUM KRINGLUNNI eee LIB, Topp5.is 48.000 GESTIR                     

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.