Morgunblaðið - 20.06.2007, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. JÚNÍ 2007 27
✝ Skúli BreiðfjörðJónasson fædd-
ist á Húsavík 23.
apríl 1925. Hann
andaðist á heimili
sínu 4. júní síðastlið-
inn. Skúli var sonur
hjónanna Jónasar
Jónassonar, f. 27.
nóvember 1895, d.
15. janúar 1970 og
Oddfríðar Skúla-
dóttur, f. 10. júní
1897, d. 22. júlí
1955. Skúli var elsta
barn þeirra en áður
átti Oddfríður soninn Gunnar
Ingvar Sigurðsson, f. 1917, d. 1985.
Alsystkini Skúla eru Kristín, f.
1926, d. 1941, Helgi, f. 1927, d.
1991, Reynir, f. 1928 og Björk, f.
1930, d. 1993.
Árið 1948 kynntist Skúli eftirlif-
andi konu sinni Guðrúnu Guðríði
Guðmundsdóttir, f. á Suðureyri við
Súgandafjörð 30. janúar 1927. Þau
giftu sig 31. desember 1965. Börn
þeirra eru: 1) Elín, f. 16. mars
1950. 2) Oddfríður, f. 26. ágúst
Rakel Ösp, f. 17. júlí 2002 og Fann-
ar Berg, f. 7. júní 2005.
Skúli var sem unglingur í sveit á
Mýri í Bárðardal. Hann kláraði
landspróf frá Laugarvatni. Út-
skrifaðist úr samvinnuskólanum á
Bifröst 1947 og vann hjá Samband-
inu í Reykjavík 1947-1953. Hann
var kaupfélagsstjóri á Svalbarðs-
eyri 1953-1969. Hann fór þá að
vinna hjá sambandsskrifstofunum
og Foldu til 1995 þegar hann lét af
störfum sökum aldurs, meðfram
fastri vinnu vann hann við fast-
eignasölu. Eftir það aðstoðaði
hann son sinn í bókhaldi til ársins
2005. Í gegnum tíðina starfaði
hann mikið fyrir Sambandið og
síðar KEA í ýmsum ráðum og
nefndum.
Sem ungur maður stundaði
hann frjálsar íþróttir og hafði alla
tíð gaman af því að fylgjast með
öllum íþróttum. Hann stundaði
stangveiði í mörg ár og var um
tíma í stjórn stangveiðifélagsins
Flúða. Skúli og Guðrún bjuggu á
Svalbarðseyri á meðan Skúli var
kaupfélagsstjóri þar en fluttu síð-
an í Skarðshlíð 11 á Akureyri þar
sem þau bjuggu lengst af eða þar
til seinasta haust er þau fluttu í
Mýrarveg 117.
Útför Skúla verður gerð frá
Akureyrarkirkju í dag og hefst
athöfnin klukkan 13.30
1952, dóttir hennar
er Agata Kristín, f.
25. september 1990.
3) Kristinn, f. 12. jan-
úar 1954, kvæntur
Önnu Pétursdóttur, f.
12. október 1954.
Þeirra börn eru: a)
Pétur, f. 31. júlí 1975,
sambýliskona Íris
Rún Andersen, f. 7.
október 1981, sonur
þeirra er Ísak Logi, f.
23. júlí 2004. b) Guð-
rún Ósk, f. 12 .júlí
1980, d. 24. mars
1981. c) Kolbrún, f. 4. ágúst 1981,
d. 9. apríl 1982. d) Guðni Rúnar, f.
29. júní 1985, sambýliskona Helga
Hrönn Þórðardóttir, f. 6. júní 1983.
4) Jóhann, f. 12. mars 1965, kvænt-
ur Margréti Guðmundsdóttur, f. 1.
maí 1966, þeirra synir eru Jónas, f.
19. júní 1991, Magnús, f. 2. sept-
ember 1992 og Tómas, f. 27. mars
1994. 5) Skúli Jónas, f. 24. febrúar
1971, kvæntur Þórhildi Höskulds-
dóttur, f. 5. apríl 1975, þeirra börn
eru Arna Rún, f. 6. janúar 2001,
Elsku afi.
Nú ertu farinn til Guðs og við eig-
um eftir að sakna þín afskaplega mik-
ið. Það var alltaf svo gaman að koma í
heimsókn til ykkar ömmu. Þegar við
bjuggum á Akureyri þá fórum við oft
með mömmu niður í Skarðshlíð í
morgunheimsókn. Það var alltaf glað-
legt bros sem tók á móti okkur þar.
Það var þér alltaf mjög mikilvægt að
við værum dugleg að borða og því
byrjaðir þú ávallt á því að gefa okkur
eitthvað gott í gogginn. Það var alltaf
nr. 1 að fá kókómjólk, enda eigum við
fjölskyldan eftir að hugsa til þín í
hvert skipti sem hún er á boðstólum.
Svo voru það kíwíin og mandarínurn-
ar, þú gast setið þolinmóður með okk-
ur endalaust að skera bita ofan í okk-
ur. Harðfiskurinn var einnig vinsæll
og svo læddist stundum súkkulaðikex
og ís með ef beðið var fallega. Oftar
en ekki buðuð þið amma okkur að
borða hádegismat hjá ykkur og þá
skildir þú ekki af hverju við borðuð-
um svona lítið af hádegismatnum. En
þeim mun glaðari varstu ef við vorum
dugleg að borða og hafðir sérstaklega
gaman af því að gefa okkur grænar
baunir af því að okkur fannst þær svo
góðar, enda hafa þær alltaf verið kall-
aðar afabaunir á okkar heimili.
Það var líka mjög gaman að sitja og
púsla með þinni aðstoð og fá leyfi til
að spila á píanóið. Við vorum varla
farin að geta setið sjálf þegar við vor-
um búin að prófa píanóið.
Þegar við fluttum svo til Danmerk-
ur og við sáumst mun sjaldnar sendir
þú okkur stundum góðgæti út. Minn-
isstætt er þegar Ella kom í heimsókn
til okkar rétt fyrir fyrstu jólin okkar í
Danmörku. Eitthvað fannst pabba
dönsku baunirnar ekki boðlegar á jól-
unum og bað þig því að senda með
Ellu grænar Ora baunir til að hafa
með jólamatnum. Það var fúslega
gert og það er óhætt að það hafi verið
glatt á hjalla þegar Ella kom með 15
dósir af baunum, 3 kippur af kókó-
mjólk, harðfisk og fleira góðgæti frá
afa og ömmu! Þú hefur alltaf verið
duglegur að fylgjast með okkur. Þeg-
ar við sváfum úti í vagni fyrir utan
stofugluggann í Skarðshlíðinni varst
þú tiplandi á tánum við gluggann al-
veg þar til við vöknuðum því þú varst
svo hræddur um að enginn heyrði í
okkar þegar við vöknuðum.
Þegar við fluttum frá Akureyri
hringdir þú reglulega í okkur fjöl-
skylduna og vildir alltaf tala við okkur
öll systkinin, alveg sama hversu mikið
við vorum farin að tala sjálf. Það
skipti ekki máli fyrir þig, ef því heyrð-
ir eitthvert hjal, bull eða bara eitt og
eitt orð, þá varstu ánægður . Enda
talaðir þú alltaf um það hversu mik-
inn mun þú heyrðir á málþroskanum.
Þú mundir líka eftir öllum afmælis-
dögum og hringdir alltaf og óskaðir
okkur til hamingju og spurðir hvað
við værum núna orðin gömul.
Elsku afi, það er skrítið að koma til
Akureyrar núna og fá ekki að hitta
þig. Það var yndislegt hafa átt góðan
tíma með þér um hvítasunnuhelgina
svona stuttu áður en þú kvaddir. Það
hefur alltaf verið fyrsti staðurinn að
fara á þegar við komum til Akureyrar
og var umræða um það í bílnum þegar
við vorum að renna inn í bæinn um
hvítasunnuna. Rakel var að spyrja
hvert við færum fyrst og þá sagði
Arna Rún: „Auðvitað til afa og ömmu,
það er bara regla“.
Elsku afi, við vitum að þú átt eftir
að halda áfram að fylgjast með okkur
og við verðum dugleg að passa ömmu.
Við söknum þín mikið.
Þín afabörn
Arna Rún, Rakel Ösp og
Fannar Berg Skúlabörn.
Skúli Breiðfjörð
Jónasson
✝
Eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og
amma,
ÞÓRDÍS EINARSDÓTTIR,
lést á líknardeild Landspítalans, sunnudaginn
17. júní.
Útförin fer fram frá Digraneskirkju, mánudaginn
25. júní kl. 15.
Ástvaldur Guðmundsson,
Hólmar Ástvaldsson, Óla Björk Eggertsdóttir,
Álfheiður Ástvaldsdóttir, Halldór Björn Halldórsson,
Ásgeir Ástvaldsson, Karólína Einarsdóttir,
Hólmfríður Sigurðardóttir, Margrét Einarsdóttir
og barnabörn.
30-50% afsláttur
af granít legsteinum
✝
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
RAGNHEIÐUR SAMSONARDÓTTIR,
verður jarðsungin frá Þingeyrarkirkju
laugardaginn 23. júní kl. 14.00.
Ingi S. Þórðarson, Jóhanna Helga Jónsdóttir,
Jens Hallgrímsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær faðir okkar og tengdafaðir,
PÁLL FINNBOGI JÓNSSON,
sem lést á heimili sínu laugardaginn 16. júní verður jarðsunginn
frá Reykhólakirkju laugardaginn 23. júní kl. 14.
Fyrir hönd aðstandenda,
Inga María Pálsdóttir, Hilmar Óskarsson,
Aðalbjörg Pálsdóttir.
✝
Engillinn okkar,
SUSIE RUT EINARSDÓTTIR,
Hverafold 142,
lést á gjörgæsludeild Landspítalans Fossvogi,
mánudaginn 18. júní.
Útförin verður auglýst síðar.
Einar S. Hálfdánarson, Regína G. Pálsdóttir,
Diljá Mist Einarsdóttir,
Páll Fannar Einarsson,
Sindri Snær Einarsson,
Páll Friðriksson, Susie Bachmann.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og systir,
GUÐBJÖRG JÓHANNA LÁRENTSÍNUSDÓTTIR,
lést á St. Franciskuspítalanum í Stykkishólmi,
sunnudaginn 17. júní.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Sævar Geir Gunnleifsson, Helga Birkisdóttir,
Lárentsínus Gunnleifsson,
Gunnleifur Vignir Gunnleifsson, Hildur Einarsdóttir,
Birkir Már, Aron Elí, Signý María, Ester Ósk
og systkini hinnar látnu.
✝
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar og dóttir,
HULDA KRISTJANA LEIFSDÓTTIR,
Giljaseli 11,
Reykjavík,
lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi að
kvöldi sunnudagsins 17. júní.
Jarðarförin auglýst síðar.
Stefán Jón Sigurðsson,
Steinunn Bóel Stefánsdóttir,
Leifur Geir Stefánsson,
Steinunn Jónína Ólafsdóttir. Kistur • Krossar • Sálmaskrár • Duftker • Blóm • Fáni • Gestabók • Erfidrykkja • Prestur
Kirkja • Legstaður • Tónlist • Tilkynningar í fjölmiðla • Landsbyggðarþjónusta • Líkflutningar
Suðurhlíð 35 Fossvogi • www.utforin.is
Vaktsími: 581 3300 & 896 8242 • Sólarhringsvakt
Komum heim til aðstandenda ef óskað er
Bryndís ValbjarnardóttirSverrir Einarsson
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Það sem hafa ber í huga varðandi andlát og útför
Hermann Jónasson Geir Harðarson
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
GERÐUR AÐALBJÖRNSDÓTTIR
frá Hólabæ,
verður jarðsungin frá Blönduóskirkju föstudaginn
22. júní kl. 14:00.
Jarðsett verður í Holtastaðakirkjugarði.
Björg Pétursdóttir,
Hafsteinn Pétursson, Sigríður Bjarkadóttir,
Pétur Pétursson, Þorbjörg Bjarnadóttir,
Dagný Pétursdóttir, Þórir K. Agnarsson,
ömmubörn og langömmubörn.