Morgunblaðið - 20.06.2007, Blaðsíða 38
38 MIÐVIKUDAGUR 20. JÚNÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Sími - 462 3500 Sími - 551 9000Sími - 564 0000
Fantastic Four 2 kl. 6 - 8 - 10
Hostel 2 kl. 6 - 8 - 10 B.i. 18 ára
Fantastic Four 2 kl. 6 - 8.20 - 10.30
The Hoax kl. 5.30 - 8 - 10.30 B.i. 12 ára
28 Weeks Later kl. 5.50 - 8 - 10.10 B.i. 16 ára
Painted Veil kl. 5.30
Fracture kl. 8 - 10.30 B.i. 14 ára
Shrek 3 m. ensku tali kl. 3 - 5 - 7 - 9 - 11
Shrek 3 m. ensku tali kl. 3 - 5 - 7 - 9 - 11 LÚXUS
Shrek 3 m. ísl. tali kl. 3 - 5 - 7 - 9 - 11
Fantastic Four 2 kl. 3.40 - 5.50 - 8 - 10.10
Hostel 2 kl. 8 - 10:10 B.i. 18 ára
The Last Mimzy kl. 3
Spider Man 3 kl. 5 B.i. 10 ára
- Kauptu bíómiðann á netinu
Miðasala í Smárabíó og Regnbogann
Prentaðu sjálf(ur) út bíómiðann - Engar biðraðir
* Gildir á allar
sýningar í
Regnboganum
merktar með rauðu
450
KRÓNUR
Í BÍÓ
*
ROBERT CARLYLE ER
VIÐURSTYGGILEGA GÓÐUR!
STRANGLEGA BÖNNUÐ
INNAN 16 ÁRA
eeee
L.I.B. - Topp5.is
eee
V.I.J. - Blaðið
eeee
Empire
eeee
H.J. - MBL
Frábær ævintýramynd fyrir
alla fjölskylduna
NÝ LEYNDARMÁ
NÝR MÁTTUR
ENGAR REGLUR
eee
L.I.B, Topp5.is
eee
FGG - FBL
eee
T.V. - kvikmyndir.is
OG ALLS EKKI,
UNDIR NEINUM
KRINGUMSTÆÐUM,
FYRIR VIÐKVÆMA
QUENTIN
TARANTINO
KYNNIR
STRANGLEGA
BÖNNUÐ
INNAN 18 ÁRA
eee
D.V.
eeee
S.V. - MBL
ATH: EKKERT HLÉ OG MIÐASÖLU LÝKUR ÞEGAR SÝNING MYNDAR HEFST
R I C H A R D G E R E
GABBIÐ
eeee
“Vel gerð...
Gere er frábær!”
- H.J., Mbl
eeee
- Blaðið
eee
Ó.H.T - Rás 2
“...besta sumar-
afþreyingin til þessa.”
eee
MBL - SV
SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI
SHREK, FÍÓNA,ASNINN OG STÍGVÉLAÐI KÖTTURINN ERU
MÆTT AFTUR Í SKEMMTILEGASTA ÆVINTÝRI ALLRA TÍMA.
STÆRSTA
OPNUN
Á TEIKNI-
MYND
FYRR OG
SÍÐAR.
GUNNAR B. Guðmundsson
kvikmyndaleikstjóri og Ottó
Geir Borg blaðamaður eru
um það bil að ljúka fyrsta
uppkasti að kvikmynda-
handriti skáldsögunnar
Gauragangur, eftir Ólaf
Hauk Símonarson. Samnefnt
leikrit var unnið upp úr sög-
unni og sýnt árið 1994 í Þjóð-
leikhúsinu við miklar vin-
sældir.
Gunnar var á fleygiferð,
þegar blaðamaður náði tali
af honum í gær, að ljúka tök-
um á kvikmyndinni Astrópíu
sem hann leikstýrir. Gunnar
er jafnan með mörg járn í
eldinum, leikstýrir með ann-
arri hendi og skrifar kvik-
myndahandrit með hinni.
Gunnar fékk hugmyndina
að því að skrifa kvikmynda-
handrit upp úr bók Ólafs og
fékk Ottó, handritshöfund
Astrópíu, í lið með sér. Þeir
félagar fengu svo styrk til
handritsskrifa frá Kvik-
myndamiðstöð Íslands, en
ZikZak sér um framleiðslu
verkefnisins.
„Það gengur mjög vel, al-
veg rosalega vel,“ svaraði
Gunnar þeirri spurningu
hvernig handritsskrifin
gengju. Þeir Ottó skila brátt
af sér fyrsta uppkasti til
Kvikmyndamiðstöðvar til að
geta sótt um frekari styrk.
„Við höfum verið að snur-
fusa uppkastið í um einn og
hálfan mánuð,“ sagði Gunn-
ar. Þeir Ottó hafi vandað af-
ar vel til verks, enda beri
þeir mikla virðingu fyrir
bókinni, þyki hún frábær.
Spennandi verður að sjá
hana á hvíta tjaldinu en
hvort það verður og hvenær
liggur ekki fyrir.
Morgunblaðið/Þorkell
Verðlaunaleikstjóri Gunnar hlaut Eddu-verðlaunin fyrir
bestu stuttmyndina 2003, fyrir Karamellumyndina.
Kvikmyndahandrit
að Gauragangi JACK Black er nýbúinn að stýrarokkskóla en núna er útlit fyrir aðhann setjist á skólabekk í norna-
skóla. Í myndinni Man-Witch
mun hann leika kennara sem
uppgötvar sér til furðu að hann
hefur hæfileika til kústaflugs,
sætabrauðshúsgerðar og alls
kyns annars kukls en til þess að
þroska þessa hæfileika þarf hann
vitalega að ganga í nornaskóla.
Þegar hann mætir í tíma kem-
ur svo í ljós að samnemendurnir
eru allir kvenkyns. Todd Phillips
leikstýrir myndinni en hann hef-
ur áður leikstýrt gamanmyndum
á borð við Starsky & Hutch og
Old School. Variety greindi frá.
Jack Black í Nornaskóla
Reuters
Norn Jack Black leitar að kústinum sínum.
SÖNGKONAN Britney Spe-
ars óskar nú eftir aðstoð frá
aðdáendum sínum við að
finna gott nafn á nýjustu
breiðskífuna.
Á vefsíðu Spears,
www.britneyspears.com, eru
hörðustu aðdáendurnir beðn-
ir um að leggja höfuð í bleyti
og nokkur dæmi nefnd um
titla þeim til hjálpar. Meðal
titla eru þessir: „Omg is Like
Lindsay Lohan Like Okay
Like“ og „Down Boy“. Erfitt
er að þýða þá en heiðarleg til-
raun gerð af blaðamanni:
„Gmg (Guð minn góður) er
sem sé Lindsay Lohan sem sé
allt í lagi sem sé“ og „Hægan,
drengur“.
Á vefsíðunni má einnig lesa
bréf frá Spears til aðdáenda
sinna. Í því er hún opinská og
einlæg, ræðir m.a. um með-
ferðina við áfengisfíkn og
móðurástina.
Aðdáendur aðstoði við nafngiftina
Reuters
Leitandi Britney Spears