Morgunblaðið - 25.06.2007, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 171. TBL. 95. ÁRG. MÁNUDAGUR 25. JÚNÍ 2007 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
MÖRG LIÐ BEST
HUNDRUÐ SEX TIL ÁTTA ÁRA STRÁKA
LÉKU SÉR Í FÓTBOLTA Á SKAGANUM >> 17
STRANDS DHOON VIÐ
LÁTRABJARG MINNST
MINNISVARÐI
BJÖRGUNARAFREK >> 8
FRÉTTASKÝRING
Eftir Friðrik Ársælsson
fridrik@mbl.is
FLESTIR þeir sem til þekkja telja rétt-
argæslukerfið allt of flókið þegar kemur að
rannsókn efnahagsbrota. Fyrrverandi for-
stöðumaður hjá skattrannsóknarstjóra rík-
isins, Garðar G. Gíslason, sagði á morg-
unverðarfundi um efnahagsbrot fyrr í
mánuðinum að innbyggt flækjustig kerf-
isins væri til þess fallið að draga alla máls-
meðferð á langinn. Þá væru þess dæmi að
Hæstiréttur hefði fellt niður refsingu í slík-
um málum með vísan til þess að með óhóf-
legri töf á málsmeðferð hefðu mannréttindi
sakbornings verið fótumtroðin. Garðar líkti
því að sæta rannsókn í efnahagsbrota-
málum við það að hanga árum saman í hálf-
gerðri snöru undir merkjum þessara mála
og sagði að á þeim tíma gætu menn ekki
verið vissir um réttarstöðu sína.
Helgi Magnús Gunnarsson, saksóknari
efnahagsbrota hjá ríkislögreglustjóra,
sagði á sama fundi að embætti skattrann-
sóknarstjóra væri óþarfur milliliður milli
skattstofu og rannsóknaraðila og í raun og
veru um tvíverknað að ræða þegar efna-
hagsbrotadeild tæki við málum frá skatt-
rannsóknarstjóra. Því mætti skoða þann
möguleika að leggja embættið niður og
nýta það fjármagn sem með því sparaðist
til eflingar efnahagsbrotadeildarinnar.
Sérstakt embætti saksóknara skatta-
lagabrota þriðji kosturinn í stöðunni
Þessu er Bryndís Kristjánsdóttir, skatt-
rannsóknarstjóri ríkisins, ósammála. Í að-
sendri grein, er birtist í Morgunblaðinu í
gær, segir hún nærtækt að færa ákæru-
valdið í alvarlegri skattalagabrotum frá
ríkislögreglustjóra til skattrannsókn-
arstjóra. Með því mætti koma í veg fyrir
þann tvíverknað sem nú er viðhafður við
endurrannsókn mála hjá ríkislög-
reglustjóra auk þess sem skilvirkni myndi
aukast og kostnaður við meðferð mála
minnka.
Björn Bjarnason dómsmálaráðherra
segir ekki koma til greina að ákæruvaldið
verði tekið af embætti ríkissaksóknara og
sjálfstæði embættisins skert. Hann segir
að nú sé verið að leggja lokahönd á ákæru-
valdskafla nýrra laga um meðferð saka-
mála. Því sé rétti tíminn fyrir fjármála-
ráðuneytið, sé vilji til þess, að ræða við
ráðuneyti sitt um þá tilhögun að sérstakur
saksóknari starfi með skattrannsóknar-
stjóra með svipuðum hætti og saksóknari
starfar nú með ríkislögreglustjóra. | 4
Morgunblaðið/G. Rúnar
Seðlar Menn virðast sammála um að úr-
bóta sé þörf í skattrannsóknaumhverfinu.
Greitt
verði úr
flækjunni
Sitt sýnist hverjum um
úrbætur skattrannsókna
Eftir Gunnar Pál Baldvinsson
gunnarpall@mbl.is
RÚMLEGA tvítugur Pólverji slas-
aðist nokkuð í gær þegar sjóðandi
vatn úr goshvernum Strokk skvett-
ist yfir fætur hans. Vegfarandi kom
manninum til kælingar og segir eft-
irlit á hverasvæðinu vera allt of lít-
ið.
Maðurinn var ásamt fjórum fé-
lögum sínum að skoða hverasvæðið
snemma í gærmorgun þegar
Strokkur gaus. Misreiknuðu menn-
irnir hæð vatnsstróksins með þeim
afleiðingum að manninum tókst
ekki að víkja sér undan. Sjóðandi
vatn skvettist því yfir fætur manns-
ins. Mennirnir ætluðu að koma fé-
laga sínum í kælingu en vissu ekki
hvert þeir ættu að snúa sér enda
engin þjónustustarfsemi opin.
Ástdís Kristjánsdóttir var á leið
til vinnu á Gullfossi þegar hún
hlýddi merkjum Pólverjanna þar
sem þeir höfðu stöðvað bíl sinn 15
kílómetra frá Geysi. Voru þeir þá á
leið til Selfoss með félaga sinn sem
var þá sárkvalinn. Ástdís kom
manninum í kælingu á nærliggj-
andi bæ þar sem hún þekkti til og
beindi Neyðarlínu á staðinn.
Maðurinn var síðan fluttur í
sjúkrabíl á slysadeild í Reykjavík
og reyndist hann vera með 2. stigs
bruna. Fór hann heim að lokinni
meðferð en líklega mun taka um
tvær vikur fyrir hann að ná sér.
Ástdís segir ljóst að mennirnir
hafi verið komnir of nærri hvernum
og e.t.v. þurfi að gera fólki hættuna
ljósari. „Mér finnst þetta sýna að
eftirlitið á hverasvæðinu er allt of
lítið. Þarna þarf einhver vörður að
vera og t.d. neyðarhnappur ef eitt-
hvað kemur upp á,“ segir Ástdís.
Landvörður á að vera við Geysi en
hann þarf einnig að sjá um svæðið
við Gullfoss.
Brenndist þegar
Strokkur gaus
Í HNOTSKURN
» Mennirnir voru lagðiraf stað en 61 kílómetri
er frá Geysi til Selfoss.
» Gagnrýnt er að ferða-mönnum sé ekki gerð
hættan ljósari.
Morgunblaðið/RAX
Of nærri Mennirnir höfðu farið of nærri Strokk og misreiknuðu sig
þegar sjóðandi vatnið gaus upp úr hvernum. Myndin er úr myndasafni.
Vegfarandi sem
hjálpaði mönn-
unum segir eftir-
liti ábótavant
SELTIRNINGAR á besta aldri söfnuðust saman í
fjörunni við Gróttu á messu Jóhannesar skírara.
Valgeir Guðjónsson stýrði fjöldasöng við góðar und-
irtektir á meðan myndarlegt bálið brann.
Áður fyrr var Jónsmessan mikil alþýðuhátíð í
Suður-Evrópu með tilheyrandi brennum og dansi.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Jónsmessubál á Nesinu
BOR 2 í Kárahnjúkavirkjun setti að
öllum líkindum heimsmet í borun
jarðganga á laugardaginn. Hann
boraði þá 106,12 metra á einum sól-
arhring og sam-
kvæmt fréttavef
Kárahnjúkavirkj-
unar munu engin
önnur dæmi vera
um slíkan árang-
ur í heiminum.
Fyrra bormetið
átti þessi sami
bor en í júní 2006
boraði hann 92
metra á einum sólarhring. Að sögn
Ómars R. Valdimarssonar, tals-
manns Impregilo, er ekki hægt að
staðfesta strax að um heimsmet sé
að ræða en málið er í rannsókn. Bera
þurfi göngin saman við önnur göng
af svipuðu ummáli en Ómar segir
þetta þó ansi gott afrek, lengdin ein
og sér sé vafalítið heimsmet. Jafn-
framt segist hann ánægður með að
fá loks vind í seglin en berglögin og
jarðfræðin á svæðinu hafi ekki alltaf
verið þeim hliðholl. „Það ríkir mikil
ánægja upp frá. Ætli það verði ekki
tekinn tappi úr einni eða tveimur
kampavínsflöskum þegar þetta fæst
staðfest,“ segir Ómar og segir menn
fara varlega í fagnaðarlæti meðan
staðfesting liggur ekki fyrir. Hún
ætti hins vegar að fást í dag.
Heimsmet í
gangaborun?