Morgunblaðið - 25.06.2007, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 25.06.2007, Blaðsíða 19
heilsa MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 25. JÚNÍ 2007 19 Gríptu augnablikið og lifðu núna Og1 fyrir stórar fjölskyldur Viltu geta hringt ótakmarkað milli allra heimasíma innanlands? Vertu með Heimasíma, GSM og Internet fjölskyldunnar í Og1 – og sparaðu bæði tíma og peninga. Farðu á www.vodafone.is, komdu við í verslun okkar eða hringdu í 1414 og skráðu þína fjölskyldu í Og1. Heimasími, GSM, og Internet – allt á einum stað F í t o n / S Í A F I 0 2 2 1 0 7 + Nánari upplýsingar og bókaðu á www.icelandair.is Sölutímabil Special Offer tilboða: 22. júní–13. júlí. Ferðatímabil: 17. júlí–10. desember. Takmarkað sætaframboð. ÍS L E N S K A S IA .I S I C E 3 66 61 0 6 /0 7 9.900 kr. aðra leiðina ekki í þörf fyrir neinar töfralausnir en sú stund rann samt upp. Öll sund virtust lokuð, bankinn var með enda- laust múður, ekkert þýddi að biðja um kauphækkun. Víkverji var því orðinn alveg ráðþrota. Hann leitaði loks í visku forfeðranna, brá sér út í döggina, það var reyndar óvenjuhráslagalegt miðað við árstíma en hann lét sig hafa það. En ekki reyndist neitt gagn að þessu. Það eina sem hafðist upp úr næturrölt- inu var lungnabólga sem hefði get- að riðið Víkverja að fullu. Þetta reyndist því ekki vera ann- að en gömul, ómerkileg hindurvitni. Það hlýtur að vera rangt að halda svona hlutum að heiðarlegu og grandvöru fólki, fjölmiðlar verða að gæta sín betur. x x x Víkverji hefur hins vegar af-skaplega góða reynslu af bandarísku fæðubótarefni, Vow!, sem aldrei er auglýst í fjölmiðlum, aðeins fáir útvaldir komast yfir það. Hann komst yfir efnið fyrir ein- skæra tilviljun, vegna mistaka var hringt í hann en ekki allt annan mann sem átti fá að prófa efnið. En sölumaðurinn sem hringdi var svo hugulsamur að leyfa Víkverja að bætast í þann litla hóp Íslendinga sem fá að njóta. Áhrifin eru ótrú- leg, einkum á meltingu og greind, skapið verður líka miklu léttara en ella. Enda sagði sölumaðurinn að vísindamenn hefðu rannsakað efnið vandlega og allir orðið mjög hrifnir. Þeim er allavega betur treystandi en gömlum hégiljum. Víkverji var lengiákafur bar- áttumaður fyrir því að halda við gömlum sið- um og hefðum, honum fannst alltof mikið um að nútímafólk tæki ekki nægilegt mark á því sem forfeðurnir sögðu. En fyrir nokkr- um árum varð hann fyrir óþægilegri reynslu sem varð til að snúa honum ger- samlega. Hann hafði oft lesið og heyrt að fólk ætti að grípa tækifærið á Jónsmessunótt, þá gæti maður fengið óskir sínar upp- fylltar. Nóg væri að fara allsnakinn út í grasið um nóttina, velta sér upp úr morgundögginni og óska sér. Nú var Víkverji dagsins lengi vel          víkverji skrifar | vikverji@mbl.is EINSTÆÐAR mæður og feður segjast almennt vera við verri heilsu en foreldrar sem eru giftir eða í sambúð. Þetta eru nið- urstöður sænskrar doktors- ritgerðar frá Háskólanum í Upp- sölum og forskning.no greinir frá. Ritgerðin bendir einnig til þess að félagsleg þátttaka foreldranna hafi áhrif á heilsu þeirra sem og barna þeirra en einstæðir foreldrar eru ekki eins virkir félagslega og aðrir. „Samfélagið ætti að bjóða úrræði til að auðvelda einstæðum for- eldrum að taka þátt í félagslífi,“ segir Markus Westin, sem varði ritgerðina. Hann telur að þannig megi auka þátttöku foreldranna í félagslífi og öðrum atburðum í sam- félaginu sem og auka traust þeirra til náungans. Feður betur settir en mæður Í ritgerðinni er útskýrt á tvo vegu hvernig félagsleg staða hefur áhrif á heilsuna. Annars vegar ber foreldrið sig saman við aðra hvað varðar stöðu, eignir og fleira og sá samanburður getur leitt til þess að viðkomandi skammist sín eða finni fyrir sektarkennd og öfund. Það getur aftur leitt til þess að viðkom- andi taki upp vana og atferli sem ógnar heilsunni. Hins vegar hefur lág stéttarstaða verið tengd líkamlegri streitu sem hefur áhrif á ónæmiskerfið og þar með heilsuna. Westin skoðaði einnig hvernig giftir foreldrar og einstæðir nýta sér heilsutilboð og -þjónustu. Nið- urstöðurnar sýndu að einstæðar mæður leita síður til lækna en gift- ar konur og í sambúð, jafnvel þótt þeim finnist þær þurfa á lækn- isheimsókninni að halda. Í ritgerðinni er einnig sýnt fram á að einstæðir feður hafa það al- mennt betra félagslega en ein- stæðar mæður og að feðurnir eru tilbúnari til að leita til lækna en mæðurnar. Þetta getur stafað af því að feðurnir eru betur settir fjárhagslega en mæðurnar. Ein- Reuters Samhengi Félagsleg staða foreldra hefur áhrif á heilsu þeirra og barna. Einstæðir foreldrar heilsuveilli stæðir feður eru þó ekki eins heilsuhraustir og giftir feður og í sambúð. Loks virðist vera samhengi milli þess hvort foreldrar eru einstæðir eða ekki og þess hversu gott al- mennt heilsufar barna þeirra er. Westin telur hægt að stuðla að bættu heilsufari barnanna með því að styðja við félagslega þátttöku foreldra þeirra. Rannsókn Westins byggist á tveimur spurningarkönnunum sem lagðar voru fyrir fjölda sænskra foreldra árin 2001 og 2003.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.