Morgunblaðið - 25.06.2007, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 25.06.2007, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 25. JÚNÍ 2007 29 ✝ Eiginkona mín, móðir okkar og tengdamóðir, STELLA ÁRNADÓTTIR, Miðtúni 7, Reykjavík, sem lést þriðjudaginn 19. júní, verður jarðsungin frá Háteigskirkju mánudaginn 25. júní kl. 15.00. Fyrir hönd aðstandenda, Böðvar Jónsson. ✝ Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, JÓHANNA KRISTÍN JÓNASDÓTTIR meinatæknir, Laugavegi 132, Reykjavík, verður jarðsungin frá Fossvogskapellu þriðjudaginn 26. júní kl. 15.00. Guðbjörg Jónsdóttir, Ægir S. Guðlaugsson, Elna Katrín Jónsdóttir, Jón Ingi Eldon Hannesson, Arnþór Jónsson, Nanna Baldursdóttir, Jónas Jónsson, Bryndís Lárusdóttir, Bjarni Bjarnason, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir, sonur, bróðir og mágur, HILMAR J. HAUKSSON, Kóngsbakka 10 og Aflagranda 20, lést á krabbameinsdeild Landspítalans við Hringbraut, fimmtudaginn 14. júní. Útför Hilmars verður gerð frá Hallgrímskirkju í dag, mánudaginn 25. júní kl. 13.00. Monika Blöndal, Sara Hilmarsdóttir, Haukur Steinn Hilmarsson, Svava J. Brand, Þórunn Helga Hauksdóttir, Guðmundur Sveinsson, Björn Torfi Hauksson, Laufey Birkisdóttir. ✝ Engillinn okkar, SUSIE RUT EINARSDÓTTIR, Hverafold 142, verður jarðsungin frá Hallgrímskirkju þriðjudaginn 26. júní og hefst athöfnin kl. 15.00. Einar S. Hálfdánarson, Regína G. Pálsdóttir, Diljá Mist Einarsdóttir, Páll Fannar Einarsson, Sindri Snær Einarsson, Páll Friðriksson, Susie Bachmann. ✝ Systir mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, HERDÍS HELGADÓTTIR, Tómasarhaga 55, áður Eyjabakka 5, Reykjavík, verður jarðsungin frá Neskirkju þriðjudaginn 26. júní kl. 13:00. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á að láta Geðhjálp njóta þess. Skúli Helgason, Hrafn Helgi Styrkársson, Sveinbjörn Styrkársson, Willy Johannes, Auður Styrkársdóttir, Svanur Kristjánsson, Snorri Styrkársson, Kristrún Ragnarsdóttir, Unnur Styrkársdóttir, Sveinn Bragason, Herdís Styrkársdóttir, Jón Ágúst Reynisson og barnabörn.  Fleiri minningargreinar um Önnu Sigurbjörgu Jónsdóttur bíða birting- ar og munu birtast í blaðinu næstu daga. ✝ Anna Sig-urbjörg Jóns- dóttir fæddist á Nesi í Flókadal í Fljótum í Skaga- firði 12. janúar 1921 og hún lést á Hjúkr- unarheimilinu Ási í Hveragerði að morgni 20. júní sl. Foreldrar hennar voru Jón Stefánsson frá Nesi, f. 1894, d.1964, og kona hans, Halldóra Sig- urbjörg Jónsdóttir, f. 1884, d. 1954. Systkini Önnu eru: 1) Stefanía, f. 12.3. 1925. 2) Björn, f. 26.10. 1925. 3) Arnbjörg, f. 6.1. 1928, d. 12.8. 2004. 4) Óskar Sigurjón Björnsson, f. 24.11. 1917, d. 18.11 1995, Óskar var uppeld- isbróðir Önnu. Anna Sigurbjörg giftist Friðriki Rósmundssyni, f. 24.6. 1919, d. 27.2. 1995, á sum- ardaginn fyrsta árið 1943. Eign- uðust þau 5 börn og þau eru: 1) Stefán, f. 12.2. 1943, kvæntur Ágústu Högnadóttur, f. 14.3. 1944. Börn þeirra eru a) Anna, f. 26.7. 1964, gift Oddi Sigurðssyni, f. 10.10. 1966, og eiga þau saman þrjú börn, Ágústu Dúu, f. 31.8. 1992, Sigurð Kalman, f. 25.2. 1998 og Hugin Jarl, f. 12.1. 2001. b) Jón Högni, f. 27.8. 1968, sambýliskona hans er Stefanía Ársælsdóttir, f. 16.5. 1974, þau eiga saman dótt- urina Ingunni Önnu, f. 30.11. Lilju Björgu, f. 2.4. 1991 og eiga þau saman Dagnýju Rún, f. 8.11. 1997. c) Anna Birna, f. 29.12 1973, gift Kristófer Ingimundarsyni, f. 24.12. 1975, börn þeirra eru: Guð- rún Lilja, f. 3.5. 1999, Sigurjóna, f. 28.4. 2001, og Birna Sólveig, f. 26.10. 2002. Anna Birna átti fyrir Óla Þór, f. 3.3. 1993, d. 20.12. 1994. d) Friðrik Sveinn, f. 7.7. 1981, í sambúð með Sunnu Björk Guðmundsdóttur, f. 21.5. 1987, Friðrik á fyrir eina dóttur, Fann- eyju Söru, f. 26.3. 2001. 4) Sveinn, f. 2.2. 1953, hann á eina dóttur, Huldu Katarínu, f. 25.2. 1994. 5) Friðrik, f. 5.8. 1961, kvæntur Þór- eyju Guðlaugsdóttur, f. 3.1. 1964. Börn þeirra eru: a) Elísabet Jóna, f. 18.6. 1986. b) Guðrún Ósk, f. 30.1. 1994. c) Rakel Rós, f. 1.1. 1996. Anna flutti ung að árum frá Nesi í Flókadal að Hvammkoti við Hofsós og bjó þar ásamt for- eldrum sínum þar hún hóf búskap með manni sínum að Efra-Ási í Hjaltadal og bjuggu þau þar í 3 ár en fluttu þaðan að Gröf á Höfð- aströnd, bjuggu þar í tvö ár þar til Friðrik veiktist af lömunarveiki, þá fluttu þau hjónin á Hofsós og keyptu lítið hús sem heitir Sæland og þar bjuggu þau í 21 ár. Á Hofs- ósi vann Anna utan heimilis, að- allega í frystihúsinu á staðnum. Árið 1968 fluttu þau til Hvera- gerðis, þar bjuggu þau í Kletta- hlíð 8 fyrstu árin og byggðu sér síðan hús í Borgarhrauni 6 og áttu þar fagurt heimili. Þegar Friðrik lést flutti Anna að Dvalarheim- ilinu Ási þar sem hún naut ein- stakrar umhyggju frábærs starfs- fólks. Lengst af starfaði Anna á Dvalarheimilinu Ási í Hveragerði. 2004, fyrir á Jón Högni Stefán Inga, f. 2.7. 1993 og Patrik Emil, f. 20.4 1995. Stefanía á fyrir Rún- ar Elís, f. 4.8. 1994. c) Eyrún, f. 17.10. 1977, maki Eiríkur Tómas Marshall, f. 16.5. 1974, þau eiga saman Bergdísi Klöru, f. 30.4. 1998. d) Guðni Davíð, f. 11.1. 1982. 2) El- ísabet, f. 8.1. 1945, maki Vigfús Sig- valdason, f. 8.7. 1940, d. 14.4. 1995. Börn þeirra eru: a) Friðrik Helgi, f. 2.7. 1963, í sambúð með Elínu Bjarnadóttur, f. 28.4. 1968, barn þeirra er Friðrik Mar, f. 14.3. 2007, fyrir á Friðrik Árna Rúnar, f. 8.12. 1997. b) Sigríður Vigdís, f. 31.7. 1965, gift Rúnari Marteinssyni, f. 10.4. 1963. Börn þeirra eru: Vigfús Fannar, f. 13.11. 1989, og Elísabet Alla, f. 16.3. 2003. 3) Björn, f. 25.11. 1947, giftur Lilju Ólafsdóttur, f. 20.9. 1950. Börn þeirra eru: a) Ólafur Steinar, f. 9.1.1970 kvæntur Berg- þóru Ástþórsdóttur, f. 13.3. 1967, Bergþóra átti fyrir Elísabetu Ástu, f. 14.4. 1987, og eiga þau saman börnin Björn Þór, f. 22.2. 1991, og Ernu Guðrúnu, f. 7.3 1997. b) Guðbjörg Rósa, f. 8.3. 1971, gift Gísla Unnsteinssyni, f. 20.2. 1971, Guðbjörg átti fyrir Elsku amma mín, það er víst komið að kveðjustund og það eru margar góðar minningar sem koma upp í kollinn á mér þegar ég hugsa til baka. Þú varst ein af þeim sem geta séð það góða í öllum og ein af þeim heiðarlegustu sem ég þekki. Mínar bestu minningar um þig eru þegar ég var hjá þér og afa á sumr- in, þú varst að vinna á elliheimilinu og ég fór með þér í vinnuna og var að skottast í kringum þig og gamla fólkið og ég hélt í fyrstu að það byggi bara gamalt fólk í Hvera- gerði. Þú varst alltaf tilbúin að gera eithvað skemmtilegt með mér og það allra skemmtilegasta var þegar ég fékk að hjálpa þér að baka sem var ósjaldan, þó að ég hafi nú kanski þvælst meir fyrir en hjálpað til. Ég fór líka með ykkur afa í ferðalög og fékk góða tilsögn um það hvernig ganga eigi um landið og náttúruna. Þú varst mikil blómakona og ég held bara að ég finni ennþá ilminn úr litla gróð- urhúsinu þínu þar sem þú ræktaðir rósirnar þínar sem þú hafðir mikið dálæti á. Þú hafðir alltaf eitthvað fyrir stafni og varst óþreytandi að stússast í garðinum þínum og það vissu allir þegar haustið nálgaðist því að þá var Anna litla Jóns komin útí móa að tína ber. Elsku amma, þér verður eflaust vel tekið á nýjum stað og vil ég biðja þig að knúsa afa og Óla minn fyrir mig. Hjartans þakkir fyrir allt. Þín, Anna Birna. Elsku amma mín. Ó hvað mér finnst ótrúlegt að þú skulir vera farin frá okkur. Mikið á ég eftir að sakna þín. En ég má ekki vera eigingjörn því ég veit hvað þú þráðir að komast til afa sem er búinn að bíða eftir þér í 12 ár og rúmlega það. Við höfum átt svo óteljandi stundir saman. Það var alltaf svo gott að koma til þín, alltaf gleði og stutt í húmorinn. Þegar ég var lítið trippi fékk ég oft að vera hjá ykkur afa í Kletta- hlíðinni. Þá var nú ýmislegt brall- að. Ég man alltaf þegar þú kenndir mér að prjóna, þá var ég 5 eða 6 ára gömul, ég á enn sokkana sem ég prjónaði það sumarið. Svo fannst mér alltaf svo spennandi þegar við pökkuðum saman góð- gæti í körfu og fórum upp í dal með afa þar sem hann sló tún með orfi og ljá, við rökuðum og snerum heyinu, svo var sest niður og góð- gætið tekið úr körfunni. Margt var spjallað og ef ég man rétt fórstu oft með vísur fyrir okkur afa. Sunnudagsbíltúrarnir með þér og afa á gamla Renó voru ekkert lítið spennandi, oft var byrjað á að fara á Hælið í mat. Svo var rúntað um, jafnvel með nesti, eða kíkt í heim- sókn, ósjaldan var endað í Sandvík. Síðustu ár höfum við gert svo margt saman. Oft höfum við drukkið kaffi saman og ég beðið þig að ljúga í bolla fyrir mig, þá var nú mikið hlegið og grínast. Oftar en ekki voru vinkonur mínar með í för. Ferðirnar sem við höfum farið saman síðustu ár, bæði stuttar og langar, eru orðnar ansi margar. Norðurferðirnar standa samt upp úr. Þú varst svo spennt að fara, við lögðum alltaf af stað klukkan 7 að morgni. Ekki brást það að þegar ég renndi í hlað varst þú komin út á bekk og farin að bíða eftir okkur. Stelpurnar mínar voru báðar svo lánsamar að fá að ferðast með þér amma mín. Þú varst svo uppfull af fróðleik um svo margt sem varð á vegi okk- ar frá Hveragerði og alla leið norð- ur til Siglufjarðar. Oftar en ekki vöknaði þér um augu þegar þú sást yfir Skagafjörðinn þinn. Ég gæti endalaust haldið áfram að skrifa um það sem við höfum brallað saman. Ég geymi minningarnar um þig um ókomna tíð í hjarta mínu og reyni að miðla áfram öllu því sem þú hef- ur kennt mér elsku amma mín. Amma mín, þú varst ein sú ynd- islegasta kona sem ég hef nokkurn tíma kynnst. Hjartans þakkir fær allt frábæra starfsfólkið á Dvalar- og hjúkrunarheimilinu Ási í Hvera- gerði. Ekki hefði ég getað hugsað mér betri stað fyrir ömmu til að eyða elliárunum á. Ömmu þótti óendanlega vænt um ykkur öll. Þín Guðbjörg Rósa. Nú sitjum við hér þrjár saman og minnumst langömmu okkar Önnu Jónsdóttur, eða ömmu Jóns, eins og hún var oftar en ekki kölluð. Við munum allar eftir ömmu sem frá- bærri konu sem alltaf var góð við okkur og alla aðra. Amma átti alltaf eitthvað gott handa krökkum og fullorðnum sem komu í heimsókn og alltaf átti hún hvítu molana með rauðu röndunum, sem fengu viður- nefnið ömmumolar hjá sumum af ömmu- og langömmubörnum. Þegar Lilja var yngri og áður en amma fór á hjúkrunarheimilið var gaman að fara til ömmu og fá að gista. Og þá var amma ávallt beðin um að taka útúr sér tennurnar áður en hún las bók fyrir svefninn og að sjálfsögðu gerði hún það, því það var ekkert sem amma gerði ekki fyrir fólkið sitt. Það voru margar ferðir farnar til ömmu Jóns og alltaf var tekið hlý- lega á móti manni bæði á hjúkr- unarheimilinu og í litla húsinu með græna þakinu á Ási. Amma var allt- af jákvæð og það var í rauninni aldrei neitt neikvætt hjá ömmu, hún var alltaf hress. Ömmu fannst rosalega gaman að fara í berjamó og tína sér ber og henni fannst ber mjög góð, þess vegna voru margar ferðir farnar með ömmu útí móa að tína ber, svo var stundum þeyttur rjómi og syk- ur til þess að smakka berin. Amma var svakalega hraust kona og labbaði útum allt eins og ekkert væri. Ömmu fannst líka alltaf gam- an að fá gesti og öllum þótti gaman að fara í heimsókn til ömmu því þar ríkti alltaf gleði og ánægja og þang- að var mjög gott að koma. Amma var yndisleg kona og það er því með miklum söknuði sem við kveðjum þig, elsku amma okkar. Minning þín mun lifa, elsku besta amma Jóns. Hvíldu í friði. Þínar langömmustelpur, Lilja Björg, Dagný Rún og Erna Guðrún. Elsku langamma, okkur langar að kveðja þig með þessu litla ljóði. Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni. Sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sig. Jónsson frá Presthólum.) Þínar langömmustelpur, Fanney Sara Friðriksdóttir, Guðrún Lilja, Sigurjóna og Birna Sólveig Kristófersdætur. Anna Sigurbjörg Jónsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.