Morgunblaðið - 25.06.2007, Blaðsíða 36
Gamanmynd um 45
milljónir manna án
heilsugæslu í ríkasta sam-
félagi veraldar … 37
»
reykjavíkreykjavík
Meðvituðu flugunni ykkar finnstmjög mikilvægt að standa vörðum mannréttindi. Á föstudags-kvöldið fór hún því í fjólubláan
heilgalla og arkaði niður í Iðnó þar sem Sam-
tökin ’78 afhentu mannréttindaverðlaun og
efndu til veislu.
Í Iðnó var margt um manninn og glatt á
hjalla. Blöðrur og pappahjörtu í öllum regn-
bogans litum prýddu veggi hússins. Dagskrá
var skipulögð í anda verðlaunaafhendingar í
Hollywood, flugunni til mikillar skemmt-
unar. Hún nældi sér í rauðvínsglas, tyllti sér
við hliðina á myndarlegum ungum pilti og
fylgdist með.
Kynnar kvöldsins voru Sigga Birna Vals-
dóttir, leikstjóri og leiklistarkennari, og Við-
ar Eggertsson leikstjóri. Áherslur þeirra
voru skemmtilega ólíkar, Sigga Birna létt og
einlæg, en Viðar háfleygur og alvarlegur.
Reykjavíkurborg fékk verðlaun fyrir að
taka tillit til mannréttinda, ekki bara jafn-
réttissjónarmiða, í stefnumótun sinni og Guð-
rún Ögmundsdóttir hlaut viðurkenningu fyr-
ir framlag sitt til réttindabaráttu
samkynhneigðra. Hún var bersýnilega hrærð
yfir verðlaununum og hélt hjartnæma ræðu.
Að verðlaunaafhendingu lokinni stigu
Hara-systur á svið, hrífandi og brosmildar að
vanda. Þær voru eins klæddar, í svörtum,
háum buxum með axlabönd og hvítum skyrt-
um, svolítið í anda kvikmyndarinnar Kabar-
ett. Sýnt var brot úr athyglisverðri heim-
ildamynd sem verið er að vinna upp úr
viðtölum við Elías Mar. Hans var minnst og
Viðar Eggertsson las nokkur ljóða hans með
leikrænum tilþrifum. Því næst flutti Lay
Low þrjú lög. Hún spilaði á kassagítar, söng
þýðri röddu og vakti mikla lukku viðstaddra.
Á eftir henni spilaði rokksveitin Reykjavík!
nokkur lög. Hljómsveitin kynnti sig sem
25% samkynhneigða, þar sem einn af fimm
meðlimum sveitarinnar er samkynhneigður,
og gert er ráð fyrir því að hin 5% dreifist á
aðra í hljómsveitinni. Söngvari sveitarinnar
sagði að samkoman í Iðnó væri of virðuleg
til að þar væri hægt að spila harðkjarnarokk
og lofaði að spila bara lög í rólegri kantinum.
Flugan fékk ekki heyrt að staðið væri við
það og um tíma óttaðist hún mjög að hljóm-
sveitarmeðlimir kynnu að slasa sig þar sem
þeir fóru hamförum á sviðinu. Sem betur fer
fór þó allt vel að lokum og hin fjölmenna
hljómsveit Hjaltalín tók við. Hún magnaði
upp töfrandi og sérstakan hljóm með óvenju-
legum hljóðfærum og margradda söng.
Þegar formlegri dagskrá lauk var boðið
upp á veitingar í anddyri Iðnó. Þar var
margt skrafað og mikið hlegið. Á meðan var
salurinn rýmdur og plötusnúðar komu sér
þar fyrir. Svo var slegið upp heljarinnar
balli og dansað fram eftir nóttu. Flugan
flögraði sæl og glöð heim undir dagrenn-
ingu.
Morgunblaðið/Eggert
Hulda Helgadóttir, Ragnar Ísleifur Bragason
og Ólöf Arnalds
Egill Kalevi Karlsson og Mads Brauer.
María Gestsdóttir og
Ingigerður Guðmundsdóttir.
Ingveldur Einarsdóttir og Ásta Stefánsdóttir.
Anna Sveinsdóttir og Hildur Sveinsdóttir.
Morgunblaðið/Eggert
Seselía Huld Gísladóttir, Íris Friðriksdóttir
og Undína Ósk Gísladóttir.
Arnar Björnsson og Kristján Ingi Baldurs.
Eva Rún Þorsteinsdóttir, Sólveig Guðrún Að-
alsteinsdóttir, Sara Hrund Helgadóttir og
Þórhildur Guðný Sigþórsdóttir.
Kristján Sigurðsson og
Berglind Rós Skúladóttir.
Flugan
… Meðvitað stuð með
Samtökunum ’78 …
… Hljómsveitin kynnti sig sem
25% samkynhneigða …
Hjalti Gunnarsson, Gunnar Karlsson,
Ólöf Nordal og Bergur Gunnarsson.
Kristín Guðjónsdóttir og
Jónína Ögn Jóhannesdóttir.
Eggert Leví, Marinó Björnsson, Ragnar Leví
og Sigurður Ingvi Björnsson.
Morgunblaðið/Eggert
Auður Þórhallsdóttir og
Hólmfríður Jónsdóttir.
» Sumarhátíðin Bjartar næt-ur var haldin í á Vatnsnesi í
Húnaþingi vestra.
»Útgáfutónleikar hljóm-sveitarinnar amiina í Iðnó.
» Íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnulék gegn Serbum á Laugardalsvelli.
Jakop Magnússon, Karl Sigurgeirsson og
Sigríður Jakopínudóttir