Morgunblaðið - 25.06.2007, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 25.06.2007, Blaðsíða 18
Nýstárlegir ferðamöguleikaraukast í sífellu og með vaxandiumferðarþunga hafa menning- arþyrstir ferðalangar fundið sér nýjar leiðir til að komast um höfuðborgir heimsins og er ein af þeim að nýta línu- skauta til ferðalaga. New York er ein af þeim borgum sem er vel til þess fallin að nota línuskauta til að komast á milli staða eða til að ferðast um borgina. Miðgarður, eða Central Park, er t.d. draumaparadís skautafólks því garðurinn sem er tæplega 150 ára gamall er risastór, 3,5 ferkílómetrar að stærð og er tilvalið að skauta á stígnum í kringum garðinn en hann er tíu kílómetra langur. Eina reglu þarf þó að hafa í huga á stígnum í kringum Miðgarð því ætlast er til þess að gestir skauti hringinn rang- sælis og er það gert til að draga úr slysum á stígnum. Stræti New York-borgar eru líka góð fyrir skautafólk og gera skautarnir ferða- löngum kleift að komast mun hraðar yfir annars fremur torfæra borg þar sem um- ferðaröngþveiti og mannmergð getur reynst mörgum um megn. Öryggið mikilvægt Þegar ferðast er á línuskautum verður öryggið að vera í fyrsta sæti. Hjálmur er nauðsynlegur. Í Miðgarði hafa orðið banaslys á meðal skautafólks sem án und- antekninga hefði verið hægt að afstýra ef hjálmur hefði verið notaður. Eins er nauðsynlegt að nota ljós og endurskins- merki þegar kvölda tekur enda mikil um- ferð í borginni. Ferðalangar á línu- skautum þurfa líka að vera varir um sig gagnvart hjólreiðafólki, skokkurum og öðrum á skautum því það eru ekki bara bílarnir í umferðinni sem eru hættulegir. Að lokum má benda á að einnig er hægt að fara í skipulagðar línu- skautaferðir um borgina og það gæti ver- ið skynsamlegt að nýta slík boð til þess að kynnast borginni í rólegheitum. Ferðast á línuskautum Morgunblaðið/Einar Falur Umferð Á Manhattan getur verið hentugt að skoða sig um á línuskautum enda lítið vit í því að nota bíla til að komast á milli staða. Miðgarður bíður líka upp á stór græn svæði og þar er mikið af stígum og er meðal annars 10 kílómetra hringur í kringum garðinn. TENGLAR ........................................................... http://www.skatecity.com/nyc/where/ |mánudagur|25. 6. 2007| mbl.is daglegtlíf Er skynsamlegt að eiga dollara á gjaldeyrisreikningi eða borgar sig kannski bara að geyma evr- urnar heima? »20 fjármál Fjölskyldan kolféll öll fyrir Tolla þegar hann kom á heimilið en þar hefur hann síðan lifað eins og blómi í eggi. »21 gæludýr Eftir Jóhönnu Ingvarsdóttur join@mbl.is Ég er bara að vinna og þaðer gaman og skemmtilegt.Núna erum við að látasand í holurnar hérna á vellinum. Við tínum líka rusl, sópum gangana og tökum til í klefunum,“ sagði Jón Þorri Jónsson í samtali við Daglegt líf, sem kíkti við á Valsvell- inum einn blíðviðrisdaginn í vikunni. Jón Þorri var þá ásamt þeim Ísak Óla Sævarssyni og Helga Guðjónssyni að sanda gamla Valsvöllinn svo Vals- strákarnir gætu æft fótbolta án þess að detta niður um holurnar. Þre- menningarnir eru í Vinnuskóla fyrir ungt fólk með þroskahömlun sem er nú í fyrsta skipti starfræktur á veg- um Hins hússins. Vinnuskólinn er starfræktur í formi starfsþjálfunar og eru ungmennin, sem eru yfir tuttugu á aldrinum 16 til 20 ára, farin að starfa á ýmsum vinnustöðum vítt og breitt um borgina. „Við höfum fengið frábærar móttökur hjá fyrirtækjum og það hefur gengið vel að koma ung- mennunum inn í þessi störf. Við- brögðin hafa því verið mjög jákvæð og allir eru voðalega ánægðir,“ segir Gígja Heiðarsdóttir, sem ásamt Júlíu Beerman, er umsjónarmaður með vinnuskólanum. „Hingað til hefur ungmennum með þroskahamlanir að- eins staðið til boða að vinna á Mikla- túni frá þrettán ára til tvítugs á með- an önnur ungmenni eru bara í unglingavinnunni á aldrinum 13-15 ára. Okkur langaði að breyta til núna og gefa einstaklingum með þroska- hamlanir á aldrinum 16 til 20 ára tækifæri til að kynnast hinum al- menna vinnumarkaði hægt og ró- lega.“ Afgreiðslustörfin vinsælust Krakkarnir mæta kl. 8.30 á morgn- ana í Hitt húsið og fara svo þaðan með strætó á sinn vinnustað í fylgd starfsmanns frá Sérsveit ÍTR sem aðstoðar þau við að læra. „Í byrjun fórum við í vettvangsferðir í fyrirtæki til að gera okkur grein fyrir því hvar hægt væri að bera niður og svo fór ákveðinn tími í að kynnast krökk- unum og ræða við forsvarsmenn fyr- irtækja, sem hafa tekið mjög vel í þetta. Auk vallarsvæðis Vals eru ung- mennin m.a. að vinna í Bónus, Vest- urbæjarlauginni, World Class, Echo, Kjarnavörum, Ásgarði og við að flokka og bera út póst. Einn af okkar mönnum gerðist aðstoðarmaður sendibílstjóra sem reyndist vera hans draumastarf, en ætli megi ekki segja að afgreiðslu- og þjónustustörf af ýmsum toga séu vinsælust meðal þeirra flestra.“ Að sögn Gígju þarf ef til vill að út- vega fleiri störf þar sem fleiri vilja komast að í vinnuskólanum. „Gaman að vinna“ Bíltúr Vallarstjórinn Gestur Svansson, sem hér er ökumaður fjórhjólsins, segist vera með góða starfskrafta við að laga og fegra vallarsvæðið. Samvinna Egill Ólafur Strange er leiðbeinandi þremenninganna Jóns Þorra Jónssonar, Ísaks Óla Sævarssonar og Helga Guðjónssonar. Morgunblaðið/RAX Holufylling Það er eins gott að hafa réttu græjurnar í verkunum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.