Morgunblaðið - 25.06.2007, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 25. JÚNÍ 2007 15
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
3.645.000 kr.
KIA • Laugavegi 172 • Reykjavík • s ími 590 5700 • www.kia. is
KIA Sorento – fullbúinn alvörujeppi
KIA umboðið á Ís landi er í e igu HEKLU.
NÚ ER
RÉTTI TÍMINN
TIL AÐ SKIPTA
KIA Sorento með ríkulegum staðalbúnaði
• hátt og lágt drif • 5 þrepa sjálfskipting
• ESP stöðugleikastýring • öflug 170 hestafla dísilvél
• ný og glæsileg innrétting • hraðastillir (Cruise Control)
• 16" álfelgur • þakbogar
• vindskeið og þokuljós • 3.500 kg dráttargeta
Keyrðu inn í sumarið á nýjum Sorento
Sumarp
akki
Dráttarb
eisli, su
mar- og
vetrard
ekk inn
ifalin í v
erði
Með 5 þrepa sjálfskiptingu.
LJÓST er að minnst 228 létu lífið af
völdum ofsaveðurs og mikillar
rigningar í borginni Karachi í Pak-
istan á laugardag. Stormurinn
felldi stór auglýsingaspjöld og tré
og reif rafmagnslínur, víða hrundu
húsaþök. Tugir manna eru slasaðir
og hjálparstarfsmenn segja tölu lát-
inna vafalaust munu hækka.
Reuters
Ofsi Karachibúar við hrunið aug-
lýsingaspjald í gær.
Yfir 200 fórust
Atlantshafs-
bandalagið hefur
viðurkennt að
það þurfi að bæta
aðferðir sínar í
Afganistan en
forseti landsins,
Hamid Karzai,
hefur gagnrýnt
bandalagið
vegna mannfalls
í röðum óbreyttra borgara.
Talíbanar rændu í gær átján
manns, þar af fjórtán sprengjuleit-
arsérfræðingum, lækni og þremur
bílstjórum, ásamt nokkrum hund-
um þeirra og ýmsum búnaði.
Viðurkenna
mistök
Hamid Karzai
FORSETI Tékklands, Vaclav
Klaus, virtist í gær vera þokkalega
ánægður við úrslit leiðtogafundar
Evrópusambandsins á laugardag.
Settar hefðu verið nokkrar hömlur
á viðleitni þeirra sem vildu stofna
nýtt risaveldi Evrópu, sagði Klaus
og „skynsemin“ hefði sigrað.
Ekkert risaveldi?
ÍRANSKA ríkissímafyrirtækið
verðlaunar nú þá sem láta lögregl-
una vita af „ósiðlegum“ smáskila-
boðum sem þeir fá í farsímana sína.
Ströng ritskoðun er líka á Netinu
og mega Íranar ekki skoða vefsíður
með pólitískri gagnrýni eða kynlífi.
Ritskoða farsíma
FULLTRÚADEILDIN bandaríska
hefur samþykkt lög með lítt áber-
andi viðauka þar sem segir að ríkið
skuli ekki veita Sádi-Arabíu neina
aðstoð enda þótt ríkisstjórnin segi
Sádi-Araba veita mikilvæga aðstoð
í hryðjuverkastríðinu.
Sádar út í kuldann
Forsætisráð-
herra rík-
isstjórnar Ha-
mas-manna í
Palestínu, Ismail
Haniyeh, for-
dæmdi í gær þá
ákvörðun Ísr-
aelsstjórnar að
láta nýja Palest-
ínustjórn, sem
Mahmoud Abbas forseti skipaði, fá í
hendur skattfé sem Ísraelar hafa
innheimt á hernumdu svæðunum.
Hamas ræður nú öllu á Gaza,
Fatah-menn Abbas forseta stýra
Vesturbakkanum en Haniyeh segir
peningana tilheyra öllum Palest-
ínumönnum. Sakar hann Ísraela um
að ætla að þvinga Hamas-menn til
hlýðni með því að hygla keppinaut-
um þeirra í Fatah.
Eign allra Pal-
estínumanna
Ismail Haniyeh
Beirut. AFP. | Sex spænskir gæslulið-
ar úr liði Sameinuðu þjóðanna féllu
og tveir að auki særðust í spreng-
ingu í Suður-Líbanon í gær. Haft var
eftir líbönskum hermönnum að
sprengja, sem falin hefði verið í veg-
kanti, hefði verið sprengd með fjar-
stýrðum búnaði þegar mennirnir
óku fram hjá. Yfirmenn spænska
hersins sögðu hins vegar að annað-
hvort hefði verið um jarðsprengju
eða sprengjugildru að ræða.
SÞ hafa frá 1978 haft friðargæslu-
lið, UNIFIL, í Líbanon til að fylgjast
með landamærunum að Ísrael og
koma í veg fyrir átök milli Hizbollah
og Ísraela. Fjölgað var mikið í
gæsluliðinu eftir stríðið í fyrra og
eru nú liðlega 11.000 manns í því, þar
af um 1100 Spánverjar. Hizbollah-
samtök sjíta í Líbanon ráða lögum og
lofum á svæðinu. Samtökin for-
dæmdu tilræðið í gær.
„Þessi árás hefur það markmið að
ýta undir öryggisleysi í Líbanon,
einkum í suðurhluta landsins,“ sagði
Hizbollah. Spánverjar sögðust ekki
myndu fækka í liði sínu í S-Líbanon.
Reuters
Hættuslóðir Spænskir friðargæsluliðar í Suður-Líbanon sinna særðum fé-
lögum sínum eftir sprengjutilræðið sem banaði sex þeirra í gær.
Sex gæsluliðar
féllu í Líbanon