Morgunblaðið - 25.06.2007, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 25.06.2007, Blaðsíða 10
10 MÁNUDAGUR 25. JÚNÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ How do you like the land, mr. Michel? VEÐUR Eitt orð skiptir máli. Það komskýrt í ljós þegar Morgunblaðið birti fréttasamtal við Einar Odd Kristjánsson alþingismann hinn 18. júní sl. Þar var haft eftir þingmann- inum að almenn samstaða væri á Al- þingi um endurskoðun kvótakerf- isins.     Þetta kommörgum spánskt fyrir sjónir en hver leyfir sér að and- mæla Einari Oddi í máli sem hann þekkir út og inn og um stöðu málsins innan þingsins en fáir þingmenn Sjálf- stæðisflokks hafa jafn góð sambönd í öðrum flokkum og Einar Oddur.     Og Morgunblaðið lagði út af þess-um orðum hans í forystugrein.     Nú er komið í ljós að Einar Oddursagði ekki það sem eftir honum var haft. Í þeirri frásögn féll niður orðið ekki. Setningin átti að vera svona:     Aðspurður sagðist Einar Oddurvilja sjá gripið til aðgerða en taldi ekki almenna samstöðu á Al- þingi fyrir endurskoðun kvótakerf- isins.“     Þegar þingmaðurinn vakti athygliritstjórnar Morgunblaðsins á þessum mistökum var leiðréttingin vandlega falin á bls. 37 í Morg- unblaðinu sl. föstudag. Sem er til marks um að blaðamenn skilja lítt það sem skiptir máli fyrir þing- menn.     Í von um að fleiri lesi Staksteina enleiðréttingardálkinn er þessum mistökum Morgunblaðsins hér með komið á framfæri og þingmaðurinn beðinn velvirðingar á þessum mis- tökum. STAKSTEINAR Einar Oddur Kristjánsson Eitt orð skiptir máli SIGMUND                      ! " #$    %&'  (  )                           *(!  + ,- .  & / 0    + -                             12     1  3   4 2- 2  * -  5  1 % 6! (78 9 4 $  (                            !!"   :  *$;<                       !   "   # ! $   %& %    *! $$ ; *! #$ %   $   & ' (' =2 =! =2 =! =2 #&% ! ) !" *+ '!,  <>2?         =   - !  "  $% .' '/ !" 0 !,  ( ' '!!!/  $ ! !" 12   0   '!!!  !" !'1   - !   ! ! - ' '/  .' ' !" 0 !   ' $ ! !" !" 1 3& !"  1 6 2  - ' !4* 0 !! ! 4$ ' ' (!" !15    $ !$  ' !" !'0 !!     !'  12   0   ' $ ! !" 1 67 '88 ! '5 ' ') !" 3'45 @4 @*=5A BC *D./C=5A BC ,5E0D ).C 1 0 0 1 1 1  1 1  1 / / 1 / /    0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0                   Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ Egill Jóhannsson | 21. júní 2007 Etanólbílar í Svíþjóð … Íslendinga sem hafa af nokkurri þráhyggju einblínt á vetni sem framtíðarorkugjafa og hefur það leitt til þess að aðrir kostir hafa ekki verið skoðaðir samhliða. Það er auðvitað mikilvægt að skoða möguleika vetnis því vetni verður án efa einn af orkugjöfum framtíðarinnar en það er staðreynd að það verður ekki fyrr en í fyrsta lagi í kringum 2020 og eftir það mun taka mörg ár að innleiða það. Meira: egill.blog.is Katrín Anna Guðmundsdóttir | 23. júní 2007 Sjúklingum skóflað út á land Nú berast fréttir af því að einhver hafi fengið þá „brilliant“ hugmynd að flytja sjúklinga af höfuðborgarsvæðinu út á land. Ég velti fyrir mér hvernig á að velja sjúklingana? Þá sem eiga enga að- standendur? Þá sem er illa við að- standendur sína eða aðstandendum er illa við þá? Þá sem eru dauðvona? Meira: hugsadu.blog.is Gestur Gunnarsson | 24. júní 2007 Heilsubælið Til að gera veggina lúna var vökvi sem Brandur bruggaði úr svörtu kaffi með sykri og brúnni málningu, þessu var úðað á vegg- ina, síðan strokið yfir með tusku á strategískum stöðum. Leikararnir æfðu sig í gervi- leikmynd meðan við vorum að smíða og svo var generalprufan milli 1 og 2 á næturnar. Sumir leikaranna sváfu bara í sjúkrarúmunum. Meira: gesturgunnarsson.blog.is Anna K. Kristjánsdóttir | 24. júní 2007 Ljúga veðurfræðingar? Það var ekki amaleg veðurspáin, sól og blíða, þegar ég og nafna mín og ná- grannakona lögðum af stað að heiman á laug- ardagsmorguninn og var förinni heitið á Hengilinn. Það var ekið sem leið lá og bílnum lagt skammt frá Víkingsskálanum og lagt þaðan í brekkurnar upp að Sleggjubeinsskarði. Ekki höfðum við gengið lengi er við fórum að efast um vísindi veð- urfræðinnar því þar var hífandi rok með hæfilegum sandbyl. Þetta hlýtur að lagast þegar kom- ið er upp á Húsmúlann, tautaði ég. Ónei, þar reyndist sama rokið og jafnvel verra ef eitthvað var því það var beint í andlitið á köflum og svo hvasst að erfitt var að fóta sig. Þarna hefði ekki veitt af eins og ein- um stórum Þórði til að halda sér í. Hann var samt með okkur í anda og rifjaðar upp sögur af kappanum frá því í fyrra. Áfram var haldið af gamalkunnri þrjósku. Brátt var komið að Þórð- arkleif (hún heitir kannski eitthvað allt annað, en mér er ókunnugt um það). Er ég fór yfir klifið kom slík vind- hviða frá norðri að ég varð að leggj- ast niður til að fara ekki sömu leið og Þórður forðum daga og síðan skríða yfir að klettinum framundan. Nafna mín hló bara að aðförum mínum og gekk yfir eins og ekkert væri sjálf- sagðara. Áfram var haldið í átt að Skeggja. Síðasta haftið, örmjótt einstigi reyndist okkur ófært vegna veð- urhamsins sem stóð á fjallið úr norðri frá heiðinni. Því var snúið við, haldið sem leið lá niður í Innstadal og þaðan til baka niður í Sleggjubeinsdal. Heim komumst við veðurbarðar, útiteknar og sandblásnar, en með alla útlimi í lagi. Ég náði veðrinu bæði á Stöð 2 og Ríkisútvarpinu og á Stöð 2 var enn sama himnablíðan og spáð hafði verið um morguninn og kvöldið áður. Þó sögðu þeir frá moldroki á Suð- urlandi í fréttunum. Sjálf var ég svo þreytt eftir ferðina að ég treysti mér ekki til að koma þessari færslu inn fyrr en komið var nærri hádegi. Meira: velstyran.blog.is BLOG.IS SLYS varð þegar tíu ára drengur varð fyrir heybindivél á Höfn í Hornafirði í gær. Drengurinn hlaut höfuðáverka og var færður á Heilsu- gæslustöðina á Höfn, en var síðan fluttur með sjúkraflugi á Landspít- alann í Reykjavík. Hann var með fullri meðvitund og líðan hans góð eftir atvikum, að sögn lögreglunnar á Höfn. Hlaut höfuðáverka í heybindivélarslysi UM 700 krakkar í yngstu aldursflokkunum frá 17 stöðum víðvegar um landið sendu 74 lið til keppni í smábæjarleikunum í knattspyrnu sem lauk á Blönduósi í gær. Var mikið líf og fjör á Blönduósi um helgina og gekk allt eins og best verður á kosið. Veðrið lék við keppendur og gesti. Morgunblaðið/Jón Sigurðsson Mikið fjör á smábæjarleikunum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.