Morgunblaðið - 25.06.2007, Blaðsíða 8
8 MÁNUDAGUR 25. JÚNÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Eftir Ylfu Kristínu K. Árnadóttur
ylfa@mbl.is
FJÖLMENNI var við minningar-
athöfn sem haldin var við Látra-
bjarg síðastliðinn laugardag þar
sem þess var minnst að 60 ár voru
liðin frá strandi breska togarans
Dhoon. Þar var tólf af sextán
manna áhöfn bjargað á frækilegan
hátt en þessi atburður þykir marka
djúp spor í björgunarsögu landsins.
Minningarathöfnin hófst við
minnisvarða við Geldingsskorardal
á Látrabjargi. Sigurgeir Guð-
mundsson, formaður Slysavarna-
félagsins Landsbjargar, flutti ræðu
og í kjölfarið stiklaði Gísli Már
Gíslason, sem ættaður er frá Látr-
um, á stóru um atburðarás björg-
unarinnar. Alp Mehmet, sendi-
herra Breta á Íslandi, talaði um
hve náin og mikil tengsl væru milli
Íslands og Bretlands og hve mikill
heiður honum þætti að fá að vera
þarna og hitta þrjá björg-
unarmannanna, tvíburabræðurna
Agnar og Björgvin Sigurbjörnssyni
og Árna Helgason. Að lokum fór
sr. Sveinn Valgarðsson með bless-
unarorð.
Eftir ræðuhöldin var gengið að
bjargbrúninni við Setnagjá. Sigsýn-
ing var haldin við Bjargtangavita
en Valur Helgason, björgunarsveit-
armaður frá Látrum, seig á gamla
mátann niður Stefnið sem er
klettabrík út frá Ritugjánni fyrir
ofan vitann. Sjö menn frá björg-
unarsveitinni Bræðrabandinu sátu
í hlíðinni og héldu í reipið.
Talið er að um hundrað manns
hafi mætt á minningarathöfnina en
öllu fleiri, eða rúmlega tvö hundr-
uð, hafi þegið kaffi og meðlæti á
Hnjóti í boði Landsbjargar. Þar var
einnig sýning um strandið þar sem
sjá mátti muni og myndir sem
tengjast björguninni. Meðal þeirra
sem mættu á Hnjót var Ólöf Haf-
liðadóttir en hún tók þátt í björg-
uninni fyrir sextíu árum.
Morgunblaðið/Ingimundur Óðinn
Fýlsegg Félagar í björgunarsveitinni Bræðrabandinu sigu niður bjargið og tíndu egg. Sigurður Viðarsson hjá Landsbjörgu fann eitt.
Haldið við Það þurfti langa röð af kröftugum björgunarsveitarmönnum til
að tryggja að allt færi vel og örugglega fram.
Setur mark á björgunarsöguna
Sigsýning Björgunarsveitarmaður seig á gamla mátann niður Stefnið.
Ræðumenn Sr. Sveinn Valgarðsson flutti blessunarorð við athöfnina og
einnig sagði Alp Mehmet, sendiherra Breta á Íslandi, nokkur orð.
Öryggi Fyllsta öryggis var gætt í bjargsiginu. Hjálm-
ur, talstöð og góðir hanskar eru bráðnauðsynleg tól.
Strands breska togarans Dhoon fyrir 60 árum minnst við Látrabjarg
Minningarathöfn
haldin við minnis-
varða um slysið