Morgunblaðið - 25.06.2007, Blaðsíða 4
Að tafli Bragi Þorfinnsson gerði jafntefli gegn Hjörvari S. Grétarssyni í
sjöttu umferð Fiskmarkaðsmótsins. Bragi er efstur með 5 vinninga.
PÓLVERJINN Andrzej Misiuga,
sem búsettur er hér á landi gerði
jafntefli við alþjóðlega meistarann
Walaa Sarwaat frá Egyptalandi í
120 leikja skák í sjöttu umferð Fisk-
markaðsmótsins í gær.
Bragi Þorfinnsson og Hjörvar
Steinn Grétarsson gerðu einnig jafn-
tefli og sömuleiðis Omar Salama og
Sævar Bjarnason. Ingvar Þór Jó-
hannesson hafði betur gegn Lenku
Ptacnikovu og Björn Þorfinnsson
vann Spánverjann Jorge Fonseca.
Bræðurnir Bragi og Björn Þor-
finnssynir skipa efstu tvö sætin á
mótinu.
Jafntefli Misiuga og
Sarwat í 120 leikjum
Hagkvæmt Húsin munu kosta þriðjung af því sem hús af sömu stærð kosta
hér, eða á bilinu 27,7 til 37,6 milljónir fyrir 200 til 400 fermetra hús.
Eftir Gunnhildi Finnsdóttur
gunnhildur@mbl.is
FASTEIGNASALAN Garðatorg
auglýsti fimm glæsihýsi á Flórída til
sölu í sunnudagsblaði Morgunblaðs-
ins. Samkvæmt upplýsingum frá
fasteignasölunni kosta þau um þriðj-
ung af því sem hús af sömu stærð-
argráðu kosta hér, eða á bilinu 27,7
til 37,6 milljónir fyrir 200 til 400 fer-
metra hús. Húsin eru í lokuðu, vökt-
uðu hverfi og sundlaug og nuddpott-
ur fylgir þeim öllum. Þau eru í eigu
íslenskra fjárfesta, en Garðatorg
hefur milligöngu um söluna.
Kaupendum fasteigna í Banda-
ríkjunum býðst að taka lán hjá þar-
lendum lánastofnunum. Miðað við
upplýsingar frá Garðatorgi um láns-
kjör eru þau mun hagstæðari en hér
þekkist og munar þar mestu að lánin
eru óverðtryggð. Ef miðað er við
kaup á fasteign sem kostar þrjátíu
milljónir, þá bjóða bandarískir bank-
ar tuttugu og fjögurra milljóna lán,
eða sem nemur áttatíu prósentum af
verðinu. Lánin eru á sex prósent
vöxtum til þrjátíu ára. Heildarend-
urgreiðsla af slíku láni yrði tæpar
fimmtíu og átta milljónir. Ef kaup-
andi myndi leita til Íbúðalánasjóðs
um jafn hátt lán yrði endurgreiðslan
tæplega tvöfalt hærri, eða sem nem-
ur rúmum hundrað og fimm millj-
ónum.
Fimm villur á Flórída
boðnar fyrir lágt verð
Lánakjör mun hagstæðari í Bandaríkjunum en hér á landi
4 MÁNUDAGUR 25. JÚNÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Heimsferðir bjóða ótrúlegt tilboð á síðustu sætunum til Montreal 28. júní. Þetta
er einstakt tækifæri til að njóta lífsins í þessari stórkostlega spennandi borg.
Það er frábært að skoða sig um, versla og njóta lífsins í Montreal; fallegar bygg-
ingar, endalaust úrval verslana og
veitingastaða og hagstætt verðlag.
Gríptu tækifærið og smelltu þér til
Montreal og njóttu þess sem þessi
spennandi heimsborg hefur að bjóða.
2 fyrir 1 til
Montreal
Kanada
28. júní
frá aðeins kr. 19.990
Allra síðustu sætin
Verð kr. 19.990
Netverð á mann. Flugsæti báðar leiðir með
sköttum, m.v. 2 fyrir 1 tilboð 28. júní.
Munið Mastercard
ferðaávísunina
MJÖG margt var í miðbæ Reykja-
víkur í fyrri nótt og var mikið að gera
hjá bæði lögreglu og starfsmönnum
skemmtistaða. Góða veðrið átti lík-
lega stóran þátt í því að svo margt
var um manninn og slettu margir
miðbæjargestir ærlega úr klaufun-
um langt fram undir morgun. Ölvun
var almenn og var því í mörgu að
snúast hjá lögregluþjónum.
Lögreglan sparaði samt ekki hrís-
ið þótt álagið væri mikið. Fanga-
geymslur fylltust af óspektarliði og
slagsmálahundum og voru margir
sektaðir fyrir drykkjulætin. Að sögn
lögreglu voru það einkum þeir sem
sátu enn að sumbli í morgundögginni
sem voru hvað illviðráðanlegastir.
Sjúkraflutningamenn hjá Slökkvi-
liði höfuðborgarsvæðisins voru einn-
ig önnum kafnir en 37 sjúkraflutn-
ingar fóru fram um nóttina. Þykir
það óvenjumikið en ekki fengust
upplýsingar um hvort mikill fjöldi
útkalla hefði tengst miðbæjargleð-
inni.
Mikill fjöldi
og ölvun í
miðbænum
SANKTI Bernharðshundurinn Tit-
arnerna Atlas var valinn besti hund-
urinn á sumarsýningu Hundarækt-
arfélags Íslands. Eigandi Titarnerna
Atlas er Guðný Vala Tryggvadóttir.
Sumarsýningin fór fram í Reið-
höllinni í Víðidal um helgina. Alls
komu 635 hundar fram fyrir dómara
sýningarinnar og eru þeir af 75 mis-
munandi tegundum. Eingöngu
dæma erlendir dómarar í keppnum
félagsins svo alls hlutleysis sé gætt.
Mikil spenna var meðal gesta um
miðjan dag í gær þegar úrslitin voru
kunngerð.
Á myndinni eru dómararnir Gör-
an Bodegård frá Svíþjóð og Eugene
Yerusalimsky frá Rússlandi, ásamt
Guðnýju Völu Tryggvadóttur, eig-
andi Atlas, og Jónu Th. Viðars-
dóttur, formanni HRFÍ.
Flottasti
hund-
urinn
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Mikil spenna á úrslitadegi hundasýningarinnar
BJÖRN Bjarnason dómsmálaráð-
herra segir ekki koma til greina að
taka ákæruvaldið í skattalagabrot-
um af embætti ríkissaksóknara og
skerða með því sjálfstæði hans.
Bryndís Kristjánsdóttir, skattrann-
sóknarstjóri ríkisins, viðraði þá hug-
mynd í aðsendri grein, sem birtist í
Morgunblaðinu í gær, að færa
ákæruvaldið í alvarlegum skatta-
lagabrotum til embættis skattrann-
sóknarstjóra.
Bæri faglega ábyrgð
Björn segir að vinna við endur-
skoðun á lögum um meðferð op-
inberra mála sé á lokastigi með sér-
stakri áherslu á kafla laganna um
ákæruvaldið. Nú sé því rétti tíminn
vilji fjármálaráðuneytið, sem hefur
yfirumsjón með skattrannsóknar-
stjóra, ræða við dóms- og kirkju-
málaráðuneytið, sé áhugi á því að
sérstakur saksóknari starfi með
skattrannsóknarstjóra með svipuð-
um hætti og saksóknari starfar nú
með ríkilögreglustjóra. Ef úr því
yrði gæti saksóknari skattalaga-
brota starfað
með skattrann-
sóknarstjóra og
annast ákæru-
vald hans, en
hann bæri þó fag-
lega ábyrgð
gagnvart ríkis-
saksóknara.
„Allir, sem að
þessum málum
koma af hálfu
framkvæmdavaldsins, hafa sama
markmið. Ég hef lagt mig fram um
að kalla eftir hugmyndum um hvaða
leiðir séu bestar að því við nýjar að-
stæður í þjóðfélagi okkar. Niður-
staðan verður að sjálfsögðu að rúm-
ast innan þess ramma að ekki sé
hróflað við sjálfstæðri ábyrgð rík-
issaksóknara,“ segir Björn. Hann
kveður menn ekki standa frammi
fyrir neinu vali um annaðhvort eða,
heldur því verkefni að tryggja
snurðulausa og skilvirka málsmeð-
ferð, þar sem réttar borgaranna er
gætt ekki síður en opinberra hags-
muna.
Björn
Bjarnason
Sérstakur sak-
sóknari mögu-
legur kostur
SEXTÁN ára piltur var handtekinn í
Reykjanesbæ í fyrrinótt grunaður
um að hafa veitt sautján ára pilti al-
varlega höfuðáverka. Sá var fluttur
þungt haldinn á Landspítala – há-
skólasjúkrahús í Fossvogi. Drengur-
inn, sem hlaut höfuðkúpubrot, er á
batavegi en kveðst lítið sem ekkert
muna eftir árásinni. Ekki er vitað
hvort högg árásarmannsins eða fall
fórnarlambsins í jörðina hafi orsakað
brotið.
Að sögn lögreglunnar á Suður-
nesjum var hringt í Neyðarlínuna í
gærnótt og tilkynnt um árásina.
Nokkrir sjónarvottar voru á vett-
vangi og var árásarmaðurinn í kjöl-
farið handtekinn og færður til yfir-
heyrslna á lögreglustöðinni í
Reykjanesbæ. Honum var sleppt að
loknum yfirheyrslum enda telst mál-
ið upplýst. Talið er að áfengi hafi
verið haft um hönd en lögreglan seg-
ir ólíklegt að fíkniefni hafi komið
nærri.
Búist er við að kæra verði lögð
fram á næstu dögum.
Höfuðkúpu-
braut dreng
♦♦♦