Morgunblaðið - 25.06.2007, Qupperneq 2
2 MÁNUDAGUR 25. JÚNÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann
Björnsson, fréttastjóri, bjb@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi,
gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Hulda Kristinsdóttir,
dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
FJÖLDI fólks fylgdist með dagskrá árlegrar flughelgar Flugsafns Íslands
á Akureyri. Í gær stóð fólki til boða að kaupa sér far með vél sem fór útsýn-
isflug en aðalhúllumhæið var á laugardaginn. Þá fór fram Íslandsmót í list-
flugi og flug af ýmsu tagi var sýnt; „venjulegar“ flugvélar svifu um loftin
blá, sem og svifflugur, mótorsvifdreki og þyrlur.
Flughelgin er árlegur viðburður. Í fyrra komu um 4.000 manns á flug-
vallarsvæðið til þess að fylgjast með og höfðu aldrei verið fleiri en að sögn
Svanbjörns Sigurðssonar, forstöðumanns Flugsafns Íslands, er talið að um
5.000 manns hafi fylgst með dagskránni á laugardaginn. Unga stúlkan á
myndinni var ein þeirra sem tóku sér far með sex sæta vél Mýflugs frá Ak-
ureyrarflugvelli síðdegis í gær og horfði á bæinn sinn frá öðru sjónarhorni
en hvunndags. Kirkjan er ekki síðri séð úr lofti en af jörðu niðri.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Mikill áhugi á flughelginni á Akureyri
Eftir Ylfu Kristínu K. Árnadóttur
ylfa@mbl.is
HÓPUR hjúkrunarfræðinga, sjúkraflutn-
ingamenn og slökkviliðsmenn munu á morg-
un ganga milli tveggja sjúkrahúsa í Reykja-
vík í því skyni að vekja fólk til vitundar um
alvarleg umferðarslys sem verða á sumrin.
Að sögn Bríetar Birgisdóttur hjúkrunarfræð-
ings hefur fólk sýnt mikla samstöðu en eftir
að frétt um gönguna birtist í Morgunblaðinu
á föstudaginn höfðu hjúkrunarfræðingar á
Akureyri samband og er nú verið að skipu-
leggja göngu þar. Einnig munu sjúkraflutn-
ingamenn frá Selfossi keyra í sjúkrabíl í
göngunni í Reykjavík með starfsmann Rann-
sóknarnefndar umferðarslysa innanborðs.
Magnús Pétursson, forstjóri Landspítala –
háskólasjúkrahúss, fagnar þessu framtaki og
hvetur starfsmenn til að taka þátt í því. Hann
ætlar sjálfur að ganga þrátt fyrir að vera fót-
brotinn og þurfa að styðjast við hækjur. „Ég
held að þetta sýni það að starfsmönnum of-
býður þessi mikli fjöldi slysa,“ segir Magnús.
„Mér finnst það afar lofsvert hjá starfs-
mönnum að taka þetta upp.“
Mun tvímælalaust skila árangri
Einar Magnús Magnússon hjá Umferð-
arstofu segir göngur sem slíkar og alla al-
menna umræðu um alvarlegar afleiðingar
áhættuhegðunar í umferðinni tvímælalaust
skila árangri. „Þau eiga mikið hrós skilið fyr-
ir að gera þetta. Þetta fólk kemur að og upp-
lifir oft skelfilegustu afleiðingar umferð-
arslysa og við höfum fundið fyrir því hjá
Umferðarstofu í gegnum tíðina að starfsfólkið
tekur þessa hluti skiljanlega mjög nærri sér.“
Að sögn Einars Magnúsar er margt sem
bendir til þess að fleiri alvarleg slys hafi átti
sér stað það sem af er þessu ári heldur en í
fyrra. Hann segir að lokum: „Þótt það séu
einstaka einstaklingar sem láta sér ekki segj-
ast megum við ekki gefast upp og segja að
þetta skili engum árangri því það verður því
miður alltaf til fólk sem lætur sér ekki segj-
ast.“
Bríet segir gönguna góða leið til að losa um
tilfinningar. Mjög erfitt sé t.d. fyrir sjúkra-
flutningamenn og lögregluþjóna að koma að
alvarlegum umferðarslysum og eins sé erfitt
fyrir þá sem vinni inni á stofnunum að mega
ekki tjá sig um nein einstök tilfelli. Starfsfólk
sé í raun oft lokað inni með miklar tilfinn-
ingar sem tengist þessu. „Okkur finnst þetta
vera ein leið til þess að sjást og heyrast án
þess að þurfa að taka fyrir eitt tilfelli heldur
minnast þeirra allra. Þarna sést fólkið sem
þarf að takast á við þetta frá degi til dags.“
Í Reykjavík verður haldið af stað frá
sjúkrabílamóttöku Landspítalans við Hring-
braut klukkan 17. Gengið verður fram hjá
Björgunarmiðstöðinni í Skógarhlíð og endað
við þyrlupall LSH í Fossvogi. Á Akureyri
mun gangan hefjast á sama tíma við þyrlupall
við FSA. Gengið verður niður Þórunn-
arstræti, suður Glerárgötu og endað á torg-
inu þar sem Guðrún Eggertsdóttir sjúkra-
húsprestur heldur stutta tölu. Að lokum
verður 31 blöðru sleppt á báðum stöðum til
minningar um þá sem létu lífið í umferðinni í
fyrra.
Gengið verður samtímis í Reykjavík og á Akureyri Fulltrúi frá Rannsóknarnefnd umferðarslysa
fylgir annarri göngunni í sjúkrabíl Lofsvert framtak, segir forstjóri Landspítala – háskólasjúkrahúss
Fleiri bætast í göngu gegn bílslysum
Hvatning Allir eru hvattir til að mæta; vinir,
kunningjar og aðrir sem láta sig málið varða.
NÝLEGA var
opnuð sýning á
akrýlmálverkum
Óla G. Jóhanns-
sonar í Opera-
galleríinu í Lund-
únum. Öll verkin
seldust á opnun-
ardeginum, 14
talsins. Jean-
David Malat,
stjórnandi gallerísins, segir Óla rís-
andi stjörnu og ákveðið hefur verið
að gera samning við hann um kynn-
ingu og sölu á verkum hans víða um
heim.
„Fólki líkar verk hans út af við-
fangsefninu og litunum og af því að
hann er mikilvægur listamaður og á
uppleið. […] Á næstu fimm til tíu ár-
um verður hann einn mikilvægasti
samtímalistamaður Norðurlanda,“
sagði Malat m.a. um Óla í samtali við
Morgunblaðið.
Óli staðfesti að til stæði að hann
skrifaði undir samning við Opera þó
að af því hefði ekki orðið enn. „Þetta
er dálítill naívismi,“ sagði hann um
verkin sem hann sýnir nú í Opera-
galleríinu í Lundúnum. | 16
Semur
við Opera-
galleríið
Óli G. Jóhannsson
Öll verk Óla G. seld-
ust á opnunardegi
MIKIÐ er um að hvers kyns varn-
ingur sem framleiddur er í Kína og
fluttur til Bandaríkjanna reynist gall-
aður eða beinlínis hættulegur.
Bandarískt fyrirtæki innkallaði á
dögunum 1,5 milljónir járnbrautar-
lesta úr tré, kenndar við Thomas and
Friends eða Tomma togvagn eins og
þessi vinsæli sjónvarpsþáttur og
vörulína heitir. Var talið að málning á
lestunum gæti innihaldið hættulega
mikið magn af blýi.
Eftir því sem næst verður komist
eru umræddar trélestir ekki á boð-
stólum hér á landi. Framkvæmda-
stjóri Leikco, sem selur vörulínu frá
leikfangaframleiðandanum Tomy
kennda við Tomma togvagn, segir að-
eins um öruggar plastvörur að ræða
og kveðst ekki hafa heyrt um sölu
málaðra trélesta hér á landi. | 14
Kínversk leik-
föng varasöm
♦♦♦
LITHÁI á fertugsaldri liggur þungt haldinn á
gjörgæsludeild Landspítala – háskólasjúkrahúss
eftir að hópslagsmál brutust út í samkvæmi í
Bakkahverfinu í Breiðholti. Sex Litháar voru
handteknir í gær og yfirheyrðir vegna málsins.
Það var um klukkan fjögur í fyrrinótt sem lög-
reglu barst tilkynning um að slegist væri í íbúð-
inni. Nokkur fjöldi fólks var saman kominn í íbúð-
inni en þegar lögregla kom á vettvang kom í ljós að
tveir menn höfðu meiðst. Voru þeir fluttir á slysa-
deild í Fossvogi. Annar mannanna reyndist hafa
einhvers konar stungusár á baki en þegar þau
voru könnuð reyndust þau ekki mjög alvarleg. Var
hann því útskrifaður eftir að búið hafði verið um
sárin. Hinn maðurinn gekkst hins vegar undir að-
gerð vegna höfuðkúpubrots og var haldið sofandi í
öndunarvél í gær. Hafði hann verið barinn í höf-
uðið með einhvers konar barefli.
Í samtali við Morgunblaðið í gær sagði Ómar
Smári Ármannsson aðstoðaryfirlögregluþjónn að
málið væri í rannsókn og að sex karlmenn væru í
haldi vegna málsins. Voru þeir yfirheyrðir í gær
með aðstoð túlks en málsatvik voru þó enn á huldu.
Ekki verið tekin ákvörðun
um gæsluvarðhald
Teknar voru skýrslur af öðrum samkvæmis-
gestum í gær og var ekki útilokað að aðrir kynnu
að hafa komið að slagsmálunum en þeir sem eru í
haldi. Ómar Smári sagði að ekki væri búið að
ákveða hvort krafist yrði gæsluvarðhalds yfir
mönnunum en það þyrfti þó að gera fljótlega. Ekki
væri vitað hvers konar bareflum hefði verið beitt
gegn mönnunum en ákveðnar grunsemdir væru
þó um það.
Allir eru mennirnir búsettir hér á landi.
Einn alvarlega slasaður á
gjörgæslu eftir hópslagsmál
Málsatvik óljós en sex karlmenn í haldi lögreglu vegna málsins
Í HNOTSKURN
» Tilkynning barst lögreglu rétt fyrirklukkan fjögur í fyrrinótt um að slegist
væri í íbúð í Bökkunum.
» Þegar að var komið reyndust tveir mennslasaðir. Við nánari skoðun reyndist
annar alvarlega slasaður með höf-
uðkúpubrot en hinn hafði sloppið betur þótt
hann hefði stungusár.