Morgunblaðið - 25.06.2007, Page 9
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 25. JÚNÍ 2007 9
FRÉTTIR
15% afsláttur
Pils - Peysur - Bolir
Sumartilboð
Álfabakka 14, sími 557 5900
Við erum fluttar!
Í nýtt og glæsilegt húsnæði að Álfabakka 14.
20% afsláttur af öllum vörum
Í versluninni í tilefni dagsins.
Hlökkum til að
sjá ykkur
Nýbýlavegi 12, Kóp.
Sími 554 3533.
Opið virka daga kl. 10-18
laugardaga kl. 10-16.
Jakkadagar
25% afsláttur
Gæði og glæsileiki
Skagaströnd | Frímann Guðbrandsson úr golf-
klúbbnum á Sauðárkróki varð fyrstur til að
fara holu í höggi á Háagerðisvelli á Skaga-
strönd á 20 ára sögu vallarins. Þetta var jafn-
framt í fyrsta sinn sem Frímann fer holu í
höggi.
Frímann náði draumahögginu á opna TM-
mótinu sem haldið er árlega á Hágerðisvelli.
Höggið sló hann á 7. braut vallarins en hún er
par 3 braut 111 metra löng. Hafa margir reynt
að fara brautina á einu höggi en engum tekist
fram að þessu.
Það skemmtilega við brautina er að vegna
brots í henni sést holan ekki frá teignum held-
ur bara flaggið og efsti hluti stangarinnar.
Frímann, sem sagði sig alltaf hafa dreymt um
að fara holu í höggi, notaði járn númer 8 til að
ná draumahögginu.
Verðlaun fyrir að fara næst holu á 7. braut
var nýr pútter og nokkrar merktar kúlur. „Við
erum svo oft búnir að vera með glæsileg verð-
laun í boði fyrir að fara holu í höggi á 7. braut-
inni en það hefur engum tekist fram að þessu.
Við vorum því orðnir úrkula vonar og vorum
bara með verðlaun fyrir að fara næst holunni,“
sagði Ingibergur Guðmundsson mótsstjóri
hálfsvekktur yfir að hafa ekki veglegri verð-
laun til að veita nýja einherjanum.
Náði draumahögginu
á Háagerðisvelli
Morgunblaðið/ÓB
Ánægður Frímann var ánægður með draumahöggið sem hann hefur beðið eftir í mörg ár.
ÖNNUR umferð Íslandsmeist-
aramótsins í torfæruakstri var ekin
á Egilsstöðum á laugardaginn og
var þar hart barist um hvert stig.
Framganga heimamanna var sér-
lega vaskleg og þeir nutu þess að
vera á „heimavelli“, hvattir óspart
af áhorfendum. Mikill uppgangur
er í torfærunni á Austurlandi og
sem merki um það voru sex kepp-
endur að austan. Þar fór fremstur í
flokki Ólafur Bragi Jónsson frá Eg-
ilsstöðum en Ólafi tókst með harð-
fylgi að ná 2. sæti í flokki sér-
útbúinna jeppa. Réð þar úrslitum
frábær akstur hans í lokabraut
keppninnar, tímabrautinni, þar sem
hann náði langbesta tímanum.
Það var hins vegar Gunnar
Gunnarsson á Trúðnum sem sigraði
í keppninni og hefur hann með því
tekið fjögurra stiga forystu á næsta
mann, Ólaf Braga, í keppninni til Ís-
landsmeistaratitils. Sigurður Þór
Jónsson á Tröllinu varð þriðji og er
jafnframt þriðji í stigakeppninni.
Erfiðar brautir
Ragnar Róbertsson á N1 Willysn-
um sigraði enn og aftur í flokki
breyttra götubíla og sýndi þar
nokkra yfirburði. Dalamaðurinn
Bjarki Reynisson varð annar og
Vignir Rúnar Vignisson þriðji en
hann keppti á sama bíl og Ragnar
Róbertsson.
Í götubílaflokki var keppnin hörð
og erfið en brautirnar sem lagðar
voru fyrir götubílaflokkinn voru
mjög erfiðar. Hið sama má reyndar
segja um hina flokkana og til marks
um það var einungis einn bíll í
keppninni sem tókst að ljúka braut.
Var ótrúlegt að sjá hversu langt
götubílarnir komust í erfiðum
þrautunum. Páll Pálsson á Willys
CJ5 sigraði í götubílaflokki og er í
forystu Íslandsmeistaramótsins
með mjög vænlega stöðu þar sem
Steingrímur Bjarnason, helsti
keppinautur hans, keppti ekki að
þessu sinni. Hannes Berg Þór-
arinsson varð annar og Hlynur B.
Sigurðsson á Toyota HiLux þriðji.
Keppt í torfæru á Egilsstöðum
Morgunblaðið/Jóhann A. Kristjánsson
Lagni Gunnar Gunnarsson á Trúðnum sigraði í torfærukeppninni á Egils-
stöðum eftir harða keppni þar sem keppnisbrautirnar voru sérlega erfiðar.
Morgunblaðið/Jóhann A. Kristjánsson
Hraði Ólafur Bragi Jónsson á Refnum tryggði sér annað sætið í flokki
sérútbúinna jeppa með fantagóðum og hröðum akstri í tímabrautinni.
Heimamenn í ham
Eyjafjarðarsveit | Heyskapur hefur
gengið afar vel að undanförnu í
Eyjafjarðarsveit. Er nú svo komið
að nokkrir bændur hafa lokið fyrri
slætti og komið öllu í plast. Það er
ekki síst að þakka hinum öflugu
verktökum frá Garðsbúinu sem
leggja nánast nótt við dag og rúlla
og binda allt hvað af tekur. Tíð-
arfarið hefur verið einstakt til hey-
skapar og nánast ekki komið dropi
úr lofti síðan sláttur hófst.
Aðalsteinn Hallgrímsson verk-
taki sagðist ekki muna eftir svo
samfelldum kafla þar sem vélarnar
hefðu gengið frá morgni og fram á
nótt án nokkurs hiks vegna veðurs.
Grasspretta er í góðu meðallagi
þrátt fyrir þurrkana. Rigning væri
þó vel þegin, að minnsta kosti fyrir
þá sem eru búnir að ljúka fyrri
slætti.
Hafa lokið
fyrri slætti
Ljósmynd/Benjamín Baldursson
Hey Garðar Hallgrímsson verktaki frá Garðsbúinu bindur sílgræna töðuna.