Morgunblaðið - 25.06.2007, Page 16
16 MÁNUDAGUR 25. JÚNÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
MENNING
Í VIKUNNI kemur hingað til
lands 40 manna samískur kór
frá Kåfjord í Tromsfylki í
Norður-Noregi, sem kallar sig
Kynslóðakórinn en aldur með-
lima spannar allt frá 20 til 80
ára.
Kórinn heldur tónleika í
Skálholti föstudaginn 29. júní
kl. 11, í Ráðhúsinu laugardag-
inn 30. júní kl. 16 og í Hall-
grímskirkju sunnudaginn 1.
júlí þar sem þau munu syngja í messunni, sem
hefst kl. 11.
Á efnisskránni eru bæði lög og sálmar á norsku
og samísku.
Kórtónleikar
Samískur kór
á leið til landsins
Hallgrímskirkja
FIMM erlendir gestalista-
menn opna sýningu í SÍM,
Sambandi íslenskra myndlist-
armanna, að Seljavegi 32 í dag.
Yfirskrift sýningarinnar er
Leigjendurnir (The Lodgers).
Listamennirnir eru Anne
Kathrin Greiner frá Þýska-
landi en hún er búsett í Lond-
on, Celeste Roberge frá
Bandaríkjunum, Lesley Davy
frá Bretlandi, Inga Darguzyte
frá Litháen og Sharyn Finnegan frá Bandaríkj-
unum.
Sýningin opnar í kvöld klukkan 20 og er öllum
opin.
Sýning
Erlendir leigjendur
á Seljavegi
Aðsetur SÍM í
Hafnarstræti.
ÚT ER komin hjá Bjarti
ítalska skáldsagan Hver er
Lou Sciortino? eftir Ottavio
Cappellani.
„Hver er Lou Sciortino? er
léttleikandi átakasaga um
ítalsk-ættaðan Ameríkana sem
er að feta sín fyrstu spor á
glæpabrautinni. Eftir mis-
heppnað upphlaup í Ameríku
er Lou Sciortino sendur til Sikileyjar, þar sem
hann á að sitja við fótskör mafíuforingja um-
dæmisins,“ segir meðal annars í tilkynningu frá
Bjarti.
Bókin er fertugasta og önnur bókin í neon-röð
Bjarts og 236 blaðsíður.
Bækur
Hver er
Lou Sciortino?
„ÉG er að semja verk fyrir Kamm-
ersveitina Ísafold, sem verður frum-
flutt um verslunarmannahelgina. Ég
stjórna sjálfur hljómsveitinni; við
verðum með tvö prógrömm og nýja
verkið verður á öðru þeirra,“ segir
Daníel Bjarnason, en hann verður
staðartónskáld í Skálholti í sumar.
Og hvað á maður að titla Daníel;
hann er píanóleikari, tónskáld, og nú
fyrir nokkrum vikum var hann að
ljúka námi í hljómsveitarstjórn í
Freiburg í Þýskalandi. „Ég get ekk-
ert sagt þér eins og er um nýja verk-
ið, annað en að það er samið fyrir 17
manna kammersveit,“ segir Daníel;
kveðst byrjaður að semja, en treysti
sér ekki til að fabúlera um framvind-
una. „Ég hef aldrei verið í hópi flytj-
enda í Skálholti og hlakka mjög til.
Núna verð ég þar tvisvar því ég
stjórna líka verki Huga Guðmunds-
sonar 8. júlí. Ég er búinn að vera í
námi í Freiburg síðustu þrjú árin, en
fyrir það fór ég oft á tónleika í Skál-
holti.“
Buxtehude og Scarlatti fagnað
Sumartónleikar í Skálholti eru nú
haldnir í 33. sinn, og hefjast um
næstu helgi. Í frétt frá Sumartón-
leikum segir að fjölbreytni einkenni
dagskrána í sumar. Meginþema
Sumartónleika í Skálholti í ár mark-
ast af því að í ár er minnst ártíðar
tveggja af merkari tónskáldum bar-
okktímans, þeirra Dietrichs Buxte-
hude og Domenicos Scarlatti. Ítölsk
og norður-þýsk barrokktónlist
spinnur rauðan þráð gegnum tón-
leikahelgarnar fimm. Eins og venju-
lega kemur fjöldi flytjenda fram á
hátíðinni, þar á meðal barokksveitin
Nordic Affect, Bachsveitin í Skál-
holti, sönghópurinn Gríma, Marta
Hrafnsdóttir altsöngkona, Guðrún
Hrund Harðardóttir víóluleikari, Vi-
beke Astner orgelleikari frá Dan-
mörku, Margaret Irwin-Brandon
orgelleikari frá Bandaríkjunum,
Kati Debretzeni fiðluleikari frá
Transylvaníu og Jaap Scröder fiðlu-
leikari frá Hollandi.
Hefð hefur skapast fyrir því að
fyrir tónleika á laugardögum flytji
fræðimenn og tónlistarmenn erindi
um eitthvað það er tengist tón-
leikum helgarinnar. Fyrir fyrstu
tónleikana um helgina, eða á laug-
ardag kl. 14, mun Helga Ingólfs-
dóttir minnast samstarfs síns við
Manuelu Wiesler flautuleikara sem
lést í lok síðasta árs. Manuela átti
gríðarstóran þátt í mótun Sum-
artónleika í Skálholtskirkju fyrstu
árin ásamt Helgu.
Sumartónleikar að hefjast í Skálholti
Daníel Bjarnason
er staðartónskáld
Staðartónskáldið Daníel Bjarnason er í senn píanóleikari, tónskáld og
nýútskrifaður hljómsveitarstjóri og hlakkar til vinnunnar í Skálholti.
TENGLAR
..............................................
www.sumartonleikar.is
Í HNOTSKURN
» Sumartónleikar í Skál-holti hafa verið fastur lið-
ur í menningarlífinu frá stofn-
un þeirra sumarið 1975.
» Stofnandi hátíðarinnar oglistrænn stjórnandi fyrstu
30 sumrin var Helga Ingólfs-
dóttir semballeikari.
» Núverandi listrænnstjórnandi er Sigurður
Halldórsson sellóleikari.
» Sumartónleikar í Skál-holti eru elsta starfrækta
tónlistarhátíð landsins.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Eftir Bergljótu Leifsdóttur Mensuali
begga@inwind.it
SKÁLHOLTSKVARTETTINN sem
er skipaður Jaap Schröder fiðluleik-
ara, Rut Ingólfsdóttur fiðluleikara,
Svövu Bernharðsdóttur víóluleikara
og Sigurði Halldórssyni sellóleikara
hélt tvenna tónleika á Ítalíu í júní.
Fyrri tónleikarnir fóru fram í San
Marcellino kirkjunni hjá Háskól-
anum í Napolí 20. júní og voru tón-
leikarnir haldnir til minningar um
að 10 ár eru liðin frá því að prófessor
Gaetano Salvatore lést, en hann var
forseti læknadeildar Háskólans í Na-
polí og forseti sjávarlíffræðistofn-
unarinnar Anton Dohrn – einnar af
mikilvægustu stofnunum í sjáv-
arlíffræði.
Síðari tónleikarnir voru á eyjunni
Capri, í hinni frægu Villa San Mic-
hele í bænum Anacapri en sænski
læknirinn Axel Munthe lét byggja
Villa San Michele á rústum róm-
versks húss. Bygging villunnar hófst
árið 1896. Frá árinu 1910 þurfti Axel
Munthe að búa í Materita-turninum
á Anacaprí vegna þess að hann var
með skerta sjón og skrifaði hann þar
bókina Saga Villa San Michele en
hann þjáðist einnig af svefnleysi og
skrifaði hann bókina á nóttunni. Í
Villa San Michele er herbergi sem er
tileinkað bókinni en bókin hefur
komið út á 52 tungumálum og er þar
íslensk útgáfa af henni og er hún sú
eina í skinnbandi. Saga Villa San
Michele er þriðja mest lesna bókin í
heiminum á eftir Biblíunni og Kór-
aninum. Bókin kom fyrst út í London
árið 1929. Villa San Michele hefur
verið opin almenningi frá árinu
1930. Axel Munthe lést í Stokkhólmi
árið 1949 en hann arfleiddi sænska
ríkið að 6 af 7 húsum sínum á Ana-
capri en ítalska ríkið að einu. Tón-
leikarnir voru haldnir í garðinum í
Villa San Michele 22. júní.
Skálholtskvartettinn
Skálholtskvartettinn var stofn-
aður af hollenska fiðluleikaranum
Jaap Schröder. Hann er sérhæfður í
klassískum strengjakvartettum og á
hann að baki yfir 50 ára starfsferil í
strengjakvartettum. Jaap Schröder
hefur verið í Bachsveit Skál-
holtshátíðarinnar í 14 ár. Flestir
meðlimir Skálholtskvartettsins
komu fyrst saman í Skálholti árið
1996 þegar þar var flutt verkið Síð-
ustu orð Krists eftir Haydn og var
verkið síðan flutt árið 1997 í Frakk-
landi. Árið 2003 fékk kvartettinn
nafnið Skálholtskvartettinn. Kvart-
ettinn hefur oft spilað barokkmúsík
eftir Bach á Skálholtshátíð. Kvart-
ettinum var boðið árið 2004 að flytja
verk eftir Haydn á Eszterháza-
hátíðinni í Ungverjalandi og þá spil-
aði kvartettinn einnig í Ráðhúsi Lju-
bliana. Skálholtskvartettinn hefur
gefið út geisladiska í Frakklandi,
Hollandi og á Íslandi og hefur hann
komið fram til dæmis á Haydn-
Hoboken-hátíðinni í Rhoon nálægt
Rotterdam í Hollandi og ĺIslande
-Provence hljómlistarhátíðinni í
Esparron de Verdon í Frakklandi.
Skálholtskvartettinn hefur sérhæft
sig í tónlist frá seinni hluta 18. aldar
en núna bætir hann við verkum frá
19. öld eftir Franz Schubert og Ant-
on Bruckner. Skálholtskvartettinn
mun flytja fjögur verk á tónleik-
unum og eru þau eftir Joseph
Haydn, 2 verk eftir Schubert og að
lokum verk eftir Luigi Boccherini.
Á Capri Villa San Michele.
Skálholts-
kvartettinn
á Ítalíu
TENGLAR
..............................................
www.sanmichele.org
ÓLI G. Jóhannsson listmálari gerir það heldur bet-
ur gott þess dagana. Fyrir skömmu var opnuð sýn-
ing á akrýlmálverkum hans í Opera-galleríinu í
Lundúnum og seldust öll verkin, 14 talsins, á opn-
unardegi. Opera rekur gallerí í París, Lundúnum,
Feneyjum, New York, Miami, Singapúr og Hong
Kong. Galleríið í Lundúnum stendur við Bond-
stræti og selur m.a. verk eftir marga helstu meist-
ara listasögunnar, t.d. Chagall og Picasso, auk nú-
tímalistamanna. Nokkur slík gallerí er að finna á
þessu svæði borgarinnar, og óhætt er að segja að
þar séu engar útsölur.
Óli sagði í samtali við Morgunblaðið sl. miðviku-
dag að hann hefði um árabil horft vonaraugum á
galleríið, og má því segja að draumur hans hafi
ræst og rúmlega það. Til stendur að gera samning
við hann um frekari sýningar á vegum gallerísins,
að sögn Jean-David Malat, stjórnanda Opera-
gallerísins í Lundúnum.
Rísandi stjarna
Malat er afar hrifinn af verkum Óla og segir
hann rísandi stjörnu. Stjórnendur Opera hafi
ákveðið að gera samning við hann um kynningu og
sölu á verkum hans víða um heim, í galleríum
Opera. „Hann er yndislegur myndlistarmaður, fyr-
ir okkur er hann mjög mikilvægur, með einstakan
stíl og litríkur,“ sagði Malat í samtali við Morg-
unblaðið í gær.
Hann sagði að viðfangsefni Óla á sýningunni í
Lundúnum, hestar, væri athyglisvert og þeir safn-
arar sem sóttu sýninguna hefðu verið hrifnir, enda
hefðu öll verkin selst á opnunarkvöldinu. Kaup-
endur hefðu komið víða að, meðal þeirra væru Ís-
lendingar og banki í Lúxemborg. „Fólki líkar verk
hans út af viðfangsefninu og litunum og af því að
hann er mikilvægur listamaður og á uppleið. Verðið
er líka sanngjarnt núna. Á næstu fimm til tíu árum
verður hann einn mikilvægasti samtímalistamaður
Norðurlanda,“ sagði Malat. Fyrirhuguð er sýning á
verkum Óla í galleríinu í Hong Kong á næsta ári.
Fljúgandi start
Óli var staddur í Lundúnum þegar blaðamaður
hafði samband við hann. „Það var fljúgandi start,“
sagði Óli um viðbrögð við sýningunni. Hann væri
ekki búinn að skrifa undir samning við Opera enn,
en það stæði til. Nokkrar borgir hefðu verið nefnd-
ar sem næstu sýningarstaðir. „Ég vinn bara eins og
ég hef alltaf unnið, þetta er ekkert sem ýtir mér í
meiri vinnu en ég hef verið í,“ svaraði Óli þegar
hann var spurður hvort hann þyrfti ekki að mála
grimmt á næstunni til að anna eftirspurn. „Þessi
sýning er meira fígúratíf, ég laumaði inn í þetta ab-
strakt fiskum og hestum og öllu mögulegu, þetta er
dálítill naívismi,“ sagði Óli um verkin í Opera. Hann
væri hæstánægður með störf Malat og bjartsýnn á
framhaldið.
Opera-galleríið í Lundúnum hyggst gera samning við Óla G. Jóhannsson
Öll verk Óla seldust á opnunardegi
Vorkoma Ein mynda Óla, Soon it will be spring.