Morgunblaðið - 25.06.2007, Page 21
gæludýr
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 25. JÚNÍ 2007 21
!!"! #$%&' () (
*+,&'
-.' /0 1(( 222"34,33"'
5
5
6
Traustur aðili hefur falið Eignamiðluninni að leita eftir góðu
1300 til 2000 fm skrifstofuhúsæði undir eigin starfsemi á
góðum stað miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu. Æskilegt er
að skrifstofur séu sem mest á einni hæð og að húsnæðinu
fylgi góðar geymslur og bílastæði. Afhending má vera 2008
eða 2009. Helst er leitað eftir eign til kaups en leiga kemur
til greina.
Nánari upplýsingar veita Sverrir og Hákon
á skrifstofu Eignamiðlunarinnar.
Sverrir Kristinsson, löggiltur fasteignasali
SKRIFSTOFUHÚSNÆÐI ÓSKAST
Eftir Jóhönnu Ingvarsdóttur
join@mbl.is
Þegar yngri sonurinn Haf-þór Breki, sem nú er orð-inn fimmtán ára, var íleikskóla héldu fóstrurnar
hans að við ættum fullt af hundum
því Hafþór var duglegur við að
búa til sögur og teikna myndir af
öllum ímynduðu hundunum á
heimilinu. Hann talaði mjög frjáls-
lega um „hundana“ sína eins og
þeir væru hluti af hans daglegu til-
veru og heimilislífi. Hundahaldið
var því búið að vera draumur hans
lengi þegar við ákváðum að taka
íslenskan sveitablending inn á
heimilið sem var yndislegur og frá-
bær í alla staði. Við áttum Brúnó í
fjögur ár, en þá veiktist hann og
dó og á eftir fylgdi ægileg sorg í
fjölskyldunni,“ segir Hrönn Arn-
arsdóttir, framhaldsskólakennari
og húsmóðir í Garðabæ, um upphaf
hundaáhuga fjölskyldunnar.
Heillaði alla upp úr skónum
Húsbóndinn á heimilinu, Bergur
Gunnarsson húsasmiður, fregnaði í
miðju sorgarferli af sætum ný-
fæddum hvolpi með fína ætt-
arsögu. Hann ákvað að festa kaup
á gripnum, kom með hann heim í
faðm fjölskyldunnar og sagðist
hafa verið beðinn um að passa
hvuttann unga í nokkra daga. „Við
kolféllum auðvitað öll fyrir honum
á einni helgi svo það var nánast
óhugsandi að skila honum aftur.
Þá kom sannleikurinn loks í ljós
þegar Bergur viðurkenndi að vera
löglegur eigandi hundsins, sem
fékk nafnið Tolli, eins og myndlist-
armaðurinn, og hefur síðan lifað
eins og blóm í eggi enda hafa hon-
um hlotnast verðlaun á hundasýn-
ingu.
Tolli tilheyrir hundakyninu pa-
pillon og fékk íslenski ræktandinn,
Kristín Halla Sveinbjarnardóttir,
sem er með svokallaða Royal Ice-
ræktun, pabbann sérstaklega lán-
aðan frá Svíþjóð í heilt ár í því
skyni að geta af sér afkvæmi. Tolli
kom í heiminn ásamt tveimur öðr-
um systkinum sínum í sama goti,
en það eru þau Erró og Embla,
sem valin var annar besti hundur
síðustu sýningar Hundarækt-
arfélags Íslands. Nú er Tolli orð-
inn tveggja ára og hefur nú fengið
félagsskap í bróðursyni sínum, sem
nú er níu mánaða og hefur fengið
nafnið Seigur. „Honum var nefni-
lega ekki hugað líf við fæðingu, en
þótti ákaflega lífseigur og þess
vegna er nafnið Seigur komið til,“
segir Hrönn.
Skemmtilegir heimilishundar
„Þeir frændur Tolli og Seigur
eru ákaflega ólíkir í geðslagi, en
ofsalega glaðir og skemmtilegir
báðir tveir.
Tolli elskar mig út af lífinu,
mænir á mig og fylgir mér eftir
hvert fótmál. Hann er mikill höfð-
ingi, en lætur Seig frænda sinn al-
veg vita hvar forréttindin liggja.
Tolli má þó ekki af Seig litla sjá og
er alveg miður sín ef þeir eru að-
skildir. Á meðan ég er í uppáhaldi
hjá Tolla, er Seigur allra, en báð-
um finnst afskaplega gaman að
láta leika við sig. Tolli verður pínu
óöruggur innan um ókunnuga á
meðan sá litli er ánægðastur ef
hann fær að vera innan um alla
unglingana, sem eru að heimsækja
Hafþór. Þeir eru miklar fé-
lagsverur, mannblendnir og ægi-
lega góðir vinir.
Þeir eru ákaflega þægilegir
heimilishundar og þó ég hafi ekki
verið mikið fyrir hundahald í byrj-
un, finnst mér þeir vera ómissandi
núna. Þeir vakna bara þegar við
vöknum, hvort sem það er eld-
snemma á morgnana eða um há-
degi um helgar. Ef við viljum vera
löt fyrir framan sjónvarpið, liggja
þeir í leti líka og ef maður er í
fjöri, þá eru þeir líka í stuði fyrir
það. Þeir éta einu sinni á dag og
eru bara á þurrfóðri og vatni og fá
útrás í spretthlaupum á túninu hér
fyrir neðan,“ segir Hrönn og bætir
við að hún skynji vel hvernig
hundunum hennar líði frá degi til
dags. „Ef hundarnir eru eitthvað
pirraðir eða lasnir veit maður ná-
kvæmlega hvernig þeim líður,
þessum litlu ferfætlingum.“
Tolli og Seigur eru miklar
félagsverur og góðir vinir
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Frændurnir Tolli er ívið stærri
og stæðilegri en fyrirburinn
Seigur, sem vart var hugað líf,
en leikur nú á alls oddi.
Hundamamman Tolli fylgir mér eftir hvert fótmál á meðan Seigur er
mikið partýljón, segir Hrönn Arnarsdóttir.
TENGLAR
.....................................................
www.papillonhundar.is