Morgunblaðið - 25.06.2007, Page 23

Morgunblaðið - 25.06.2007, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 25. JÚNÍ 2007 23 Eftir Gunnar Pál Baldvinsson gunnarpall@mbl.is Einu sinni var fiskurinn ísjónum óþrjótandi auðlindog hann var veiddur einsog sjómenn höfðu gert í þúsund ár. Nú eru veiðiheimildirnar einhver dýrustu verðmæti í samfélag- inu. Við getum reiknað með því að los- unarheimildir gróðurhúsalofttegunda verði það líka.“ Þessi framtíðarsýn Karl Axelsson- ar, hæstaréttarlögmanns hjá Lex, þarf ekki að vera svo fjarlæg. Al- þjóðamarkaður með losunarheimildir mun hefja starfsemi um næstu ára- mót og fljótlega mun sérstök nefnd úthluta losunarheimildum til atvinnu- rekstrar sem losar gróðurhúsaloft- tegundir. Þetta nýja umhverfi er til komið vegna Kyoto-bókunarinnar en markmið hennar er að setja takmörk við losun ákveðinna lofttegunda út í andrúmsloftið til að stemma stigu við gróðurhúsaáhrifum. Mörg álitamál munu koma upp Þegar bókunin verður að fullu kom- in til framkvæmda er líklegt að mörg lögfræðileg álitamál muni rísa. Lex, lögmannsstofa Karls, hefur af þess- um sökum gert samning við Laga- stofnun Háskóla Íslands um að stofn- unin standi fyrir umfangsmikilli rannsókn á ýmsum lagalegum þáttum sem tengjast Kyoto-bókuninni og inn- leiðingu ákveðinna skuldbindinga sem hún inniheldur í íslenskan rétt. „Með umfangsmiklum rannsóknum er fyrst og fremst átt við að margir efnisþættir verða skoðaðir og mörg réttarsambönd greind,“ segir Aðal- heiður Jóhannsdóttir, dósent við laga- deild Háskóla Íslands. Hún mun, í samvinnu við Lex, hafa faglega verk- stjórn með rannsókninni. Rannsóknin mun standa yfir í tæp tvö ár og verða niðurstöðurnar gefnar út í ritrýndum fræðiritum auk þess sem stefnt er að því að haldnar verði málstofur og fræðafundir um þær. Lex er ein stærsta lögmannsstofa á landinu og segir Karl að stofan hafi verulega reynslu á sviði umhverfis- og auð- lindaréttar og þar starfi nú auk ann- ars sérstakt orku- og auðlindateymi. „Markmiðið er að reyna að tæma þetta efni eins og það liggur fyrir núna, jafn ótæmandi og það er. Nú er hröð þróun á þessu sviði og við vitum ekki alveg hvað á eftir að gerast á næstu árum,“ segir Karl. „Áður fyrr ræddu fræðimenn um andrúmsloftið sem „res communes“ – svokallaðar óþrjótandi auðlindir sem allir áttu jafnan aðgang að. Núna er ekkert óþrjótandi, a.m.k. getum við ekki gef- ið okkur það.“ Bæði Aðalheiður og Karl hafa orðið vör við það í störfum sínum að viðhorf fólks hafi breyst og margir séu með- vitaðir um þær takmarkanir sem Kyoto-bókunin setur á losun gróður- húsalofttegunda. Umræðan á villigötum Aðalheiður segir umræðuna að vissu leyti vera á villigötum. „Menn hafa eytt miklum tíma í að reikna út þá hámarkslosun sem hér má fara fram miðað við þær heimildir sem Ís- landi eru úthlutaðar. Þá er hins vegar litið fram hjá því að fyrirtæki geta sjálf aflað sér heimilda eða keypt þær á markaði sem mun skapast um þær. Mér finnst oft gleymast í umræðunni að fyrirtækin hafa svigrúm og geta gripið til ýmiss konar ráðstafana.“ Nefnir hún að auk þess að kaupa heimildir frá þeim fyrirtækjum sem ekki nota sínar eigin þá geti fyrirtæk- in lagt fé til land- og skógræktarverk- efna eða þróunar tækni sem valdi minni losun. Hún bendir á að þessi hugsun sé í raun hluti af grundvelli Kyoto-bókunarinnar. „Þegar ramma- samningurinn um loftslagsmál var samþykktur árið 1992 þá var eitt af meginmarkmiðum samningsaðila að sjá til þess að komið yrði til móts við atvinnuvegina. Menn gerðu sér grein fyrir því að það varð að finna einhver úrræði sem gerði rammann aðlaðandi fyrir starfsemi sem losar gróðurhúsa- lofttegundir. Þótt það hafi tekið allan þennan tíma þá gengur Kyoto-bókun- in út á að setja fram ramma fyrir lausnir sem markaðurinn getur not- að. Þetta er nokkuð flókið og við sjáum ekki alveg í okkar löggjöf hvernig þetta mun virka.“ Markmiðið er að fyrirtæki geti fundið starfsemi sinni stað út frá hefðbundnum for- sendum og að hluta til burtséð frá því hvað viðkomandi ríki eigi miklar út- streymisheimildir. Þau þurfi hins vegar að standa straum af kostnaðin- um við að verða sér úti um þessar heimildir og er það í samræmi við svo- kallaða greiðslureglu. Tengsl við atvinnulíf mikilvæg Þetta er ekki í fyrsta skipti sem einkaaðili styrkir rannsóknarstarf Lagastofnunar með þessum hætti. nokkrir samningar hafa þegar verið gerðir og hefur þetta form gefist mjög vel segir Aðalheiður. „Þetta er líka hluti af því að auka tengsl Há- skóla Íslands og atvinnulífsins sem ég tel nauðsynlegt í háskólaumhverfi á Íslandi. Það er líka að gerast í vaxandi mæli að við sem störfum í atvinnulíf- inu komum inn í háskólana í hluta- störf,“ segir Karl en sjálfur er hann lektor við lagadeild Háskóla Íslands. „Atvinnulífið getur ekki lifað af án upplýsinga frá akademíunni og aka- demían einangrast ef hún hefur ekki góða tengingu við það sem gerist utan hennar,“ bætir Aðalheiður við. Rannsóknin er nú þegar hafin og segir Aðalheiður að safna þurfi saman miklu magni gagna enda er efnið víð- feðmt. „Hægt er að skipta þeim þátt- um sem skoðaðir verða gróflega í tvennt. Annars vegar eru þættir sem varða þjóðréttarlega stöðu Íslands vegna bókunarinnar og atriði er varða Evrópurétt og EES-rétt. Hins vegar verða skoðuð ýmis atriði er varða stöðuna hér innanlands.“ Karl segir umfang viðfangsefnisins birtast m.a. í því að það snerti mörg grundvallar- svið lögfræðinnar og nefnir t.d. auð- lindarétt, eignarétt, þjóðarétt, stjórn- sýslurétt og skaðabótarétt. „Það er mikilvægt að við öflum þessarar vitn- eskju og markmiðið hlýtur að vera að upplýsa og fræða. Því betur sem það gengur, þeim mun betur gengur að innleiða þessar reglur og það er það sem skiptir máli.“ Reuters Áhrifamikil Kyoto-bókunin mun að fullu komast til framkvæmda á næstu árum og má búast við að hún muni hafa mikil áhrif á lagalegt umhverfi stóriðjufyrirtækja. Markmiðið er að minnka gróðurhúsaáhrif á jörðinni. Varla nokkuð til leng- ur sem er óþrjótandi Morgunblaðið/Eyþór Rannsóknasamningur Karl Axelsson er lögmaður hjá LEX sem fjár- magna mun rannsókn sem Aðalheiður Jóhannsdóttir mun stýra. rakka koma alls staðar að úr heim- g sameinast í íþróttunum.“ Anna t tekur undir með Eiði Smára um fé- gildi íþrótta. „Þessir krakkar eru á aldri að þegar þau koma fyrst eru ert sérlega skrafhreifin. En þau ná mjög vel saman í gegnum íþróttirnar.“ Krakkarnir kvöddu nýja vini á risastóru diskóteki í Laugardalshöll í gærkvöld þar sem Páll Óskar þeytti skífum. Einhver þeirra hittast aftur að ári á næstu leikum, en þeir verða haldnir í San Francisco. Morgunblaðið/Árni Sæberg ur Smári, verndari leikanna, afhenti fulltrúa San Francisco fyrsta skjöldinn. þróttunum“ Morgunblaðið/Árni Sæberg rar Reykvísk börn afhentu fulltrúum San Francisco fána leikanna við hátíðlega Næstu Alþjóðaleikar ungmenna fara fram þar á næsta ári. þarna svolitla nasasjón af frelsi því þau voru ekki fyrr komin heim til Brno en rússneski herinn réðst inn í Tékkóslóvakíu. Mikið vatn hefur runnið til sjáv- ar síðan og á þeim rúmu 40 árum sem liðin eru hafa 27.000 börn og unglingar á aldrinum tólf til fimmtán ára tekið þátt. Þetta eru nú stærstu íþróttaleikar barna í heiminum. Klemenc er ánægður með hvernig til hefur tekist að þessu sinni. „Það er gaman að því hvernig leikarnir ferðast um heiminn til stórra og smárra borga, en mér finnst oft eins og litlu borgirnar leggi meira í leik- ana og hafi mikinn metnað til þess að þeir heppnist vel.“ En hann vill ekki gera mikið úr sínu hlutverki. „Ef börnin eru ánægð er ég glað- ur,“ segir Klemenc. Morgunblaðið/Árni Sæberg Metod Klemenc er upphafsmaður leikanna, . árið í röð.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.