Morgunblaðið - 25.06.2007, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 25. JÚNÍ 2007 41
eee
L.I.B. - TOPP5.IS
eee
H.J. - MBL
eeee
KVIKMYNDIR.IS
VIPSALURINNER BARA LÚXUS
ER STAÐSETTUR Í SAMBÍÓUNUM ÁLFABAKKA
tv - kvikmyndir.is
eee
LIB, Topp5.is
/ AKUREYRI / KEFLAVÍK
SHREK 3 m/ensku tali kl. 6 - 8 LEYFÐ
SHREK 3 m/ísl. tali kl. 6 - 8 LEYFÐ
SHREK 3 m/ensku tali kl. 8 LEYFÐ
FANTASTIC FOUR 2 kl. 8 LEYFÐ
CODE NAME: THE CLEANER kl. 10 B.i. 10 ára
HOSTEL 2 kl. 10 B.i. 7 ára
FÁÐU BÍÓMIÐANN SENDAN Í SÍMANN ÞINN MEÐ MMS
WWW.SAMBIO.IS
NÁNARI UPPLÝSINGAR
Á SAMbio.is
eeeee
V.J.V. TOPP5.IS
eeee
B.B.A. PANAMA.IS
eeee
H.J. MBL.
eeee
F.G.G. FBL.
+ Nánari upplýsingar og bókaðu á www.icelandair.is
Sölutímabil Special Offer tilboða: 22. júní–13. júlí.
Ferðatímabil: 17. júlí–10. desember.
Takmarkað sætaframboð.
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
I
C
E
3
66
61
0
6
/0
7
9.9
00
kr
. a
ðr
a l
eið
ina
Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson
jbk@mbl.is
ÞRIÐJA platan í Ferðalagaflokki Kristjáns Kristjáns-
sonar og Magnúsar Eiríkssonar kemur út í byrjun næsta
mánaðar. Fyrri plöturnar tvær hafa notið gríðarlegra
vinsælda hér á landi enda er á þeim að finna nokkur af
ástsælustu lögum þjóðarinnar í skemmtilegum flutningi
KK og Magga.
„Við gáfum fyrstu plötuna út 2003 og hún hét 22 ferða-
lög. Svo kom önnur platan, Fleiri ferðalög, árið 2005.
Þetta er svo lokaplatan í þessari trílógíu, það stóð alltaf
til að þetta yrðu þrjár plötur. Hún heitir Langferðalög,“
segir Kristján. Þótt nafnið bendi ef til vill til annars er
platan ekkert óeðlilega löng. „Við tókum hana að hluta til
upp í Sjanghæ í Kína og þess vegna fékk hún þetta
nafn,“ útskýrir Kristján, og bætir við að lögin á plötunni
séu hins vegar ramm-íslensk. „Þarna eru tragí-kómískar
perlur eins og Gunna var í sinni sveit og tregasöngvar
eins og Á heimleið.“
Hálfgerðar lummur
Aðspurður segir Kristján að vinnan við plöturnar hafi
verið sérstaklega ánægjuleg. „Það er rosalega gaman að
gera þetta og það er náttúrlega gaman að vinna með
Magga. Þetta er líka mikil áskorun því það er búið að
spila þessi lög svo mikið. Þau eru orðin hálfgerðar lumm-
ur þegar maður fær þau í hendurnar, og fólk er jafnvel
orðið þreytt á þeim. Þannig að við klæddum þau í nýjan
búning og hresstum þau aðeins við,“ segir hann, en þeim
félögum hefur klárlega tekist ætlunarverkið því plöt-
urnar hafa selst eins og heitar lummur.
„Síðustu tvær hafa farið yfir 25.000 eintök, ég held að
fyrri platan hafi farið í 17 til 18 þúsund eintök en sú
seinni í sjö til átta þúsund eintök,“ segir Kristján.
„Þetta eru náttúrlega alþýðulög og fólk er mikið að
spila þetta fyrir börnin sín því fólk vill að krakkarnir
þekki þessi lög.“
KK og Maggi stefna að því að halda sex tónleika í til-
efni af útkomu plötunnar, flesta á suðvesturhorninu.
Tónleikarnir verða trúlega haldnir upp úr mán-
aðamótum og verða nánar auglýstir þegar nær dregur.
Allt er þegar þrennt er
Morgunblaðið/RAX
Tríó Kristján Kristjánsson, Magnús Eiríksson og Óttar
Felix Hauksson, en sá síðastnefndi gefur plötuna út.
KK og Maggi Eiríks senda
frá sér þriðju og síðustu
Ferðalagaplötuna
LEIKLIST
Brúðubíllinn
Segðu mér söguna aftur
Brúðugerð og handrit eftir Helgu Steffen-
sen. Vísur: Sigríður Hannesdóttir o.fl.
Brúðustjórnendur: Helga Steffensen og
Aldís Davíðsdóttir. Leikstjóri: Sigrún
Edda Björnsdóttir. Tónlistar- og upp-
tökustjóri: Vilhjálmur Guðjónsson. Radd-
ir: Álfrún Helga Örnólfsdóttir, Guðjón Dav-
íð Karlsson, Helga Steffensen, Sigrún
Edda Björnsdóttir og Þórhallur Sigurðs-
son (Laddi). Í Ljósheimum, 19. júní 2007
kl. 14.
PILTUR sem ég þekki hefur fengið
inngöngu í ákaflega vel metinn leik-
listarskóla í Lundúnum. Það væri svo
sem ekki hér í frásögur færandi
nema vegna þess að áhugi hans á
leiklist kviknaði við að horfa á sýn-
ingu Brúðubílsins. Varð hann svo
hugfanginn að foreldrarnir máttu
það árið og næstu elta Helgu Steffen-
sen og bílinn hennar um alla borg.
Helga ber því sennilega mikla
ábyrgð á því að pilturinn fetar nú
þennan veg. Ég rataði hins vegar í
Ljósheimunum til Brúðubílsins með
því að elta herskara af leik-
skólabörnum, klædd í glansandi ör-
yggisvesti frá Sjóvá. Þar settist ég í
sólinni á iðgrænt tún ásamt þeim og
fylgisveini mínum, tveggja ára, sem
enn getur aðeins tjáð sig með stöku
orði. Óttaðist ég nokkuð að erfitt yrði
að hemja þann hraðskreiða snáða
undir sýningunni en óttinn reyndist
ástæðulaus. Allt frá því að Helga
gekk fram fyrir skottið á brúðubíln-
um þar sem rammanum utanum leik-
húsið er haganlega fyrir komið,
ávarpaði skarann og bauð hann vel-
kominn, hélst athygli hans á sýning-
unni eða hinum börnunum sem eru
skemmtilega virkjuð með söngvum
og í samtali.
Handritið í liðlega hálftímalangri
sýningunni fjallar um leit apans
Lilla, brúðu sem fylgt hefur leikhús-
inu í genum árin, að einhverjum sem
vill segja honum sögu. Og get ég ekki
beinlínis hrópað húrra yfir handrit-
inu né frumleika sagnanna sem loks
eru sagðar. En brúðurnar eru marg-
ar ævintýralegar og fallegar, svo sem
brúðan með tvö andlit, Halli hákarl
og Bjartur bóndi á Bakka og öll hús-
dýrin hans; raddir mjög góðar og vel
leikstýrt og samhæfing góð milli
brúðustjórnunar og hljóðkerfis.
Börnin sátu stillt og prúð, full athygli
og andaktar og tóku vel undir í
söngvum. Í tuttugu og sjö ár hefur
Helga Steffensen ekið um höf-
uðborgarsvæðið og landsbyggðina og
glatt yngstu börnin með brúðu-
leikum sínum og vakið áhuga þeirra
á leiklistinni. Sú spurning kviknaði
því óhjákvæmilega þegar ég reis upp
og horfði yfir glaðan barnaskarann:
Hve mörg þeirra verða komin í leik-
listarskóla eftir sextán eða sautján ár
fyrir tilstilli Helgu?
María Kristjánsdóttir
Áhrif Brúðubílsins
Morgunblaðið/G.Rúnar
Brúðubíllinn „Í tuttugu og sjö ár hefur Helga Steffensen ekið um höf-
uðborgarsvæðið og landsbyggðina og glatt yngstu börnin með brúðu-
leikum sínum og vakið áhuga þeirra á leiklistinni.“