Morgunblaðið - 25.06.2007, Page 44
MÁNUDAGUR 25. JÚNÍ 176. DAGUR ÁRSINS 2007
»MEST LESIÐ Á mbl.is
»VEÐUR mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 200 ÁSKRIFT 2650 HELGARÁSKRIFT 1600 PDF Á MBL.IS 1700
SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT
Morgunblaðið bíður
eftir þér þegar þú
vaknar á morgnana
ÞETTA HELST»
Brenndist við Strokk
Rúmlega tvítugur Pólverji hlaut í
gær 2. stigs brunasár þegar sjóðandi
vatn úr goshvernum Strokki skvett-
ist yfir fætur hans. Fjórir félagar
mannsins ætluðu að hjálpa honum
en engin þjónustustarfsemi var opin.
Fyrir tilstilli vegfaranda komst mað-
urinn í kælingu á nærliggjandi bæ
og í kjölfarið á slysadeild í Reykja-
vík. »Forsíða
Alvarlega slasaður
Karlmaður á fertugsaldri liggur
þungt haldinn á gjörgæsludeild LSH
eftir hópslagsmál í samkvæmi í
fyrrinótt. Hann gekkst undir aðgerð
vegna höfuðkúpubrots og var haldið
sofandi í öndunarvél í gær. Ekki er
vitað hvaða barefli var notað við
verknaðinn. »2
Hugsanlegt heimsmet
Bor 2 í Kárahnjúkavirkjun setti að
öllum líkindum heimsmet í ganga-
borun á laugardaginn þegar hann
boraði 106,12 metra á einum sólar-
hring. Ómar R. Valdimarsson, tals-
maður Impregilo, segir málið vera í
rannsókn en niðurstöður eigi að fást
á hádegi í dag. »Forsíða
Brown tekinn við
Nýr leiðtogi breska Verkamanna-
flokksins, Gordon Brown, tók við af
Tony Blair í gær og hét því að draga
réttan lærdóm af Íraksstríðinu og
deilunum um að mál. Einnig hét
Brown að koma á víðtækum umbót-
um í innanlandsmálum. Harriet
Harman var kjörin varaleiðtogi
flokksins í stað Johns Prescotts. »14
Eiður Smári rólegur
Eiður Smári Guðjohnsen er
sallarólegur yfir stöðu sinni hjá
Barcelona þrátt fyrir kaup félagsins
á franska sóknarmanninum Thierry
Henry. »Íþróttir
SKOÐANIR»
Staksteinar: Eitt orð skiptir máli
Forystugreinar: Á skrið á ný |
Ræða Gordon Brown
Ljósvaki: Oprah, … draumur
UMRÆÐAN»
Öndvegissetur í
kynjafræðirannsóknum
Dúxaði í innanhússarkitektúr
Spörum orku
Birkismuga
Mesta hækkun á húsnæðisverði …
FASTEIGNIR »
Heitast 18°C | Kaldast 10°C
Norðaustan 3-8
metrar á sekúndu.
Léttskýjað sunnan- og
vestanlands en skýjað
og kólnar fyrir norðan. » 10
Flugan sveimaði um
bæinn um helgina og
hreiðraði um sig í
gleðskap Samtak-
anna ’78 í Iðnó á
föstudaginn. » 36
FÓLK»
Á ferð
og flugi
AF LISTUM»
Michael Moore hlakkar
til næstu helgar. » 37
Tómas R. á lag á al-
þjóðlegri safnskífu.
Hann er þar í fé-
lagsskap með þekkt-
um nöfnum eins og
Eddie Palmieri. » 16
TÓNLIST»
Í góðum
félagsskap
FÓLK»
Paris Hilton losnar úr
fangelsi á morgun. » 37
BÆKUR»
Ævisaga Hillary Clinton
eftir Carl Bernstein. » 39
reykjavíkreykjavík
VEÐUR»
1. Óþekkt áhald notað í fjöldaátökum
2. Vilhjálmur og Kate saman á ný?
3. Einkadansinn líður undir lok
4. Þrír létu lífið í bílslysi í Danmörku
„Á plötunni má finna lög eftir
yngri höfunda en á þeim fyrri, með-
al annars þá Rúnar Gunnarsson og
Þóri Baldursson,“ segir Björgvin.
„Við viljum halda við þessum fínu
lögum sem við Íslendingar erum
svo heppin að eiga. Þetta er líka
viðleitni til að kynna lögin fyrir
komandi kynslóðum. Svo er reynd-
Eftir Birtu Björnsdóttur
birta@mbl.is
ÞÓTT HVOR um sig hafi sungið dú-
etta með fjölda íslenskra söngvara
hafa leiðir þeirra aldrei legið sam-
an í söngnum, fyrr en í gær.
Þeir Björgvin Halldórsson og
Ragnar Bjarnason hljóðrituðu sinn
fyrsta dúett í gær. Lagið sem varð
fyrir valinu nefnist Barn og er eftir
Ragnar sjálfan, við ljóð Steins
Steinars. Lagið er eitt fjölmargra
sem prýða munu væntanlega plötu í
flokki Íslandslaga, þá sjöundu í röð-
inni.
„Við Raggi höfum aldrei áður
sungið saman á plötu og í raun bara
aldrei sungið saman sem er í raun
alveg ótrúlegt. Það má því segja að
þetta hafi verið söguleg stund í
gær,“ sagði Björgvin í samtali við
Morgunblaðið. Og hann varð ekki
fyrir vonbrigðum með dúettinn.
„Það var auðvitað bara æðislega
gaman að syngja með Ragga. Við
vorum einmitt að furða okkur á því
hvers vegna við hefðum ekki gert
þetta fyrr.“
Plata með landsliðinu
„Upptökurnar ganga annars
rosalega vel,“ svarar Björgvin
spurður um Íslandslagaplötuna sjö-
undu. „Ég er með landsliðið í undir-
leik og landsliðið í flytjendum og
það er gaman að vinna með svona
hæfileikaríku fólki.“
Meðal þeirra sem syngja á plöt-
unni eru Megas, Stefán Hilmarsson,
Garðar Thór Cortes, Regína Ósk,
Friðrik Ómar og Ragnar Bjarna-
son.
ar líka að finna lög eftir erlenda
höfunda. Lagið sem Megas syngur
er danskt að uppruna en við þekkj-
um það sem Ég hef elskað þig frá
okkar fyrstu kynnum. Það er
skemmst frá því að segja að Megas
fer gjörsamlega á kostum í þessu
lagi,“ upplýsir Björgvin.
Áætlað er að gefa plötuna út í
næsta mánuði en þá verður jafn-
framt gefin út askja sem inniheldur
allar Íslandslagaplöturnar sjö.
„Það er gaman að fást við þetta
verkefni þó að við séum búin að
húka á þriðju viku inni í hljóðveri, í
allri sólinni. En það eru sól-
argeislar í tónlistinni,“ bætir hann
við að lokum.
Söguleg söngstund
Björgvin Halldórsson og Ragnar Bjarnason syngja saman í fyrsta sinn
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Dúett Björgvin Halldórsson og Raggi Bjarna þöndu raddböndin saman í fyrsta sinn í gær.
ÍSLENSK alþýðulög fá nýjan bún-
ing í meðförum KK og Magga Ei-
ríks á þriðju ferðalagaplötunni.
„[Lögin] eru orðin hálfgerðar
lummur þegar maður fær þau í
hendurnar og fólk er jafnvel orðið
þreytt á þeim. Þannig að við klædd-
um þau í nýjan búning og hresstum
þau aðeins við,“ segir KK í viðtali
við Morgunblaðið í dag. | 41
Fleiri
ferðalög
Ferðaglaðir Maggi Eiríks og KK
gefa út Langferðalög.
LÚNIR ferðalangar héldu heim á
leið í gær eftir blíðviðrishelgi. Mikl-
ar bílaraðir mynduðust við helstu
umferðaræðar höfuðborgarinnar og
að sögn lögreglu var bíll við bíl frá
Hveradölum og Hvalfjarðargöngum
til Reykjavíkur. Umferðin náði há-
marki á sjötta tímanum og það var
ekki fyrr en á þeim níunda sem
greina mátti minnkandi umferð. Um
tíma þurftu starfsmenn Spalar í
Hvalfjarðargöngum að hleypa bílum
í hollum í gegnum göngin og segja
vegfarendur að það hafi tekið þá
hálfa þriðju klukkustund að keyra
frá Borgarnesi til Reykjavíkur.
Umferðin gekk þó stórslysalaust
enda gáfu yfirfullir vegirnir ekki til-
efni til hraðaksturs og glannaskap-
ar.
Tvær bifreiðir rákust saman á
Reykjanesbraut við Straumsvík í
gærkvöld og hlaut farþegi annarrar
bifreiðarinnar nokkra höfuðáverka
þegar hann slóst í framrúðu hennar.
Mikil ferðahelgi að baki
Morgunblaðið/Sverrir
Umferð Þungur straumur bifreiða lá til Reykjavíkur í gær og þegar verst
lét tók hálfa þriðju klukkustund að keyra frá Borgarnesi til Reykjavíkur.
Hleypt í hollum í
gegnum göngin