Morgunblaðið - 03.07.2007, Blaðsíða 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 3. JÚLÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Bara aðeins að síkka friðarskikkjuna, Blair minn, svo það beri ekki eins mikið á her-
mannaklossunum þínum.
VEÐUR
Andrúmsloftið hefur görbreyst áöldurhúsum í miðborginni eftir
að reykingabannið var sett á. Lítið
sem ekkert ber á því að reykingafólk
grípi til borgaralegrar óhlýðni og
reyki inni á stöðunum. Og andrúms-
loftið er mun heilnæmara, jafnt fyrir
starfsfólk sem viðskiptavini.
Eins og alltaf þegar stjórnvöldgrípa inn í mannlífið með slíkum
reglum, þá veldur það einhverjum
hliðarverkunum.
Auðvitað varfyrir-
sjáanlegt að
reykingafólk
myndi fara út af
stöðunum til
þess að reykja.
En fjölmargir
aðrir hafa fylgt á eftir, kannski
vegna sumarblíðunnar, og á götum
og torgum ríkir hálfgerð útihátíð-
arstemmning um helgar. Margir eru
með vín í glösum og flöskum og
mannlífið er mun sýnilegra en áður.
Eflaust mun það leita jafnvægis.
Þetta minnir nokkuð á þá stemmn-ingu sem myndaðist hér áður
fyrr á blíðviðrisnóttum í miðborg-
inni þegar skemmtistaðir lokuðu um
þrjúleytið. Oftar en ekki var fólk síð-
ur en svo í skapi til að halda heim á
leið og miðbærinn fylltist af fólki.
Það var einnig dæmi um hliðverk-un af inngripi stjórnvalda.
Nokkuð sem heyrði sögunni til eftir
að opnunartími skemmtistaða var
lengdur. Og síðan þá hefur ekki ver-
ið talað um kortér í þrjú gæja.
Íbúi í miðborginni sem áður kvart-aði undan reykingum á öldur-
húsum, fær ekki svefnfrið og vill
leyfa reykingar aftur. Það er harla
ólíklegt að honum verði að ósk sinni.
En hvað sem líður boðum og bönn-um heldur fólk áfram að
skemmta sér.
STAKSTEINAR
Reykingabannið og öldurhúsin
SIGMUND
!
"
#$
%&'
(
)
*(!
+ ,-
.
&
/
0
+
-
12
1
3
42-2
*
-
5
1
%
6!(78
9 4
$
(
! "
#! $
:
*$;<
!
" $# #
#
%
#
&
#
'
# *!
$$; *!
%&
'
!
&
!
( "!) "
=2
=! =2
=! =2
%(!' * $+,# " -
>2?
/
." ' #&' "! / "!
" #! &
=
87
." ' # !
) "!/
"!"! $
" & #
0#
" 1 !+#
#
$ !
) "!" /
2"
& 3 /
$" & &
#
" 4#" " ) $
56 "77 "! 8
" #"* $
3'45 @4
@*=5A BC
*D./C=5A BC
,5E0D ).C
/
/
/
/
/
/
/
/
/
/
/
/
/
/
/
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://morgunbladid.blog.is/
Elmar Geir Unnsteinsson | 2. júlí 2007
Sakleysislegt dæmi
um nafnorðastíl
„Franska lögreglan
vinnur að rannsókn
málsins.“ Ég er viss
um að fáir kippa sér
upp við svona orðalag.
Enda má þetta ábyggi-
lega heita málvenja nú á dögum. En
ekki sakar að minna á fornar að-
finnslur. Það er að minnsta kosti fal-
legra að segja að franska lögreglan
rannsaki málið. Finnst fólki í alvöru
ekki skrítið að segja einhvern vinna
að rannsókn máls?
Meira: elmargeir.blog.is
Anna Ólafsdóttir (anno) | 2. júlí 2007
Hvernig er þetta
hægt?
Hvernig geta símafyr-
irtæki selt okkur þá
hugmynd að það sé
réttlætanlegt rukka
meira fyrir að hringja
úr heimasíma í GSM
heldur en úr heimasíma í heimasíma
– og komist upp með það – ennþá???
Það væri kannski hægt að skilja það
ef GSM kerfi væri nýuppfundin
þjónusta sem ætti eftir að þróast og
kostnaður við hana þar með að
lækka.
Meira: anno.blog.is
Dögg Pálsdóttir | 2. júlí 2007
Ráðherravalið
Það er greinilega að
ýmsu spurt í þjóðar-
púlsi Gallup þessa dag-
ana. […]
Það sem skiptir máli
í þessum tölum er að
80% kjósenda Sam-
fylkingar og 71% kjósenda Sjálf-
stæðisflokksins eru ánægð með ráð-
herravalið.
Það hefði hins vegar verið áhuga-
vert að sjá hvernig kjósendur stjórn-
arflokkanna skiptast eftir kyni í af-
stöðu sinni til ráðherravalsins.
Meira: doggpals.blog.is
Hrannar Björn Arnarsson | 2. júlí 2007
Gunnfáni
jafnaðarmanna
Það var fróðlegt og
skemmtilegt að lesa
sunnudagsviðtöl Pét-
urs Blöndal í Morgun-
blaðinu við vinstri-
mennina sem nú
höndla sem ráðherrar með viðskipti
og fjármál á Íslandi annarsvegar og
Indlandi hinsvegar.
Mikill samhljómur var með þeim
bræðrum í andanum Björgvini Sig-
urðssyni viðskiptaráðherra og P.
Chidambaram, fjármálaráðherra
Indlands, og greinilegt að þessir
forystumenn jafnaðarmanna hafa
áttað sig á því að alþjóðavæðing við-
skiptanna er eitt af mikilvægustu
tækjunum sem við eigum í barátt-
unni gegn fátækt og fyrir aukinni
velsæld allra jarðarbúa.
P. Chidambaram hefur verið ötull
baráttumaður fyrir auknu frjáls-
ræði í viðskiptum um árabil og rek-
ur ævintýralegan uppgang efna-
hagslífsins á Indlandi til slíkrar
þróunar.
Einn þáttur í þeirri þróun er að
greiða leið fjárfestinga til og frá
Indlandsmarkaði og í þeim erinda-
gjörðum var hann einmitt staddur
hér á landi.
Það verður gaman að fylgjast
með framhaldi þess máls.
Ég hef áður fjallað um mikilvægi
alþjóðavæðingarinnar og aukins
viðskiptafrelsis í baráttunni gegn
fátækt í heiminum og er sann-
færður um að það er ein mikilvæg-
asta forsendan fyrir raunverulegum
árangri.
P. Chidambaram setur málefnið
hinsvegar í þannig samhengi, þegar
hann lýsir áhrifum þessarar þróun-
ar fyrir Kína og Indland, að um það
þarf varla að hafa fleiri orð:
Bæði ríkin munu setja mark sitt á
21. öldina og það verður öldin þar
sem 2,5 milljarðar ná sömu velmeg-
un og Evrópa nýtur í dag.
Björgvin orðar þetta hinsvegar
þannig með sínum kjarnyrta hætti:
Viðskiptafrelsi er hin hliðin á
jafnaðarstefnunni.
Ég get tekið heilshugar undir
með þeim félögunum báðum en
hverjum hefði nú dottið í hug fyrir
svona 20 árum að einn helsti gunn-
fáni okkar jafnaðarmanna á 21. öld-
inni yrði viðskiptafrelsið?
Pælum í því!
Meira: hrannarb.blog.is
BLOG.IS
UNNIÐ var að viðgerð á Boeing
767-farþegaflugvél frá bandaríska
flugfélaginu Delta Air í gær, en vél-
in lenti á Keflavíkurflugvelli í
fyrradag eftir að bilun varð í öðrum
hreyfli hennar. Flugvélin, sem var
með rúmlega 225 manns um borð,
var stödd skammt frá landinu í
áætlunarflugi frá Þýskalandi til
Bandaríkjanna þegar bilunin varð.
Fram kemur á heimasíðu Kefla-
víkurflugvallar, að önnur flugvél
frá Delta hafi komið í fyrrinótt með
varahluti og flugvirkja og flutt far-
þegana áfram vestur um haf í
morgun.
Flugvirkjarnir unnu í gær að því
að skipta um eldsneytisdælu í bil-
aða hreyflinum, en von var á fleiri
varahlutum í gærkvöldi. Var áætl-
að að viðgerð lyki nú í morguns-
árið.
Viðgerð Hreyflarnir á Boeing 767-flugvélum eru býsna stórir.
Gert við hreyfil á
flugvél Delta Air