Morgunblaðið - 12.08.2007, Síða 12
12 B SUNNUDAGUR 12. ÁGÚST 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Tollstjórinn í Reykjavík óskar eftir að ráða launafulltrúa á starfsmannasvið.
Hjá tollstjóranum starfar hópur hæfileikaríks starfsfólks sem hefur það að markmiði að
veita góða og skilvirka þjónustu og standa vörð um hagsmuni almennings og atvinnulífs.
Lögð er áhersla á símenntun starfsmanna, heilsueflingu og góðan aðbúnað.
Haldgóð menntun sem nýtist í starfi.
Reynsla af launavinnslu og/eða skrifstofu-
störfum.
Talnagleggni.
Tölvufærni og hæfni til að aðlagast breytingum
og nýjungum.
Frumkvæði og hæfileiki til að greina og leysa úr
vandamálum.
Nauðsynlegt er að umsækjendur hafi til að bera
lipurð í mannlegum samskiptum, séu kurteisir
og búi yfir þjónustulund. Krafist er traustra vinnu
bragða og stundvísi.
Hreint sakavottorð.
Launavinnsla í Oracle launakerfi.
Umsjón og uppfærsla starfsmannaskrár
í Oracle starfsmannakerfi.
Upplýsingar til starfsmanna um laun
þeirra, réttindi og skyldur
skv.kjarasamningum.
Samskipti við launaskrifstofu ríkisins,
stéttarfélög o.fl.
Ýmis verkefni tengd starfsmanamálum.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Athygli er vakin á að
umsóknir gilda í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út.
Starfssvið:Menntunar- og hæfniskröfur:
Um er að ræða fjölbreytt starf með möguleika á sveig-
janlegum vinnutíma. Launakjör eru samkvæmt kjaras-
amningum opinberra starfsmanna. Um starfskjör,
réttindi og skyldur gilda að öðru leyti lög um réttindi og
skyldur starfsmanna ríkisins nr. 70/1996.
Nánari upplýsingar um starfið veita Harpa Hallsdóttir,
sérfræðingur á starfsmannasviði, í síma 560-0352 og
Erna Guðmundsdóttir forstöðumaður starfmannasviðs,
í síma 560-0379.
Umsóknarfrestur er til 26. ágúst nk. Umsóknir merktar
„Launafulltrúi – starfsmannasvið“ ásamt ferilskrá skal
skila til starfsmannasviðs embættisins Skúlagötu 17,
101 Reykjavík eða í gegnum tölvupóst: starf@tollur.is
LAUNAFULLTRÚI
Á STARFSMANNASVIÐI
Innsláttur:
Starfið felst í innslætti á ýmsum gögnum. Hluti af nýrri þjónustu sem FMV
býður upp á, þ.e. að aðstoða fyrirtæki og stofnanir við að skrá upplýsingar í
gagnagrunna af ýmsu tagi.
Hæfniskröfur: Almenn tölvufærni, kunnátta í Excel, nákvæmni, góð stafsetn-
ingar- og íslenskukunnátta, vera talnaglöggur, einhver bókhaldskunnátta
æskileg. Góður hraði í vélritun og á talnalyklaborð algjört skilyrði.
Blaðavinnsla:
Ýmis tilfallandi störf í blaðavinnslu, m.a. vinna við skönnun á dagblöðum,
útprentanir og innbindingu á heftum.
Hæfniskröfur: Góð almenn tölvufærni, nákvæmni og góð athyglisgáfa.
Lesari:
Starfið felst í lestri dagblaða og annars textaefnis, flokkun blaðagreina í
efnisflokka eftir innihaldi og útsendingu greina til viðskiptavina samkvæmt
þeirra leitarlýsingu. Unnið er í sérhönnuðu tölvukerfi FMV sem forflokkar
blaðagreinarnar og heldur utan um skilgreiningar flokka og einstakra við-
skiptavina. Vinnutími frá kl 06:00.
Hæfniskröfur: Hraðlæsi, nákvæmni, gott minni, áhugi á þjóðfélagsmálum og
fréttum, háskólapróf æskilegt, en ekki skilyrði.
Þýðingar og sérþjónusta:
Starfið felst í gerð útdrátta úr fréttum, þýðingum yfir á ensku, innihalds-
greiningu á fjölmiðlaefni, textagerð og skrifum, gagnaöflun á fjölmiðlaefni og
ýmsum öðrum verkefnum tengt blaða- og framleiðsluverkefnum FMV, s.s.
efnisflokkun blaðaefnis eða skráningarverkefnum. Vinnutími frá kl 06:00
Hæfniskröfur: Góð kunnátta í viðskiptaensku, geta greint aðalatriði og skrifað
stuttan og hnitmiðaðan texta. Áhugi á þjóðfélagsmálum og fréttum.
Fjölmiðlavaktin leitar að fólki: Fjölmiðlavaktin ehf. er eitt af
dótturfélögum Creditinfo
Group hf. sem er með starf-
semi í 25 löndum víðsvegar
um heiminn.
Fjölmiðlavaktin býður upp á
fjölbreytta sérþjónustu.
Vöktun á fjölmiðlaefni spar-
ar stjórnendum dýrmætan
tíma og auðveldar þeim að
marka stefnu í málefnum
sem snerta samskipti við
fjölmiðla, markmiðasetn-
ingu, breytingu á áherslum
eða ákvarðantöku.
Umsóknir skulu sendar á
umsóknir@fmv.is fyrir 19. ágúst
Nánari upplýsingar: Lovísa
Sigfúsdóttir
Netfang: lovisa@fmv.is
Höfðabakka 9 110 Reykjavík www.fmv.is
Atvinnuauglýsingar sími 569 1100
Neytendastofa óskar eftir að ráða metnaðarfullan lög-
fræðing til starfa á Neytendaréttarsviði stofnunarinnar.
Um er að ræða faglega krefjandi starf þar sem reynir á
gerð úrskurða, umsjón lögfræðilegra málefna, afgreiðslu
erinda og frumkvæði við framfylgd og þróun laga sem
falla undir starfssvið Neytendaréttarsviðs. Um er að ræða
margvísleg áhugaverð verkefni er varða löggjöf á sviði
viðskipta og eftirlit með viðskiptaháttum hér á landi og
innan Evrópska efnahagssvæðisins.
Helstu verkefni eru:
• Umsjón og afgreiðsla stjórnsýsluerinda
• Undirbúningur og gerð úrskurða
• Upplýsingagjöf til viðskiptamanna, s.s. neytenda,
fyrirtækja, o.fl.
• Þátttaka í þróun laga og reglna um viðskiptahætti
Menntun:
• Lögfræðipróf frá innlendum háskóla
Framhaldsnám á sviði lögfræði eða viðskipta er kostur
Almenn þekking og hæfniskröfur:
• Frumkvæði
• Skipulags- og samskiptahæfni
• Góð tungumálakunnátta er kostur
Nauðsynlegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Um launakjör fer samkvæmt kjarasamningum Bandalags
háskólamanna. Vakin er athygli á 20. gr. laga nr 96/2000,
um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla.
Umsóknir óskast sendar Neytendastofu, Borgartúni 21,
105 Reykjavík eða rafrænt á póstfang stofnunarinnar,
postur@neytendastofa.is, eigi síðar en 27. ágúst 2007.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um
ráðningu hefur verið tekin.
Nánari upplýsingar um starfið veita Tryggvi Axelsson for-
stjóri og Þórunn Anna Árnadóttir, sviðsstjóri Neytendaréttar-
sviðs, í síma 510 1100. Netföng: tryggvi@neytendastofa.is
og thorunn@neytendastofa.is.
Neytendaréttarsvið skal stuðla að því að neytendur hafi
sem mestar upplýsingar og yfirsýn yfir markaðinn, efla
neytendafræðslu, taka við ábendingum og vinna gegn
óréttmætum viðskiptaháttum.
LÖGFRÆÐINGUR
Á NEYTENDARÉTTARSVIÐI
Borgartúni 21 • 105 Reykjavík • Sími 510 1100 • Bréfasími 510 1101
postur@neytendastofa.is • www.neytendastofa.is
Rafsmiðjan ehf.
óskar eftir að ráða rafvirkja og rafvirkjanema til
framtíðarstarfa. Mikil og fjölbreytt verkefni
framundan.
Hæfniskröfur:
Rafvirkjar:
Meistara eða sveinspróf í rafvirkjun.
Sjálfstæð vinnubrögð.
Lipurð í mannlegum samskiptum.
Stundvísi.
Rafvirkjanemar:
Starfsreynsla í rafvirkjun æskileg.
Lipurð í mannlegum samskiptum.
Stundvísi.
Umsókn ásamt ferilskrá skal senda á
rafsmidjan@simnet.is fyrir 20. ágúst 2007.
Öllum umsóknum verður svarað.