Morgunblaðið - 12.08.2007, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12. ÁGÚST 2007 B 17
Leikskólasvið
Deildarstjórar, leikskólakennarar,
sérkennarar og annað fagfólk
óskast í leikskólann Ösp,
Iðufelli 16, Breiðholti.
Leikskólinn Ösp er þriggja deilda leikskóli. Unnið er út frá
hugmyndafræði heiltækrar skólastefnu og fjölmenningu.
Verið velkomin í heimsókn í leikskólann Ösp eða hafið
samband við Svanhildi Hákonardóttur leikskólastjóra
í síma 557-6989.
Starf í afgreiðslu
BM Vallá Borgarnesi
Starfsmaður óskast í afgreiðslu BM Vallá í
Borgarnesi. Starfið felst í tiltekt og pökkun á
framleiðslu og endursöluvörum fyrirtækisins,
ásamt afgreiðslu til viðskiptavina.
Æskilegt er að umsækjendur uppfylli eftir-
farandi kröfur:
Lyftarapróf.
Sjálfstæði og frumkvæði í starfi.
Samstarfshæfileikar og þjónustulund.
Varðandi frekari upplýsingar um starfið vin-
samlega hafið samband við G. Arnar Sigurðs-
son forstöðumann Sölusviðs í s. 412 5303 eða
617 5303. Einnig má senda umsóknir og/eða
fyrirspurnir á arnar@bmvalla.is.
Frekari upplýsingar gefa Ásta Björk
Sveinsdóttir starfsmannastjóri, sími:
585-1505, asta@lh.is og Guðmundur
Þorbjörnsson framkvæmdastjóri, sími:
585-1537, gudmundurth@lh.is.
Umsækjendur geta einnig sótt um á
heimasíðu okkar: www.lh.is
Suðurlandsbraut 4A
108 Reykjavík
www.lh.is
Sími: 585 1500
Fax: 585 1501
lh@lh.is
Línuhönnun hf. er framsækin verkfræðistofa sem leggur
metnað sinn í fagmennsku, vönduð vinnubrögð og léttan
og skemmtilegan starfsanda. Þekking starfsmanna og
hæfni þeirra er mikilvægasta auðlind fyrirtækisins.
Línuhönnun hefur hlotið margvíslegar viðurkenningar fyrir
starfsemi sína og þjónustu. Kjörorð Línuhönnunar og loforð
til viðskiptavina er:
....á vit góðra verka....
ISO 9001
ISO 14001
Óskar eftir að ráða starfsmann í gestamóttöku í
fullt framtíðarstarf. Unnið er á vöktum. Gerðar
eru eftirfarandi kröfur:
Mjög góð íslensku- og enskukunnátta, bæði í
töluðu og rituðu máli.
Lágmark 25 ára aldur.
Góð, almenn tölvukunnátta og gjarnan
reynsla í notkun Navision.
Reynsla úr ferðageiranum.
Fáguð og jákvæð framkoma, rík
þjónustulund og ábyrgðartilfinning.
Áhugasamir sendi umsókn og ferilskrá á
kolbrun@101hotel.is. Einungis er tekið við
umsóknum sem berast með tölvupósti.
Umsóknarfrestur er til 17. ágúst nk.