Morgunblaðið - 12.08.2007, Síða 32
32 B SUNNUDAGUR 12. ÁGÚST 2007 MORGUNBLAÐIÐ
- einn vinnustaður
Mannauðsráðgjafar
Vakin er athygli á stefnu Reykjavikurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir borgarinnar
endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er. Atvinnuauglýsingar má einnig skoða á heimasíðu
Reykjavíkurborgar www.reykjavik.is/storf. Hjá símaveri Reykjavíkurborgar, 4 11 11 11 færð þú allar
upplýsingar um þjónustu og starfsemi borgarinnar og samband við þá starfsmenn sem þú þarft að ná í.
Mannauðsskrifstofa Reykjavíkurborgar
Leitum að öflugum ráðgjöfum til starfa
Um þessar mundir erum við að endurskipuleggja alla starf-
semina með það að markmiði að veita framúrskarandi ráðgjaf-
arþjónustu við stjórnendur hjá Reykjavíkurborg. Við stefnum
að því að efla ráðgjafarþjónustu okkar m.a. við val og ráðn-
ingu nýrra starfsmanna, stjórnendaþjálfun og ráðgjöf á sviði
vinnuréttar. Mörg spennandi verkefni í mannauðsmálum eru í
þróun hjá Reykjavíkurborg.
Við bjóðum uppá fjölbreytt og krefjandi störf í metnaðarfullu
starfsumhverfi, þar sem hæfileikar starfsmanna fá notið sín.
Við bjóðum uppá þátttöku í þróun starfsumhverfis og verk-
efna, og tækifæri til símenntunar og starfsþróunar.
Við leitum að einstaklingum sem búa yfir mikilli samskipta-
hæfni, sýna frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum og hafa
áhuga á þátttöku í öflugum ráðgjafahópi. Við leitum að ein-
staklingum með reynslu og þekkingu á mannauðsmálum.
Um er að ræða störf mannauðsráðgjafa. Æskilegt er að
mannauðsráðgjafi hafi háskólapróf í mannauðsfræðum og
reynslu á sviði starfsmannamála.
Við leitum að starfsmönnum í fullt starf sem geta hafið störf
sem fyrst. Laun eru skv. kjarasamningi viðkomandi stéttar-
félags.
Nánari upplýsingar um störfin veita Hallur Páll Jónsson,
deildarstjóri, (hallur.pall.jonsson@reykjavik.is) og Árni
Ragnar Stefánsson, starfsmannastjóri Ráðhúss
(arni.ragnar.stefansson@reykjavik.is).
Umsóknir skulu berast í síðasta lagi 17. ágúst n.k. til mann-
auðsskrifstofu Reykjavíkurborgar, Ráðhúsi Reykjavíkur, eða
á ofangreind netföng, merktar „Umsókn um starf ráðgjafa
við Mannauðsskrifstofu“
Óska eftir bókara
Framsækið hugbúnaðarfyrirtæki óskar eftir
bókara í ½ starf. Hlutastarf kemur til greina.
Viðkomandi verður að vera vanur bókari.
Reynsla á DK-bókhaldskerfi æskileg.
Áhugasamir sendi ferilskrá á auglýsingadeild
Mbl. eða á box@mbl.is merkt: P-1007.
Stóru-Vogaskóli
Sveitarfélagið Vogar
Stóru-Vogaskóli er ört vaxandi
skóli í blómlegu sveitarfélagi
og er þar unnið ötullega að
skólaþróun. Einkunnarorð
skólans eru Virðing – vinátta
– velgengni. Kynnið ykkur
skólann og skólastarfið á
www.storuvogaskoli.is
Kynnið ykkur Sveitarfélagið
Voga á www.vogar.is
Meðal kennslugreina eru:
• Íslenska á unglingastigi
• Bekkjakennsla á yngsta- og miðstigi
• Sérkennsla
• Textílkennsla
Viltu ekki vera með í að byggja upp góðan skóla?
Frekari upplýsingar veita skólastjóri og aðstoðarskólastjóri
í síma 424-6655. Auk þess má hafa samband við skólastjóra
í síma 862-8670. Netfang skólans er skoli@vogar.is.
Umsóknir berist Stóru-Vogaskóla, Akurgerði 2, 190 Vogum.
Kennarar óskast til starfa
fyrir komandi skólaár
Au-pair
Cambridge - UK
Áreiðanleg, barngóð, rösk, reyklaus og kisu-
væn au-pair óskast í lok ágúst til barnagæslu
(2,5 ára stelpa) og léttra heimilisstarfa.
Uppl. í síma 824 4722, Ásdís eða
aberandi@hotmail.com .
Lausar stöður í
tölvudeild Norvikur
Starfsemi Norvikur hf. hófst árið 1962 með stofnun BYKO hf., sem nú
er stærsta byggingavöruverslun Íslands og starfrækir 8 bygginga-
vöruverslanir, timbursölur, leigumarkaði og lagnadeildir.
Dótturfyrirtæki Norvikur hf. eru nú 14 talsins: BYKO, BYKO-LAT,
BYKO-UK, Wayland Timber, Norwood, ELKO, Nóatún, Krónan, 11-11,
Húsgagnahöllin, Intersport, AXENT, Smáragarður og EXPO.
Kerfisstjóri
Starfssvið:
Rekstur og viðhald gagnaþjóna.
Viðkomandi vinnur í umhverfi þar sem notkun
er á SQL-server, DB2, Microsoft Exchange
server, Windows server 2000/2003, Tivoli
storage manager, iSeries (AS400), OS400
stýrikerfi og Linux.
Kröfur um reynslu:
Þekking og reynsla af iSeries og Windows
serverum.
Viðkomandi þarf að vera þjónustulundaður og
eiga gott með að vinna í hóp.
Starfsmaður í tölvudeild
Starfssvið:
Uppsetning og viðhald á PC-vélum og
jaðarbúnaði.
Þjónusta við notendur.
Samskipti við starfsmenn og samstarfsaðila.
Menntunarkröfur:
Kerfisfræði, rafeindavirki eða sambærileg
menntun.
Önnur menntun ásamt víðtækri starfsreynslu
kemur til álita.
Kröfur um reynslu:
Þekking og reynsla á Microsoft Windows
stýrikerfi skilyrði.
Viðkomandi þarf að vera þjónustulundaður og
eiga gott með að vinna í hóp.
Nánari upplýsingar veitir Gísli Jón Magnússon
í síma 458 1000 eða með tölvupósti
gjm@norvik.is.
Umsóknir sendist á skrifstofu Norvikur,
Bíldshöfða 20 - 4. hæð, 110 Reykjavík
eða með tölvupósti á gjm@norvik.is fyrir
20. ágúst 2007.
Félagsráðgjafi
Styrktarfélag krabbameinssjúkra barna (SKB)
óskar eftir að ráða félagsráðgjafa til starfa.
Viðkomandi mun hafa starfsaðstöðu á skrif-
stofu félagsins í Hlíðarsmára í Kópavogi og
nýta þann búnað sem þar er. Um nýtt starf er
að ræða sem viðkomandi tekur þátt í að móta.
Starfshlutfall er 50% en verður endurskoðað á
6 mánaða fresti. Viðkomandi verður að geta
unnið sveigjanlegan vinnutíma.
Starfslýsing:
Ráðgjöf til félagsmanna um réttindamál
þeirra.
Aðstoð við styrkumsóknir og eftirfylgni.
Ráðgjöf, ábendingar og aðstoð við stjórn
SKB og framkvæmdastjóra.
Fyrirlestrar og fræðsla fyrir félagsmenn til
sjálfshjálpar í réttindamálum.
Hæfniskröfur:
Menntun á sviði félagsráðgjafar skilyrði.
A.m.k. 5 ára starfsreynsla nauðsynleg.
Góðir samskiptahæfileikar og þjónustulund.
Sjálfstæði í starfi.
Nánari upplýsingar:
Nánari upplýsingar veitir Óskar Örn Guð-
brandsson, framkvæmdastjóri SKB, í síma
588 7555 eða í gegnum netfangið
oskar@skb.is. Umsóknarfrestur er til 27. ágúst
nk. og skulu umsóknir sendar með tölvupósti á
oskar@skb.is. Fullum trúnaði er heitið og
öllum umsóknum svarað. Áhugasömum er
bent á heimasíðu félagsins www.skb.is.