Morgunblaðið - 08.09.2007, Qupperneq 40
40 LAUGARDAGUR 8. SEPTEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
MESSUR Á MORGUN
Fjölbreytt safnaðar-
starf í Grafarvogs-
söfnuði
SEGJA má að vetrarstarfið hafi
byrjað síðasta sunnudag, annars
verður starfið í vetur sem hér segir:
Almennar guðsþjónustur eru í
Grafarvogskirkju alla sunnudaga
kl. 11. Barnaguðsþjónustur –
sunnudagaskóli í Grafarvogskirkju
kl. 11 á neðri hæð kirkjunnar og
einnig er sunnudagaskóli í Borgar-
holtsskóla kl. 11. Foreldrar eru
hvattir til þess að mæta í sunnu-
dagaskólann með börnunum sínum
og eiga þar saman góðar stundir.
Grafarvogsdagurinn verður hald-
inn 8. september og verður guðs-
þjónusta við Hamraskóla kl. 13.15.
Prestar safnaðarins þjóna fyrir alt-
ari, séra Bjarni Þór prédikar. Kór
Grafarvogskirkju syngur ásamt
Unglingakór og Krakkakór kirkj-
unnar. Stjórnendur eru Gróa
Hreinsdóttir organisti og Svava Kr.
Ingólfsdóttir kórstjóri.
Eldri borgarar hittast í kirkjunni
á hverjum þriðjudegi kl. 13. 30. Far-
ið verður í hina árlegu og skemmti-
legu haustferð þriðjudaginn 11.
september kl. 10. 30 frá Graf-
arvogskirkju. Farið verður upp í
Borgarfjörð að Fossatúni og að
Borg á Mýrum. Í Fossatúni verður
snæddur hádegisverður í glæsilegu
veitingahúsi. Helgistund verður á
Borg á Mýrum. Vinsamlega látið
skrá ykkur í Grafarvogskirkju.
Sameiginleg haustmessa eldri
borgara verður í Hvítasunnukirkj-
unni miðvikudaginn 12. sept. kl. 14.
Foreldramorgnar hefjast
fimmtudaginn 20. september kl. 10-
12 í Grafarvogskirkju og eru viku-
lega. Dagskráin er fjölbreytt. Boðið
er upp á áhugaverða fyrirlestra og
skemmtilegar og fræðandi sam-
verustundir. Sögustund með börn-
unum.
TTT, fyrir börn á aldrinum 10-12
ára, verður í skólum hverfisins.
Auglýsingar með tímasetningu birt-
ast síðar.
Æskulýðsfélag sem er fyrir ung-
linga í 8.-10. bekk er með fundi á
mánudagskvöldum kl. 20 í Grafar-
vogskirkju. Þar er margt gert, t.d.
leynigestir, ljósmyndamaraþon,
þrautafundir, keiluferð, óvissu-
fundur o.fl. Landsmót æskulýðs-
félaga verður haldið á Hvamms-
tanga 19.-21. okt. og þangað
munum við fjölmenna. Fleiri ferða-
lög verða í vor.
Opið hús verður fyrir ferming-
arbörn annan þriðjudag í hverjum
mánuði klukkan 20. Þar verður ým-
islegt á döfinni. Dagskrá verður
auglýst í fermingarfræðslunni.
Safnaðarfélagið er með fundi á
mánudögum annan hvern mánuð.
Fyrsti fundur vetrarins verður
mánudaginn 1. október kl. 20.
Kirkjukórinn hefur þegar hafið
vetrarstarfið undir stjórn Harðar
Bragasonar, organista og kór-
stjóra. Nýir félagar boðnir vel-
komnir.
Alfa-námskeið verður haldið í
janúar 2008 ef næg þátttaka fæst.
Um er að ræða 10 vikna fræðslu-
námskeið um kristna trú og tilgang
lífsins.
Krakkakór fyrir sjö og átta ára
börn. Æfingar eru á mánudögum
kl. 17.30-18.30. Árgjald kr. 5.000.
Kórstjóri: Gróa Hreinsdóttir (uppl. í
síma 699-1886 /groahreins@-
gmail.com).
Barnakór fyrir börn frá níu ára
aldri. Æfingar eru á þriðjudögum
kl. 17.15-18.30. Árgjald kr. 8.000.
Kórstjóri: Svava Kr. Ingólfsdóttir
(uppl. í síma 867-7882 / svavaki@-
simnet.is). Unglingakór fyrir 12 ára
og eldri. Æfingar eru á þriðjudög-
um kl. 16.-17.45 og fimmtudögum
kl. 16.30-18.
Árgjald kr. 12.000 greiðist við
innritun. Kórstjóri: Svava Kr. Ing-
ólfsdóttir (uppl. í síma 867-7882 /
svavaki@simnet.is).
Kyrrðarstundir í Grafarvogs-
kirkju verða í hádeginu á miðviku-
dögum kl. 12 með altarisgöngu og
fyrirbænum. Boðið er upp á léttan
hádegisverð á vægu verði að lok-
inni stundinni. Allir velkomnir.
Stundirnar hefjast miðvikudaginn
5. september.
Sorgarhópur sem fjallar um sorg
og sorgarviðbrögð mun starfa í vet-
ur, líkt og síðastliðna vetur. Prest-
ar kirkjunnar sjá um skráningu í
hópinn og hefst starfið í janúar
2008 og verður á mánudögum í 10
skipti. Ætlað þeim sem hafa misst
nána ástvini.
Bænahópur hittist á hverju
sunnudagskvöldi kl. 20 í kirkjunni
og er hann öllum opinn.
Al-Anon er með fundi á föstu-
dagskvöldum kl. 20.
AA-hópur hittist á laugardags-
morgnum kl. 11.
Atburðir helgarinnar
í Hallgrímskirkju
LAUGARDAGUR 8. sept. Orgel-
smiðjan Johannes Klais í Bonn í
Þýskalandi heldur upp á 125 ára af-
mæli fyrirtækisins um nk. helgi.
Hið mikla orgel Hallgrímskirkju er
eitt af flaggskipum orgelsmiðjunn-
ar og var ásamt 14 öðrum Klais-
orgelum víðs vegar um heiminn
valið til þátttöku í afmælishátíða-
haldinu. Fyrirtækið sendi eigend-
um hinna útvöldu orgela beiðni um
að velja ungan orgelleikara til að
leika orgeltónlist í hádegisbæna-
stund laugardaginn 8. september.
Þannig munu samdægurs 15 Klais-
orgel í öllum heimshornum hljóma
til að minnast afmælis hins virta
fyrirtækis. Í Hallgrímskirkju verð-
ur orgelandakt klukkan 12. Guðný
Einarsdóttir leikur orgelverk eftir
Dietrich Buxtehude og Jón Nordal,
sr. Jón Dalbú Hróbjartsson prófast-
ur flytur ritningarlestur og bæn.
Sunnudagur 9. sept. Messa og
barnastarf kl. 11. Sr. Jón Dalbú
Hróbjartsson prédikar og þjónar
fyrir altari ásamt messuþjónum.
Hópur úr Mótettukór Hallgríms-
kirkju syngur undir stjórn Björns
Steinars Sólbergssonar organista.
Barnastarfið verður undir stjórn
Magneu Sverrisdóttur djákna.
Kyrrðarstundir í hádegi á
fimmtudögum hefjast nk. fimmtu-
dag 13. sept. og verða hvern
fimmtudag. Tónlist, hugvekja, bæn-
ir. Léttur hádegisverður í safnaðar-
sal.
Kirkjustarf eldri
borgara í Reykjavíkur-
prófastsdæmum
KIRKJUSTARF eldri borgara er
nú að hefjast á ný eftir sumarfrí og
af því tilefni verður samkirkjuleg
guðsþjónusta í Hvítasunnukirkj-
unni Fíladelfíu nk. miðvikudag, 12.
september, kl. 14. Guðlaugur Þór
Þórðarson heilbrigðis- og trygg-
ingamálaráðherra predikar. Lög-
reglukórinn syngur og leiðir al-
mennan söng og Geir Jón Þórisson
syngur einsöng. Kórstjóri er Guð-
laugur Viktorsson. Undirleikari er
Óskar Einarsson. Stjórnandi guðs-
þjónustunnar er Vörður L.
Traustason.
Eftir guðsþjónustuna er öllum
viðstöddum boðið að þiggja kaffi-
veitingar í safnaðarsal kirkjunnar.
Þessi guðsþjónusta er samstarfs-
verkefni Ellimálaráðs Reykjavík-
urprófastsdæma, Hvítasunnukirkj-
unnar Fíladelfíu, Óháða safnaðar-
ins og Fríkirkjunnar í Reykjavík og
er henni útvarpað á Lindinni fm
102,9. Allir eru velkomnir og eru
eldri borgarar sérstaklega hvattir
til að taka þátt í guðsþjónustunni
sem markar upphaf vetrarstarfins.
Fyrsta fjölskylduhátíð
haustsins í Hafnar-
fjarðarkirkju
SUNNUDAGINN 9. september
hefst barnastarf Hafnarfjarðar-
kirkju með pomp og prakt. Þá verð-
ur haldin fyrsta fjölskylduhátíð
vetrarins og byrjar hún kl. 11 í
safnaðarheimilinu. Í vetur eru tveir
sunnudagaskólar starfandi á veg-
um kirkjunnar að venju, en báðir
koma saman einu sinni í mánuði
þegar er fjölskylduhátíð. Á hátíð-
inni leikur hljómsveitin Gleðigjaf-
arnir undir söng en hana skipa leið-
togar barnastarfsins. Barna- og
unglingakórar kirkjunnar syngja
og báðir prestarnir taka þátt. Eftir
stundina er öllum boðið upp á góð-
AKRANESKIRKJA: | Æðruleysismessa kl.
20. Fallegir sálmar, stutt hugleiðing og
reynslusaga. Hinn landskunni tónlistar-
maður Þorvaldur Halldórsson leiðir söng-
inn. Kaffisopi á eftir. Allir velkomnir.
AKUREYRARKIRKJA: | Guðsþjónusta kl.
11. Sr. Sólveig Halla Kristjánsdóttir. Fé-
lagar úr Kór Akureyrarkirkju syngja. Organ-
isti: Arnór B. Vilbergsson. Messa í Kjarna-
lundi kl. 15. Sr. Svavar A. Jónsson.
ÁRBÆJARKIRKJA: | Fjölskylduguðsþjón-
usta kl. 11. Rebbi refur, Engilráð, Gulla
gæs; einhver þeirra lætur sjá sig. Láttu
sjá þig og taktu pabba, mömmu afa og
ömmu með þér. Kaffi, Fylkisgulrætur, kex,
ávaxtasafi og kaffi á eftir.
ÁSKIRKJA: | Sunnudagaskóli og messa
kl. 11. Kór Áskirkju syngur, organisti
Magnús Ragnarsson. Börnin taka þátt í
upphafi messunnar, en fara svo niður í
safnaðarheimili ásamt leiðtogunum Elíasi
og Hildi Björgu. Fundur með fermingar-
börnum næsta vors og foreldrum þeirra
að messu lokinni. Kaffisopi eftir messu.
BESSASTAÐAKIRKJA: | Fjölskylduguðs-
þjónusta kl. 11. Fermingarbörn og for-
eldrar boðin velkomin. Upphaf sunnu-
dagaskólans og nýir
sunnudagaskólakennarar boðnir vel-
komnir. Sr. Jóna Hrönn Bolladóttir leiðir
stundina og útskýrir í predikun boðskap
messuformsins. Bjartur Logi Guðnason
og Álftaneskórinn leiða tónlistina.
BREIÐHOLTSKIRKJA: | Messa kl. 11.
Prestar sr. Bryndís Malla Elídóttir og sr.
Gísli Jónasson. Upphaf fermingarstarfs.
Vænst er þátttöku fermingarbarna vors-
ins 2008 og foreldra þeirra. Barnaguðs-
þjónusta kl. 11 í umsjá Jóhanns, Lindu og
Nínu Bjargar. Kaffisopi eftir messuna og
síðan fundur með foreldrum fermingar-
barna.
BÚSTAÐAKIRKJA: | Barnamessa kl. 11.
Samvera fyrir alla fjölskylduna. Söngur,
fræðsla, bænir og þakkir. Foreldrar, afar
og ömmur hvött til þátttöku með börn-
unum. Guðsþjónusta kl. 14. Sr. Arna Ýrr
Sigurðardóttir messar. Organisti Renata
Ivan, kór Bústaðakirkju syngur, molasopi
eftir messu.
DIGRANESKIRKJA: | Messa kl. 11. Prest-
ur sr. Yrsa Þórðardóttir. Organisti Kjartan
Sigurjónsson. Kór Digraneskirkju, B hóp-
ur. Sunnudagaskóli í kapellu á sama
tíma. Léttar veitingar að messu lokinni.
www.digraneskirkja.is
DÓMKIRKJAN: | Kl. 11 messa, sr. Jakob
Ágúst Hjálmarsson prédikar. Dómkórinn
syngur, organisti er Marteinn Friðriksson.
Í messunni verður fermd Liv Elísabet Frið-
riksdóttir, Kvistalandi 23, 108 R. Barna-
starfið á kirkjuloftinu meðan á messu
stendur.
FELLA- OG HÓLAKIRKJA: | Messa kl. 11.
Prestur sr. Svavar Stefánsson. Þorvaldur
Halldórsson sér um tónlistina. Sunnu-
dagaskóli á sama tíma í umsjá Sigríðar R.
Tryggvadóttur. Verið velkomin.
FÍLADELFÍA | English service at 12.30
pm. Entrance from the main door. Eve-
ryone Welcome. Almenn samkoma kl.
16.30. Ræðum. Hafliði Kristinsson, fjöl-
skyldu- og hjónaráðgjafi. Gospelkór Fíla-
delfíu leiðir lofgjörð. Barnakirkja fyrir 1-13
ára. Allir eru hjartanlega velkomnir. Bein
úts. á Lindinni og www.gospel.is. Sam-
koma á Omega frá Fíladelfíu kl. 20.
filadelfia@gospel.is
FRÍKIRKJAN í Hafnarfirði: | Sunnudaga-
skóli kl. 11. Umsjón hafa Edda, Hera og
Skarphéðinn. Góð stund fyrir alla fjöl-
skylduna. Kvöldvaka kl. 20. Kristín Ein-
arsdóttir fjallar um götubörn í Mongólíu.
Kór kirkjunnar leiðir söng. Organisti
Skarphéðinn Þór Hjartarson. Kaffi í safn-
aðarheimilinu að lokinni kvöldvöku.
FRÍKIRKJAN í Reykjavík: | Fjölskyldu-
guðsþjónusta kl. 14. Þema dagsins er
Jesús og börnin. Við syngjum bæði gamla
og nýja barnasálma. Skírt verður, helgi-
sagan sögð og leikbrúðurnar koma í heim-
sókn. Sr. Ása Björk Ólafsdóttir þjónar og
henni til aðstoðar er Nanda María. Anna
Sigga og Carl Möller leiða tónlistina.
Andabrauð.
FRÍKIRKJAN KEFAS | Vitnisburðarsam-
koma kl. 20 í umsjá Ragnars B. Björns-
sonar. Söngkonan og lagahöfundurinn
Jani Varnadeau kemur í heimsókn ásamt
hljómsveit. Á samkomunni mun tónlistar-
hópur kirkjunnar leiða lofgjörð og að sam-
komu lokinni verður kaffi og samfélag.
Ath. að eftirleiðis verða samkomurnar kl.
14. Allir velkomnir.
FÆREYSKA sjómannaheimilið: | Kl. 17 er
samkoma á Færeyska sjómannaheim-
ilinu Brautarholti 29. Söngur og ræður
með fólkið frá Leirvík í Færeyjum. Allir vel-
komnir, kaffi og spjall eftir samkomu.
GLERÁRKIRKJA | Messa og barnasam-
vera kl. 11. Sameiginlegt upphaf. For-
eldar, afar og ömmur, eru hvött til að fjöl-
menna með börnunum.
Grafarholtssókn | Fjölskyldumessa í mið-
rými Ingunnarskóla kl. 11. Upphaf barna-
starfs.
GRAFARVOGSKIRKJA | Guðsþjónusta kl.
11. Dregið um fermingardaga. Prestar: sr.
Vigfús Þór Árnason og sr. Bjarni Þór
Bjarnason. Kór Grafarvogskirkju syngur.
Organisti: Aðalheiður Þorsteinsdóttir.
Fundur með fermingarbörnum úr Borga-,
Engja-, Korpu-, Rima- og Víkurskóla.
Sunnudagaskóli kl. 11. sr. Anna Sigríður
Pálsdóttir.
GRAFARVOGSKIRKJA Borgarholtsskóli |
Sunnudagaskóli kl. 11. Umsjón: Gunnar
æskulýðsfulltrúi og Dagný. Undirleikari:
Guðlaugur Viktorsson.
GRENSÁSKIRKJA: | Morgunverður kl. 10.
Bænastund kl. 10.15. Barnastarf kl. 11 í
umsjá Lellu, Lilju Irenu o.fl. Messa kl. 11.
Altarisganga. Samskot til Hjálparstarfs
kirkjunnar. Messuhópur þjónar. Kirkjukór
Grensáskirkju syngur. Organisti Árni Arin-
bjarnarson. Prestur sr. Ólafur Jóhanns-
son. Molasopi eftir messu.
GRUND dvalar- og hjúkrunarheimili: |
Guðsþjónusta kl. 14. Dúett syngja Gústaf
og Ari Gústafssynir. Organisti Kjartan
Ólafsson. Sr. Sveinbjörn Bjarnason.
HAFNARFJARÐARKIRKJA |
Fjölskylduhátíð kl. 11. Hljómsveitin Gleði-
gjafar syngja. Barna og unglingakórarnir
leiða söng. Báðir prestar kirkjunnar
þjóna. Söngur – sögur – myndir.
HALLGRÍMSKIRKJA: | Messa og barna-
starf kl. 11. Sr. Jón D. Hróbjartsson pré-
dikar og þjónar fyrir altari, ásamt messu-
þjónum. Hópur úr Mótettukór
Hallgrímskirkju syngur undir stjórn Björns
Steinar Sólbergssonar organista. Barna-
starfið er í umsjón Magneu Sverrisdóttur
djákna.
HÁTEIGSKIRKJA: | Barnaguðsþjónusta og
messa kl. 11. Umsjón barnastarfs Erla
Guðrún Arnmundardóttir og Páll Ágúst
Ólafsson. Organisti Douglas A. Brotchie.
Prestur Tómas Sveinsson.
Heilsustofnun NLFÍ | Guðsþjónusta kl.
11. Jón Ragnarsson.
HJALLAKIRKJA: | Messa kl. 11. Sr. Íris
Kristjánsdóttir þjónar. Félagar úr kór kirkj-
unnar syngja og leiða safnaðarsöng. Org-
anisti Jón Ólafur Sigurðsson. Sunnudaga-
skóli kl. 13. Við minnum á bæna- og
kyrrðarstund á þriðjudag kl. 18 (sjá einnig
á www.hjallakirkja.is).
HJÁLPRÆÐISHERINN á Akureyri: | Al-
menn samkoma kl. 17. Mæðgurnar Ingi-
björg Jónsdóttir og Rannveig Óskarsdóttir
stjórna og tala. Allir eru velkomnir
HJÁLPRÆÐISHERINN í Reykjavík: | Sam-
koma sunnudag kl. 20. Umsjón: Ester
Daníelsdóttir og Wouter van Gooswilligen,
kafteinar. Heimilasamband fyrir konur
mánudag kl. 15. Lofgjörðarsamkoma
fimmtudag kl. 20 í umsjá Esterar Daníels-
dóttur.
ÍSLENSKA KRISTSKIRKJAN: | Barna-
starfið hefst að nýju kl. 11 með fjölbreyttri
dagskrá. Einnig fræðsla fyrir fullorðna.
Samkoma kl. 20 með mikilli lofgjörð og
fyrirbænum. Friðrik Schram predikar.
Kynningarkvöld á Alfa námskeiðinu vin-
sæla á þriðjudag kl. 20.
KEFLAVÍKURKIRKJA: | Í dag verður fjöl-
skylduguðsþjónusta kl. 11. Fermingar-
börn taka virkan þátt í samkomunni, lesa
texta, útskýra hvern þátt guðsþjónust-
unnar og flytja leikþátt. Prestar og æsku-
lýðsfulltrúi kirkjunnar taka þátt í athöfn-
inni.
KÓPAVOGSKIRKJA: | Guðsþjónusta kl.
11. Prestur sr. Ægir Fr. Sigurgeirsson. Fé-
lagar úr kór Kópavogskirkju syngja og
leiða safnaðarsöng. Lenka Mátéová, nýr
organisti kirkjunnar, spilar og stjórnar
söng. Barnastarf í kirkjunni kl. 12.30.
Umsjón Sigríður, Þorkell Helgi og Örn Ým-
ir.
Landspítali: Landakot | Guðsþjónusta kl.
14. Sr. Gunnar Rúnar Matthíasson, org-
anisti Helgi Bragason.
LANGHOLTSKIRKJA: | Guðsþjónusta og
barnastarf kl. 11. Upphaf ferming-
arstarfsins og eru fermingarbörn og for-
eldrar sérstaklega hvött til að mæta.
Stuttur fundur á eftir. Barnastarfið er í
safnaðarheimilinu með Rut, Steinunni og
Aroni. Prestur sr Jón Helgi Þórarinsson.
Organisti Jón Stefánsson. Kaffisopi.
LAUGARNESKIRKJA: | kl. 11 messa og
sunnudagaskóli. Sóknarprestur og með-
hjálpari þjóna. Sunnudagaskólinn er í
höndum sr. Hildar Eirar og hennar sam-
starfsfólks. Kl. 20.30 kvöldmessa. Stein-
unn Valdís Óskarsdóttir segir ögursögu,
Djasskvartett Gunnars Gunnarssonar
leikur, kór, prestar og meðhjálpari þjóna.
Messukaffi
LÁGAFELLSKIRKJA: | Guðsþjónusta í
Lágafellskirkju kl. 11. Prestur Ragnheiður
Jónsdóttir. Kór Lágafellskirkju syngur.
Organisti Jónas Þórir. Sunnudagaskólinn í
kirkjunni kl. 13. Umsjón Hreiðar Örn og
Jónas Þórir.
LINDASÓKN í Kópavogi: | Fyrsta messa
og sunnudagaskóli vetrarins í Salaskóla.
Kynning á vetrarstarfinu, Kór Lindakirkju
syngur undir stjórn Keith Reed, Guð-
mundur Karl Brynjarsson þjónar.
MÖÐRUVALLAKIRKJA | Fjölskylduguðs-
þjónusta verður fyrir allt prestakallið í
Möðruvallakirkju sunnudaginn 9. sept-
ember. kl. 11 f.h. Komum með eitthvað
sem tilheyrir haustinu og leggjum á altar-
ið. Fundur með fermingarbörnum og for-
eldrum þeirra á eftir. Allir velkomnir.
Sóknarprestur.
NESKIRKJA: | Messa og barnastarf kl.
11. Kammerkór Háskólans í Varsjá, Col-
legium Musicum syngur. Kór Neskirkju
leiðir safnaðarsöng. Organisti Steingrím-
ur Þórhallsson. Sr. Örn Bárður Jónsson
prédikar og þjónar fyrir altari. Börnin byrja
í kirkjunni en fara síðan í safnaðarheimil-
ið. Kaffi og spjall eftir messu.
ÓHÁÐI SÖFNUÐURINN: | Guðþjónusta kl.
14 sr. Pétur Þorsteinsson. Upphaf barna-
starfsins og verður flutt leikrit, foreldrar/
forráðamenn hvattir til að koma með
börnum sínum. Bjóðum velkomin til starfa
nýjan organista og kórstjóra Kára Allans-
son. Getum bætt við söngfólki í kórinn.
Heitt á könnunni og maul eftir messu.
Salt kristið samfélag | Háaleitisbraut 58-
60, 3. hæð. Saltaðar samkomur kl. 17.
Ræðumaður; Bill Jessup. Jeni Varnadeau
og hljómsveit syngja nokkur lög. Mikil lof-
gjörð og fyrirbæn. Velkomin.
SELFOSSKIRKJA: | Messa kl. 11. Barna-
samkoma kl. 11.15 í lofti safnaðarheim-
ilisins. Sr. Gunnar Björnsson.
SELJAKIRKJA: | Barnaguðsþjónusta kl.
11. Söngur, saga, mynd í möppu. Guðs-
þjónusta kl. 14. Sr. Bolli Pétur Bollason
prédikar. Kirkjukórinn leiðir almennan
söng. Organisti Jón Bjarnason.
SELTJARNARNESKIRKJA: | Kynning-
arguðsþjónusta fyrir fermingarbörn kl. 11.
Kammerkór Seltjarnarneskirkju leiðir tón-
listarflutning undir stjórn Friðriks Vignis
Stefánssonar organista. Prestur er Sig-
urður Grétar Helgason. Sunnudagaskól-
inn er á sama tíma. Minnum á æskulýðs-
félagið kl. 20. Velkomin.
SKÁLHOLTSDÓMKIRKJA: | Messa sunnu-
dag kl. 11. Sóknarprestur.
STRANDARKIRKJA | Hin árlega uppskeru-
messa sunnudag kl. 14.30 (ath. breyttan
tíma). Fagnað og þakkað fyrir uppskeru
jarðarinnar. Ræðuefni: Maður og náttúra.
Organisti Julian Edwards Isaacs. Prestur
Baldur Kristjánsson.
Vegurinn kirkja fyrir þig | Kl. 11 sam-
koma. Kennsla fyrir alla aldurshópa.
Högni Valsson kennir, lofgjörð og fyrir-
bæn. Létt máltíð að samkomu lokinni. All-
ir velkomnir. Kl. 19 samkoma. Björg
Davíðsdóttir segir okkur frá dvöl sinni í
Kenýa. Söngkonan Jeni Varnadeau tekur
lagið. Samfélag í kaffisal. Allir velkomnir.
VÍDALÍNSKIRKJA: | Guðsþjónusta kl. 11.
Sr. Friðrik Hjartar þjónar, Helga Rós Indr-
iðadóttir syngur einsöng, Rósa Ægisdóttir
leikur á flautu. Kór Vídalínskirkju syngur,
Jóhann organisti. Barn skírt. Fermingar-
börn og foreldrar boðaðir sérstaklega til
fundar í kirkjunni kl. 12.20. Súpa eftir
messu í umsjón Lionsklúbbanna í Garða-
bæ.
YTRI-NJARÐVÍKURKIRKJA: | Guðsþjón-
usta 9. september kl. 11. Gunnhildur
Halla Baldursdóttir, nýr organisti kirkj-
unnar, kynnt og mun kór kirkjunnar síðan
leiða söng undir hennar stjórn. Meðhjálp-
ari Ástríður Helga Sigurðardóttir.
Guðspjall dagsins:
Tíu líkþráir.
(lúk. 17)
Ytri-Njarðvíkurkirkja
KIRKJUSTARF