Morgunblaðið - 14.09.2007, Qupperneq 23
mælt með…
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. SEPTEMBER 2007 23
-hágæðaheimilistæki
Íslenskt stjórnborð
Íslenskar leiðbeiningar
Stórt hurðarop
20 ára ending
Eirvík kynnir
sportlínuna frá Miele
vi
lb
or
ga
@
ce
nt
ru
m
.is
Baldursnes 6, Akureyri | Suðurlandsbraut 20, Reykjavík Sími 588 0200 | www.eirvik.is
AFSLÁTTUR
30%
Miele gæði
ÞVOTTAVÉL frá kr. 99.900
Verið velkomin í glæsilegar verslanir Eirvíkur á Akureyri
og í Reykjavík og kynnið ykkur Miele þvottavélar.
Gerð Listaverð TILBOÐ
Þvottavél W1514 142.714 99.900
1400sn/mín/5 kg
Þurrkari T7644C 135.571 94.900
rakaþéttir/6 kg
freyjur. Ef Flugfreyju-
félag Íslands kysi að
breyta nafni sínu í
Flugþjónafélag Íslands
væri Víkverji sáttur við
það, ef stéttin teldi
vera einhverja þörf á
því faglega séð. En
þangað til ætlar Vík-
verji að kalla flug-
freyjur sínu rétta nafni
og þakkar þeim í leið-
inni fyrir vel unnin
störf.
x x x
Víkverja finnst Kola-portsheimsókn
vera ómissandi hluti
helgarstemningarinnar og má mark-
aðnum ekki vera fórnað á altari
einkabifreiðarinnar. Víkverji er al-
farið á móti lokun markaðarins, þó
tímabundin sé. Að sjálfsögðu verður
að finna annað húsnæði strax fyrir
Kolaportið. Ef hlé verður á rekstr-
inum er hætta á að markaðurinn
verði drepinn endanlega. Eftir fram-
kvæmdin verður Kolaportið minna
og borulegra, lofthæðin verður
minnkuð um helming, sem mun
áreiðanlega ekki bæta loftið þarna
inni.
Af hverju geta flug-þjónar ekki verið
flugfreyjur? Þessu
velti Víkverji fyrir sér
þegar hann las fyrir-
sögn Morgunblaðsins
sl. þriðjudag, „Mikill
hiti í flugþjónum“. Á
meðfylgjandi mynd
virtist yfirgnæfandi
hluti viðstaddra vera
konur, eða flugfreyjur.
Félagið heitir Flug-
freyjufélag Íslands og
er eina stéttarfélagið
af sínu tagi á landinu.
Skráðir félagsmenn í
þessum mánuði eru
756 en þar af eru 53
karlmenn eða um 7%.
Víkverja finnst flugfreyja mjög
fallegt orð og telur að karlmenn geti
líka verið flugfreyjur. Flugþjónn er
ekkert sérstakt orð og hefur ekki yf-
ir sér þann virðuleikablæ sem orðið
flugfreyja hefur unnið sér inn í
gegnum árin. Af hverju þarf alltaf að
breyta starfsheiti þegar karlmenn
koma til starfa í stéttum sem áður
voru kvennastéttir? Að minnsta
kosti telur Víkverji að yfirheitið ætti
að vera flugfreyja en ekki flugþjónn.
Flugþjónar geti sumsé verið flug-
víkverji skrifar | vikverji@mbl.is
Réttarstemningin
allsráðandi
Búast má við miklu lífi og fjöri í
réttum um allt land um helgina því
bæði fjár- og hrossaréttir verða
mjög víða. Gangnamenn fara nú óð-
um að tínast til byggða eftir að hafa
fengið misjafnt veður á fjöllum und-
anfarna daga, en réttarstemningin
er alltaf skemmtileg, bæði fyrir börn
og fullorðna. Upplýsingar um dag-
setningar fjár- og stóðrétta má m.a.
finna á vef Bændasamtaka Íslands,
www.bondi.is.
Tími fyrir bókaorma
Lokaátök áttundu bókmenntahá-
tíðarinnar, sem haldin er í Reykja-
vík, verða um helgina. Dagskráin
hefur verið þétt undanfarna daga og
verður áfram stíf dagskrá þessa tvo
síðustu daga. Í kvöld kl. 20 í Iðnó
verða þau Guðrún Helgadóttir og
Arnaldur Indriðason fulltrúar ís-
lenskra höfunda, en auk þeirra koma
fram þau Sasa Stanisic, Robert Löhr
og Yasmin Crowther. Og vert er að
minna líka á fyrirlestur Jung Chang
í Háskólabíói kl. 15.15 í dag, en hann
samdi m.a. umtalaða bók um Maó
formann ásamt konu sinni Jon Hal-
liday.
Frumsýningar og tónleikar
Á menningarsviðinu er eitt og
annað að gerast um helgina. Hörður
Torfa verður í kvöld með sína árlegu
hausttónleika í Borgarleikhúsinu.
Annað kvöld verða Óvitar frum-
sýndir hjá Leikfélagi Akureyrar og
Blinda kindin í Austurbæ. Fær-
eyskir listamenn með Jógvan í
broddi fylkingar troða upp í gler-
skálanum við Norræna húsið. Blood-
group verður á opnunartónleikum
LIDO. Megas og Senuþjófarnir
troða upp á Ísafirði og hægt verður
að hlýða á Njáluerindi á Sögusafn-
inu á Hvolsvelli.
Býður í leikhúsveislu
Möguleikhúsið í samvinnu við
Kómedíuleikhúsið býður á sunnu-
daginn til sannkallaðrar leikhús-
veislu fyrir alla fjölskylduna í Mögu-
leikhúsinu við Hlemm. Hvorki fleiri
né færri en sex leiksýningar fyrir
börn og unglinga verða sýndar hver
á eftir annarri og er frítt inn meðan
húsrúm leyfir. Dagskráin hefst kl.
11 með Langafa prakkara og síðan
tekur við hver sýningin á eftir ann-
arri, Höll ævintýranna, Landið vifra,
leikrit um fornkappann Gísla Súrs-
son, gamanleikurinn Skrímsli og
Sæmundur fróði slær svo botninn í
leikhúsveisluna miklu.
Októberfest
og vínarsnitsel
Í tilefni af Októberfest, sem hefst í
dag og stendur í mánuð, ætlar veit-
ingastaðurinn Geysir, bistró-bar, að-
bjóða upp á sérstakan hátíð-
armatseðil undir þýskri stemningu.
Geysir státar af þýskum mat-
reiðslumeistara, Jens Obendorfer,
sem ætlar að töfra fram þjóðlega
rétti á borð við svínaskanka með
bjórsósu, súrkáli og kartöflumús,
þýskar grillpylsur og að sjálfsögðu
réttinn sem allir þekkja, vínars-
nitsel.
Handbolti og fótbólti
Þeir, sem hafa hug á að bregða sér
á völlinn um helgina, hafa um fimm
leiki í Landsbankadeild karla í
knattspyrnu að velja auk tveggja
leikja í úrvalsdeild karla í hand-
Morgunblaðið/Birkir Fanndal
Morgunblaðið/Kristinn
Mikið úrval af
fallegum
rúmfatnaði
Skólavörðustíg 21, Reykjavík, sími 551 4050