Morgunblaðið - 14.09.2007, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 14.09.2007, Blaðsíða 27
vín MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. SEPTEMBER 2007 27 Þau vín eru ekki einungis í hópibestu rauðvína Ítalíu heldur,ásamt Barolo-vínunum frá Piedmont í norðri, þau ítölsku vín sem teljast meðal stórfenglegustu vína veraldar. Vakti það nokkra athygli fyrr á þessu ári þegar bandaríska tímaritið Wine Spectator birti árlegan lista sinn yfir 100 bestu vín ársins að ekki einungi vermdi Casanove di Neri – Tenuta Nuova efsta sætið heldur var all nokkra fulltrúa Brunello til við- bótar að finna á listanum. Líkt og flest rauðvín Toskana er hér um að ræða vín úr þrúgunni Sangiovese. Hún er til í mörgum af- brigðum og ber nokkur svæðis- bundin nöfn. Við ströndina í Mar- emma er hún nefnd Morellino (di Scansano) og í (Vino Nobile di) Montepulciano ber þrúgan heitið Prugnolo gentile. Afbrigðið sem ræktað hefur verið upp í hæðunum og dölunum í kring- um þorpið Montalcino var hins veg- ar gefið nafnið Brunello, sem líklega er dregið af orðinu bruno og má því segja að nafnið þýði sá dökki frá Montalcino. Saga vínanna frá Brunello er ekki löng í samanburði við afrekaskrá annarra heimsþekktra vína. Það var í raun ekki fyrr en á nítjándu öld sem að Brunello-vínin í þeim skiln- ingi sem við þekkjum þau í dag voru þróuð fram af Biondi-Santi- fjölskyldunni. Hún afmarkaði þetta tiltekna afbrigði Sangiovese- þrúgunnar og við víngerðina var leit- ast við að búa til mikil vín er byggju yfir jafnt lífsþrótti sem lífslengd. Vínin frá Biondi-Santi nutu fljótt mikillar hylli alþjóðlega en það var þó ekki fyrr en á síðari hluta síðustu aldar sem Brunello-víngerð fór að ná almennilegri fótfestu á svæðinu og æ fleiri bændur fóru að rækta og fram- leiða vín í þessum stíl. Árið 1970 voru Brunello-vín skilgreind sem vín í efsta flokki ítalskra vína, DOCG, fyrst allra vína. Annar mikilvægur áfangi í Brunello-sögunni var þegar bandarísk-ítalska fjölskyldan Mari- ani, sem hafði auðgast á vínvið- skiptum í vesturheimi, festi kaup á Banfi-kastala árið 1978 og hóf Bru- nello-framleiðslu en með því hófst innreið þessara vína á Bandaríkja- markað fyrir alvöru. Að ná sem mestu úr þrúgunum Það er einnig til marks um hversu mikið menn eru farnir að horfa til Brunello að þekktustu vínhús Ítalíu eru búin að fjárfesta þar í víngerð og má nefna Piero Antinori (Pian delle Vigne) og Angelo Gaja (Pieve Santa Restituta og Rennina). Góður Brunello ber af öðrum San- giovese-vínum. Því má að miklu leyti þakka loftslaginu í Montalcino en meðalhiti þar er hærri en annars staðar í Toskana. Við víngerðina er sömuleiðis lögð áhersla á að ná sem mestu úr þrúgunni og vínin verða að liggja tvö ár á eikartunnum áður en þau eru sett á markað. Margir fram- leiðendur geyma þó vínin allt að þrjú ár á tunnum. Nota menn jafnt 225 lítra „barrique“-tunnur eða stórar ámur, kallaðar „botte“. Á markað mega vínin fara á sjötta ári frá upp- skeru. Nú er algengast að rekast á vín frá 2002-uppskerunni sem var því miður einungis miðlungs góð á Ítalíu eftir nokkur frábær ár en allir ár- gangar á bilinu 1995-2001 voru afar góðir og sumir frábærir, s.s. 1997, 1999 og 2001. Brunello-vín eru alls ekki ódýr vín, þau sem fáanleg eru í vínbúð- unum kosta frá rúmlega þrjú þús- und krónum og upp úr. Í samanburði við til dæmis sam- bærileg vín frá Bordeaux verður þó að segjast eins og er að þau eru mjög góð kaup miðað við hvað maður fær mögnuð vín fyrir peninginn. Jafn- framt er hægt að fá ódýrari „mini“- útgáfu ef vín í flokknum Rosso di Montalcino eru keypt. Þau eru einn- ig framleidd 100% úr Brunello- þrúgum en koma mun fyrr á mark- að. Enda segir sagan að þessi flokk- ur hafi orðið til vegna þess vínbændur neyddust til að fá pen- inga fyrr í vasann – þeir gátu ekki allir beðið í fimm ár frá uppskeru þangað til að hægt væri að selja Brunello-inn. Brunello-vín úr búðunum Argiano Brunello di Montalcino 2002 er vín kennt við forna sum- arhöll Pecci-fjölskyldunnar, að- alsfjölskyldu frá Siena sem trónir á hæð suðvestur af þorpinu Montalc- ino. Á seinni árum er Argiano hins vegar þekktar sem úrvalsframleið- andi Montalcino-vína. Kryddað, blóðug villibráð og reykur. Þegar farið að sýna góða dýpt og nokkurn þroska en þrátt fyrir fágun á ytra borðinu leynist mikill kraftur undir niðri. Silkimjúk tannín, nokkur sýra og þéttriðið bragð-net, fullkomið með góðri nautasteik. 3.290 krónur. 88/100 Castello Banfi Brunello di Mon- talcino 2001 er standard-Brunello úr Banfi-línu Mariani-fjölskyld- unnar, vínð sem ruddi slóðina fyrir Brunello í Bandaríkjunum. Þetta er þurr Brunello með krydduðum, dökkum ávexti, kaffi og sviðinni eik. Stíft og langt með allnokkrum tann- ínum og sýru. 4.190 krónur. 89/100 Cantina di Montalcino Brunello di Montalcino 2002 er „unglegur“ og snotur Brunello. Þetta er eina vín- samlagið á Brunello-svæðinu og ekki er það stórt frekar en annað í Mon- talcino. Brunello-svæðið í heild framleiðir árlega álíka magn og miðlungs framleiðandi á heimsvísu og það endurspeglast í stærð „kant- ínunnar“ sem þætti ekki stór fram- leiðandi á flestum öðrum víngerð- arsvæðum Ítalíu. Allt er fremur í stíl lítils gæðaframleiðanda. Svartur kirsuberja- og plómuávöxtur, eik og töluverður apótekaralakkrís. All- massíft, ungt og tannínskt með góðri dýpt og lengd. Það er reisn yfir vín- inu og það má vel geyma í 5-10 ár. 3.790 krónur. 88/100 sts@mbl.is Vínbóndi Við gerð Brunello-vínanna er lögð áhersla á að ná sem mestu úr þrúgunum. Morgunblaðið/ Steingrímur Sigurgeirsson Fagrar sveitir Í suðurhluta Toskana er helsta aristókrata toskanskra vína að finna. Brunello – sá dökki Þegar Toskana og vín eru nefnd í sömu andrá er hér- aðið Chianti líklega það sem fyrst kemur upp í hug- ann hjá flestum, enda algengasta gæðavín héraðsins, segir Steingrímur Sigurgeirsson. Það er hins vegar í suðurhluta Toskana, suður af Siena, sem helsta ar- istókrata toskanskra vína er að finna: Brunello di Montalcino. LÍKAMLEG hreyfing er líklega ekki í efst í huga þeirra sem eru að drepast úr verkjum. Æfingar gætu þó bætt um betur og reynst mikil- vægari en kyrrstaða og aðgerða- leysi, þegar upp er staðið. Regluleg hreyfing er nefnilega alhliða vopn gegn krónískum verkjum, að því er segir á vefsíðu bandarísku sjúkra- stofnunarinnar Mayo Clinic. Með aðgerðaleysi og óvirkni missa vöðvarnir, þar með talið hjart- að, niður styrk og vinna þar af leið- andi óskilvirkar en ella með þeim af- leiðingum að hætta á of háum blóðþrýstingi, háu kólesteróli og sykursýki snarhækkar. Aðgerða- leysið getur auk þess framkallað meiri þreytu, streitu og kvíða. „Fyrir mörgum árum var fólki, sem var illa haldið af verkjum, ráð- lagt að hvíla sig, en núna vitum við að hið gagnstæða virkar betur. Hreyfingarleysið er eingöngu til þess fallið að stuðla að áframhald- andi krónískum kvillum,“ segir Edward Laskowski, sérfræðingur við Mayo Clinic. Þótt erfitt geti verið að koma kvöldum líkama af stað í hreyfingu á hann eftir að uppskera árangur erf- iðisins því hreyfingin er líkleg til að:  Hvetja líkamann til að losa en- dorfín, sem hindrar að merki um sársauka komist upp í heila- starfsemina. Endorfín hjálpar líka til við að lina kvíða og depurð.  Hjálpa til við að byggja upp fyrri vöðvastyrk.  Auka sveigjanleika í liðamótum.  Bæta svefn.  Styrkja vinnuþrek.  Hjálpa til við að halda kjörþyngd.  Bæta skap.  Vernda hjarta og æðar. Til að gera hreyfingu að vana er fólki, sem burðast með króníska kvilla, ráðlagt að ráðfæra sig við lækni um viðhlítandi æfingaplön, ekki síst til að fullvissa sig um að rétt sé farið að. Árangursríkast er að finna sér hreyfingu, sem viðkom- andi hefur gaman af. Best er svo að byrja bara rólega og gefa svo í smátt og smátt, eftir því sem lík- aminn verður tilbúnari til að taka við. Hreyfingin linar kvalirnar Morgunblaðið/Jim Smart Hreyfingin Regluleg hreyfing er líklegri til að draga úr krónískum kvillum en kyrrstaða, aðgerðaleysi og hvíldin ein. heilsa

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.