Morgunblaðið - 14.09.2007, Side 44

Morgunblaðið - 14.09.2007, Side 44
44 FÖSTUDAGUR 14. SEPTEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ WWW.SAMBIO.IS SAMBÍÓIN - EINA BÍÓKEÐJAN Á ÍSLANDIVERSLAÐU MIÐA Á NETINU Á MR. BROOKS kl. 8 - 10:30 B.i. 16 ára BRATZ kl. 3:50 - 5:40 - 8:30 LEYFÐ ASTRÓPÍA kl. 3:40 LEYFÐ LICENSE TO WED kl. 6 - 8 B.i. 7 ára DIGITAL THE BOURNE ULTIMATUM kl. 10 B.i. 14 ára THE TRANSFORMERS kl. 10:40 B.i. 10 ára DIGITAL RATATOUILLE m/ísl. tali kl. 3:50 LEYFÐ DIGITAL / KRINGLUNNI MR. BROOKS kl. 5:30 - 8 - 10:30 B.i.16.ára MR. BROOKS kl.8 - 10:30 B.i.16.ára LÚXUS VIP BRATZ kl. 4 - 5:30 - 8 - 10:30 LEYFÐ KNOCKED UP kl. 8 - 10:40 B.i.14.ára DISTURBIA kl. 8 - 10:30 B.i.14.ára ASTRÓPÍA kl. 4 - 6 - 8 - 10:10 LEYFÐ ASTRÓPÍA LÚXUS VIP kl. 4 - 6 LEYFÐ RATATOUILLE m/ísl. tali kl. 5:30 LEYFÐ / ÁLFABAKKA VIPSALURINNER BARA LÚXUS ER STAÐSETTUR Í SAMBÍÓUNUM ÁLFABAKKA Sýnd laugardag og Sunnudag Sýnd laugardag og Sunnudag ALLIR EIGA SÍN LEYNDARMÁL. ÓVÆNTASTI SÁLFRÆÐITRYLLIR ÁRSINS. SKEMMTILEGUSTU VINKONUR Í HEIMI ERU MÆTTAR. Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson jbk@mbl.is VEFSÍÐAN Imdb.com, vinsælasta og stærsta kvikmyndasíða Netsins, hóf nýverið að flokka kvikmyndir eftir því hvort nakin börn koma fyrir í myndunum. Sænska dagblaðið Aftonbladet vakti athygli á þessu á vefsíðu sinni í gær þegar í ljós kom að nokkrar kvikmyndir sem byggðar eru á sögum eftir barnabókahöfundinn Astrid Lindgren eru flokkaðar með þessum hætti, til dæmis Maddit, Ronja Ræningjadóttir og Börnin í Ólátagarði. Carl Olof Nyman, talsmaður Saltk- råkan AB sem gefur út bækur Lindgrens, segist ekki skilja tilganginn með þessari flokkun. „Ég skil ekki til hvers menn vilja flokka kvikmyndir eftir því hvort nakin börn koma fyrir í þeim. Hvað á það að bæta?“ spyr Nyman. Frægar myndir Á Imdb.com er hægt að fá upplýsingar um flest þau viðfangsefni sem koma fyrir í viðkom- andi kvikmynd og er það fyrirkomulag trúlega hugsað fyrir foreldra sem vilja vita hvers konar efni börn þeirra horfa á. Á meðal þessara við- fangsefna eru jafn ólík atriði og fjölskyldan, of- beldi, vinátta, ljótt orðbragð, ást, kynlíf og lífið, svo fáein dæmi séu nefnd. Nýverið var „child nu- dity“ eða nekt barna bætt við þessi viðfangsefni, og samkvæmt vefsíðunni falla 258 kvikmyndir undir þá skilgreiningu. Þar á meðal eru nokkrar þekktar kvikmyndir, svo sem nýja myndin um Simpsons fjölskylduna, Midnight Cowboy, A Beautiful Mind, Godfather 2 og meira að segja sjónvarpsþættirnir um vinina, Friends. Varað við nöktum börnum Lindgren Nakin börn sjást í kvikmyndum eftir sögum hennar. Í kvikmyndinni Mr. Brooks segir frá Mr. Brooks sem er farsæll í starfi sínu í við- skiptaheiminum. En það er ekki allt sem sýnist því hann er klofinn persónuleiki, milli þess að vera til- finningasamur og góður er hann kaldur og grimm- ur fjöldamorðingi. Hann ákveður að drepa seinasta fórnarlamb sitt og hætta svo dráp- unum og snúa sér að einföldu fjöl- skyldulífi. En eitthvað fer úrskeiðis og hann getur ekki yfirgefið glæpa- hátterni sitt. Á meðan fer líka allt að snúast til hins verra hjá hinni full- komnu fjölskyldu hans og hann er eltur af lögreglunni. Mr. Brooks kemst að lokum að því að eina leiðin til að binda enda á glæpaferilinn sé að drepa aftur og aftur. Leikstjóri er Bruce A. Evans og skrifaði hann einnig handritið ásamt Raynold Gideon. Aðalhlutverk leika: Kevin Costner, William Hurt, Demi Moore, Dane Cook, Marg Helgen- berger og Jason Lewis. Mr. Brooks er frumsýnd í dag í Sambíóunum Álfabakka og Kringl- unni og er bönnuð innan 16 ára. Mr. Brooks Ekki allur þar sem hann er séður. Fjölskyldufaðir og fjöldamorðingi Erlendir dómar: Metacritic 45/100 Rolling Stone 75/100 Variety 60/100 The Hollywood Reporter 40/100 FRUMSÝNING»

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.