Morgunblaðið - 06.11.2007, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. NÓVEMBER 2007 9
FRÉTTIR
www.feminin.is • feminin@feminin.is
Bæjarlind 4, Kópavogi • sími 544 2222
Opið mán.-fös. kl. 11-18 - lau. 10-16
Verslunin er lokuð
í dag þriðjudag
vegna útfarar
Kristínar Kvaran
Laugavegi 53, s. 552 1555
TÍSKUVAL
Opið virka daga kl. 10-18, lau. kl. 11-16
30% afsláttur
af völdum vörum vegna breytinga
og
Laugavegi 82,
á horni Barónsstígs
sími 551 4473
Freistandi
undirföt
Hverfisgötu 6, 101 Reykjavík, sími 562 2862
Nýjar vörur Mbl 924851
Nýbýlavegi 12, Kóp.
Sími 554 4433
Opið virka daga kl. 10-18,
lau. kl. 11-16.
Nýtt merki
Alltaf nýjar
vörur
Svartar og
brúnar buxur
Str. 36-56
Eddufelli 2 Bæjarlind 6
sími 557 1730 sími 554 7030
Opið virka daga 10-18
GUNNAR I. Birgisson, bæjarstjóri í
Kópavogi, furðar sig á ummælum
framkvæmdastjóra Þyrpingar um
Smáralind í Kópavogi og segir að
verslunaraðstaðan þar hafi betra að-
gengi og betri bílastæði en þekkist
annars staðar hérlendis.
G. Oddur Víðisson, framkvæmda-
stjóri Þyrpingar, sagði á ráðstefnu
Capacent um áskoranir í skipulags-
málum að skipulagsmistök hefðu átt
sér stað við Smáralind og næsta ná-
grenni og hann teldi að svæðið yrði
skipulagt á nýjan leik eftir um 40 ár.
Gunnar I. Birgisson segir að
þarna tali hagsmunaaðili sem tengist
Kringlunni í Reykjavík og í raun sé
furðulegt að Morgunblaðið skuli
hafa þessi ummæli eftir honum. Við-
skiptamiðjan sé smám saman að
færast til Kópavogs og von að fram-
kvæmastjórinn sjái ofsjónum yfir
því. Kópavogsbúar brosi því af þess-
um ummælum en
samt sé ástæða
fyrir þá sem séu í
samkeppni að
gæta orða sinna.
„Ég held að ég
geti fullyrt það að
það verði ekki bú-
ið að rífa neinar
af þessum bygg-
ingum eftir 40
ár.“
Þegar Smáralindin reis segir
Gunnar að sagt hafi verið að allt
myndi springa í loft upp en annað
hafi komið á daginn. Verið væri að
tvöfalda Dalveginn, gera brú yfir og
létta á gatnamótum. Með Arnarnes-
veginum komi líka gott aðgengi frá
Smárahvammsveginum. „Engin
verslunaraðstaða hefur eins gott að-
gengi og eins góð bílastæði og þetta
svæði,“ segir hann.
Besta aðgengið
í Smáralind
Hafnar fullyrðingu um skipulagsmistök
Gunnar I.
Birgisson
GENGI Íslend-
inga á Evrópu-
móti taflfélaga
sem fram fer nú
á Krít hefur ver-
ið upp og ofan. Í
gær tapaði liðið
fyrir Dönum með
tveimur og hálf-
um vinningi
gegn einum og
hálfum og situr
eftir átta umferðir í 25. sæti af 40.
Röð liða ræðst ekki af fjölda vinn-
inga heldur stigum, en lið fær 2 stig
fyrir að sigra annað lið og eitt fyrir
jafntefli. Enginn Íslendingur vann
sigur á mótherja sínum í gær en
þeir Héðinn Steingrímsson, Þröstur
Þórhallsson og Henrik Danielsen
náðu jafntefli.
Íslendingar í
25. sæti á Krít
Héðinn
Steingrímsson
HÆSTIRÉTTUR hefur staðfest
gæsluvarðhaldsúrskurð yfir sí-
brotamanni og verður hann í haldi
lögreglu þar til 1. febrúar á næsta
ári. Maðurinn hefur verið sakfelld-
ur fyrir fjölmörg alvarleg brot, þar
á meðal rán, íkveikju, innbrot,
nytjastuld, fíkniefnalagabrot og
eignaspjöll.
Við rannsókn mála tengdra
manninum kom í ljós að hann var í
mikilli óreglu og án atvinnu. Brota-
ferill hans hefur verið nánast sam-
felldur og er það mat lögreglu að
hann muni halda brotastarfsemi
áfram verði hann látinn laus.
Maðurinn var í júlí sl. dæmdur í
30 mánaða fangelsi og í ágúst var
45 dögum bætt við dóminn. Þess er
ekki að vænta að mál hans komist á
dagskrá Hæstaréttar fyrr en á
næsta ári en nauðsynlegt þykir að
halda honum í gæslu þar til end-
anlegur dómur fellur.
Síbrotagæsla
til 1. febrúar
HÆSTIRÉTTUR hefur staðfest
gæsluvarðhaldsúrskurð Héraðs-
dóms Reykjavíkur yfir karlmanni á
fertugsaldri en markað varðhald-
inu styttri tíma.
Maðurinn var í júní sl. sakfelldur
í héraði fyrir tilraun til manndráps
og gert að afplána sex ár í fangelsi.
Hann áfrýjaði dómnum til Hæsta-
réttar sem á enn eftir að taka málið
fyrir. Á grundvelli almannahags-
muna var farið fram á að maðurinn
sætti gæsluvarðhaldi þar til end-
anlegur dómur fellur, Héraðs-
dómur Reykjavíkur féllst á að mað-
urinn sætti varðhaldi til 21.
desember nk. en Hæstiréttur stytti
varðhaldið um eina viku.
Haldið í gæsluvarðhaldi þar
til endanlegur dómur fellur
Fréttir á SMS