Morgunblaðið - 06.11.2007, Síða 38

Morgunblaðið - 06.11.2007, Síða 38
38 ÞRIÐJUDAGUR 6. NÓVEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ BANDARÍSKA gamanmyndin Balls Of Fury var tekjuhæsta myndin í ís- lenskum kvikmyndahúsum um helgina, þótt fleiri hafi að vísu séð tölvuteiknimyndina Íþróttahetjuna. Ástæða þess er sú að miðar á Íþrótta- hetjuna voru ódýrari en á Balls Of Fury, sem er því á toppnum. Myndin segir af fyrrum atvinnumanni í borð- tennis, Randy Daytona, sem má muna sinn fífil fegri. Líf hans breytist heldur betur þegar alríkislög- reglumaður ræður hann til þjónustu í leyniverkefni. Randy setur sér þá það markmið að ná fyrri reisn í heimi borðtennissins og hefna föðurmorðs. Alls sáu um 2.500 manns Balls Of Fury um helgina. Athygli vekur að tvær stórmyndir sem frumsýndar voru um helgina ná aðeins fimmta og sjötta sætinu. Fyrst ber að nefna Michael Clayton sem skartar sjálfum George Clooney í að- alhlutverkinu. Hann leikur fyrrver- andi saksóknara sem vinnur skít- verkin hjá stóru lögfræðifyrirtæki. Hann er útbrunninn í starfi en er of bundinn fyrirtækinu til þess að geta hætt. Stórt mál rekur á fjörur hans sem neyðir hann til þess að gera upp við sig hvernig maður hann vill vera. Rétt rúmlega 1.000 manns skelltu sér á þá mynd um helgina, en aðeins tæplega 800 sáu hasarmyndina Rogue Assassin með þeim Jet Li og Jason Statham sem fjallar um alrík- islögreglumanninn Jack Crawford sem leitar leigumorðingjans Rogue í því skyni að hefna morðs á vinnu- félaga. Loks vekur athygli að tvær myndir sem frumsýndar voru um helgina eru ekki á meðal tíu mest sóttu mynd- anna. Þetta eru Elizabeth: The Gol- den Age sem um 440 manns sáu, og This Is England með um 360 gesti. Vinsælustu myndirnar í íslenskum kvikmyndahúsum Æsingsboltar og Íþrótta- hetjan berjast á toppnum        G @*                         ! "#$% & ' ($ )$* +   , - . $ /0$1  2!! 3 "$,$$- 4 %  5 %6 *"+ *"               Flottur Stórleikarinn Christopher Walken í hlutverki sínu í Balls Of Fury. SMÁATRIÐIN eru óaðfinnanleg, en framhaldsmyndin um ensku mey- drottninguna, Elizabeth: The Golden Age, veldur vopnbrigðum í heild. Hún hefst á ofanverðri 15. öld, of- stækistrúarmenn, útsmognir kaupa- héðnar og pólitískir bragðarefir að koma öllu í bál og brand, rétt eins og í dag. Sjóraufarinn Walter Raleigh (Owen), kemur úr Vesturheimi með indíána, kartöflur, tóbak og gull og kemur sér í mjúkinn hjá drottningu sem fellur samtímis í ónáð hjá Spán- arkonungi, sem hefur verið að bíða færis á að kristna heiðnu mótmæla- hundana á Englandi og hernema landið í leiðinni. Mary Stewart drottning af Skot- landi (Morton), situr í dýflissu El- ísabetar frænku sinnar og sam- þykkir á laun að standa með pápiskum öflum og taka við stjórn- artaumum eftir byltingu, en mey- drottningin fær veður af ráðabrugg- inu og um sama leyti snýr Raleigh við henni bakinu og giftist Bess Throckmorton (Abbie Cornish), hægri hönd Elísabetar. Enski sjó- herinn vinnur frækinn sigur á þeim spænska og blómatíð upphefst í Eng- landi en drottningin er sem fyrr hrein sem mjöll. Kapur tókst betur upp fyrir tæp- um áratug þegar hann fjallaði um ungdómsár Elísabetar, að þessu sinni er frásögnin gisin, dramað sundurlaust, hver stórviðburðurinn rekur annan. Það er lítill tími aflögu til að fanga athygli og áhuga áhorf- enda, hver rétturinn tekur við af öðr- um, glæsilega framborinn en nær- ingarlítill. Blanchett er heillandi og fjarlæg sem fyrr í hlutverki Elísabet- ar, sem nýtir ekki færið sem gefst á að losna við meydóminn og eru öll ástarmál myndarinnar ljóður á henni frekar en hitt. Reyndar á drottningin að vera komin á sextugsaldurinn þegar hér er komið sögu, en vanda- laust að horfa fram hjá því. Erfiðara er að sætta sig við Owen sem er eins og sjórekinn Errol Flynn og ósann- færandi í hlutverki ævintýramanns- ins Raleigh. Flaustursleg og yfirborðskennd framvindan er megingalli myndar sem kemst ekki nálægt forvera sín- um. Búningar, leiktjöld, munir og kvikmyndataka eru í góðu meðallagi og Blanchett bregst ekki bogalistin, þó hún sé ekki beinlínis sannfærandi. Meydrottning á miðjum aldri Sæbjörn Valdimarsson KVIKMYNDIR Háskólabíó, Sambíóin Leikstjóri: Shekhar Kapur. Aðalleikarar: Cate Blanchett, Geoffrey Rush, Clive Owen, Rhys Ifans, Samantha Morton. 115 mín. England/Frakkland 2007. Elizabeth: The Golden Age  Gisin „Kapur tókst betur upp fyrir tæpum áratug þegar hann fjallaði um ungdómsár Elísabetar, að þessu sinni er frásögnin gisin, dramað sundurlaust [...].“ - Kauptu bíómiðann á netinu - Miðasala í Smárabíó og Regnbogann Prentaðu sjálf(ur) út bíómiðann - Engar biðraðir Balls of Fury kl. 3:45 - 5:50 - 8 - 10:10 B.i. 7 ára Balls of Fury kl. 3:45 - 5:50 - 8 - 10:10 LÚXUS Dark is Rising kl. 3:45 - 5:50 - 8 B.i. 7 ára Heartbreak Kid kl. 5:30 - 8 - 10:30 B.i. 12 ára Ævintýraeyja Ibba m/ísl. tali kl. 4 - 6 Good Luck Chuck kl. 8 - 10:10 B.i. 14 ára Resident Evil kl. 10:10 B.i. 16 ára Hákarlabeita m/ísl. tali kl. 3:50 Balls of Fury kl. 8 - 10 B.i. 7 ára Dark is Rising kl. 6 - 8 B.i. 7 ára Eastern Promises kl. 10 B.i. 16 ára Heartbreak Kid kl. 6 B.i. 12 ára Sími 564 0000Sími 462 3500 This is England kl. 6 - 8 - 10 Rouge Assassin kl. 5:50 - 8 - 10:10 Superbad kl. 5:30 - 8 - 10:30 B.i. 12 ára Good Luck Chuck kl. 5:40 - 8 - 10:20 B.i. 14 ára * Gildir á allar sýningar merktar með rauðu 450 KRÓNUR Í BÍÓ * Sími 551 9000 Ver ð aðeins 600 kr. Stórkostleg ævintýramynd í anda Eragon. BÚÐU ÞIG UNDIR STRÍÐ HÖRKU HASARMYND MEÐ TVEIMUR HEITUSTU TÖFFUR- UNUM Í DAG SVAKALEG SPENNA FRÁ UPPHAFI TIL ENDA Ve rð a ðeins 600 kr . HVER SAGÐI AÐ RISA- EÐLUR VÆRU ÚTDAUÐAR Með íslensku tali Gríðarstór gamanmynd með litlum kúlum! ATH: EKKERT HLÉ OG MIÐASÖLU LÝKUR ÞEGAR SÝNING MYNDAR HEFST SVONA ER ENGLAND „Þetta er einfaldlega besta kvikmynd síðustu ára. Hrá, mikilvæg og stórskemmtileg!“ - Glamour HANN BEIÐ ALLT SITT LÍF EFTIR ÞEIRRI RÉTTU... VERST AÐ HANN BEIÐ EKKI VIKU LENGUR

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.