Morgunblaðið - 06.11.2007, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 06.11.2007, Blaðsíða 29
börnum og fjölskyldum dýpstu samúð. Blessuð sé minning mætrar konu. Hvíl í friði, kæra Gúkka. Dóra Steinunn Ástvaldsdóttir, Jóhanna Á. Þorvaldsdóttir, Sólveig Helga Jónasdóttir. Okkur langar með nokkrum orðum að kveðja kæran fjölskylduvin, Guð- nýju, eða Gúkku, eins og hún var oft- ast kölluð. Við fjölskyldan á Álfhólsvegi 31 urð- um þeirrar gæfu aðnjótandi að búa í næsta húsi við hana og fjölskyldu hennar í yfir 40 ár. Samgangurinn á milli fjölskyldnanna var alla tíð mikill, ekki síst vegna vinskapar húsmæðr- anna úr Húsmæðraskólanum. Með Gúkku er gengin góð kona sem allir sakna sem hana þekktu. Gúkka var yndisleg manneskja sem hafði notalega nærveru, var traust og hlý og sérlega næm. Hún hafði góðan húmor og átti auðvelt með að sjá spaugilegu hliðarnar í lífinu og smitaði þá dillandi hláturinn svo sannarlega út frá sér. Það var ætíð gott að leita til þeirra hjóna þegar eitthvað kom uppá og það fengum við fjölskyldan svo oft að reyna, stuðningur þeirra var ómetan- legur. Gúkka var alltaf tilbúin að gefa af sér, spjalla og gefa góð ráð. Hún var víðlesin og hafði mikinn áhuga á þjóð- málum og málefnum líðandi stundar. Hún var óspör á að miðla fróðleik sín- um hvort sem var til barna eða fullorð- inna. Þess vegna sóttumst við krakk- arnir m.a. eftir því að fara yfir og þá var nú notalegt að koma í eldhúsið hennar þar sem yfirleitt var kveikt á kerti og okkur alltaf jafnvel tekið. Seinna meir endurtók sagan sig þegar barnabörnin fóru að leggja leið sína yfir. Gúkka og Kúddi voru einstaklega samrýnd hjón og samstiga við að fegra heimili sitt og ekki síður garðinn sinn sem þau lögðu mikla alúð við og fengu viðurkenningu fyrir fegursta garð Kópavogs. Við þökkum af heilum hug fyrir samfylgdina og kveðjum elskulega vinkonu með sömu orðum og hún kvaddi móður okkar í síðasta skipti sem þær hittust, Guð veri með þér. Við vottum Guðmundi, Skeggja, Fríðu og fjölskyldum þeirra okkar dýpstu samúð. Haukur, Alma og Valur.  Fleiri minningargreinar um Guð- nýu Skeggjadóttur bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. mín og Helgi maðurinn hennar komu ofan af Skaganum. Setið var langt fram eftir nóttu við að spila Kana, Gömlu jómfrú, Fimm upp, Tíu o.fl. Það var mikið fjör sem fylgdi þessum kvöldum. Kalla fannst mikilvægt að víkka sjóndeildarhringinn. Hér á ár- um áður þegar hann stundaði sigl- ingar og sjómennsku lá leið hans til ýmissa framandi landa og hafði hann alltaf gaman af því að heyra af slíkum ferðum hjá öðrum. Þær voru ófáar sunnudagsferðirnar sem við fórum með honum og móður okkar og þann- ig kynntumst við landinu og nátt- úrunni. Kalli var barngóður mjög og hafði yndi af því þegar barnabörnin komu, sérstaklega tók hann ástfóstri við systurson minn Axel. Þeir gerðu margt saman og var Axel honum mikils virði. Hann var okkur sem fað- ir og afi þótt hann reyndi aldrei að koma í stað föður okkar sem við misstum allt of fljótt. Það voru blendnar tilfinningarnar þegar Kalli og móðir mín slitu samvistum og við fluttum austur á Höfn. En við héld- um sambandi við hann, hittum hann oft þegar leiðin lá til Reykjavíkur og fannst mér yndislegt þegar hann heimsótti okkur austur, hann var ánægður með hvað gekk vel hjá okk- ur. Í huga barna minna var hann afi þeirra, þau kölluðu hann Kalla afa þegar þau voru yngri. Hann fylgdist vel með þeim í íþróttunum, skólanum og lífinu og talaði um hversu mik- ilvægt það væri að lifa heilbrigðu lífi. Anna systir mín og fjölskylda hennar var honum mikil stoð og stytta á seinni árum og veit ég að hann mat það mikils. Við eigum honum margt að þakka og kveð ég hann með sökn- uði en um leið miklu þakklæti. Hvíl í friði elsku Kalli, minningin lifir. Eyrún Axelsdóttir. MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. NÓVEMBER 2007 29 ✝ SigmannTryggvason, vélstjóri, smiður og sjómaður frá Hrís- ey, fæddist í Syðri- Vík í Árskógshreppi 19. október 1917. Hann lést á Hrafn- istu í Reykjavík 28. október síðastliðinn. Foreldrar hans voru Tryggvi Ágúst Jó- hannsson frá Galm- arsstöðum í Arnar- neshreppi í Eyja- firði og Margrét Gísladóttir frá Ytri-Haga í Ár- skógshreppi. Alsystkini Sigmanns eru: Marta, f. 22. ágúst 1907, d. 13. maí 1981, maki Jóhann Kristinn Þorsteinsson, látinn; Jóhann Gísli, f. 25. janúar 1909, d. 31. maí 1971; Jónas Kristinn, f. 28. ágúst 1911, d. 10. júní 1994, maki Helga Krist- ín Baldvinsdóttir; Sigrún Rakel, f. 1. október 1914, d. 8. apríl 1991, maki Þorsteinn Dagbjartsson, lát- inn; og Árni Baldvin, f. 19. september 1917, maki Kristín Nikulásdóttir. Sam- feðra var Baldvina Anna, f. 31. október 1900, d. 25. maí 1971. Sigmann kvæntist 28. desember 1946 Lilju Sigurðardótt- ur frá Mói í Dalvík. Foreldrar hennar voru Anna Sigurð- ardóttir og Sigurð- ur Guðjónsson. Sig- mann og Lilja eignuðust fimm börn, þau eru: Sig- urður Draupnir, f. 10. maí 1947, maki Magnea Henný Pétursdóttir; Hanna Kristín, f. 27. ágúst 1948, maki Jakob Þorsteinsson; Sigur- jóna Margrét, f. 3. júlí 1951, maki Guðmundur Skarphéðinsson; Tryggvi J., f. 18. ágúst 1953; og Gísli Viðar, f. 6. júlí 1966. Barna- börn Sigmanns og Lilju eru 11 og barnabarnabörnin eru 20. Útför Sigmanns verður gerð frá Hríseyjarkirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 14. Traustur, heiðarlegur, ljúfur og barngóður er það sem mér kemur fyrst til hugar þegar ég minnist ástkærs tengdaföður míns Sig- manns Tryggvasonar frá Hrísey, sem jarðsunginn verður frá Hrís- eyjarkirkju í dag. Manni Tryggva (eins og hann var ávallt kallaður) kemur fyrst upp í minningu mína frá uppvaxtarárum mínum á Siglu- firði þegar þeir bræður Manni og Gísli komu þangað til löndunar eftir róðra er lengra þurfti að sækja frá eyjunni. En það er ekki fyrr en árið 1971 sem ég sem ungur maður hafði fyrstu kynni mín af Manna, en þá var ég farinn að gera hosur mínar grænar fyrir dóttur hans Margréti sem nú hefur verið eig- inkona mín í yfir 35 ár. Það var með hálfgerðum kvíða sem ég lagði leið mína út í Hrísey haustið 197l til að kynna mig fyrir væntanlegum tengdaforeldrum, Lilju og Sigmanni, en sá kvíði reyndist óþarfur. Mér var ákaflega vel tekið, og þegar til kom spillti það ekki fyrir mér að vera Siglfirð- ingur en þangað höfðu væntanlegir tengdaforeldrar mínir sterkar taugar, þar höfðu þau hafið sinn búskap og stofnað sitt fyrsta heim- ili, og áttu þar sína vini og skyld- menni. Á þessum tíma starfaði ég hjá KEA á Akureyri, ég hugðist breyta um starf og flytja suður á land, en hlutir æxluðust svo að ég var beðinn um að starfa tímabundið við útibú KEA í Hrísey þegar yf- irmenn mínir vissu um tengsl mín við eyjuna. Í Hrísey stofnuðum við Margrét okkar heimili og ílengd- umst við þar í hartnær sex ár. Á þessum árum í Hrísey voru kynni mín við tengdaforeldra mína mikil og náin, og aldrei man ég eftir því að þar hafi borið skugga á frekar en hingað til. Þegar ég rita þessi minningarorð um tengdaföður minn koma upp í hugann orðtök sem Manna var tamt að segja við mig allt frá okkar fyrstu kynnum til hinstu stundar; „farðu vel með hana,“ en honum var alla tíð mjög umhugað um börnin sín, og síðan kom „skulda ég þér nokkuð“ en alla tíð var það of- arlega að standa alls staðar í skil- um og hafa hreint borð. Ég veit það og skynjaði að það var erfitt fyrir Manna að yfirgefa eyjuna sína fyrir nokkrum árum þegar hann fór að eldast og vinnu- þrekið var senn búið, en hann naut þess til hins síðasta að dvelja í Hrísey nokkrar vikur á hverju sumri eins og hann gerði undanfar- in ár. Ég ætla að lokum að þakka tengdaföður mínum fyrir samfylgd- ina og öll elskulegheitin við mig, börnin mín og fjölskyldur þeirra, það var aðdáunarvert að sjá hversu yngstu börnin hændust að honum og hversu vel hann náði til þeirra allt til hans síðustu daga. Nú er Manni Tryggva kominn í heima- höfn eftir langa og gæfuríka ævi, örugglega sáttur við sitt lífsskeið sem hann og hans afkomendur mega vera stoltir af. Ég veit að hann bíður okkar hinna á bryggju- sporðinum í nýjum heimkynnum þegar okkar leið liggur þangað, eins og hann oft gerði í Hrísey. Hann segir þá ef til vill við mig: „Fórstu vel með hana?“ Að lokum vil ég votta Lilju, börn- unum, bróður og öðrum aðstand- endum mína dýpstu samúð, en ég veit að minningin um vel gerðan mann styrkir ykkur öll. Hvíl í friði, Manni minn. Guðmundur Skarphéðinsson. Elsku besti afi minn. Nú er kom- ið að kveðjustund. Á stundum sem þessari lítur maður til baka og fyll- ist þakklæti yfir að hafa fengið að eiga þig að. Þú varst svo sterkur, svo klár og svo skemmtilegur. Ég er mjög stolt af þér og þú kenndir mér svo margt sem ég bý að alla ævi. Þegar ég var unglingur naut ég þeirra forréttinda að fá að búa hjá þér og ömmu í Hrísey á sumrin. Þangað var alltaf gott að koma og á unglingsárunum var sérstaklega gott að fá að leita ráða hjá þér og má segja að þú hafir gengið mér í föðurstað því það var enginn pabbi á mínu heimili sem ég gat leitað til en alltaf var hægt að treysta á þig, jafnvel þó að þú værir úti á sjó á trillunni þinni þá var hægt að tala við þig í gegnum talstöðina. Dag- arnir sem ég átti í Hrísey, eyjunni þinni, voru margir og góðir og þar bjó ég mitt fyrsta heimili ásamt Inga og strákunum. Ég gleymi aldrei þegar ég skírði frumburðinn minn, Sigmann, í höfuðið á þér, hversu glaður þú varst – loksins kominn fyrsti nafninn. Lengi voruð þið bara tveir sem báruð þetta fal- lega nafn en síðan skírði Auður frænka yngri son sinn Sigmann sem nú býr í Bandaríkjunum. Það væri hægt að segja margar góðar sögur af þér og okkar sam- skiptum en ég ætla að geyma þær sögur hjá mér. Ég á fullt af skemmtilegum minningum um þig og þá sérstaklega frá Hrísey, fyrst sem barn, síðan sem unglingur þeg- ar ég bjó hjá ykkur ömmu og svo þegar ég stofnaði mitt fyrsta heim- ili þar og þá var nú alltaf gott að eiga ykkur ömmu að í göngufæri. Samverustundum okkar fækkaði þegar ég leitaði nýrra ævintýra í Reykjavík en alltaf var maður jafn velkominn til ykkar ömmu hvort sem það var í Hveragerði þar sem þið bjugguð í nokkur ár eða á Hrafnistu þar sem þú eyddir síð- ustu árum þínum. Elsku afi, ég þakka þér fyrir öll árin sem við átt- um saman og megir þú njóta hvíld- ar og unaðar í nýjum heimkynnum. Lilja Sigurðardóttir og fjölskylda. Sigmann Tryggvason  Fleiri minningargreinar um Sig- mann Tryggvason bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. ✝ Faðir minn, tengdafaðir, afi og langafi, ÓLAFUR J. EINARSSON, áður Hofslundi 19, Garðabæ, sem andaðist á Hjúkrunarheimilinu Holtsbúð, Garðabæ, föstudaginn 2. nóvember, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju mánudaginn 12. nóvember klukkan 13.00. Sjöfn Ólafsdóttir, Eyjólfur Sigurðsson, Inga Jóna Andrésdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Elskuleg systir okkar, JÓNA AUÐUR EVANS, Lakewood, Kaliforníu, Bandaríkjunum, frá Súðavík, lést þann 28. október. Bálför fór fram í Lakewood, CA, 3. nóvember sl. Fyrir hönd aðstandenda, Aðalsteinn Haraldsson, Guðmundur Haraldsson, Marinó Haraldsson, Óli Reynir Ingason. ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang- amma, HALLA JÓNSDÓTTIR, Dvalarheimilinu Höfða, Akranesi, andaðist á Sjúkrahúsi Akraness laugardaginn 3. nóvember. Jarðarförin fer fram frá Akraneskirkju föstudaginn 9. nóvember. Hanna Jónsdóttir, Ingólfur Hrólfsson, Alda Jónsdóttir, Eyþór Guðmundsson, Axel Jónsson, Margrét Gísladóttir, Áki Jónsson, Bryndís Tryggvadóttir, Jóhann Jónsson, Sigríður Jónsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma, INGIBJÖRG KARLSDÓTTIR, Dalbraut 16, Reykjavík, lést laugardaginn 3. nóvember. Karl Jensson, Halldóra Hannesdóttir, Kristín Jensdóttir, Ingibjörg Karlsdóttir. ✝ Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, fósturmóðir, tengdamóðir, amma, langamma og langalang- amma, MARGRÉT BERGSDÓTTIR, Hvanneyrarbraut 32 A, Siglufirði, lést á Heilbrigðisstofnun Siglufjarðar föstudaginn 2. nóvember. Útförin auglýst síðar. Júlíus Þórarinsson, Hreinn Júlíusson, Sigurlína Káradóttir, Sigríður Þórdís Júlíusdóttir, Ingi B. Vigfússon, Hrefna Eyjólfsdóttir, börn, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, KARL JÓHANN GUNNARSSON, Fannborg 8, Kópavogi, sem lést á Landspítalanum laugardaginn 3. nóvember, verður jarðsunginn frá Digraneskirkju föstudaginn 9. nóvember kl. 11.00. Þórður Karlsson, Þórsteina Pálsdóttir, Jón Ólafur Karlsson, Elísabet Sigurðardóttir, Gunnar Már Karlsson, Matthildur Jónsdóttir, Ása Kristbjörg Karlsdóttir, Þröstur Einarsson, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.