Morgunblaðið - 06.11.2007, Síða 15

Morgunblaðið - 06.11.2007, Síða 15
Eftir Bergþóru Jónsdóttur begga@mbl.is „VÖLUSPÁ speglar heim á heljar- þröm. Það er talið að Völuspá sé rit- uð um 900, ef til vill af seiðkonu. Spá- dómur völvunnar er nánast lýsing á ástandi heimsins í dag. Við opnum varla svo sjónvarp og blöð að við heyrum ekki af hættunum sem steðja að okkur. Þetta er í rauninni svar náttúrunnar við því hvernig við komum fram við móður jörð. Við vit- um að skilaboðin eru mikilvæg,“ seg- ir Sverrir Guðjónsson söngvari en á síðustu misserum hefur hann unnið að undirbúningi verkefnis sem hann kallar Edda the Prophecy eða Edda- Völuspá, en verkið verður frumflutt á Nordwind-listahátíðinni í Berlín 15. nóvember. Þetta er músíkdrama og unnið í samvinnu við sænska listamenn. Hann er með þeim frumlegri „Tónskáld verksins er Sten Sand- ell. hann er mikill píanisti með bak- grunn í klassík, en hefur þróast yfir í spunamúsík og elektróník og hefur unnið talsvert fyrir leikhúsin og með öðru tónlistarfólki. Hann er með þeim frumlegri sem ég hef komist í tæri við og ótrúlega flinkur. Öll hans hljóð eru náttúruleg hljóð, búin til með röddum, hljóðfærum eða sótt í náttúruna. Við notum til dæmis harmóníum, gamalt stofuorgel í tveimur köflum verksins og það tengist Yggdrasli, lífsins tré.“ Sverrir segir að fyrst og fremst sé unnið með Völuspártextann sem músík, þó ekki þannig að sönglög séu búin til við kvæðið. „Stina Ekblad, leikkona ársins 2006 í Svíþjóð, túlkar textann, en hann tengist tónlistinni náið. Sten er mjög fjölhæfur radd- meistari og notar alls kyns yfir- tónaraðir með söngnum.“ Íslenskir leikhúsgestir muna ef til vill eftir tónlist Sten Sandell sem hann gerði við uppfærslu Leikfélags Reykjavíkur á Beðið eftir Godot fyr- ir nokkrum árum. Í kjölfarið hélt hann tvenna tónleika hér á landi og það var þá sem Sverrir kynntist hon- um og hreifst af hæfileikum hans og vinnubrögðum. Hálfu ári seinna hafði Sandell samband við Sverri, hafði þá fengið styrk til menningar- samstarfs á Íslandi. Úr varð að Völu- spá, frumgerð þessa verkefnis, var samin fyrir útvarpsleikhús og flutt í Ríkisútvarpi beggja landanna á sama degi 2. mars 2007. „En svo er það miklu meira mál að koma verkinu í sviðsgerð. Til þess að myndgera verkið langaði mig að fá Ragnar Axelsson ljósmyndara í lið með okkur, en taldi það óraunhæft þar sem hann er alltaf á ferð og flugi. En svo var ég í sambandi við hann vegna annars og nefndi hvort hann ætti ekki myndir af sköpun lands séð ofan frá, því ég vildi varpa mynd- unum niður á sviðsgólf þannig að það væri eins og séð með auga arnarins: „Flýgur örn yfir, sá er á fjalli fiska veiðir …“. Hann átti myndir sem pössuðu fullkomlega inn í verkið. El- ín Edda Árnadóttir sér svo um hönn- un leikmyndar og búninga.“ Æfingar hafa staðið yfir í Svíþjóð að undanförnu en í næstu viku sam- einast hópurinn í berlín. „Þrátt fyrir að hinn dimmi dreki svífi enn yfir vötnum í lok Völuspár, með líkin í fjöðrunum, þá er það vonin í verkinu sem við viljum færa kynslóð framtíð- arinnar ef við þorum að takast á við heim á heljarþröm,“ segir Sverrir. Edda the Prophecy, verk byggt á Völuspá, verður frumsýnt á listahátíð í Berlín Seiður völvunnar Kontratenór Sverrir Guðjónsson. Gríman Andlit fortíðarinnar, völvan, spáir í framtíðina; spáir ragnarökum, en gefur um leið fyrirheit um nýtt upphaf. MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. NÓVEMBER 2007 15 MENNING KVIKMYNDASAFN Íslands sýnir í kvöld kvikmyndina Slöngueggið (The Serpents egg) eftir Ingmar Bergman, frá árinu 1977. Þar segir frá einni viku í lífi Abels Rosen- berg sem er atvinnulaus og drykkfelldur loftfim- leikamaður. Bróðir hans fyr- irfer sér og uppgötvar Abel síðar hvað fékk bróður hans til að svipta sig lífi. Í aðal- hlutverkum eru David Carradine, Liv Ullmann og Heinz Bennent. Sýningar í safninu eru á þriðju- dögum kl. 20 og á laugardögum kl. 16 í Bæjarbíói, Strandgötu 6, Hafnarfirði. Miðaverð er 500 kr. Kvikmyndir Slönguegg Berg- mans í Bæjarbíói Liv Ullmann og David Carradine. NÝJA biblíuþýðingin verður tekin fyrir í pallborðs- umræðum í Neskirkju í dag kl. 12. Í pallborði verða Auður Ólafsdóttir listfræðingur, guð- fræðingarnir Arnfríður Guð- mundsdóttir og Sigurður Páls- son og málfræðingarnir Jón G. Friðjónsson og Jón Axel Harð- arson. JPV útgáfa gaf út Biblíuna í nýrri þýðingu fyrir skömmu og hafa menn ekki verið á einu máli um ágæti þýðingarinnar. Unnið var að þýðingunni í rúman hálfan annan áratug, en þetta er fyrsta heildarþýðing Biblíunnar frá árinu 1912. Bókmenntir Rætt um nýju biblíuþýðinguna Neskirkja TÓNLEIKAR til styrktar fá- tækum og munaðarlausum börnum á Indlandi verða haldnir í Salnum í Kópavogi annað kvöld kl. 20. Það er fé- lagið Vinir Indlands sem stend- ur fyrir þeim og mun Schola Cantorum og fleiri landskunnir listamenn leggja þessum góða málstað lið. Má þar nefna Auði Gunn- arsdóttur söngkonu og Jónas Ingimundarson píanóleikara, Ragnhildi Gísladótt- ur söngkonu og Gunnar Kvaran sellóleikara m.a. Söfnunarféð rennur óskipt til verkefna í Tamil Nadu-héraði í Indlandi. Tónleikar Fátæk og munaðar- laus börn styrkt Ragnhildur Gísla- dóttir söngkona. Í VOR kom út í Noregi úrval ljóða Jóhanns Hjálmarssonar í þýðingu Knuts Ödegård og með inngangi eftir hann. Úrvalið, sem nefnist Storm er et vakkert ord og er gefið út hjá Solum-forlaginu, hefur fengið góð- ar viðtökur í Noregi og lofsamlega dóma. Í ABC Nyheter skrifar Eystein Halle og líkir Jóhanni við nokkur helstu skáld Norðurlanda: Henrik Nordbrandt, Jan Erik Vold, Werner Aspenström og Rolf Jacobsen. Hann segir að Jóhann sé eitt af mestu samtíðarskáldum Íslendinga. Hann sé fulltrúi módernisma eins og hann var í upphafi og segist vera því þakklátur því að nóg sé af mál- og formtilraunum í samtímaskáld- skap. Hann nefnir dæmi um hvern- ig samband skáldskapar og veru- leika sé yrkisefni sem oft einkenni ljóð Jóhanns. Spurt sé oft um ljóð- málið gagnvart umheiminum. Í sumum ljóða sinna noti Jóhann munnlega frásögn til að byggja upp litlar absúrd sögur. Eystein Halle skrifar að líkt og aðrir miklir módernistar sé Jóhann trúr hefðinni og ljóðin einkennist af góðum tilvísunum í Dante, Lorca, Borges, Rilke „og ekki síst í okkar eigin Rolf Jacobsen“. Halle segir að Ödegård kalli inn- gang sinn Sögu og súrrealisma, en ekki sé sérstaklega mikið um súr- realisma í ljóðum Jóhanns, textarn- ir séu dæmigert norrænir vegna þess hve málið sé einfalt og fágað og yrkisefna sem dragi dám af nátt- úru og kunnáttu í sögu og sögu- legum efnum. Í Aftenposten segir Mariann Enge að í bókinni sé að finna mód- ernísk ljóð sem snúist um náttúr- una, dauðann, ástina og einangr- unina og með góðum vísunum í norrænan skáldskap. Storm er et vakkert ord kemur út í bókaflokknum Poema hjá Sol- um-forlagi en í honum er lögð áhersla á að kynna mörg helstu samtímaskáld frá ýmsum löndum. Meðal þeirra sem eiga verk í þessum flokki er Seamus Heaney. Lofsamlegir dómar um Jóhann Eitt mesta samtíma- skáld Íslendinga Jóhann Hjálmarsson Hann er röskur meðalmaðurá hæð og gildur að samaskapi, svarar sér vel og rekinn saman um herðarnar, sem eru dálítið lotnar og kúptar. Háls- inn er tiltakanlega stuttur en mjög gildur og er til að sjá eins og höf- uðið standi fram úr bringunni er hann gengur lotinn. Hann er mjög hárprúður, hárið mikið og fagurt, dökkt á lit og brúnt alskegg, sem tekur niður að bringu. Hann er til- takanlega vel eygður, móeygður og fremur stóreygður; augnaráðið stillt, blíðlegt og eins og biðjandi og ógleymanlega fagurt. Þetta er ekki mynd af Birgi Andr- éssyni, heldur mynd eftir hann sem hann færði mér eitt sinn að gjöf sem vott um vináttu okkar. Nú, þegar hann er allur og ég horfi á þessa mynd sé ég hann engu að síður ljós- lifandi fyrir mér. Letrið er gulur Ariel-fontur og þekur efri þriðjung myndflatarins en grunnurinn er mórauður. Myndir sýnir okkur fjar- veru þessarar persónu sem er ein- hvers staðar í bakgrunni verksins eins og þessi mórauði myndflötur sem gerir gult letrið ágengt og ögr- andi. Þetta verk er eins og öll mynd- list Birgis áminning og áskorun til okkar um stöðuga endurskoðun á hinu flókna sambandi sem ávallt ríkir á milli myndar og hlutar, orðs og myndar, hugsunar og veruleika. Hluturinn sem slíkur öðlast enga tilvist í huga okkar nema við gerum okkur mynd af honum. Án mynd- arinnar í huganum höfum við enga hugmynd um hlutina eða veru- leikann. Með því að gera okkur mynd af hlutnum köllum við hann fram fyrir sjónir okkar í líkingu hans. Í myndinni fær hluturinn að líkjast sjálfum sér, eitthvað sem hann getur ekki gert án myndar. Um leið og myndin verður til, þann- ig að hluturinn fær að líkjast sjálf- um sér, hverfur hann í bakgrunninn og staðfestir fjarvist sína. Að líkjast sjálfum sér er að vera annar en maður sjálfur, nefnilega mynd. Maðurinn hverfur alltaf á bak við mynd sína. Þetta brotthvarf er táknrænn dauði viðfangsins sem öðlast nýtt og eilíft líf í mynd sinni. Mynd Birgis Andréssonar sem ég hef fyrir augum mér sýnir persónu. Orðið persóna er grískt að uppruna og merkir gríma. Það er eðli grím- unnar að sýna það sem hún felur. Augnaráð persónunnar í myndinni, sem er „stillt, blíðlegt og eins og biðjandi og ógleymanlega fagurt“, er löngu slokknað. Þessi persóna horfir ekki á mig. Það er ég sem horfi með myndinni, með því að hverfa inn í hana, með því að hverfa inn í rýmið sem er á milli bak- grunnsins og letursins, milli andlits- ins og grímunnar sem það ber og er mynd persónunnar. Til þess að myndin snerti okkur nægir ekki að horfa á hana. Við þurfum að fara inn í hana og læra að horfa með henni til þess að skynja rýmið á milli myndarinnar og hlutarins, milli orðsins og myndarinnar, á milli hugsunar okkar og veru- leikans. Nú er Birgir allur. Hann er horf- inn inn í mórauðan bakgrunn mynd- arinnar. En með því að hverfa inn í myndina, inn í rýmið á milli leturs- ins og bakgrunnsins, getum við enn fundið til návistar hans. Það er hlý návist og örlát og við þökkum hon- um fyrir gjafir hans. Að líkjast sjálfum sér Morgunblaðið/Einar Falur Góðar gjafir Birgir Andrésson var hæfileikaríkur myndlistarmaður. AF LISTUM Ólafur Gíslason »Hann er horfinn inn ímórauðan bakgrunn myndarinnar.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.