Morgunblaðið - 06.11.2007, Síða 18
|þriðjudagur|6. 11. 2007| mbl.is
daglegtlíf
Strætó getur tekið 24 fullorðna eða 30 börn. 25 börn eru ístrætónum fyrir. Hver er mesti fjöldi fullorðinna semkemst í strætóinn til viðbótar?Þetta er ein af þeim fjölmörgu þrautum í svokallaðri
Ólympíustærðfræði sem 10 til 13 ára grunnskólanemar kjósa af
fúsum og frjálsum vilja að sitja yfir í frítíma sínum og það af tóm-
um áhuga. Ástæður eru misjafnar fyrir veru krakkanna í tímum
þessum, en á meðan sum skrá sig í þetta tómstundagaman til að
styrkja sig í stærðfræðinni mæta önnur til leiks af einskærum
áhuga á faginu enda segjast þau ekki fá nóg af stærðfræði í hefð-
bundnum stærðfræðitímum grunnskólanna.
Þrautir í formi keppna
Það er Háskólinn í Reykjavík sem býður upp á námskeið í
Ólympíustærðfræði sem hluta af átakinu „Stærðfræði er
skemmtileg“ fyrir grunnskólabörn í 5.-8. bekk. Ólympíustærð-
fræði eru þrautir, sem settar eru fram í formi keppna. Þær reyna
á hugmyndaflug og rökhugsun, en eru í senn hugsaðar sem
skemmtileg og krefjandi viðfangsefni fyrir þá, sem hafa gaman af
að glíma við þrautir og reikning,“ að sögn Chien Tai Shill, verk-
efnisstjóra hjá HR.
„Við byrjuðum með þetta verkefni sem tilraun í Hlíðaskóla í
hitteðfyrra. Það gafst svo vel að við buðum upp á námskeið í
Ólympíustærðfræði í fimmtán grunnskólum í fyrra og í tuttugu
skólum nú í vetur. Fjögur hundruð nemendur tóku þátt í fyrra og
ætla má að nemendur verði fjölmennari í ár.“
Hvert námskeið stendur yfir í tuttugu vikur og stendur áhuga-
sömum nemendum, sem ekki eru nemendur í þátttökuskólum, að
sækja námskeið í HR á laugardögum. Námskeiðið í skólunum fer
fram utan hefðbundins skólatíma, einu sinni í viku, klukkutíma í
senn. Það skiptist í æfingar og mánaðarlegar keppnir, en það var
Bandaríkjamaðurinn dr. George Lenchner sem stofnaði til
stærðfræðikeppna með þessu sniði árið 1977. Verðlaun eru svo
veitt í lokahófi í HR og fá einstaklingar og lið stig eftir frammi-
stöðu í keppnum.
Færni í þrautalausnum
Markmiðið er það fyrst og fremst að örva stærðfræðiáhuga
krakkanna með því að nota þá stærðfræði, sem þau hafa lært í
skólanum, til að leysa þrautir. Með því að glíma reglulega við
þrautir byggja þau upp færni í þrautalausnum. Við það styrkist
hæfileikinn til að hugsa rökrétt, draga ályktanir og vera úrræða-
góður og þrautseigur.
Leiðbeinendur á námskeiðunum eru nemendur í meistaranámi
í stærðfræði og kennslufræði við Kennslufræði- og lýðheilsudeild
HR. Hlutverk leiðbeinenda er fyrst og fremst að halda utan um
hópavinnuna, styðja nemendur í því að deila hugmyndum á upp-
byggilegan hátt og gefa vísbendingar séu nemendur komnir í
þrot með hugmyndir.
„Þetta eru allt flottir krakkar, sem sjá tilgang í því að læra og
þroska sig. Það þarf sko ekkert að virkja hjá þeim áhugann, því
hann er svo sannarlega til staðar. Krakkarnir koma hingað af fús-
um og frjálsum vilja og þess vegna er svo skemmtilegt að vinna
með þeim,“ segir leiðbeinandinn og prentsmiðurinn Sölvi Ólafs-
son, sem sjálfur leggur stund á meistaranám í stærðfræði við HR.
Sölvi heldur utan um 25 manna hóp ungra stærðfræðinga við Ár-
bæjar- og Selásskóla. „Þar af eru bara sex strákar, sem kemur
kannski svolítið á óvart. Það hefur þó sýnt sig að stelpur eru oft
mun flinkari við að fást við orðadæmi en strákarnir.“
Leiðbeinandinn „Stelpur virðast vera mun flinkari við að fást
við orðadæmi en strákar."
Morgunblaðið/Kristinn
Ólympíustærðfræði Þrautirnar reyna á hugmyndaflug og rökhugsun og eru í senn bæði krefjandi og skemmtileg viðfangsefni, segir Sölvi Ólafsson, meistaranemi í stærðfræði við HR.
Sum grunnskólabörn kjósa að kúra sig
yfir stærðfræðidæmi á meðan jafnaldr-
arnir verja frítímanum í tuðruspark eða
tónlistariðkun. Jóhanna Ingvarsdóttir
sótti tíma í valfrjálsri Ólympíustærð-
fræði þar sem miserfiðar þrautir voru
leystar á örskotsstundu undir hand-
leiðslu Sölva Ólafssonar, mastersnema í
stærðfræði við Háskólann í Reykjavík.
Stærðfræði er skemmtileg
„Þetta er bæði gaman og
krefjandi og mjög gott er að
fá smá aukaæfingu í faginu.
Mér finnst stærðfræði yfir
höfuð mjög skemmtileg og ég
er eingöngu hér vegna þess
að mig langar bara í meiri
stærðfræði en mér býðst í
skólanum enda er þetta al-
gjörlega valfrjálst. Hefð-
bundna stærðfræðin í skól-
anum finnst mér vera pínu
endurtekning svo hún stimpl-
ist inn, en þrautarformið ger-
ir þessa stærðfræði einkar
skemmtilega því það reynir á
rökhugsunina,“ segir Bjarki
Sigurðsson, 13 ára nemandi í
8. bekk RH í Árbæjarskóla.
Fyrir utan það að vera mik-
ill námshestur spilar Bjarki
vörn með 4. flokki Fylkis og
dreymir um að komast
kannski einhvern tímann í at-
vinnumennsku í boltanum. En
núna er metnaðurinn mikill í
námi því Bjarki áformar að
ljúka unglingadeildinni á
tveimur árum í stað þriggja.
„Ég er að klára 8. bekkinn
fyrir jól og tek svo 9. bekkinn
eftir jól svo að það er ansi
mikið álag á mér þessa dag-
ana. Það þarf bara að skipu-
leggja sig vel og þá gengur allt
upp.“
Snýst um að leysa þrautir
„Við vinkonurnar ákváðum
að drífa okkur í Ólympíu-
stærðfræðina til þess að
styrkja okkur í faginu því við
viljum vera góðar í öllu því,
sem við tökum okkur fyrir
hendur,“ segir Sylvía Jóhanns-
dóttir, 12 ára nemandi í 7.
bekk PÞ í Selásskóla. „Okkur
finnast hefðbundnu stærð-
fræðitímarnir í skólanum
stundum svolítið erfiðir, en
þessi stærðfræði hér snýst
meira um að leysa þrautir sem
er miklu skemmtilegra og
hjálpar mér við að skilja
stærðfræðina betur.“
Sylvía segist eiga sér fullt af
öðrum áhugamálum því hún
æfi bæði fótbolta og handbolta
hjá Fylki auk þess sem hún sé
að læra söng- og leiklist hjá
Sönglist í Borgarleikhúsinu.
„Nú erum við að æfa fyrir jóla-
sýningu. Ég er svo sem ekkert
búin að ákveða hvað mig lang-
ar að verða þegar ég verð full-
orðin, en ég held að það gæti
verið voða gaman að vinna
sem leikkona,“ segir Sylvía.
Reynir á rökhugsunina
Sylvía Jóhannsdóttir „Þessi stærðfræði snýst um að leysa
þrautir sem er skemmtilegt og hjálpar mér í faginu."
Bjarki Sigurðsson „Mig langar bara í meiri stærðfræði en
mér býðst í skólanum enda er þetta algjörlega valfrjálst."
Með reglulegri þrautaglímu styrkist hæfi-
leikinn til að hugsa rökrétt, draga ályktanir
og vera úrræðagóður og þrautseigur.