Morgunblaðið - 06.11.2007, Qupperneq 33

Morgunblaðið - 06.11.2007, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. NÓVEMBER 2007 33 árnað heilla ritstjorn@mbl.is Félagsstarf Aflagrandi 40 | Vinnustofa opin kl. 9-16.30, jóga kl. 9, postulínsmálning og útskurður kl. 13-16.30. Árskógar 4 | Bað kl. 9.30, handav. kl. 8-16, smíði/útskurður kl. 9-16.30, leikfimi kl. 9, boccia kl. 9.45. Bólstaðarhlíð 43 | Hárgreiðsla, böðun, vefnaður, alm. handavinna, morgunkaffi/dagblöð, fótaað- gerð, hádegisverður, línudans, kaffi. Haustfagn- aður verður haldinn 12. nóv. Fagnað verður 20 ára starfsafmæli með veislukaffi kl. 14.30, skemmtiatriði og happdrætti. Verð 1.000 kr. Skráning á skrifst. s.535-2760. Félag eldri borgara, Reykjavík | Skák kl. 13, framsögn kl. 17, félagsvist kl. 20. Félagsheimilið Gjábakki | Leikfimi kl. 9.05 og 9.55, gler- og postulínsmálun kl. 9.30, handa- vinna kl. 10, leiðbeinandi við til kl. 17. Jóga kl. 10.50, róleg leikfimi kl. 13, tréskurður kl. 13, al- kort kl. 13.30, síðdegisvaka FEBK kl. 14, stóla- jóga kl. 17 og jóga á dýnum kl. 17.50. Félagsheimilið Gullsmára 13 | Vefnaður kl. 9, jóga kl. 9.15, myndlistahópur kl. 9.30, ganga kl. 10, leikfimi kl. 11, hádegisverður kl. 11.40, búta- saumur kl. 13, jóga kl. 18.15 Félagsstarf eldri borgara, Garðabæ | Les- hringur í bókasafni kl. 10, línudans kl. 12, karla- leikfimi kl. 13, Boccia kl. 14, trésmíði kl. 13.30, kyrrðarstund í kirkjunni kl. 12, súpa kl. 12.30 og spilað þar kl. 13, vatnsleikfimi kl. 14. Hraunbær 105 | Handavinna, glerskurður, hjúkr- unarfræðingur kl. 9, boccia kl. 10, leikfimi kl. 11, hádegismatur kl. 12, bónusbíllinn kl. 12.15, kaffi kl 15. Hraunsel | Moggi, rabb og kaffi kl. 9, mynd- mennt kl. 10 og 13, leikfimi kl. 11.30, glerskurður kl. 13, brids kl. 9. Hvassaleiti 56-58 | Bútasaumur kl. 9-13 hjá Sigrúnu. Jóga kl. 9, Björg F. Námskeið í myndlist kl. 13.30 hjá Ágústu. Helgistund kl. 14, séra Ólaf- ur Jóhannsson, söngstund á eftir. Böðun fyrir hádegi. Hádegisverður kl. 11.30. Hæðargarður 31 | Nýtt framsagnarnámskeið byrjar 7. nóv. kl. 9, í listasmiðjunni. Skapandi skrif, Müllersæfingar, Thai Chi, tölvuleiðbeiningar, jólapakkaskreytingar byrja 13. nóv. kl. 16. Jónína spil. Bænastund í umsjá sóknarprests kl. 12. Léttur hádegisverður eftir bænastundina. Breiðholtskirkja | Bænaguðsþjónusta kl. 17.30. Digraneskirkja | Leikfimi ÍAK kl. 11, kirkjustarf aldraðra kl. 11.45, léttur málsverður. Helgistund, sr. Íris Kristjánsdóttir, samvera og kaffi. KFUM&K fyrir 10-12 ára kl. 17. Æskulýðsstarf Meme fyrir 9.-10. bekk kl. 19.30-21.30. Fella- og Hólakirkja | Kyrrðarstund kl. 12. Orgel- leikur, íhugun og bæn, Ragnhildur Ásgeirsdóttir djákni og Guðný Einarsdóttir organisti. Súpa og brauð. Kirkjustarf eldri borgara kl. 13-16. Guð- mundur Hallvarðsson form. sjómannadagsráðs og stjórnarformaður Hrafnistu kemur í heim- sókn. Kaffiveitingar. Fríkirkjan Kefas | Almenn bænastund kl. 20.30. Hægt er að senda inn bænarefni á kefas@kefas- .is Grafarvogskirkja | Opið hús fyrir eldri borgara kl. 13.30-16. Helgistund, handavinna, spilað og spjallað, kaffiveitingar. TTT fyrir 10-12 ára kl. 16- 17 í Engjaskóla. TTT fyrir 10-12 ára kl. 17-18 í Borgaskóla. Hallgrímskirkja | Fyrirbænaguðsþjónusta kl. 10.30. Beðið fyrir sjúkum. Starf fyrir eldri borg- ara kl. 11 - 14, leikfimi, súpa, kaffi og spjall. Pré- dikunarklúbbur presta kl. 9.15-11, í umsjá sr. Sig- urjóns Árna Eyjólfssonar héraðsprests. Hjallakirkja | Bæna- og kyrrðarstund kl. 18. KFUM og KFUK | Fundur í AD KFUK kl. 20. „Að hafa áhrif á eigin líðan.“ Dóra Guðrún Guð- mundsdóttir sálfræðingur fjallar um efnið. Kaffi. Allar konur velkomnar. Laugarneskirkja | Kvöldsöngur kl. 20, Þorvaldur Halldórsson leiðir sönginn og sóknarprestur flyt- ur Guðsorð og bæn. Kl. 20.30 ganga 12 spora- hópar til verka um leið og trúfræðsla sr. Bjarna hefst: „Hvernig les ég Biblíuna?“ Öllum er frjáls þátttaka. Vídalínskirkja, Garðasókn | Opið hús hefst með kyrrðarstund kl. 12. Súpa og brauð, 400 kr. kl. 12.30. Opið fyrir alla. Spilað kl. 13-16, vist, brids o.fl. Púttgræjur á staðnum. Kaffi kl. 14.45. Akst- ur fyrir þá sem vilja, uppl. 895-0169. Ytri-Njarðvíkurkirkja | Foreldramorgunn kl. 10.30. Umsjón hefur Þorbjörg Kristín Þorgríms- dóttir. Leósdóttir rithöfundur les upp úr nýrri bók sinni á föstudag kl. 14. S. 568-3132. Íþróttafélagið Glóð | Hringdansar í Kópavogs- skóla kl. 14.20-15.20. Uppl. í síma 564-1490 og 554-5330. Korpúlfar, Grafarvogi | Á morgun er bingó á Korpúlfsstöðum kl. 13.30. Kvenfélag Garðabæjar | Félagsfundur kl. 20 í Garðaholti. Leynigestir koma í heimsókn. Kaffi- nefnd: Hverfi 12, 15 og 17 sem mæta kl. 19. Stjórnin. www.kvengb.is Kvenfélag Langholtssóknar | Fundur kl. 20 í safnaðarheimili kirkjunnar. Helga Guðmunds- dóttir kirkjuvörður segir frá ferð sinni til Banda- ríkjanna þar sem hún kynnti sér starf kven- félaga. Langahlíð 3, félagsmiðstöð | Morgunkaffi vísna- klúbbur kl. 9, boccia, kvennaklúbbur, kl. 10.15, opið hús, spilað á spil kl. 13, kaffiveitingar kl. 14.30. Leshópur FEBK, Gullsmára | Glæpur og refsing verður viðfangsefni Leshóps FEBK kl. 20. Gestur kvöldsins verður Árni Bergmann, magister í rússneskum bókmenntum. Allir velkomnir. Eng- inn aðgangseyrir. Norðurbrún 1 | Smíðastofan kl. 9-16, vinnust. í handm. kl. 9-16 m/leiðb. Halldóru kl. 13-16, myndlist m/ Hafdísi kl. 9-12. þrykk og postulín m/ Hafdísi. kl. 13-16, leikfimi kl. 13. Vesturgata 7 | Hárgreiðsla og fótaaðgerðir, myndmennt kl. 9-16, enska kl. 10.15, hádeg- isverður kl. 11.45, leshópur 13.30, spurt og spjall- að /myndbandasýning kl. 13, bútasaumur og spil kl. 13-16, kaffiveitingar kl. 14.30. Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja kl. 8.30, handavinnustofan opin kl. 9.00-16.30, hár- greiðslu- og fótaaðgerðarstofur opnar alla daga, morgunstund kl. 9.30, leikfimi kl. 10, upplestur, framhaldssaga, kl. 12.30, félagsvist kl. 14. Fé- lagsmiðstöðin opin fyrir alla aldurshópa, uppl. í síma 411-9450. Þórðarsveigur 3 | Hjúkrunarfræðingur kl. 9, bænastund og samvera kl. 10, bónusbíllinn kl. 12 og bókabíllinn kl. 16.45. Kirkjustarf Áskirkja | Opið hús kl. 10-14, föndur, spjall og 100 ára afmæli. Í dag 6.nóvember er Bergur G. Gíslason hundrað ára. Í til- efni þess tekur hann á móti nánustu vinum og fjölskyldu á heimili sínu í dag milli kl. 17 og 19. 75ára afmæli. Sjötíu ogfimm ára er í dag, 6. nóvember, Magnús Hall- grímsson verkfræðingur. Kona hans, Hlíf Ólafsdóttir, verður áttræð síðar í mánuð- inum. Þau hjónin munu taka á móti gestum í safnaðarheimili Háteigskirkju laugardaginn 17. nóvember milli kl. 20 og 23. Þau vonast eftir að sjá sem flesta af vinum og ættingjum. 50ára afmæli. Í dag, 6.nóvember, verður María B. Finnbogadóttir fimmtug. Hún verður erlendis til að fagna þessum tímamót- um. dagbók Í dag er þriðjudagur 6. nóvember, 310. dagur ársins 2007 Orð dagsins: Móðir mín og bræður eru þeir, sem heyra Guðs orð og breyta eftir því. Kynjafræðiráðstefna RIKKverður haldin í Aðalbygg-ingu Háskóla Íslands dag-ana 9. og 10. nóvember. Yf- irskrift ráðstefnunnar er Krossgötur kynjarannsókna. Irma Erlingsdóttir er forstöðumaður Rannsóknastofu í kvenna- og kynja- fræðum, og einn af skipuleggjendum dagskrárinnar: „Ráðstefnunni er ætlað að sýna þversnið kynjafræðirannsókna á Íslandi, veita innsýn í það þverfag- lega rannsóknarstarf sem þar á sér stað,“ segir Irma en kynjafræðiráð- stefna RIKK er nú haldin í fjórða sinn og var sú síðasta haldin 2002 „Dag- skráin er nær eingöngu borin uppi af fyrirlestrum íslenskra fræðimanna, og sýnir fjölbreytnina og gróskuna sem er í íslenskum kvenna- og kynjarann- sóknum.“ Að sögn Irmu eru unnar mikilvægar og áhugaverðar kynjarannsóknir á Ís- landi: „Ráðstefnunni er m.a. ætlað að gera þessar rannsóknir sýnilegri, en mikil þróun hefur orðið á fræðasviðinu hérlendis undanförnum árum m.a. með tilkomu grunnáms og framhaldsnáms í kynjafræðum við Háskólann. Þó er ljóst að þörf er á að styrkja þetta rann- sóknarsvið enn frekar, og veita því veg- legri sess en nú er.“ Hálfur áttundi tugur fræðimanna tekur þátt í ráðstefnudagkránni og eru haldnar sextán málstofur auk tveggja stærri yfirlitsmálstofa í byrjun og lok ráðstefnunnar. Meðal umfjöllunarefna í málstofunum er byggðaþróun og um- hverfismál, starfsval og menntun, al- þjóðasamfélagið, margbreytileiki, heilsa, bókmenntir, miðaldir, fjöl- skyldan, unga fólkið og jafnréttisbar- átta. „Á opnunarmálstofunni höfum við fengið til okkar Drude Dahlerup, pró- fessor í stjórnmálafræði við Háskólann í Stokkhólmi. Mun hún fjalla um stöðu hins norræna jafnréttislíkans, og færa fyrir því rök að nokkur hnignun hafi orðið í jafnréttismálum hjá hinum nor- rænu löndum,“ segir Irma. „Á loka- málstofu ráðstefnunnar mun Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra fjalla um möguleika Íslands til að hafa áhrif til góðs á þróun jafnréttismála í alþjóðlegu samhengi, og um leið hvern- ig styrkja má og auka þá þekkingu sem við búum að.“ Sjá nánar á rikk.hi.is. Ráðstefnan er öllum opin og aðgangur ókeypis. Rannsóknir | Tæplega 80 fyrirlesarar á Kynjafræðiráðstefnu RIKK Straumar í kynjafræði  Irma Erlings- dóttir fæddist í Reykjavík 1968. Hún lauk BA- prófi í frönsku og bókmenntum frá HÍ, licence-prófi, mastersprófi og DEA-prófi við Há- skólann París-8, og lýkur senn doktorsnámi frá Sor- bonne. Irma var stundakennari í frönskum bókmenntum áður en hún tók við stöðu forstöðumanns RIKK 2000. Sambýlismaður Irmu er Geir Svansson bókmfr. og eiga þau tvær dætur. Tónlist Salurinn, Kópavogi | Bylgja Dís Gunnarsdóttir sópran og Julia Lynch halda tónleika kl. 20. Á efnisskránni verða verk eftir Mozart, Strauss, Sibelius, Pucc- ini, Masgani, Verdi og Janacek. Bylgja er nýútskrifuð úr mast- ersnámi frá RSAMD. Hún söng hlutverk Donnu Önnu með Clon- ter Opera nýverið og hlaut lof- samlega dóma fyrir. Sýningarsalur Bílvers | Davíð Ólafsson og Stefán Helgi Stef- ánsson taka lagið í sýningarsal Bílvers við Innnesveg 1, kl. 20.30. Í salnum fer einnig fram sýning nema á öðru ári í vöru- hönnun við Listaháskóla Ís- lands. Myndlist Fótógrafí | Karl R. Lilliendahl sýnir svarthvítar ljósmyndir frá Ítalíu í Fótógrafí. Yfirskrift sýn- ingarinnar er Uno sem er ítalska orðið fyrir einn. Titillinn er tilvísun í sýn ljósmyndarans á einstaklinginn í borgarsam- félaginu. Hver mynd segir sögu einnar manneskju. Mannfagnaður Djúpivogur | Sviðamessa verð- ur á Hótel Framtíð í Djúpavogi 10. nóvember kl. 19. Að loknu sviðaáti verður tónlistarsýning þar sem Tónleikafélag Djúpa- vogs mun gera tímabilinu 1965 1975 skil, með því að flytja tón- list frá tímabilinu, allt frá Bítl- unum til Bowie. Kvikmyndir Bílastæðið við útibú Glitnis | Bílabíó verður á bílastæði verslunarmiðstöðvarinnar við Dalbraut kl. 21, í boði Glitnis. Sýnd verður myndin Sódóma Reykjavík en 15 ár eru frá því myndin var frumsýnd. Hljóðinu í myndinni verður útvarpað á FM 95,0. Fyrirlestrar og fundir Bókasafnið á Akranesi | Úlf- hildur Dagsdóttir bókmennta- fræðingur heldur tvo fyrirlestra um japanskar myndasögur – manga. Sérstakir gestir eru nemendur í 10. bekk grunnskól- anna en fyrirlestrarnir eru öll- um opnir. Fyrirlestrasalur Þjóðminja- safnsins | Sagnfræðingafélagið heldur hádegisfyrirlestur í dag. Sverrir Jakobsson fjallar um uppruna Evrópu, tilurð og fram- þróun Evrópuhugtaksins til vorra daga. Fyrirlesturinn fer fram í fyrirlestrasal og stendur frá kl. 12.05 til 12.55. Aðgangur er ókeypis og öllum heimill. Íþróttasafn Íslands, Safnaskáli | Ragnheiður Runólfsdóttir frá Akranesi rifjar upp sigra og stórar stundir á ferlinum í máli og myndum. Að fyrirlestrinum loknum getur fólk spurt og spjallað við Ragnheiði. Lífssýn | Félagsfundur verður 6. nóvember kl. 20.30, í Bolholti 4, 4. hæð. Jóhanna Þormar fjallar um lækningajurtir. Kaffi- veitingar, aðgangseyrir 500 kr. Neskirkja | Bandalag þýðenda og túlka heldur rabbfund um nýju Biblíuþýðinguna kl. 12. Auður Ólafsdóttir listfræðingur og rithöfundur, guðfræðingarnir Arnfríður Guðmundsdóttir og Sigurður Pálsson og málfræð- ingarnir Jón G. Friðjónsson og Jón Axel Harðarson verða í pallborði. FRÉTTIR ♦♦♦ ♦♦♦ Rangt nafn MARÍA Anna Maríudóttir kenn- ir á pólskunám- skeiði hjá Fræðsluneti Suð- urlands. Rangt var farið með nafn hennar í grein um námskeiðið á Ár- borgarsíðu í Morgunblaðinu sl. laugardag. Gerðist í Bónus RANGHERMT var í frétt á baksíðu blaðsins í gær að félagar í Lands- björg hafi komið viðskiptavini Húsa- smiðjunnar til hjálpar þegar hann hneig niður. Atburðurinn varð í versl- un Bónuss við sömu götu, Skútuvog- inn. Rangur titill ÞAU mistök urði í frétt Morgun- blaðsins um ný- smíði skips fyrir Ísfélag Vest- mannaeyja síðast- liðinn föstudag, að í myndatexta var Þórarinn S. Sig- urðsson titlaður stjórnarformaður félagsins. Það er hann ekki, heldur varaformaður í þriggja manna stjórn félagsins. For- maður er Gunnlaugur Sævar Gunn- laugsson. Morgunblaðið biðst afsökunar á þessum mistökum um leið og það leiðréttir þau. LEIÐRÉTT María Anna Maríudóttir Gunnlaugur Sævar Gunnlaugsson UPPLÝSINGAFUNDUR verður haldinn um innleiðingu tilskipunar Evrópusambandsins um raftækja- og rafeindatækjaúrgang í Húsi at- vinnulífsins, Borgartúni 35, 6. hæð, miðvikudaginn 7. nóvember kl. 8.30- 10. Í tilskipuninni er gert ráð fyrir að framleiðendur og innflytjendur raf- tækja og rafeindatækja beri ábyrgð á og greiði fyrir söfnun og förgun úr- sérgenginna raftækja og rafeinda- tækja. Nefnd sem undirbjó lagasetn- ingu hefur nú skilað tillögum sínum til umhverfisráðherra. Kristín Linda Árnadóttir, formað- ur nefndarinnar og fulltrúi umhverf- isráðherra, Pétur Reimarsson, for- stöðumaður hjá SA og Andrés Magnússon, framkvæmdastjóri FÍS, kynna tillögurnar og svara fyrir- spurnum. Fundurinn er öllum opinn en nauðsynlegt er að skrá þátttöku á vef SA – www.sa.is. Samtök atvinnulífsins, Félag ís- lenskra stórkaupmanna, Samtök iðnaðarins og SVÞ – Samtök versl- unar og þjónustu boða til fundarins. Ræða tilskipun um raftækja- úrgang MARGRÉT Heinreksdóttir flytur fyrirlestur í dag, þriðjudag, kl. 12 í stofu 201 Sólborg v/ Norðurslóð. Fyrirlesturinn nefnir hún „Þjóðrétt- arlegur grundvöllur friðargæslu – lögmæti/réttmæti“. Í erindi sínu á Lögfræðitorgi fjallar Margrét almennt um friðar- gæslustarf Sameinuðu þjóðanna, hvernig það hófst og hvernig það hefur breyst í tímans rás; um þjóð- réttarlegan grundvöll friðargæsl- unnar og hvað átt er við þegar rætt er um „legality“ – lögmæti aðgerða annarsvegar og „legitimacy“ – rétt- mæti hinsvegar. Margrét var blaða- og fréttamað- ur í nær 20 ár hjá Morgunblaðinu og RÚV. Hún lauk kandidatsprófi í lög- fræði frá HÍ árið 1986 og meistara- gráðu frá lagadeild háskólans í Lundi í Svíþjóð árið 1999. Fyrirlestur um friðargæsluna

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.