Morgunblaðið - 20.11.2007, Síða 20

Morgunblaðið - 20.11.2007, Síða 20
daglegt líf 20 ÞRIÐJUDAGUR 20. NÓVEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ Ég átti mér draum alvegfrá því ég var lítil stúlkaum að koma til Íslandsog ég held að mér hafi verið ætlað að koma hingað,“ segir Japsy K. Jacob en ólíkt því sem hún hefði nokkurn tímann trúað þá leiddu örlögin hana alla leið frá Indlandi til Íslands, landsins í norðrinu sem hún hélt að væri ekki raunverulegt land. „Þegar ég var átta ára að leika mér heima í Delí fann ég dag einn blaðbút úti á götu. Þetta var bútur af landakorti og þarna blasti Ísland við mér. Ég fór heim með þetta bréfsnifsi með skrýtna landinu og sýndi mömmu, en hún sagði mér að henda því og bætti við að það land væri lítið spennandi sem væri þakið ís. Og hún bætti við að slíkt land væri varla raunverulegt. Ég hlýddi mömmu og henti Íslandinu mínu sem ég hafði fundið svona óvænt, en alla tíð síðan hefur mér fundist þetta framandi land hafa sérstaka merkingu fyrir mig. Núna, eftir að ég er komin hingað, held ég að Guð hafi verið að segja mér með fundi þessa litla papp- írsblaðs, að þetta væri landið sem ég ætti eftir að fara til seinna á lífsleiðinni.“ Nuddið leiddi hana til Íslands Þóra Guðmundsdóttir er örlaga- valdur í lífi Japsy en hún er konan sem leiddi hana hingað á hjara ver- aldar. Fundum þeirra bar saman í Kerala á Indlandi fyrir nokkrum árum þar sem Japsy bjó og starf- aði á nuddstofu en hún hefur lært Ayurveda-nudd, sem er eldfornt indverskt nudd. „Ég ætlaði vart að trúa því þeg- ar mér var sagt að kona frá Íslandi væri að koma í nudd til mín. Það fyrsta sem ég spurði hana var hvort það væri virkilega til land sem væri allt hulið ís. Þóra sagði mér allt um Ísland en hún hefur verið mikið á Indlandi og hún er með indverska verslun á Seyð- isfirði og rekur líka gistiheimilið Hafölduna. Hún kom reglulega í nudd til mín eftir þennan fyrsta fund okkar og við urðum góðar vinkonur. Dag einn stakk hún upp á því að ég kæmi til Íslands til að bjóða Íslendingum upp á Ayurveda nudd. Það tók langan tíma að fá öll leyfi en loksins í mars á þessu ári kom ég og settist tímabundið að á Seyðisfirði þar sem ég bý heima hjá Þóru. Ég lít á hana og allt hennar fólk sem hina fjölskylduna mína, enda hafa þau tekið mér opnum örmum. Það hefur haft mikil áhrif á líf mitt að eignast þessa nýju og stóru fjölskyldu hér á Íslandi.“ Á Seyðisfirði er Japsy með sína eigin nuddstofu og til hennar koma ekki aðeins Seyðfirðingar, heldur líka fólk frá Egilsstöðum, Nes- kaupstað og jafnvel frá Akureyri. Í október fluttist Japsy síðan tíma- bundið til Reykjavíkur þar sem hún býður upp á hið forna ind- verska nudd í Baðhúsinu. „Hér í Reykjavík er miklu meiri hraði en á Seyðisfirði en það er ágæt til- breyting, því stundum finnst mér tíminn standa í stað fyrir austan.“ Braust gegn karlahefðinni Japsy hefur alla tíð haft mikinn áhuga á jurtum og öllum þeim virku efnum sem þar er að finna og nýtast til lækninga. „Ég lærði Ayurveda-fræðin hjá Joy That- umkal. Þetta eru elstu lífsvísindi veraldar og þau ganga mikið út á fræði um jurtir og jafnvægi hugar, sálar og líkama. Ég fékk mjög litla hvatningu til þessa náms og reynd- ar drógu flestir úr mér vegna þess að á Indlandi er hefð fyrir því að nánast eingöngu karlmenn læri og stundi þessi fræði og þetta nudd. En ég var ákveðin og lét ekkert stoppa mig í að taka þetta stóra skref gegn viðteknum gildum og það tók mig sjö ár að ljúka þessu námi. Þá fór ég að vinna á stofunni hjá kennaranum mínum þar sem ég var eingöngu látin nudda konur. En hér á landi nudda ég bæði kyn- in. Ég lærði ekki einungis að búa til olíu úr jurtum til að nudda með, heldur lærði ég líka að gera úr þeim vökva til inntöku og hreins- unar, því heildarmeðferð Ayur- veda-fræðanna felur í sér fimm stig en hér á Íslandi býð ég aðeins upp á fyrsta grunnstigið, sem felst í nuddi með ákveðnum strokum með heitum olíum sem ég bý sjálf til,“ segir Japsy sem ætlar að skreppa til Indlands í janúar og gifta sig. „Ég verð að gifta mig núna því ég er orðin 25 ára og ef ég bíð lengur þá fæ ég ekki nógu góða menn til að velja úr sem eig- inmenn,“ segir Japsy og hlær en hún er kaþólskrar trúar og alveg harðákveðin í að eignast aðeins tvö börn. „Helst vil ég aðeins eignast eitt barn, en það er mikill þrýst- ingur frá fjölskyldum okkar um að við eignumst að lágmarki tvö börn og ég verð að beygja mig undir það.“ Hélt hún myndi deyja úr kulda Japsy á aðeins einn bróður en foreldrar hennar eru vel menntað- ir, móðir hennar er hjúkrunarkona og faðirinn forstjóri. Hún segir að hjá kynslóð foreldra sinna hafi fjöl- skyldur verið miklu stærri en hjá hennar kynslóð. „Þegar allir ætt- ingjar mínir koma saman þá erum við 95 talsins og þá gengur mikið á og það er einna líkast því að standa á stórri lestarstöð á há- annatíma,“ segir Japsy og skelli- hlær en hún er sérlega glaðsinna þó hún sé föst fyrir. Japsy ætlar að koma aftur til Seyðisfjarðar í mars á næsta ári og halda áfram að nudda Austfirðinga en henni finnst sólin ekki skína al- veg nógu mikið á Seyðisfirði. „Ég er vön mikilli sól og hita á Indlandi og ég skalf fyrst þegar ég kom til Seyðisfjarðar og hélt að ég myndi kannski bara deyja í þessum kulda. Hér þarf ég að þrábiðja Guð um að sýna mér sól. Ég held svei mér þá að sólin sé hrifnari af Indlandi en Íslandi. Fyrir mig var stórkostlegt að koma hingað því hér er allt svo ólíkt því sem ég þekki heima á Indlandi. Hér eru fjöllin ótrúleg og snjó hafði ég aldrei áður séð með eigin augum. Víðáttan er svo mikil og lítið af trjám en heima í Kerala eru alls staðar tré.“ khk@mbl.is Morgunblaðið/Kristinn Tveir heimar Japsy er heilluð af fjöllunum og snjónum á Íslandi þó hún sakni sólarinnar heima í Kerala. Sólin er hrifnari af Indlandi en Íslandi Kerala á Indlandi og Seyðisfjörður á Íslandi eru afskaplega ólíkir staðir en Japsy Jacob á heimili á þeim báðum. Kristín Heiða Kristinsdóttir hitti þessa harðákveðnu ungu konu sem syndir óhrædd gegn karlahefðinni í sínu fagi, hinum eldfornu Ayurveda fræðum. listamönnum inn- blástur. Tveimur ára- tugum síðar gengust skötuhjúin við tveimur morðum til viðbótar en fórnarlömbin grófu þau á svonefndri Hæð utan við borgina Man- chester. Tilefni þess að Vík- verji dregur Hindley fram í dagsljósið er að á sunnudaginn var sýndi Stöð 2 hreint prýðilega sjónvarps- mynd sem fjallar um samband Hindley og Longford lávarðar sem barðist um langt árabil fyrir frelsun hennar – við litlar und- irtektir. Öllum ber saman um að Brady, sem enn er á lífi, sé rotinn í gegn og eigi ekki skilið að hljóta frelsi en skoðanir hafa verið skiptar um Hindley. Þannig útilokaði dómarinn ekki á sínum tíma að hún gæti síðar meir snúið til dygðugs lífs. Þessu trúði Longford lávarður, sem Jim Broadbent leikur af snilld, eins og nýju neti og í myndinni er látið að því liggja að Hindley hafi vafið hon- um um fingur sér. Hún er látin koma vel fyrir, full iðrunar og gefur þær skýringar á gjörðum sínum að Brady hafi haft sig á sínu valdi. Niðurstaða myndarinnar er þó sú að iðrun Hindley hafi aðeins verið viðbára. Hún hafi blekkt aumingja lávarðinn, sem var með hjarta úr gulli, í þeirri von að hann kæmi henni út. Þegar vonin um frelsið rann út í sandinn henti hún honum frá sér eins og notuðu dömubindi. Fimm árum eftirdauða hennar eru Bretar enn að velta vöngum yfir lífi og til- veru morðkvendisins alræmda Myru Hind- ley. Engin kona hefur setið lengur bak við lás og slá í Bretlandi, en Hindley var dæmd fyrir þrjú hrottaleg morð á ungmennum ásamt ástmanni sín- um, Ian Brady, vorið 1966 og gat aldrei um frjálst höfuð strokið aftur. Ætli megi ekki full- yrða að myndin af Hindley við handtökuna sé frægasta andlitsmynd af afbrotamanni fyrr og síðar og hefur hún verið ýmsum             víkverji skrifar | vikverji@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.