Morgunblaðið - 20.11.2007, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. NÓVEMBER 2007 33
árnað heilla
ritstjorn@mbl.is
Félagsstarf
Aflagrandi 40 | Vinnustofa opin kl. 9-16.30, jóga
kl. 9, postulínsmálning og útskurður kl. 13-16.30.
Árskógar 4 | Bað kl. 8-16, handav. kl. 9-16.30,
smíði/útskurður kl. 9, leikfimi kl. 9.45.
Bólstaðarhlíð 43 | Hárgreiðsla, böðun, vefnaður,
almenn handavinna, morgunkaffi/dagblöð, fóta-
aðgerð, hádegisverður, línudans, kaffi.
Félag eldri borgara, Reykjavík | Skák kl. 13,
framsögn kl. 17, félagsvist kl. 20. Félagsfundur
verður í Stangarhyl 4, 22. nóvember kl. 17, Jó-
hanna Sigurðardóttir félagsmálaráðherra mætir
á fundinn. Aðventuhátíð 30. nóvember.
framhaldssaga. Helgistund og fyrirbænastund í
kirkju.
Fríkirkjan Kefas | Fræðslukvöld kl. 19. Bryndís
Svavarsdóttir kennir um Rómverjabréfið. Kvöld-
ið hefst á léttum kvöldverði og þarf að skrá sig í
síma 564-1124 eða á bjorg@kefas.is Ekkert gjald
er tekið fyrir kvöldið.
Grafarvogskirkja | Opið hús fyrir eldri borgara
kl. 13.30-16. Helgistund, handavinna, spilað og
spjallað, kaffiveitingar. TTT fyrir 10-12 ára kl. 16-
17 í Engjaskóla. TTT fyrir 10-12 ára kl. 17-18 í
Borgaskóla.
Hallgrímskirkja | Fyrirbænaguðsþjónusta kl.
10.30. Beðið fyrir sjúkum. Starf fyrir eldri borg-
ara alla þriðjudaga og föstudaga kl. 11-14. Leik-
fimi, súpa, kaffi og spjall.
Hjallakirkja | Prédikunarklúbbur presta kl. 9.15-
11, í umsjá sr. Sigurjóns Árna Eyjólfssonar hér-
aðsprests.
Hjallakirkja | Bæna- og kyrrðarstund kl. 18.
KFUM og KFUK | Fundur í AD KFUK Holtavegi
28, kl. 20. Lofgjörðar og bænasamvera í umsjón
Þórdísar Klöru Ágústsdóttur. Kaffi eftir fundinn.
Allar konur velkomnar. Veislufundur verður í AD
KFUM 22. nóvember kl. 19. Herrakvöld með villi-
bráðarveislu. Sigtryggur Baldursson skemmtir.
Verð kr. 3.300. Skrá þarf þátttöku í síma 588-
8899, fyrir hádegi 21. nóvember. Allir karlmenn
velkomnir.
Laugarneskirkja | T.T.T. fundur (5.-6. bekkur) kl.
16, umsjón sr. Hildur Eir og Andri Bjarnason.
Kvöldsöngur kl. 20. Þorvaldur Halldórsson leiðir
sönginn og sóknarprestur flytur Guðsorð og
bæn. Fræðsla um sorg og sorgarviðbrögð kl.
20.30. Sigrún Guðmundsdóttir og sr. Bjarni
Karlsson tala.
Vídalínskirkja Garðasókn | Opið hús hefst með
kyrrðarstund kl. 12. Súpa og brauð kl. 12.30. Opið
fyrir alla. Spilað kl. 13-16, vist, brids o.fl. Pútt-
græjur á staðnum. Kaffi kl. 14.45. Akstur fyrir þá
sem vilja, uppl. 895-0169.
skóla kl. 14.20. Uppl. í síma 564-1490 og 554-
5330.
Korpúlfar Grafarvogi | Félagsvist á Korpúlfs-
stöðum á morgun kl. 13.30.
Norðurbrún 1 | Smíðastofan kl. 9-16, vinnust. í
handm. kl. 9-16 m/leiðb. Halldóru kl. 13-16, mynd-
list m/Hafdísi kl. 9-12. Þrykk og postulín m/
Hafdísi. kl. 13-16, leikfimi kl. 13.
Sjálfsbjörg félag fatlaðra á höfuðborgarsvæð-
inu | Bingó kl. 19.30, í félagsheimili Sjálfsbjargar
á höfuðborgarsvæðinu, Hátúni 12.
Vesturgata 7 | Hárgreiðsla og fótaaðgerðir,
myndmennt kl. 9-16, enska kl. 10.15, hádegis-
verður kl. 11.45, leshópur 13.30, spurt og spjallað
/myndbandasýning kl. 13, bútasaumur og spil kl.
13-16, kaffiveitingar kl. 14.30.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja kl. 8.30,
handavinnustofan opin kl. 9-16.30, hárgreiðslu-
og fótaaðgerðarstofa opnar alla daga, morgun-
stund kl. 9.30, leikfimi kl. 10, upplestur fram-
haldssaga kl. 12.30, félagsvist kl. 14. Uppl. í síma
411-9450.
Þórðarsveigur 3 | Hjúkrunarfræðingur (fyrsta
þriðjudag í mánuði) kl. 9. Bænastund kl. 10, bón-
usbíllinn kl. 12 og bókabíll kl. 16.45.
Kirkjustarf
Áskirkja | Opið hús kl. 10-14. Föndur, spjall og
spil. Bænastund í umsjá sóknarprests kl. 12, létt-
ur hádegisverður eftir bænastundina.
Breiðholtskirkja | Bænaguðsþjónusta kl. 17.30.
Digraneskirkja | Leikfimi ÍAK kl. 11, kirkjustarf
aldraðra kl. 11.45, léttur málsverður. Helgistund
og samvera, umsjón Anna Sigurkarlsdóttir og sr.
Magnús Guðjónsson. Kaffi. KFUM&K fyrir 10-12
ára kl. 17-18.15. Æskulýðsstarf Meme fyrir 9-10
bekk kl. 19.30-21.30. www.digraneskirkja.is.
Fella- og Hólakirkja | Kyrrðarstund kl. 12. Orgel-
leikur, íhugun og bæn. Kirkjustarf eldri borgara
kl. 13-16. Gerður Óskarsdóttir fyrrv. fræðslu-
fulltrúi spjallar um kirkjumyndir. Kaffiveitingar,
Félag kennara á eftirlaunum | Tölvustarf í Ár-
múlaskóla kl. 15.15.
Félagsheimilið Gjábakki | Leikfimi kl. 9.05 og
9.55, gler- og postulínsmálun kl. 9.30, handa-
vinna kl. 10, leiðbeinandi við til hádegis. Jóga kl.
10.50, tréskurður kl. 13, róleg leikfimi kl. 13, al-
kort kl. 13.30. Kaffii til kl. 16, stólajóga kl. 17, jóga
á dýnum kl. 17.50.
Félagsheimilið Gullsmára 13 | Vefnaður kl. 9,
jóga kl. 9.15, myndlistahópur kl. 9.30, ganga kl.
10, leikfimi kl. 11, hádegisverður kl. 11.40, búta-
saumur kl. 13, síðdegisvaka kl. 14 og jóga kl. 18.15.
Félagsstarf eldri borgara, Garðabæ | Karla-
leikfimi kl. 13, boccía kl. 14, línudans kl. 12, tré-
smíði kl. 13.30, spilað í kirkjunni kl. 13, vatns-
leikfimi kl. 14, byrjendanámskeið í brids kl. 13 í
Jónshúsi.
Félagsstarf Gerðubergs | Vinnustofur opnar kl.
9-16.30, m.a. glerskurður og perlusaumur, létt
ganga kl. 10.30, postulínsnámskeið kl. 13. Alla
föstud. kl. 10.30 er fjölbreytt leikfimi (frítt) o.fl. í
ÍR-heimilinu v/Skógarsel, kaffi. Uppl. á staðnum
og s. 575-7720.
Hraunbær 105 | Handavinna, glerskurður, hjúkr-
unarfræðingur kl. 9, boccia kl. 10, leikfimi kl. 11,
hádegismatur kl. 12, bónusbíllinn kl. 12.15, kaffi kl
15.
Hraunsel | Morgunrabb kl. 9, myndmennt kl. 10,
leikfimi kl. 11.30, glerskurður frjálst kl. 13.00,
brids kl. 13, myndmennt kl. 13.
Hvassaleiti 56-58 | Bútasaumur kl. 9-13 hjá
Sigrúnu. Jóga kl. 9-11, Björg F. Námskeið í mynd-
list kl. 13.30-16.30 hjá Ágústu. Helgistund kl. 14 í
umsjón séra Ólafs Jóhannssonar. Böðun fyrir há-
degi. Hársnyrting.
Hæðargarður 31 | Gönguferð alla laugardags-
morgna kl. 10. Listasmiðjan með ýmislegt í hand-
verki. Leiðbeinendur: Laufey Jónsdóttir og
Selma Jónsdóttir. Bókmenntahópur þriðjudag-
kvöld kl. 20-21.30. Uppl. 568-3132.
Íþróttafélagið Glóð | Hringdansar í Kópavogs-
Brúðkaup | Gefin voru saman í
Dómkirkjunni 6. október síðastlið-
inn af sr. Hjálmari Jónssyni, Þór-
unn María Pálmadóttir og Stefán
Hjörleifur Snorrason.
Ljósm. Kristín
Brúðkaup | Guðrún Jónsdóttir og
Øvind Mo Sogndal, Oslo, voru gef-
in saman í Grasagarðinum í Ósló
20. september síðastliðinn.
dagbók
Í dag er þriðjudagur 20. nóvember, 324. dagur ársins 2007
Orð dagsins: Hann veitti sálum vorum lífið og lét oss eigi verða valta á fótum. (Sl. 66, 9.)
Tónlist
Grafarvogskirkja | Sænska söngkonan Carola verður
með jólatónleika kl. 20. Hún kemur fram ásamt
sænsku tónlistarfólki og flytur lög af nýjum jóladiski.
Miðaverð 5.900 kr. Miðasala og nánari upplýsingar á
hljomar.is
Samtökin ’78 | Árni Heimir Ingólfsson tónlistarfræð-
ingur leiðir fólk í allan sannleikann um helstu samkyn-
hneigðu tónskáld sögunnar og hvernig kynhneigðin
hafði áhrif á listsköpun þeirra. Fyrirlesturinn verður
22. nóv. kl. 21, í Regnbogasal Samtakanna ’78.
Fyrirlestrar og fundir
Náttúrufræðistofnun Íslands | Hrafnaþing NÍ í Mögu-
leikhúsinu kl. 12.15-13. Friðgeir Grímsson jarðfræðingur
heldur erindið „Steingerðar flórur Íslands“. Hann lýsir
fornum gróðursamfélögum og segir frá rannsóknum á
plöntusteingervingum. Nánar á http://www.ni.is/
midlun-og-thjonusta/hrafnathing/greinar/nr/678
ReykjavíkurAkademían | Umræðufundur kl. 17-19.
Umræðuefnið er „grundvallargildi samfélagsins“ í ljósi
þess að lögreglan óskaði eftir að Miriam Rose yrði vís-
að úr landi vegna mótmælaaðgerða á vegum Saving
Iceland.
Fréttir og tilkynningar
AA-samtökin | Neyðarsími AA-samtakanna er 895-
1050.
Sími 533 4800
Góð 98,7 fm 4ra herbergja íbúð á jarðhæð við Hofsvallagötu. Íbúðin skiptist
í forstofu, tvö barnaherbergi, hjónaherbergi, eldhús, stofu, baðherbergi,
geymslu, sameiginlegt þvottahús í sameign. Eldhúsið er fallegt og bjart með
ljósum innréttingum og flísum á gólfi. Stofa parketlögð og rúmgóð. Stutt í
gönguleiðir við sjóinn. V. 26,5 millj.
Opið hús þriðjudaginn 20. nóvember milli kl. 17.30 og 18.00,
Þorvarður sýnir, 892-6101.
Laugavegur 182 • 4. hæð • 105 Rvík Fax 533 4811 • midborg@midborg.is
Björn Þorri hdl., lögg. fastsali, Karl Georg hrl., lögg. fastsali.
Hofsvallagata 59 – Opið hús
Ráðgátan um
Olgu Tsékovu
Njósnari í Þýskalandi nasista.
Mögnuð bók eftir hinn
geysivinsæla Antony Beevor
M
bl
9
36
50
9
holar@simnet.is
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ birtir til kynningar um afmæli, brúðkaup,
ættarmót og fleira lesendum sínum að kostnaðarlausu. Tilkynningar
þurfa að berast með tveggja daga fyrirvara virka daga og þriggja
daga fyrirvara fyrir sunnudags- og mánudagsblað.
Samþykki afmælisbarns þarf að fylgja afmælistilkynningum og/
eða nafn ábyrgðarmanns og símanúmer.
Hægt er að hringja í síma 569-1100, senda tilkynningu og mynd á
netfangið ritstjorn@mbl.is, eða senda tilkynningu og mynd í gegn-
um vefsíðu Morgunblaðsins, www.mbl.is, og velja liðinn Senda inn
efni". Einnig er hægt að senda vélritaða tilkynningu og mynd í pósti.
Bréfið skal stíla á
Árnað heilla, Morgunblaðinu,
Hádegismóum 2
110 Reykjavík.
FORVARNARDAGUR verður
haldinn í öllum grunnskólum lands-
ins á morgun, miðvikudaginn 21.
nóvember. Í 9. bekkjum verður dag-
skrá helguð baráttunni gegn fíkni-
efnum þar sem áhersla er lögð á
uppbyggilegar forvarnir og þátttöku
ungmennanna sjálfra.
Forvarnardagurinn er haldinn að
frumkvæði forseta Íslands en aðrir
aðstandendur eru Íþrótta- og
ólympíusamband Íslands, Ung-
mennafélag Íslands, Bandalag ís-
lenskra skáta, Samband íslenskra
sveitarfélaga, Reykjavíkurborg og
lyfjafyrirtækið Actavis sem er að-
alstuðningsaðili verkefnisins.
Á forvarnardaginn er lögð megin-
áhersla á að koma því til skila sem
áratugalangar rannsóknir íslenskra
fræðimanna hafa sýnt að skili mest-
um árangri í forvörnum gegn fíkni-
efnum, m.a. að foreldrar og ung-
menni verji sem mestum tíma
saman, að börn og unglingar taki
þátt í skipulögðu íþrótta- og æsku-
lýðsstarfi og að ungmenni fresti því
sem lengst að hefja neyslu áfengis.
Fulltrúar íþrótta- og æskulýðs-
samtaka og aðrir aðstandendur for-
varnardagsins munu heimsækja
grunnskóla og taka þátt í umræðum
um aðferðir sem gagnast best í bar-
áttunni við fíkniefni.
Niðurstöður úr hópastarfi ung-
menna á forvarnardaginn, tillögur
þeirra og hugmyndir verða teknar
saman og gefnar út í skýrslu.
Myndband sem sérstaklega er
gert í tilefni af forvarnardeginum
verður sýnt í öllum grunnskólum.
Þar flytur forseti Íslands ávarp auk
þess sem upplýsingar eru veittar um
heilræðin þrjú, rætt er við ungmenni
og þjóðþekkt afreksfólk úr heimi
íþrótta og lista flytur boðskap for-
varnardagsins.
Heimasíðan forvarnardagur.is
Forvarnardagurinn 2007
Rannsóknastofa í kvenna- ogkynjafræðum býður til fyr-irlestrar í Norræna húsinunæstkomandi fimmtudag kl.
12. Þar mun Guðbjörg Lilja Hjartar-
dóttir, doktorsnemi í kynjafræði, flytja
erindið Kynjatengsl og mannréttindi í
alþjóðasamskiptum.
„Skort hefur á að Íslendingar skoði
samskipti sín við aðrar þjóðir, og þá
ekki síst útrás viðskiptalífsins, frá sjón-
arhorni mannréttinda og jafnréttis
kynjanna,“ segir Lilja, sem vinnur að
doktorsrannsókn um viðskiptatengsl
Íslands og Kína. „Íslensk stjórnvöld
hafa nú tekið ákvörðun um að gefa
mannréttindum meira vægi en áður í al-
þjóðasamskiptum, og geta vissulega fal-
ist í því áskoranir.“
Athafnir og athafnaleysi á alþjóða-
vettvangi geta haft mikil áhrif á líf og
aðstæður fólks á hverjum stað: „Við
þurfum að gæta þess að vera meðvituð
um þær ákvarðanir sem við tökum, og
er ábyrgð íslenskra stjórnmálamanna
og athafnamanna mikil,“ segir Lilja.
„Sem dæmi má nefna að viðskipti ís-
lenskra fyrirtækja í Kína eru að hluta
tilkomin vegna þess að þar er vinnuafl
ódýrt. Það er þó hvorki náttúrulögmál
né tilviljun. Við nánari skoðun virðist
þar halla sérstaklega á ungar konur.
Við þessar aðstæður hafa íslensk fyrir-
tæki og ráðamenn tækifæri til að láta
gott af sér leiða, til dæmis með því að
greiða ekki lægstu mögulegu laun og
huga að öllum aðbúnaði.“
Lilja segir óneitanlega geta reynst
vandasamt að setja mannréttindi í for-
grunn í samskiptum við erlendar þjóðir,
hvort heldur á vettvangi viðskipta eða
stjórnmála: „Í tilfelli Kína má nefna að
stjórnvöld þar í landi eru gjörn á að líta
á umræðu um mannréttindi sem óeðli-
leg afskipti af innanríkismálum þeirra,“
segir hún. „Íslenskum fyrirtækjum ætti
þó að vera í lófa lagið að móta starfsemi
sína erlendis með kynjajafnrétti og
mannréttindi að leiðarljósi, og getur
varla orðið þeim til annars en tekna sú
bætta ímynd og orðspor sem slíkar að-
gerðir myndu færa þeim.“
Fyrirlesturinn á fimmtudag er öllum
opinn og aðgangur ókeypis. Finna má
nánari upplýsingar um viðburði á veg-
um Rannsóknastofu í kvenna- og kynja-
fræðum á rikk.hi.is.
Utanríkismál | Fyrirlestur á vegum RIKK í Norræna húsinu á fimmtudag
Mannréttindi og útrás
Guðbjörg Lilja
Hjartardóttir lauk
stúdentsprófi frá
Verslunarskóla Ís-
lands, BA-gráðu í
alþjóðastjórnmál-
um frá Háskólan-
um í Cincinnati og
MA-gráðu í stjórn-
málafræði frá
sama skóla. Hún stundar nú dokt-
orsnám í kynjafræði við Háskóla Ís-
lands og er jafnframt stundakennari
við félagsvísindadeild. Áður var Lilja
verkefnisstjóri í félagsráðgjöf við HÍ,
varaformaður UNIFEM, og átti sæti í
stjórn Mannréttindaskrifstofu Íslands.