Morgunblaðið - 20.11.2007, Qupperneq 36
Að standa einn á
kletti og arga í mót
vindinum … 38
»
reykjavíkreykjavík
AÐALMÁLIÐ fyrir komandi jól virðist vera að fara á jóla-
tónleika Björgvins Halldórssonar, Jólagestir Björgvins,
sem fara fram aðra helgina í desember í Laugardalshöll-
inni.
Strax seldist upp á fyrstu tónleikana að kvöldi 8. desem-
ber og bætt var við tvennum aukatónleikum, fyrr um dag-
inn þann áttunda og öðrum 9. desember. Tæplega 6.000
miðar voru í boði á aukatónleikana og seldust þeir upp á
svipstundu.
Nú hefur sá orðrómur komist á kreik að verið sé að und-
irbúa fjórðu tónleikana þessa helgi til að mæta eftirspurn.
Björgvin Halldórsson segir að ekkert sé ákveðið með það
en hann finni fyrir mikilli pressu að halda fjórðu tónleikana.
„Við finnum fyrir pressu en við erum ekki búin að taka
neina ákvörðun og ekkert hefur verið gefið út um fjórðu
tónleikana. Að halda ferna tónleika er meira en að segja
það því þetta er svo stórt í sniðum, ég er með strengjasveit,
stórsveit, gospel-, karla- og barnakór og svo marga á svið-
inu að það er hægara sagt en gert að flauta til annars leiks.
En það yrði voðalega gaman ef af yrði,“ segir Björgvin að
vonum ánægður með viðtökurnar. „Þetta var nú líka svona í
fyrra þegar ég hélt tónleika með Sinfóníuhljómsveit Ís-
lands. Þá seldist upp í þrjár hallir og nú gerist sami leik-
urinn nema það selst ennþá hraðar upp í þetta skiptið.“
Finnur fyrir pressu
Vinsæll Björgvin Halldórsson er undir pressu um
að halda fjórðu jólatónleikana.
Bjarkartúrinn
lék sína síðustu
tónleika á Suður-
Ameríkutúrnum
nú á sunnudag.
Tónleikarnir fóru
fram í höfuðborg
Kólumbíó, Bo-
gotá, en borgin er í tæplega 3.000
metra hæð yfir sjávarmáli. Tónleik-
arnir gengu vel fyrir sig þrátt fyrir
súrefnisleysið sem fylgir slíkri hæð
og var dýrindis súrefniskút komið
fyrir baksviðs svo hægt væri að
fylla á lungu blásaranna sem marg-
ir hverjir sáu stjörnur eftir átökin.
Þær fréttir berast svo nú að Björk
muni fara í tónleikaferð um Bret-
land í apríl og maí á næsta ári. Mun
þetta vera fyrsta tónleikaferð
Bjarkar þar í landi í fjögur ár. Hún
hefur þó komið fram á tónleikum í
Bretlandi, síðast á Glastonbury-
hátíðinni fyrr á þessu ári.
Það er ekki bara kalt
á toppnum í Bogotá
Útgáfuteiti Senu fór fram með
pomp og prakt á laugardag. Meðal
gesta var sjálfur Egill Ólafsson og
það er eins með hann og Sean
Connery, hann verður æ glæsilegri
með aldrinum. Viddi í Trabant
skundaði um sali en einnig mátti
sjá Luxorliða þrammandi um með
blóðrauð augu, líklega í leit að
Steinþóri Helga Arnsteinssyni,
gagnrýnanda Fréttablaðsins, sem
sýndi mikið hugrekki í að mæta
eftir að hafa slátrað fyrstu plötu
söngsveinanna með afgerandi
hætti. Steinþór lét sæmilega lítið á
sér bera og slógu fagbræður hans,
þeir nafnar Atli Bollason og Atli
Fannar, um hann skjaldborg svo
hann losnaði nú við mestu bar-
smíðarnar.
Svart, hvítt og blóðrautt
Eftir Arnar Eggert Thoroddsen
arnart@mbl.is
FRIÐRIK Sturluson, sem er líkast til þekkt-
astur sem bassaleikari Sálarinnar hans Jóns
míns, hefur iðulega haft mörg járn í eldinum.
Hann er grafískur hönnuður að mennt, en
lærði líka til hljóðmanns og starfar hann sem
slíkur í Sýrlandi. Þar hljóðsetur hann barna-
efni, en auk þess að spila með Sálinni hefur
hann verið drjúgur í textagerð, bæði fyrir Sál-
ina og aðra. Segja má að allir þessir þættir hafi
svo runnið saman í verkefni sem Friðrik klár-
aði í sumar ásamt Guðmundi Ólafssyni leikara,
en þar er á ferðinni barnaplatan Vökuland.
„Þannig var að heilmikið eirðarleysi var tek-
ið að herja á mig í sumar þar sem Sálin var
ekkert að spila,“ útskýrir Friðrik. „Ég er van-
ur að spinna sögu um stað sem ég kalla Vök-
uland fyrir son minn þegar hann vill ekki fara
að sofa og sagan tók að hlaða utan á sig. Ég
bar hugmyndina undir Guðmund Ólafsson,
leikara og rithöfund, og hann skrifaði sögu og
lagatexta og ég samdi svo tónlist.“
Platan er byggð upp á lögum, upplestri frá
sögumanni og leiknum atriðum og Friðrik kom
ekki að tómum kofunum hvað aðstoðarfólk
varðaði.
Vinir
„Maður vinnur frá 9-5 í hljóðstúdíói og því
mikill gegnumgangur af fólki. Sumir eru orðn-
ir vinir manns og ég gabbaði marga þeirra inn
á plötuna, svona úr því að þeir voru í færi,“
segir Friðrik og kímir. Tónlistarmenn á borð
við Jóhann Hjörleifsson og Kjartan Valdemars-
son koma við sögu auk þess sem Kristinn
Sturluson, einn helsti samstarfsmaður Frið-
riks, leggur hönd á plóg“ („Við erum ekki
bræður eins og svo margir halda,“ segir Frið-
rik, „en bræður í anda svo sannarlega“). Leik-
arar og söngvarar eru m.a. Laddi, Selma, Örn
Árna, Siggi Sigurjóns og Björgvin Franz.
Glaður
„Ég er nú kominn á þann aldur að mig var
farið að langa til að sjá eitthvað eftir mig,“
segir Friðrik að lokum. „Ég er glaður að hafa
kýlt á þetta í stað þess að vera að velta þessu
eitthvað um. Á tímabili óaði mér við allri
vinnunni, þetta vatt fljótt upp á sig, en þetta er
núna komið til hafnar. Nú get ég líka sparað
mér að segja söguna og einfaldlega spilað
hana!“
Sögur úr Vökulandi
Friðrik Sturluson, bassaleikari Sálarinnar, gefur út nýja barnaplötu
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Félagar Friðrik Sturluson og Guðmundur Ólafsson í garði þess síðarnefnda, en Guðmundur skrifaði sögu og lagatexta við nýju plötuna.
■ Fim. 22. nóvember kl. 19.30
Pétur Gautur Tónlist Griegs við stórvirki Ibsens. Nótt á
Nornastóli eftir Mussorgsky og Ævintýri Ugluspegils eftir Richard
Strauss. Stjórnandi: Petri Sakari
Einsöngvari: Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir
Sögumaður: Gunnar Eyjólfsson
■ Fim. 29. nóvember kl. 19.30
Adés og Stravinskíj. Dáðasta tónskáld Breta af yngri kynslóðinni,
Thomas Adés, sækir okkur heim og stýrir hljómsveitinni og
Hamrahlíðarkórunum í verkum Stravinskíjs og sínum eigin.
■ Fös. 7. desember kl. 19.30
Lífið kallar. Styrktartónleikar Sinfóníuhljómsveitarinnar og FL
Group. Uppselt.
■ Lau. 15. desember kl. 14 nokkur sæti laus og kl. 17
Jólatónleikar. Hnotubrjóturinn eftir Tsjajkovskíj. Nemendur úr
Listdansskóla Íslands dansa og trúðurinn Barbara segir söguna.
Miðasala
S. 545 2500
www.sinfonia.is