Morgunblaðið - 20.11.2007, Qupperneq 38
38 ÞRIÐJUDAGUR 20. NÓVEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
SÍÐASTLIÐIÐ föstudagskvöld voru haldnir
líflegir tónleikar, eða allt að því ball, á Nasa.
Ballið stóð langt fram eftir nóttu með und-
irspili Sprengjuhallarinnar, Jeff Who? og Mo-
tion Boys. Tilefnið ku hafa verið að fagna
breyttum tímum í íslenskri popptónlist, sem
fjölmiðlar, og reyndar hljómsveitarmeðlimir
sjálfir, hafa verið óhræddir við að básúna að
undanförnu. Hvort sem um velheppnaða kynn-
ingarherferð eða uppblásið fjölmiðlafár er að
ræða þá virðist engu að síður sannleikskorn
leynast í staðhæfingunni. Ekki þarf að líta
lengra en 10 ár aftur í tímann til að sjá að meiri
fordómar ríktu gegn vissum tegundum tónlist-
ar en tíðkast í dag. Flestir voru ákaflega upp-
teknir af tískusveiflum tíðarandans og höfðu
afdráttarlausar skoðanir á vinsælustu ball-
sveitum þess tíma. „Poppið“ fékk á sig óorð,
þótti ómerkilegt og jafnvel lágkúrulegt. Vin-
sæl tónlist var litin hornauga af gagnrýn-
endum sem virtust hafa ímugust á öllu sem
spilað var í útvarpi þegar verst lét og það eina
sem þeim var þóknanlegt fékkst eingöngu í
plötubúðum. Í dag er þetta hins vegar farið að
snúast við.
Vinsæl tónlist er orðin betur metin af gagn-
rýnendum og hin umdeilda „lélega tónlist“ á
meira undir högg að sækja. Hverju er um að
kenna? Óhlutdræg rýni á tónlist víkur oft fyrir
annaðhvort tískudýrkun eða tískumótþróa,
sem snýst annað hvort um að gera eins og hin-
ir eða feta aðrar slóðir – í jaðartilvikum að
standa einn á kletti og arga í mót vindinum.
Fyrir rúmum áratug fóru að birtast merki-
miðar á allar tegundir tónlistar, en ekki dugði
að merkja samtímann heldur þurfti einnig að
raða fortíðinni snyrtilega ofan í þægileg hólf.
Ósköp venjuleg poppsveit var ekki „popp“
heldur „indí“, og metalsveit var ekki „black“
heldur „doom“. Núna er hins vegar allt það
sem er „underground“ orðið „mainstream“ og
hvað gera bændur þá? Upplýsinga- og aðgeng-
isbylting netsins hefur gert sjálfstæðum
hljómsveitum kleift að blómstra á kostnað
risaplötuútgáfufyrirtækjanna. Með myspace,
lastfm og radioblogclub að vopni hafa völdin
færst frá útgáfufyrirtækjunum til neytandans.
Nú getur hann valið sér uppáhaldssveitina
sína án þess að nokkur annar fái um það ráðið.
Og þjóðin hefur kveðið upp dóm sinn. Á um-
ræddu kvöldi var saman komin stórskemmti-
leg flóra af fólki á öllum aldri og jafndreifðu
milli kynja. Þetta heilbrigða þýði var ekki
ósvipað handahófskenndu úrtaki í boði Gallup
og gaf augljóslega til kynna að tónlist
Sprengjuhallarinnar, Jeff Who? og Motion Bo-
ys nær til flestra. Og þegar útvarpsslagararnir
dundu yfir mannskapinn þá sungu allir með af
sameinaðri þjóðarsál, ósundraðri af fordómum
og tískubylgjum. Mikið væri samt gaman ef
svona viðburðir byrjuðu á auglýstum tíma.
Droll er ekki lengur í tísku.
Motion boys Birgir Í. Gunnarsson í góðri sveiflu. Viðar Hákon Gíslason spilar undir.
Morgunblaðið/Eggert
Poppaðir Sprengjuhöllin hélt uppi fínni stemningu og sýndi að hún er fyrirtaks tónleikasveit.
Jeffararnir Jeff Who? var fyrst á svið og flutti nokkur glæný lög í bland við „gamlar lummur“.
Jaðar orðið aðal
TÓNLEIKAR
NASA
Föstudaginn 16. nóvember
Sprengjuhöllin, Jeff Who? og Motion Boys
Alexandra Kjeld
SÍÐUSTU SÝNINGAR
Miðasala í Smárabíó og Regnbogann Prentaðu sjálf(ur) út bíómiðann - Engar biðraðir
Wedding Daze kl. 3:40 - 5:50 - 8 - 10:10 B.i. 10 ára
Wedding Daze kl. 3:40 - 5:50 - 8 - 10:10 LÚXUS
Balls of Fury kl. 4 - 6 - 8 - 10 B.i. 7 ára
Heartbreak Kid kl. 5:30 - 8 - 10:30 B.i. 12 ára
Lions For Lambs kl. 8 - 10:15 B.i. 12 ára
Dark is Rising Síðustu sýn. kl. 3:45 B.i. 7 ára
Ævintýraeyja Ibba m/ísl. tali kl. 3:45 - 6
Wedding Daze kl. 8 - 10 B.i. 10 ára
Rogue Assassin kl. 8 - 10 B.i. 16 ára
Balls of Fury kl. 6 B.i. 7 ára
Ævintýraeyja IBBA kl. 6 m/ísl. tali
Sími 564 0000Sími 462 3500
La Vie en Rose kl. 5:20 - 8 - 10:40 B.i. 12 ára
Lions For Lambs kl. 6 - 8 - 10 B.i. 12 ára
This is England kl. 6 - 8 - 10
Superbad kl. 5:30 - 8 B.i. 12 ára
Good Luck Chuck kl. 10:30 B.i. 14 ára
* Gildir á allar
sýningar merktar
með rauðu
450
KRÓNUR
Í BÍÓ
*
Sími 551 9000
Ve
rð a
ðeins
600 kr
.
Með íslensku tali
Gríðarstór
gamanmynd
með litlum
kúlum!
Stórkostleg ævintýra-
mynd í anda Eragon.
eeee
- H.J. Mbl.
eeee
- T.S.K., 24 Stundir
BÚÐU ÞIG UNDIR STRÍÐ
Sannkölluð stórmynd
með mögnuðum leikurum.
HANN BEIÐ ALLT SITT LÍF EFTIR ÞEIRRI RÉTTU...
VERST AÐ HANN BEIÐ EKKI VIKU LENGUR
FRÁBÆR GRÍNMYND FRÁ LEIKSTJÓRUM
"THERE´S SOMETHING ABOUT MARY"
- Kauptu bíómiðann á netinu -
Stórskemmtileg rómantísk gamanmynd
um ungan mann sem er sannfærður
um að hann muni aldrei verða
ástfanginn aftur!
MEÐ JASON BIGGS ÚR AMERICAN PIE MYNDUNUM
OG ISLA FISHER ÚR WEDDING CRASHERS
ATH: EKKERT HLÉ OG MIÐASÖLU LÝKUR ÞEGAR SÝNING MYNDAR HEFST
Vönduð frönsk stórmynd, sem er að fara sigurför
um heiminn, um litskrúðuga ævi Edith Piaf.
SVONA ER ENGLAND
HEPPNI CHUCK
ROUGE LEYNIMORÐINGI
ÁSTARSORG
MYRKRIÐ RÍS
BORÐTENNISBULL
LÍF RÓSARINNAR: SAGA EDITH PIAF
LJÓN FYRIR LÖMB
eeee
- V.J.V., Topp5.is
eeee
- Empire