Morgunblaðið - 07.12.2007, Side 10
10 FÖSTUDAGUR 7. DESEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Nokkur umræða hefur skapastum það hvernig komið sé fyrir
íslenskunni, meðal annars í ljósi
þess að enskan er orðin vinnumál í
sumum íslenskum fyrirtækjum á al-
þjóðamarkaði, ummæla varafor-
manns Samfylkingarinnar um tví-
tyngda stjórnsýslu og vaxandi
kennslu á ensku í háskólum.
Sumir segja aðþetta skipti
engu máli, tím-
anum fleygi fram
og það sé aft-
urhald að ætla
sér að stöðva
þróunina eða
snúa henni við.
Aðrir hafa
áhyggjur af því að fyrir íslenskunni
liggi að verða aðeins til heimabrúks
á tyllidögum. Til þess að tungu-
málið endurnýist og haldist lifandi
þurfi stöðuga glímu við ný og ný
viðfangsefni.
En svo eru þeir sem halda þvífram að tungumálið sé í stöð-
ugri endurnýjun og hrista höfuðið
yfir umræðunni. Og vissulega má
velta fyrir sér hvort frumkvæðið
búi ekki í þjóðinni sjálfri og verði
ekki af henni tekið. Í krókum og
kimum samfélagsins er fólk að
smíða orð, eða þau verða til sjálf-
krafa, til að takast á við breytingar
í umhverfi sínu. Í klifuríþróttinni
verður til orðið spönn fyrir línu-
lengd, í umfjöllun um tónlist verður
til orðið tökulag yfir „cover“-lag, í
þýðingu á þáttunum Beðmál í borg-
inni skýtur upp kollinum orðið
völsabrók og orðið að blogga fellur
að íslenskri málvenju.
Hver kynslóð á sinn sérstakaorðaforða, sem geta verið slett-
ur, en fylgja framþróun og tísku og
hverfa með næstu kynslóð á eftir.
Þannig var Vögguvísa eftir Elías
Mar, sem var með slangurorðum á
stríðsárunum, síðar gefin út með
orðskýringum. Og fyrir einni öld
var „fix“ að klæðast eftir nýjustu
tísku, sem skopast var að í revíu og
búin til kvenpersónan fröken Fix.
STAKSTEINAR
Beðmál í borginni.
Þjóðin og tungumálið
!
"
#$
%&'
(
)
*(!
+ ,-
.
&
/
0
+
-
!!
!!
!! " "
#$
!! " "
#$
12
1
3
42-2
*
-
5
1
%
6!(78
9 4
$
(
%
&
# "" !!$
'$$
!
!
:
3'45 ;4
;*<5= >?
*@./?<5= >?
,5A0@ ).?
(%
(
%( &(%%
%( &( ( (
%( %( (
(%
*$BC """"
!
*!
$$B *!
)
*+"
"*"
,
<2
<! <2
<! <2
)
+! "-
!$
."/ !0
D -
62
"
#$! !%
#
!
B
%!
!
&
'!!(()
"&*
+
/
#$
!+#!
,
- !
1' "" 22
! ""3
"-
!$
Þetta var nú bara svona hefðbundin leit, Solla mín, vélin merkt vinum okkar og ekkert
sem benti til að hún hafi verið notuð til fangaflugs.
VEÐUR
SIGMUND
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://morgunbladid.blog.is/
Ágúst H. Bjarnason | 5. desember
Refur í Garðabæ
Ég varð heldur betur
hissa í þegar refur í vetr-
arbúningi hljóp yfir göt-
una fyrir framan bílinn í
morgun. … Ég var að
aka klukkan hálftíu suð-
ur eftir Reykjanesbraut-
inni í Garðabæ. Um hundrað metra
fyrir norðan brúna á móts við Ikea rölti
refur í austurátt þvert yfir veginn.
… Megum við búast við að hann fari í
auknum mæli að sækja í þéttbýli til
að leita sér að æti? … Hafa fleiri orð-
ið varir við ref á höfuðborgarsvæðinu?
Meira: agbjarn.blog.is
Sveinn Ingi Lýðsson | 5. desember
Eru jólin í boði
Euro og Visa?
Stundum kvíði ég jól-
unum. Það stafar fyrst
og fremst af því gegnd-
arlausa kapphlaupi
sem hefst yfirleitt um
miðjan nóvember og lýk-
ur þegar við gúffum í okkur hamborg-
arhrygginn á aðfangadagskvöld. … Á
jólum gefum við hvert öðru gjafir. Eru
þær gjafir bara freistingar í skraut-
pappír eða eitthvað annað og meira?
Okkar er valið …
Meira: sveinni.blog.is
Davíð Logi Sigurðsson | 6. desember
Hinn heilagi kaleikur
Getur það verið að
Morgan Spurlock – sá
er gerði heimildarmynd-
ina SuperSize Me um
offituvandann í USA og
McDonalds-menn-
inguna – hafi haft upp á
Osama bin Laden, jafnvel tekið viðtal
við hann … Snilldarleg auglýsinga-
herferð í öllu falli vegna nýrrar mynd-
ar, Where in the World is Osama bin
Laden? Ekki síst þegar taka má
svona kvót úr samhengi: „We’ve def-
initely got the Holy Grail.“
Meira: davidlogi.blog.is
Ásta R. Jóhannesdóttir | 6. desember
Kjör lífeyrisþega
bætt verulega
Í gær voru kynntar ráð-
stafanir ríkisstjórn-
arinnar í þágu aldraðra
og öryrkja sem lögfestar
verða eftir áramót.
Þetta er annað skrefið
sem tekið er í að styrkja velferðarkerfi
okkar eins og flokkarnir lofuðu fyrir
kosningar. Formenn stjórnarflokk-
anna, þau Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
og Geir H. Haarde, eiga hrós skilið fyr-
ir að hafa gengið svo vasklega fram í
þessum málum.
Stjórnarflokkarnir voru mjög sam-
stiga í því að þessi velferðarmál,
kjarabætur til lífeyrisþega og málefni
barna væru forgangsmál.
Á vorþinginu var samþykkt aðgerð-
aráætlun ríkisstjórnarinnar í mál-
efnum barna og ungmenna sem þeg-
ar er farið að vinna eftir í
Félagsmálaráðuneytinu og nú voru
kynntar ráðstafanir í þágu aldraðra og
öryrkja. … Gripið verður til sérstakra
aðgerða til að draga úr of- og van-
greiðslum tryggingabóta, nokkuð sem
hefur komið illa við marga lífeyrisþega
sem hafa fengið kröfur um endur-
greiðslu hárra fjárhæða frá Trygg-
ingastofnun aftur í tímann, oft ef
tekjur þeirra hafa farið örlítið yfir
ákveðin viðmiðunarmörk.
Ríkissjóður mun einnig tryggja að
ellilífeyrisþegar fái að lágmarki 25
þúsund krónur á mánuði frá lífeyr-
issjóði frá 1. júlí 2008 eins og lofað
er í stjórnarsáttmálanum.
Öryrkjum verða tryggðar sambæri-
legar kjarabætur en útfærslur verða
undirbúnar í tengslum við starf fram-
kvæmdanefndar um örorkumat og
starfsendurhæfingu.
Þann 1. janúar 2009 verður afnum-
in skerðing lífeyrisgreiðslna vegna
innlausnar séreignarsparnaðar. Það
hefur verið mikið óréttlæti hvernig
séreignarsparnaður hefur að litlu orð-
ið vegna tekjutenginga í almanna-
tryggingunum. Ekki er unnt að breyta
þessu fyrr en eftir ár vegna skorts á
upplýsingum og af tæknilegum
ástæðum. Ég hvet því eigendur slíks
sparnaðar að bíða í rúmt ár með að
taka hann út, – eða þar til breytingin
verður að lögum um þarnæstu ára-
mót. Þessi breyting er mikið réttlæt-
ismál eins og reyndar allar þær breyt-
ingar sem nú eru boðaðar.
Lífeyrisþegar hljóta að fagna þess-
um tíðindum.
Meira: astar.blog.is
BLOG.IS
! "#$##"%$##
&'! "#$##"($##
! "#!$ %&!$
''#$ (! !$
) %&! &* (
+,"-$ %&!
.$ + #/0 !$&
( ! "#!$ %&!
$1
2!-3($4
$ (! &($ &* 56*7
/0 8$ + !"$ &* *9997
.:&$ ##;"7 3$ 0 ! "7 &* 9997
'8$ + &* 5* (