Morgunblaðið - 07.12.2007, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 07.12.2007, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. DESEMBER 2007 23 AUSTURLAND SENDUM Í PÓSTKRÖFU www.simnet.is/heilsuhorn Glerártorgi, Akureyri, sími 462 1889, fæst m.a. í Lífsins Lind í Hagkaupum, Gjafir jarðar Ingólfsstræti 2, Maður Lifandi Borgartúni 24, Maður Lifandi Hæðarsmára 6, Lyfja, heilsuvörudeild, Selfossi, Yggdrasil Skólavörðustíg 16 og Fjarðarkaupum, Lyfjaval Hæðasmára og Þönglabakka, Krónan Mosfellsbæ Nóatún Hafnarfirði Í dagsins önn Náttúrulegt B-vítamín ásamt magnesíum og C-vítamíni í jurtabelgjum LANDIÐ sauðfjárbændur í sýslunni hefur Sigurbjörg Þórunn Jónsdóttir í Litladal ávallt gert. Fern verðlaun voru veitt á sviði nautgriparæktar og komu þar við sögu ábúendur á Torfalæk II fyrir að eiga afurðamestu kúna og Auð- ólfsstöðum fyrir að eiga fallegustu kúna. Brúsastaðir lögðu inn mestar afurðir og Brandaskarðsbóndinn lagði inn þyngsta nautgripinn. Fimm viðurkenningar voru veitt- ar af hálfu sauðfjárbænda og hlutu ábúendur á Akri verðlaun fyrir gimbrahjörð og á Hæli fyrir að eiga fallegasta lambhrútinn sem ber nafnið 100 og er svartur á lit. For- sæludalur fékk viðurkenningu fyrir Eftir Jón Sigurðsson Blönduós | Bændur og félagar í hestamannafélaginu Neista í A– Húnavatnssýslu fjölmenntu til uppskeruhátíðar sinnar um helgina í félagsheimilinu á Blönduósi. Tvíeykið „Hundur í óskilum“ sá um skemmtiatriði og veislustjórn en Potturinn og pannan um matföng á hátíðinni. Eins og venja er á svona hátíðum eru veittar viðurkenningar fyrir ýmis afrek á landbúnaðarsvið- inu. Svartir sauðir sigruðu, fallegar kýr, kindur, hestar og hirðar þeirra hlutu viðurkenningar. Verðlaun voru með ýmsu móti og er gaman að geta þess að verðlaunagripi fyrir að eiga verðmætasta lambið, reynd- ar er eigandi þessa lambs ung stúlka, Arndís Þórudóttir, barna- barn ábúenda. Litlidalur átti besta hrútinn í afkvæmarannsókn og Grund fékk verðlaun fyrir mestu framfarir hvað varðar kjötmat á milli ára. Hrossin voru ekki undanskilin á hátíð þessari og veittar viðurkenn- ingar til knapa sem og fyrir árang- ur hrossa í hinum ýmsu aldurs- flokkum. Sunnukvistir á Skaga- strönd var valið Hrossaræktunarbú sýslunnar. Félagar úr hestamanna- félaginu Neista völdu úr sínum röð- um besta knapann og þann sem vel vann fyrir félagið á árinu. Morgunblaðið/Jón Sigurðsson Kúabændur Afhent voru verðlaun fyrir nautgriparækt, sauðfjárrækt og hrossarækt á uppskeruhátíð bænda og hestamanna í Austur-Húnavatnssýslu. Hér eru fulltrúar kúabænda hlaðnir verðlaunum. Verðlauna kýr, kindur og hesta og hirða þeirra Eftir Hafþór Hreiðarsson Húsavík | Vímuvarnarsamningur hefur verið gerður á milli Íþrótta- félagsins Völsungs, knattspyrnu- iðkenda á vegum félagsins og for- eldra þeirra. Um er að ræða alls um 40 drengi og stúlkur sem fædd eru á árunum 1993 og 1994. Að sögn Lindu Baldursdóttur, formanns Völsungs, heita þessir ungu knattspyrnuiðkendur því að halda sig frá öllum vímugjöfum fram yfir keppnisferð sem stefnt er að fara í til útlanda sumarið 2009. „Auðvitað er það von okkar sem komum að þessum samningi að hann verði til þess að seinka til muna notkun barnanna okkar á vímugjöfum, hvaða nafni sem þeir nefnast,“ segir Linda og bætir við að þetta hafa gefið mjög góða raun. Samið um vímuvarnir Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson Stemmning Þjálfararnir Unnar Þór Garðarsson og Áslaug Guðmunds- dóttir ásamt Arnþóri Hermannssyni og Sólveigu Aðalsteinsdóttur. Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir Rýni Rannsóknaniðurstöður um samfélagsleg áhrif virkjunar og stóriðju á Austurlandi kynntar, Hjalti Jóhannesson, Háskólanum á Akureyri, fremstur. Eftir Steinunni Ásmundsdóttur steinunn@mbl.is ÁHRIF af virkjun og stóriðju eru mjög mikil á miðhluta Austurlands og íbúar þar telja tekjur sínar og möguleika síns svæðis meiri en íbúar höfuðborgarsvæðis og nærsvæða þar. Íbúar á sunnanverðu Austur- landi telja svæðið hafa fengið minna í sinn hlut af jákvæðum áhrifum en bú- ist var við. Á Norðausturlandi virðast skoðanir fólks á áhrifunum jákvæðar og má e.t.v. rekja það til væntinga um álver á Húsavík. Áhrif af virkjun og stóriðju dreifast á fremur lítið svæði og vekur spurningar um landfræði- legar aðstæður á Austurlandi. Þetta kom fram á fundi nú í vik- unni, þar sem kynntar voru niður- stöður rannsóknarinnar Úrtakskönn- un meðal almennings vorið 2007, sem ætlað er að varpa ljósi á hvaða breyt- ingar kunna að hafa átt sér stað í samfélaginu samhliða stóriðjufram- kvæmdunum á Austurlandi og gerð var á landsvísu. Er þetta hluti rann- sóknarverkefnis sem stendur yfir fram til 2009. Fram úr höfuðborgarsvæðinu Hjalti Jóhannesson, sérfræðingur við Rannsóknastofnun Háskólans á Akureyri, segir upplýsingar um nið- ursveifluna á sunnanverðu Austur- landi eitthvað sem stjórnvöld ættu að grípa á lofti og athuga hvað þar gæti betur farið. „Við sjáum mikla bjartsýni á mið- hluta Austurlands og þar er ánægja með flestöll búsetuskilyrði. T.d. telja 49% svarenda þar að framkvæmdirn- ar hafi bætt fjárhagsstöðuna og þar ríkir mest ánægja með framboð starfa á landinu ef undan er skilið höfuðborgarsvæðið. Á Miðaustur- landi eru menn ánægðari með at- vinnutekjur sínar en íbúar höfuð- borgarsvæðis. Á aðaláhrifasvæði framkvæmdanna er þó athyglisvert að sjá áhyggjur af ruðningsáhrifum, þ.e. búferlaflutningum af viðkomandi svæði og áhrif á hefðbundnar at- vinnugreinar,“ segir Hjalti og telur einnig skoðunarefni að íbúum á Mið- austurlandi finnst heilsugæsla ekki standa undir væntingum, líklega af álagi á heilbrigðiskerfið vegna mik- illar fjölgunar fólks. Könnunin náði til landsins alls og m.a. áhrifasvæðis Reykjavíkur, þ.e. úr 45 mínútna akst- ursvegalengd til borgarinnar. Þegar spurt var hvort viðkomandi hefði mikla eða litla trú á jákvæðri þróun síns byggðarlags kemur á óvart að íbúar á Miðausturlandi hafa meiri trú á sínu svæði en íbúar áhrifasvæðis höfuðborgarinnar. Hjalti segir þær upplýsingar sláandi. Rannsóknin bendir til að áhrif virkjunar og stór- iðju hafi áhrif á tiltölulega þröngt svæði og bæta verði samgöngukerfið á Austurlandi til að ná meiri dreif- ingu á jákvæðum áhrifum fram- kvæmdanna. Jákvæð áhrif bundin miðhluta Austurlands Í HNOTSKURN »Virkjunar- og stóriðju-framkvæmdirnar á Austurlandi hafa mikil jákvæð áhrif hjá íbúum á miðhluta Austurlands. »Jákvæð áhrif af fram-kvæmdunum virðast ekki ná til suðurhluta Austurlands. »Styrking samgöngukerfisAusturlands virðist nauð- synleg til að jákvæð áhrif framkvæmdanna komi fleiri byggðarlögum til góða. Eftir Steinunni Ásmundsdóttur steinunn@mbl.is „ÉG SÉ ekki að fjármagn (til heil- brigðismála á Austurlandi) hafi verið skorið niður, það er ekki raunin samkvæmt mínum upplýs- ingum, en menn hér telja þörf fyrir aukið fjármagn því svæðið sé í vexti,“ segir Guðlaugur Þór Þórð- arson heilbrigðisráðherra. Hann var á Austurlandi í gær og skoðaði aðstöðu Heilbrigðisstofnunar Aust- urlands (HSA) á Fljótsdalshéraði og í Fjarðabyggð. Jafnframt undirrit- aði hann framhaldssamning um styrk til námskeiðahalds á Austur- landi í hugrænni atferlismeðferð. Stórfelldur fjárhagsvandi HSA var ræddur við ráðherrann, sem segir rekstrarerfiðleika heilbrigðisstofn- ana á landsbyggðinni verða skoð- aða í samhengi. Nú sé verið að at- huga rekstrarþætti heilbrigðisþjónustunnar yfir landið allt og það muni taka tíma. 227 milljónir króna vantar í rekstur HSA í ár og mikill niðurskurður þjónustu óumflýjanlegur verði ekki breyting á fjárhagsstöðu. „Það mun hafa umtalsverðar breytingar í för með sér að kostn- aðargreina þjónustuna meira og skilja á milli kaupenda- og seljenda- hlutverka. Ég tel líklegt að í fram- tíðinni munum við sjá þróun í þá átt að sjúkrahús m.a. á landsbyggðinni sérhæfi sig á ákveðnum sviðum og nýti sér þau sóknarfæri sem þau hafa,“ segir Guðlaugur Þór. Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir Kætast Halla Eiríksdóttir hjúkrunarstjóri og Guðlaugur Þór Þórðarson heilbrigðisráðherra undirrita samning um hugræna atferlismeðferð. Ekki niðurskurður
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.