Morgunblaðið - 07.12.2007, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 07.12.2007, Blaðsíða 30
30 FÖSTUDAGUR 7. DESEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ Eftir Steingrím Sigurgeirsson sts@mbl.is Það er ítalskt þema þessavikuna þótt fyrstu víninséu reyndar frá AchavalFerrer, sem að margra mati (og ég myndi skipa mér í þann hóp) er besta vínhús Argent- ínu. Það er mikill árangur, ekki síst í ljósi þess að ekki er áratugur liðinn frá því að fyrirtækið var stofnað af fjórum vinum, Argent- ínumönnunum Santiago Achaval, Manuel Ferrer Minetti og Ítöl- unum Roberto Cipresso og Tiziano Siviero, árið 1998. Þeir byrjuðu smátt í Mendoza með fjóra hekt- ara af 80 ára gömlum Malbec- vínvið en ráða nú yfir þremur vín- ekrum upp á samtals 49 hektara. Áherslan er enn á Malbec og því- líkan Malbec. Þetta eru vín í al- gjörum heimsklassa, enda mega þau vera það miðað við verð. Þess má geta að þeir Cipresso og Si- viero eru einnig mennirnir á bak við vínhúsið La Fioritta í (Brunello di) Montalcino í Toskana. Achaval Ferrer Quimera 2003 Ítalskir og argentínskir kraftaboltar Morgunblaðið/Sverrir Engar kristilegar hátíðirkoma fyrir í Sautjándan-um, hvorki jól né páskar,og það meira að segja þótt sagan gerist á tímabilinu 17. mars til 17. júní. Á þeim tíma kem- ur ýmislegt spennandi fyrir, brúð- kaup er haldið, fólk er svikið og konu rænt enda er þetta glæpasaga eða öllu heldur spennusaga, reynd- ar án morðs. Framinn er glæpur á gráu svæði. „Það eru engar blóð- slettur í bókinni. Ég er meira að velta fyrir mér hversu langt fólk er tilbúið að ganga, til góðs eða ills. Og kikkinu sem það gefur fólki að stíga út úr þægindum hversdags- ins,“ segir Lóa. Matarvenjur sögu- persóna og höfundar Svolítið er þarna komið inn á matarvenjur vinkvennanna sem sagan snýst um. „Aðalpersónan Ylfa hefur svipaðan matarsmekk og ég,“ segir drottning ruslfæðisins, eins og Lóa er stundum kölluð. „Hún myndi ekki flíka því en hefur ánægju af að fá sér hamborg- arajukk ólíkt Lindu Dögg, vinkonu sinni, sem er mikill matgæðingur og bakar sjálfa brúðkaupstertuna í lok bókar.“ Snúum okkur að lífi rithöfund- anna tveggja. „Fyrir tveimur árum ákváðum við að koma okkur upp hefð til að slá á stressið á aðfanga- dag. Við fórum í göngutúr um Þing- holtin og niður að Tjörn fyrir há- degi á aðfangadag og komum heim í nýbakað brauð og kakó. Ég var á fréttavakt á aðfangadag í fyrra og verð aftur í ár, svo það er víst varla hægt að kalla þetta hefð ennþá!“ Lóa segir að þau séu alltaf með sama jólamatinn. „Það er ég sem ræð honum, hamborgarhrygg a la Skúli Hansen úr Þjóðviljanum árið 1978, minnir mig. Þegar sósan hans Skúla er komin í pottinn eru jólin komin. Fengi Sigfús að ráða værum við líklega með villibráð en hann veit hvað „Skúli“ skiptir mig miklu máli.“ Sigfúsarkryddið og marenstertan Sigfús er ættaður frá Sandi í Að- aldal og þau Lóa eru þar með að- setur á sumrin, enda Sigfús önnum kafinn við „kryddgerð“. Hann ræktar blóðberg sem er önnur tveggja kryddtegunda sem hann framleiðir. Hin er Villikrydd, sem er blanda af ýmsum íslenskum kryddjurtum. „Við notum kryddið mikið á villi- bráð, kjúklinga, fisk og í brauð. Ég baka oft brauð fyrir norðan í sum- arfríinu og nota þá blóðbergið mitt.“ Lóa býður upp á kjúklinga- bringu með kryddi Sigfúsar, Villik- ryddsbrauð, tortilla snittur og loks marenstertu. „Þetta er uppáhaldstertan mín, sem ég lagði ekki í að baka fyrr en fyrir tveimur til þremur árum. Þá ákvað ég að herða mig upp og próf- aði hana og hún næstum lukkaðist! Uppskriftin er upphaflega komin Rithöfundajól Þau Sigfús Bjarnason og Lóa Pind Aldísardóttir fara gjarnan í göngu á aðfangadag. Hefur svipaðan matarsmekk og Í Þingholtunum búa tveir rithöfundar. Annar þeirra er Sigfús Bjartmarsson sem hefur þegar skapað sér frægð og gefið út margar bækur. Hinn er Lóa Pind Aldísdardóttir sem gefur nú út sína fyrstu bók, Sautjándann. Margt bendir til þess að hún eigi framtíðina fyrir sér sem rithöfundur en dagsdaglega er hún fréttamaður á Stöð 2. Lóa bauð Fríðu Björnsdóttur að bragða á léttum málsverði sem hæfir vel í aðdraganda jólanna, í hádegi á aðfangadag eða í annan tíma. Blóðbergskjúklingur Blóðbergið í réttinum er úr „kryddgerð“ Sigfúsar. Marengsterta Uppskriftin kom upphaflega frá föðurömmu Lóu. Morgunblaðið/Sverrir matur vín
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.