Morgunblaðið - 07.12.2007, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. DESEMBER 2007 19
MENNING
x13
GPS Garmin
Forerunner 305
Fullt verð 29.990 kr.
Safnkortshafar borga aðeins
16.990 kr.
auk 1000 punkta
Frábært æfingatæki. Forerunner æfingatölvan er
hönnuð jafnt fyrir byrjendur og atvinnumenn. Tölvan
fylgist stöðugt með púlsinum, hraðanum, vega-
lengdinni og kaloríubrennslunni. Frábær jólagjöf.
Tilboðið gildir til 31.01. 2008
eða á meðan birgðir endast.
Safnkortstilboðin fást á þjónustustöðvum N1
og í verslun N1 Bíldshöfða 9.
Slökkvilið
Höfuðborgarsvæðisins
Gætið að því að skraut
s.s. borðar eða greinar séu
aldrei of nærri kertaloganum
og að skrautið sé staðsett
neðan við kerti þannig að
kertaloginn nái ekki til þess
jafnvel þegar kertið hefur
brunnið til hálfs
Munið að
slökkva á
kertunum
i
KAMMERKÓRINN Carmina var
stofnaður árið 2004 með það fyrir
augum að flytja kórtónlist frá end-
urreisnartímanum. Listrænn stjórn-
andi kórsins, Árni Heimir Ingólfsson
hefur verið mikilvæg vítamínsprauta
í íslensku tónlistarlífi undanfarin ár
sem tónlistarfræðingur, kennari og
stjórnandi. Hann er einn afkasta-
mesti fræðimaður nútímans á sviði
íslenskrar tónlistar og hefur átt stór-
an þátt í þeirri vitundarvakningu
sem orðið hefur undanfarin ár um
mikilvægi þess að varðveita íslensk-
an tónlistararf og rannsaka hann af
nákvæmni.
Lögin á þessum hljómdiski eru öll
upp úr hinu merka söngvasafni Mel-
odía frá 17. öld. Flestir textarnir eru
trúarlegs eðlis, ýmist sálmar, kvæði
eða kvæðaþýðingar en einnig bregð-
ur fyrir veraldlegum viðfangsefnum
eins og ást og drykkju. Sum eru
sungin af einum söngvara án undir-
leiks en mörg eru sett í búning sem
hæfir tímabilinu, ýmist í útsetn-
ingum sem fylgdu lögunum eða líkja
eftir fornum stíl og eins er notast við
gömul hljóðfæri við flutninginn.
Eins og segir í inngangi Árna Heim-
is er vitað til þess að klavikord og
kammerorgel hafi verið til hér á
landi um það leyti sem melódía var
rituð og er því kammerorgel eða
semball í sumum lögunum. Einnig er
leikið á strengi og lútu á plötunni
sem valin voru vegna þýðs hljóms
þeirra og ljá þau diskinum án tví-
mæla aukna fegurð. Þær útsetn-
ingar sem voru gerðar sérstaklega
fyrir þessa hljóðritun eru mjög sann-
færandi og trúar þeim stíl sem þeim
er ætlað að líkja eftir. Einfaldleikinn
er í fyrirrúmi og engu ofaukið.
Hvað einsönginn á plötunni snert-
ir er mjög erfitt að gera upp á milli
söngvaranna, þar sem þeir eru allir
svo frábærlega góðir og trúir við-
fangsefninu. Samsöngurinn er einn-
ig með allra besta móti, tær og
hreinn. Augljóst er að algerrar fag-
mennsku hefur verið gætt við gerð
þessa hljómdisks, allt frá lagavali og
flutningi til skrifaðs texta og ytri
umgjarðar.
Fínleiki, nákvæmni, alúð og allt-
umvefjandi fegurð einkenna flutn-
inginn á þessum hrífandi tónum og
textum og því ætti þetta stórkost-
lega en þó látlausa listaverk ekki að
skilja neinn eftir ósnortinn.
Tímalaus fegurð endurvakin
TÓNLIST
Smekkleysa
Söngvarar kammerkórs Carmina flytja
lög úr sönghandritinu Melodía ýmist
sem einsöngvarar eða í ýmsum
samsetningum undir stjórn
Árna Heimis Ingólfssonar.
Kammerkórinn Carmina – Melodía
Ólöf Helga Einarsdóttir
SIGRÚN Eldjárn hlaut í gærkvöldi
Dimmalimmverðlaunin fyrir bestu
myndskreytingu í barnabók á
þessu ári. Verðlaunin hlaut hún
fyrir myndirnar við ljóð Þórarins
bróður síns í bókinni Gælur, fælur
og þvælur. Sigrún er stödd í Ed-
inborg og komst því ekki á verð-
launaafhendinguna, en var hæst-
ánægð með verðlaunin. „Þetta er
mikill heiður og hvatning til að
halda áfram á sömu braut.“
„Ég er stanslaust með bækur í
bígerð,“ segir Sigrún. „Ég er með
ýmsar hugmyndir og á eftir að
gera alveg heilan helling. Það er
mjög skemmtilegt og mikilvægt
starf að gera bækur fyrir krakka.
Þetta eru lesendur frantíðarinnar
og það þarf að ala þau upp á ein-
hverju almennilegu.“
Hún segir ekki vanþörf á að
hvetja höfunda barnaefnis til dáða.
„Stundum finnst okkur barnabóka-
höfundum að við séum ekki eins
mikils virt og þau sem eru að
skrifa fyrir fullorðna. Okkur finnst
við náttúrulega ekkert síður merki-
leg.“
Menningarmiðstöðin Gerðuberg
stendur að verðlaununum, auk
Myndstefs og Pennans. Í Gerðu-
bergi stendur nú yfir sýning sem
byggist á myndskreytingum frá 30
ára ferli Sigrúnar.
Gælurnar best myndskreyttar
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Heiður Grímur Hjörleifsson, sonur Sigrúnar, tók við verðlaununum fyrir
hennar hönd. Hér er hann ásamt Dimmulimm og Aðalsteini Ingólfssyni.