Morgunblaðið - 07.12.2007, Qupperneq 12
12 FÖSTUDAGUR 7. DESEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
ÚR VERINU
ÞETTA HELST ...
Óróleiki á þingi
Þingfundi gærdagsins lauk með at-
kvæðagreiðslu um fjáraukalög fyrir
árið 2007 og voru þau samþykkt,
að undangegnum ítarlegum um-
ræðum. Talsverður óróleiki hefur
verið í Alþingishúsinu undanfarið
enda mikið um að vera síðustu
daga fyrir jólafrí. Þingmenn geta
þurft að vera stöðugt í starthol-
unum enda alls óvíst hvenær mál
sem þeir vilja tjá sig um komast á
dagskrá. Það fer eftir því hversu
langan tíma tekur að afgreiða önnur
mál og eins getur það gerst að áætl-
uðum löngum umræðum er frestað
til að önnur mál komist að.
Hljóp á þing
Þannig fór með Steingrím J. Sigfús-
son í gær að hann tók allt í einu eftir
því að mál sem hann hafði skrifað
undir nefndarálit um með fyrirvara
var á dagskrá. Steingrímur hljóp frá
skrifstofu sinni í Vonarstræti en
kom engu að síður of seint og um-
ræðum var lokið.
Dýr loforð
Jón Magnússon
er ekki sáttur
með vinnubrögð
ráðherra og að
þeir hafi komið
fram með loforð
um mikil útgjöld
á næstu tveimur
árum en þess
hafi ekki verið
getið í nýafstaðinni umræðu um
fjárlög fyrir næsta ár. „Það er dóna-
skapur við Alþingi Íslendinga að
taka málið ekki fyrst upp hér,“ sagði
Jón í gær og minnti á fjárveiting-
arvald Alþingis.
Óskoðuð ökutæki
Ríflega 22 þúsund óskoðuð öku-
tæki eru skráð á Íslandi. Í ein-
hverjum tilvikum gæti þó verið um
ökutæki sem hafa verið tekin úr um-
ferð en ekki afskráð að ræða. Þetta
kom fram í svari samgönguráðherra
við fyrirspurn Álfheiðar Ingadóttur í
fyrradag. Jafnframt kom fram að
ökutækjaeign á Íslandi hefur aukist
mjög mikið eða úr tæplega 176
þúsundum í 291 þúsund á tíu árum.
Dagskrá þingsins
Þingfundur hefst kl. 10.30 í dag og
m.a. mælir menntamálaráðherra
fyrir frumvörpum til breytinga á lög-
um um leikskóla, grunnskóla og
framhaldsskóla.
Jón Magnússon að frá upphafi hefði verið ljóst að
eignirnar yrðu ekki seldar á al-
mennum markaði og þ.a.l. hefði ekki
verið hægt að ætlast til þess að fá
markaðsverð fyrir þær. „Ef eignirn-
ar hefðu verið seldar á markaðs-
verði á opnum markaði hefði jafn-
framt orðið verðfall á
fasteignamarkaði á Suðurnesjum
vegna offramboðs eigna,“ sagði Árni
Páll og áréttaði að sveitarstjórnir á
Suðurnesjum hefðu lagt áherslu á
að eignirnar yrðu ekki seldar á al-
mennum markaði.
Af hverju ekki ohf.?
Grétar Mar Jónsson, þingmaður
Frjálslynda flokksins, spurði af
hverju félagið hefði ekki verið op-
inbert hlutafélag og þ.a.l. með upp-
lýsingaskyldu. „Ljóst er að fjöldi
einstaklinga og fyrirtækja hætti við
að gera tilboð í eignir vegna mjög
óljósra þátta í skipulagsmálum,“
sagði Grétar og dró í efa að það
gengi upp að selja eignir án útboðs
og jafnvel auglýsinga á Evrópska
efnahagssvæðinu.
Enginn maðkur í
mysunni í Keflavík
Sjálfstæðismenn sagðir sitja allt í kringum borðið
Morgunblaðið/Ómar
Deilt um Miðnesheiði Stjórnarandstæðingar halda því fram að óeðlilega
hafi verið staðið að sölu eigna í Keflavík en Geir H. Haarde vísar því á bug.
Eftir Höllu Gunnarsdóttir
halla@mbl.is
„ÉG LEYFI mér að fullyrða að það
er hvergi maðkur í þessari mysu,“
sagði Geir H. Haarde forsætisráð-
herra þegar hann flutti Alþingi
munnlega skýrslu um starfsemi
Þróunarfélags Keflavíkurflugvallar
í gær og blés á fullyrðingar stjórn-
arandstöðuþingmanna um að rang-
lega hefði verið staðið að sölu eigna
á gamla varnarliðssvæðinu.
Geir sagði að tekin hefði verið
sérstök ákvörðun um að fela ekki
Ríkiskaupum sölu eignanna og því
væri hrein fásinna að halda því fram
að gengið hefði verið framhjá fyr-
irtækinu í ferlinu. Ekki hefði verið
hægt að birta kauptilboð eða kaup-
samninga þar sem taka þyrfti tillit
til viðskiptahagsmuna viðsemjenda.
Þingmönnum stæði þó til boða að
kynna sér þessi gögn.
Geir sagði nauðsynlegt að hafa í
huga að Þróunarfélagið væri ekki
fyrst og fremst hugsað sem fast-
eignafyrirtæki eða söluaðili eigna
heldur sem þróunarfélag sem hefði
það með höndum að þróa svæðið
þannig að nærsamfélagið styrkist.
„Mér þykir afar miður hvernig
þingmenn, einstakir, og aðrir aðilar
hafa fjallað með óábyrgum hætti um
þetta mál. Síðasta ríkisstjórn fékk
sérstaklega vandaða einstaklinga til
að taka sæti í stjórn þessa félags og
þeir hafa unnið alveg ótrúlega gott
starf á mjög stuttum tíma,“ sagði
Geir en stjórnarandstaðan hélt því
fram að ákveðnir Sjálfstæðismenn
hefðu setið „allt í kringum borðið“.
Aftur til Hvamm-Sturlu
„Af því sem ég hef áður lesið þá
þarf ég að fara allt aftur til Hvamm-
Sturlu til að finna annan eins vef
ættartengsla og pólitískra tengsla
og hér er,“ sagði Bjarni Harðarson,
þingmaður Framsóknarflokksins,
og benti m.a. á að bæjarstjóri
Reykjanesbæjar væri í stjórn Þró-
unarfélagsins og stjórnarformaður
Keilis auk þess að eiga persónuleg-
an hlut í báðum félögunum.
Atli Gíslason, þingmaður Vinstri
grænna, tók í sama streng og sagði
að bæjarstjórinn hefði átt að víkja
sæti þegar málið kom upp. Stjórn-
sýslulög gæfu skýr fyrirmæli um
það. „Þessi tengslalisti og gögn sem
ég hef undir höndum eru með ólík-
indum,“ sagði Atli og gagnrýndi
jafnframt að verðið sem fékkst fyrir
allar íbúðirnar hefði verið undir-
verð, aðeins um 14 milljarðar króna
fyrir 1.700 íbúðir.
Árni Páll Árnason, þingmaður
Samfylkingarinnar, sagði hins vegar
Í HNOTSKURN
» Þróunarfélag Keflavíkur-flugvallar var stofnað í
október 2006.
» Tilgangur þess er að leiðaþróun á gamla varnar-
svæðinu í Keflavíkuflugvelli
sem stóð autt eftir að banda-
ríski herinn fór.
» Keilir, miðstöð vísinda,fræða og atvinnulífs er
með starfsemi á svæðinu.
„ÞETTA eru því miður alltof litlar
og götóttar aðgerðir því að fjöl-
margt hefur þróast með þeim hætti
á undanförnum misserum að kjör
aldraðra og öryrkja skerðast en
batna ekki,“ sagði Steingrímur J.
Sigfússon, formaður Vinstri
grænna, um aðgerðir ríkisstjórnar-
innar til að bæta hag aldraðra og
öryrkja á Alþingi í gær en forsætis-
ráðherra greindi þinginu frá að-
gerðunum við upphaf þingfundar.
Guðni Ágústsson, formaður
Framsóknarflokksins, fagnaði
kjarabótunum en óttaðist að enn
væru skildir eftir þeir hópar sem
sárast væru settir. „Ríkisstjórnin
verður svo auðvitað að gá að sér,
því að versti þjófur sem til er, sem
fer beint í veskið, það er verðbólg-
an á Íslandi, það eru háu vextirnir,“
sagði Guðni.
Kristinn H. Gunnarsson, þing-
maður Frjálslynda flokksins, fagn-
aði jafnframt aðgerðunum og sagði
þetta vera áfanga á réttri leið. „En
það þarf að gera betur,“ sagði
Krstinn og vakti athygli á tillögum
Frjálslyndra um viðbótar-
persónuafslátt fyrir lágtekjufólk.
Stjórnarliðar voru hins vegar
með minni fyrirvara þegar þeir
fögnuðu fyrirheitunum. Ellert B.
Schram, þingmaður Samfylkingar,
sagði þetta vera stórt, afdrifaríkt
og ánægjulegt skref og Ásta Möll-
er, þingmaður Sjálfstæðisflokks,
sagði hag lífeyrisþega hafa batnað
og að með þessu væri haldið áfram í
þá átt.
Of litlar
og götóttar
aðgerðir
HEILDARVÍSITALA þorsks, eins
árs og eldri, reyndist 20% lægri í
haustmælingu Hafrannsóknastofn-
unarinnar nú en á sama tíma í fyrra.
Þá benda mælingar til að árgangur-
inn frá 2007 sé slakur og er það í
samræmi við vísbendingar úr stofn-
mælingu rækju á grunnskóð vestan-
lands og norðan frá því í haust.
Við stofnmælingu botnfiska er
landgrunnið rannsakað, allt niður á
1.500 metra dýpi. Rannsóknarskipin
Árni Friðriksson og Bjarni Sæ-
mundsson voru notuð og var togað á
alls 381 stað allt í kringum landið.
Staðfestir breytingar
Niðurstöðurnar sem Hafrann-
sóknastofnunin kynnti til bráða-
birgða í gær eru mikilvægur þáttur
árlegrar úttektar á ástandi nytja-
stofna sem lýkur í maí. Stofnmæl-
ingin gefur svipaða mynd og stofn-
mælingar síðustu ára hvað varðar
magn og útbreiðslu flestra nytja-
stofna. Jóhann Sigurjónsson, for-
stjóri Hafrannsóknastofnunarinnar,
segir að niðurstöðurnar séu því í
samræmi við áætlanir stofnunarinn-
ar frá síðastliðinu vori. Þótt fæðu-
framboð fyrir þorskinn mætti vera
betra sé of snemmt að draga of víð-
tækar ályktanir af því.
Lækkun vísitölu þorsksins gefur
svipaða mynd af þróun þorskstofns-
ins hin síðari ár og stofnmælingin í
mars sl. Lækkunina má rekja til þess
að árgangarnir frá 2001, sem mælst
hafa lélegir eða mjög lélegir, eru að
koma í ríkara mæli inn í stofnmæl-
inguna. Þetta sést vel á lengdardreif-
ingum sem sýna að mun minna er af
fiski á bilinu 35 til 55 sm að lengd en
undanfarin ár. Aldursskiptar vísitöl-
ur benda til þess að árgangurinn frá
2007 sé slakur en nákvæmari mæl-
ing árgangsins fæst í mars nk. Ár-
gangurinn frá 2004 mælist sem fyrr
mjög lélegur.
Meðalþyngd 6 til 8 ára þorsks
mælist nú 10-15% minni en í stofn-
mælingunni 2006 en meðalþyngd
annarra aldurshópa er svipuð. Með-
alþyngd eftir aldri er nú um 30%
lægri en hún var fyrir ellefu árum.
Fæðuathuganir sýndu að mun minni
fæða var í þorskmögum en í fyrra og
raunar sú minnsta frá því mælingar
hófust.
Mikið af ýsu
Heildarvísitala ýsu var há í haust-
leiðangrinum nú líkt og undanfarin
fjögur ár en lækkaði þó um 13% frá
haustmælingunni í fyrra. Lækkun
stofnvísitölu frá fyrra ári má að mati
Hafrannsóknastofnunarinnar eink-
um rekja til þess að minna fékkst af
ýsu af árgöngunum frá 2004 og 2005.
Kemur þetta vel fram í lengdardreif-
ingu ýsunnar sem sýnir að mun
minna er nú af 25 til 35 sm ýsu en
undanfarin ár. Aldursskiptar vísitöl-
ur benda til að árgangurinn frá 2007
sé yfir meðallagi. Holdarfar ýsu var
lélegt á norðursvæði en þó betra en
síðustu ár. Holdarfar ýsu á suður-
svæði versnaði frá fyrra ári en er þó
mun betra en á norðursvæði.
Heildarvísitala grálúðu árið 2007
var svipuð og undanfarin fjögur ár
og ástand stofnsins talið mjög lélegt.
Heildarvísitala djúpkarfa hefur
verið svipuð síðan árið 2002.
Staðfest að þorsk-
árgangurinn er slakur
0
1
CECFFEFF /,# 69
'
(
)
*
+,-*
+,'-
!" #
2
1
CECFFEFF '
(
.
*
+,-*
+,'-
!" #
/,# 69
Ásta R. Jóhannesdóttir 6. desember
Bíða með sparnaðinn
Þann 1. janúar 2009
verður afnumin skerð-
ing lífeyrisgreiðslna
vegna innlausnar sér-
eignasparnaðar. Það
hefur verið mikið órétt-
læti hvernig séreign-
arsparnaður hefur að litlu orðið vegna
tekjutenginga í almannatrygging-
unum. Ekki er unnt að breyta þessu
fyrr en eftir ár vegna skorts á upplýs-
ingum og af tæknilegum ástæðum.
Ég hvet því eigendur slíks sparnaðar
að bíða í rúmt ár með að taka hann út
...
Meira: www.althingi.is/arj